Hoppa yfir valmynd

Nr. 437/2018 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 25. október 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 437/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18080003

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 31. júlí 2018 kærði […], fd. […], ríkisborgari Albaníu (hér eftir kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 16. júlí 2018, um að synja kæranda um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Kærandi sótti um vernd hér á landi ásamt eiginkonu sinni og börnum þeirra.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að honum verði veitt alþjóðleg vernd hér á landi á grundvelli 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá vísar kærandi til 2. mgr. 45. gr. laga um útlendinga en samkvæmt ákvæðinu eiga maki og börn yngri en 18 ára einnig rétt á alþjóðlegri vernd nema sérstakar ástæður mæli því í mót. Til vara krefst kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.         Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi og fjölskylda hans sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi þann 11. júní 2018. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun þann 12. júní 2018 ásamt þáverandi talsmanni sínum. Kærandi afturkallaði umsókn sína þann 13. júní s.á. og fékk kærandi sjö daga til að yfirgefa landið. Kærandi sótti aftur um alþjóðlega vernd þann 20. júní 2018 og kom aftur í viðtal hjá Útlendingastofnun þann 10. júlí 2018 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 16. júlí 2018, synjaði Útlendingastofnun kæranda, um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var ofangreind ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála þann 31. júlí 2018. Kærunefnd barst greinargerð kæranda þann 17. ágúst 2018.

III.       Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að líf hans og fjölskyldu hans sé í hættu í heimaríki þeirra vegna hótana tiltekins valdamikils einstaklings.

Niðurstaða Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi sé ekki flóttamaður og honum skuli synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi skv. ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Kæranda var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.       Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann og fjölskylda hans hafi flúið Albaníu vegna margendurtekinna fjárkúgana sem þau hafi mátt þola af hendi manns að nafni […]. Kærandi kveður fjárkúgunina hafa hafist í febrúar 2015 og hafi kærandi verið neyddur til að taka út háar fjárhæðir í hraðbanka og færa […] og mönnum á hans vegum. Telur kærandi ástæðu þessara kúgana vera þá að hann hafi verið í viðskiptum með tóbak fyrir fyrirtæki í Albaníu og hafi gengið vel. […] hafi fengið veður af því og nýtt sér stöðu sína til að kúga út úr kæranda fé. […] hafi margoft hringt í kæranda og hótað honum og fjölskyldu hans lífláti eða hótað að ræna börnum hans ef hann myndi ekki borga. Kærandi kvað þau ávallt vera hrædd, hann sé alltaf stressaður og hafi fundið fyrir þunglyndi vegna þessa. Þá hafi lögreglan ekki aðhafst í málinu þar sem […] sé valdamikill einstaklingur og fyrrverandi formaður sveitarstjórnar í […].

Kærandi kveður að hann sæti ofsóknum í heimaríki og að grundvallarmannréttindi hans og fjölskyldu hans séu ekki tryggð. Því beri að veita honum alþjóðlega vernd með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í greinargerð kæranda kemur fram að hann telji að spilling sé útbreidd á öllum stigum stjórnkerfis Albaníu. Persónuleg og pólitísk tengsl, lélegir innviðir og ófullnægjandi búnaður og yfirstjórn hafi oft áhrif á löggæslu auk þess sem lélegur aðbúnaður skapi aðstæður fyrir spillingu. Þá kemur fram að þrátt fyrir að töluverður árangur hafi náðst í rannsókn spillingarmála á lægri stigum samfélagsins gefi heimildir það skýrt til kynna að alvarlegri spillingarmál séu ekki rannsökuð af ótta saksóknara við hefndaraðgerðir. Nýlegar heimildir greini að eftirfylgni lögreglu og yfirvalda við saksókn sé enn mjög ábótavant, þvert á það sem Útlendingastofnun fullyrði. Að auki sé algengt að lögreglumenn í Albaníu óski eftir og þiggi mútugreiðslur gegn því t.d. að skrá ekki niður afbrot sem þeir fái tilkynningu um.

Í greinargerð er vísað í skýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um ástand mála í Albaníu í tengslum við stækkunarstefnu sambandsins. Þar komi m.a. fram að refsileysi og skortur á gegnsæi sé jafnframt mikið vandamál og þrátt fyrir að lög hafi verið samþykkt sem mæli fyrir um harðari refsingar við opinberri spillingu hafi lögin ekki verið innleidd á árangursríkan hátt og spilltir embættismenn komist því áfram undan refsingu. Spilling innan lögreglunnar sé enn fremur viðvarandi og séu mörg dæmi þess að réttindi albanskra borgara séu brotin í samskiptum þeirra við starfsmenn lögreglunnar. Slík spilling birtist m.a. í lögregluofbeldi, misnotkun á valdi, mútuþægni og mismunun á málsmeðferð borgara í persónulegum eða pólitískum tilgangi.

Sú krafa er gerð til vara að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að kæranda verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt ákvæðinu sé heimilt að veita dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki. Í greinargerð með frumvarpi til laganna komi fram að taka verði mið af svipuðum sjónarmiðum og gert sé við mat á öðrum ákvæðum IV. kafla laga um útlendinga, svo sem almennra aðstæðna í heimaríki, þar á meðal hvort grundvallarmannréttindi séu nægilega tryggð. Með erfiðum almennum aðstæðum að öðru leyti sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og sérstaklega tekið sem dæmi viðvarandi mannréttindabrot og sú afstaða að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Þá greini að með erfiðum félagslegum aðstæðum viðkomandi sé vísað til þess að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og bent á að verndarþörf þjóðfélagshópa fari eftir aðstæðum í hverju máli.

Í greinargerð kæranda er bent á að í greinargerð eiginkonu hans og barna sé ítarleg umfjöllun um stöðu þeirra sem rómafólks og þeirrar mismununar sem þau hafi lent í og einkenni líf rómafólks í Albaníu. Þó kærandi teljist ekki sjálfur til rómafólks hafi hann með því að giftast eiginkonu sinni, gengist að mörgu leyti undir sömu örlög og hún. Þá er því velt upp, hvort viljaleysi lögreglunnar til að vernda hann gegn fjárkúgunum þeim sem hann sé að flýja, stafi jafnvel að hluta til af stöðu eiginkonu hans. Þá sé ljóst að verði eiginkonu hans og börnum veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða mæli grundvallarreglurnar um það sem börnum sé fyrir bestu sem og um einingu fjölskyldunnar með því að hann fái slíkt dvalarleyfi einnig.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað albönsku vegabréfi. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi sé albanskur ríkisborgari.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Albaníu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • Albania 2017 Human Rights Report (U.S. Department of State, 3. mars 2018);
  • Freedom in the World 2018 - Albania (Freedom House, 28. maí 2018);
  • Country Reports on Human Rights Practices for 2017 - Albania (U.S. Department of State, 20. apríl 2018);
  • Amnesty International Report 2017/18 – Albania (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • The Albanian State Police (ASP), including its structure and locations; police corruption; police misconduct; procedures to submit a complaint against police and responsiveness to complaints (2011-2015) (Immigration and Refugee Board of Canada, 15. september 2015);
  • The World Factbook. Europe: Albania (Central Intelligence Agency, 19. júní 2018);
  • Operational Guidance Note - Albania (United Kingdom Home Office, 19. september 2014);
  • The Albanian State Police (ASP), including its structure and locations; police corruption; police misconduct; procedures to submit a complaint against police and responsiveness to complaints (2011-2015) (Immigration and Refugee Board of Canada, 15. september 2015);
  • Albania - Country of Origin Information Report (United Kingdom: Home Office, 30. mars 2012);
  • Mänskliga rättigheter, demokrati och rättsstatens principer i Albanien 2015–2016 (Utrikesdepartimentet, 26. apríl 2017) og
  • Albania 2018 Report (European Commission, 17. apríl 2018).

Samkvæmt framangreindum gögnum er Albanía lýðræðisríki með rúmlega þrjár milljónir íbúa. Ríkið gerðist aðili að Evrópuráðinu árið 1995 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu árið 1996. Þá gerðist það aðili að flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna 18. ágúst 1992, alþjóðasamningi um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi 4. október 1991 og samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu þann 11. maí 1994. Í júní 2014 samþykkti ráðherraráð Evrópusambandsins að veita Albaníu stöðu umsóknarríkis að Evrópusambandinu. Þá er Albanía á lista Útlendingastofnunar yfir örugg upprunaríki. Í ljósi alls framangreinds má ætla að grundvallarmannréttindi séu almennt talin virt af yfirvöldum í landinu.

Í framangreindum gögnum kemur fram að yfirvöld í Albaníu hafi undanfarin ár unnið að því að uppræta spillingu í löggæslunni og dómsvaldinu. Jafnframt kemur fram að albönsk stjórnvöld hafi tekið mikilvæg skref til að auka vernd borgara sinna og að Albaníu hafi miðað áfram í málefnum er snerti réttarkerfið og frelsi og öryggi borgara landsins. Þá hafi laun lögreglumanna verið hækkuð og mikil endurnýjun hafi átt sér stað í lögregluliði landsins auk þess sem yfirvöld sæki lögreglumenn til saka vegna brota í starfi. Stjórnvöld hafi einnig gripið til tæknilegra aðgerða til þess að stemma stigu við afbrotum í starfi á borð við að láta lögreglumenn bera myndavélar og gera greiðslur umferðasekta rafrænar. Fram kemur að sett hafi verið á fót þjónusta sem heyri undir albanska innanríkisráðuneytið sem geri borgurunum kleift að senda inn kvartanir vegna spillingarmála í eigin persónu eða símleiðis. Einnig sé starfrækt vefgátt á vegum yfirvalda þar sem borgarar geti tilkynnt misferli opinberra starfsmanna. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2017 hafi kvörtunarþjónustu innanríkisráðuneytisins borist fjöldi kvartana varðandi spillingu innan lögreglu og hafi um 43 tilvik varðandi brot í starfi verið skráð og hafi verið lagt til að um 57 lögreglumenn skyldu sæta agaviðurlögum. Árið 2017 hafi albanski umboðsmaðurinn (avokati i popullit) einnig tekið til meðferðar kvartanir vegna brota lögreglumanna í starfi og þá aðallega vegna vandamála tengdum handtökum og varðhaldi.

Ofangreind gögn bera með sér að atvinnuleysi sé mikið í Albaníu en landið hafi almennt náð að viðhalda jákvæðum hagvexti og fjárhagslegum stöðugleika þrátt fyrir viðvarandi efnahagserfiðleika. Albönsk stjórnvöld hafi, m.a. í samstarfi við Sameinuðu þjóðirnar, unnið að úrbótum í atvinnumálum. Þá hafi stjórnvöld einnig unnið að því að bæta félagslega aðstoð fyrir þá sem þarfnist slíkrar aðstoðar. Þeir sem eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum geti því leitað eftir aðstoð frá því sveitarfélagi sem þeir séu búsettir í. Þrátt fyrir að vinnulöggjöf banni mismunun starfsmanna á grundvelli kynþáttar, húðlitar, kyns, aldurs, fötlunar, stjórnmálaskoðana, tungumáls, þjóðernis, trúar, fjölskyldu, veikinda og þjóðfélagsstöðu, þá séu dæmi um að ákveðnum hópum hafi verið mismunað í starfi eða við ráðningar.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a.   ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c.   aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kærenda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2011). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærandi hefur borið fyrir sig að hann óttist um líf sitt og fjölskyldu sinnar vegna hótana tiltekins manns sem kærandi telur valdamikinn í heimaríki sínu. Kærandi ber fyrir sig að umræddur aðili hafi fengið veður af því að hann væri efnaður vegna viðskipta og byrjað að heimta greiðslur með reglulegu millibili frá febrúar 2015 þar til kærandi hafi flúið land með fjölskyldu sinni. Kærandi hafi tilkynnt gerandann til lögreglunnar en hún hafi ekkert aðhafst. Kærandi hafi ákveðið að flýja land þegar aðilarnir hafi stoppað hann ásamt fjölskyldu sinni á götunni og hótað þeim með byssu og lögreglan hafi ekkert aðhafst. Þá sé kæranda mismunað þar sem eiginkona hans tilheyri þjóðarbroti rómafólks og hann tilheyri minnihlutahópi þar sem uppruni hans sé frá Bosníu. Kærandi hefur lagt fram yfirlit frá banka um úttektir og innlagnir á bankareikning hans og ljósmyndir af almannatryggingarkorti hans, útfyllt af vinnuveitanda hans.

Það var mat Útlendingastofnunar að framburður kæranda í viðtali hjá stofnuninni stangaðist á við landaupplýsingar um ástand lögreglumála í heimaríki hans. Taldi stofnunin það ekki ráðið af framburði kæranda og þeim gögnum sem hann lagði fram að líf hans sé í hættu vegna hótana valdamikils einstaklings. Þó væri ekki hægt að útiloka að kærandi hefði orðið fyrir hótunum og fjárkúgunum af hálfu ótilgreindra aðila. Jafnframt hefði ekki verið sýnt fram á að kæranda væri lögregluvernd útilokuð.

Kærunefnd hefur farið yfir þau gögn sem kærandi hefur lagt fram til stuðnings frásögn sinni. Er það mat nefndarinnar að þau gögn verði ekki talin renna stoðum undir frásögn kæranda með fullnægjandi hætti. Yfirlit yfir bankafærslur hans gefa ákveðna sögu um háar úttektir kæranda af reikningi hans en einnig háar innlagnir. Ekkert í ofangreindum gögnum verður talið leggja grunn að tengslum kæranda hans og við […] eða leiða líkum að því að hann hafi beitt kæranda hótunum og fjárkúgunum. Þá hefur kærandi ekki lagt fram gögn um að hann hafi leitað til lögreglu vegna vandamála sinna. Verður því frásögn kæranda af því að hann hafi sætt fjárkúgunum um nokkurra ára skeið af hálfu háttsetts valdamikils manns í heimaríki hans ekki lögð til grundvallar. Ekki er þó hægt að útiloka að kærandi hafi orðið fyrir einhverjum hótunum eða áreiti í heimaríki hans af hálfu ótilgreindra aðila.

Það er ennfremur mat kærunefndar að kærandi hafi ekki orðið fyrir eða eigi á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda í heimaríki. Gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér um Albaníu benda til þess að þeir sem telji að á réttindum sínum sé brotið geti notið viðeigandi verndar yfirvalda. Til staðar sé kerfi sem þeir geti leitað til sem telji sig hafa verið beitta órétti af lögreglu. Hægt sé m.a. að leita til stofnunar sem heyri undir innanríkisráðuneyti landsins sem og embættis umboðsmanns í Albaníu. Af þeim gögnum sem kærunefndin hefur tekið til skoðunar má ráða að þessi úrræði séu almennt raunhæf og árangursrík. Þá benda gögn ekki til þess að kærandi geti ekki fengið aðstoð yfirvalda í heimaríki sínu vegna uppruna eiginkonu hans. Þótt frásögn kæranda af aðgerðarleysi svæðisbundinna stjórnvalda gagnvart honum yrði lögð til grundvallar við úrlausn málsins er það mat kærunefndar að kærandi geti leitað til miðlægra stjórnvalda telji hann brotið á réttindum sínum. Kærunefnd telur því að ekki hafi verið sýnt fram á að stjórnvöld í heimaríki kæranda geti ekki eða vilji ekki veita kæranda vernd gegn athöfnum sem kunna að fela í sér ofsóknir m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. og 3. mgr. 38. gr. laganna og uppfylli því ekki skilyrði ákvæðisins fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. jafnframt 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrárinnar. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefndin að aðstæður hans þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á hann ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 6. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal stjórnvald sem kemst að því að ákvæði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna eigi ekki við um útlending að eigin frumkvæði taka til skoðunar hvort veita eigi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. sömu laga. Þrátt fyrir að orðalag 1. mgr. 74. gr. kveði ekki með skýrum hætti á um veitingu dvalarleyfis, má skilja af athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga nr. 80/2016, fyrirsögn greinarinnar og af 6. mgr. 37. gr. laganna að það hafi þó verið ætlunin með ákvæðinu. Kærunefnd telur því rétt að túlka ákvæðið sem heimild til veitingar dvalarleyfis þegar skilyrði þess eru uppfyllt.

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga má líta til mannúðarsjónarmiða ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Kærandi hefur greint frá því að hann óttist ofbeldi af hálfu valdamikils einstaklings í heimaríki. Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi einnig til alvarlegra aðstæðna í heimaríki s.s. viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu eða þá aðstöðu að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður í heimaríki telur kærunefnd að aðstæður kæranda séu ekki slíkar að unnt sé að veita kæranda dvalarleyfi á þeim grundvelli.

Þá hefur kærandi greint frá því að hann hafi sagt upp starfi sínu í júní 2016 en að umræddir aðilar hafi haldið áfram að kúga úr honum fé. Þeir hafi á endanum tekið alla peninga sem hann hafi átt. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að ákvæðið um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða yrði að jafnaði ekki talið ná til neyðar af efnahagslegum rótum, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Við meðferð málsins hafa ekki komið fram gögn sem kalli á að vikið sé frá þeim meginsjónarmiðum sem fram komi í þessum athugasemdum.

Fjallað hefur verið um aðstæður kæranda í heimaríki en hann kvaðst jafnframt í viðtali við Útlendingastofnun vera við góða líkamlega og andlega heilsu. Kærandi hafi þó greint frá því að hann hafi sótt sér aðstoðar vegna kvíða í nóvember 2016 og hafi verið á lyfjum í 3-4 mánuði. Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Bann við endursendingu skv. 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli kærenda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kærenda þangað.

Frávísun og frestur til að yfirgefa landið

Kærandi kom hingað til lands 10. júní 2018 og sótti um alþjóðlega vernd 11. júní 2018 og aftur þann 20. júní s.á. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um vernd og dvalarleyfi hér á landi verið synjað og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi er við ágæta heilsu og kemur frá öruggu upprunaríki. Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið.

Athygli kæranda er vakin á því að ef hann yfirgefur ekki landið innan frests er heimilt að brottvísa honum. Brottvísun felur í sér bann við komu til landsins síðar og skal endurkomubann að jafnaði ekki gilda skemur en tvö ár, sbr. a-lið 2. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

 

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Lagt er fyrir kæranda að hverfa af landi brott. Kæranda er veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljugur.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. The appellant is requested to leave the country. The appellant has 15 days to leave the country voluntarily.

 

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

 

 

Árni Helgason                                                   Þorbjörg Inga Jónsdóttir

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta