Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 27/2019 Úrskurður 24. apríl 2019

Mál nr. 27/2019                    Eiginnafn:     Marzellíus (kk.)

 

 

Hinn 24. apríl 2019 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 27/2019 en erindið barst nefndinni 26. mars.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.
  5. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Í þessu máli reynir á 3. skilyrðið hér að ofan um almennar ritreglur íslensks máls. Núgildandi reglur er að finna í auglýsingu mennta- og menningarmálaráðuneytisins, nr. 695/2016, um setningu íslenskra ritreglna. Eiginnafnið Marzellíus telst ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem bókstafurinn ‘z’ telst ekki til íslenska starfrófsins þótt hann komi fyrir í nokkrum mannanöfnum sem hafa unnið sér hefð.

Af fyrrgreindri ástæðu er einungis hægt að fallast á nafnið Marzellíus ef það telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Hugtakið hefð í mannanafnalögum varðar einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli árið 1703 þegar manntal á Íslandi var tekið fyrsta sinni. Við túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 19. janúar 2015 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

1.   Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

 

  1. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
  2. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
  3. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
  4. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910 eða 1920;
  5. Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1920.

 

2.  Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

 

3.  Tökunafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

Tekið skal fram að vinnulagsreglurnar eru mannafnanefnd til stuðnings við mat sitt, en ekki ráðandi um niðurstöðuna bendi önnur atriði engu að síður til þess að ritháttur nafns hafi hefðast.

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá ber einn karl, sem uppfyllir skilyrði vinnulagsreglna mannanafnanefndar varðandi hefð, nafnið Marzellíus. Sá er fæddur árið 1959. Nafnið kemur ekki fyrir í neinu manntali frá 1703–1920. Þess vegna er ekki hægt að líta svo á að rithátturinn Marzellíus hafi unnið sér hefð í íslensku máli skv. lögum um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Marzellíus (kk.) er hafnað.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta