Hoppa yfir valmynd

Nr. 103/2018 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 1. mars 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 103/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18020003

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 31. janúar 2018 kærði […], fd. […], ríkisborgari Georgíu (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 29. janúar 2018, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og honum verði veitt staða flóttamanns með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að kæranda verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara er þess krafist að ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann, sbr. 2. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga, verði felld úr gildi.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi þann 25. janúar 2018. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun þann 26. janúar 2018 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 29. janúar 2018, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og honum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Ákvörðun Útlendingastofnunar var kærð til kærunefndar útlendingamála þann 31. janúar 2018. Að ósk kæranda var veittur frekari rökstuðningur fyrir ákvörðuninni með bréfi Útlendingastofnunar, dags. 8. febrúar 2018. Kærunefnd barst greinargerð kæranda þann 12. febrúar 2018.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Við meðferð máls kæranda hjá Útlendingastofnun byggði hann umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að honum hafi borist hótanir óþekktra aðila þar sem hann styðji opinberlega réttindi og málstað LGBT einstaklinga ásamt því að hann hafi verið virkur í starfi stjórnmálahreyfingarinnar National Movement.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi sé ekki flóttamaður og honum skuli synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi skv. ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi. Var það mat Útlendingastofnunar að með vísan til frásagnar kæranda, að teknu tilliti til trúverðugleikamats, að umsókn hans sé ekki bersýnilega tilhæfulaus.

Kæranda var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði ekki réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 2. mgr. 35. gr. laga um útlendinga. Kæranda var brottvísað frá landinu með vísan til 2. tölul. b-liðar 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga, sbr. b-liðar 2. mgr. 104. gr. laganna. Var kæranda ákveðið endurkomubann hingað til lands í tvö ár, sbr. 101. gr. sömu laga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Fram kemur í greinargerð kæranda að hann hafi greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann hafi fengið nafnlausar hótanir í heimaríki vegna stjórnmálastarfs hans í gegnum tíðina og vegna opinbers stuðnings við mannréttindabaráttu LGBTQIA þar í landi. Hafi honum verið tjáð að hann legði fjölskyldu sína í hættu ef hann myndi tilkynna áreitið til lögreglu.

Í greinargerð kæranda er að finna almenna umfjöllun um ástand mannréttindamála í Georgíu. Helstu vandamál tengd mannréttindum þar í landi séu m.a. annmarkar á dómskerfinu, þrýstingur stjórnvalda á dómsvaldið í ákveðnum málum, vafasamar skipanir dómara, ósamræmi í viðbrögðum yfirvalda í tengslum við ofbeldi eða misnotkun og ófullnægjandi rannsóknir í sakamálum. Þá er í greinargerð kæranda vísað í alþjóðlegar skýrslur en í þeim komi m.a. fram að fordómar gegn hinsegin einstaklingum séu alvarlegt og viðvarandi vandamál í Georgíu og fari margir úr þeim hópi leynt með kynhneigð sína af ótta við ofsóknir og fordóma.

Kærandi mótmælir í greinargerð því sem fram komi í ákvörðun Útlendingastofnunar um að ekki sé unnt að fallast á frásögn hans um að lögregla og yfirvöld í Georgíu geti ekki eða vilji ekki veita honum viðeigandi aðstoð. Kærandi bendi á að ekki sé raunhæft að gera þá kröfu til hans að leggja fram gögn um hótanir einstaklinga sem hann viti ekki hverjir séu. Þá telji kærandi að sú fullyrðing í ákvörðun Útlendingastofnunar um að honum standi til boða aðstoð og vernd stjórnvalda í heimaríki ekki nægilega rökstudda þá sérstaklega í ljósi ríkjandi fordóma í garð samkynhneigðra einstaklinga í heimaríki og stöðu þeirra almennt þar í landi.

Kærandi krefst þess aðallega að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og honum verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga þar sem hann sæti ofsóknum í heimaríki sínu á grundvelli stuðningi síns við mannréttindabaráttu hinsegin fólks. Þá hafi hann einnig verið virkur í stjórnmálastarfi í heimaríki. Kærandi telji að grundvallarmannréttindi hans séu ekki tryggð í heimaríki og hann óttist um líf sitt og öryggi þar í landi. Kærandi telji að skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga séu uppfyllt þar sem að ofsóknir gegn honum megi rekja til stjórnmálaskoðana hans og aðildar hans að sérstökum þjóðfélagshópi, en þar sem hann sé stuðningsmaður réttinda hinsegin fólks sé hann samsamaður þeim hópi. Kærandi vísar til leiðbeininga Flóttamannastofnunar um málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd á grundvelli kynhneigðar og kynvitundar en þar komi m.a. fram að þær umsóknir og mat á ástæðuríkum ótta umsækjanda verði að meta á grundvelli upplýsinga um stöðu hinsegin einstaklinga í heimaríki hans. Kærandi bendir á að í leiðbeiningum Flóttamannastofnunar komi fram að vernd fyrir ofsóknum verði að vera aðgengileg og áhrifarík en slík vernd geti ekki talist aðgengileg né áhrifarík í þeim tilvikum þegar lögreglan bregðist ekki við óskum um vernd eða yfirvöld neiti að rannsaka, ákæra eða refsa þeim sem séu valdir að ofsóknum.

Til vara gerir kærandi kröfu um að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Ákvæðið heimili veitingu dvalarleyfis á þeim grundvelli geti útlendingur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. vegna erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða vegna annarra atvika sem ekki megi með réttu gera honum að bera ábyrgð á. Kærandi vísar til greinargerðar með frumvarpi til laganna en þar komi fram að taka verði mið af svipuðum sjónarmiðum og gert sé við mat á öðrum ákvæðum kaflans s.s. almennra aðstæðna í heimalandi, þ. á m. hvort grundvallarmannréttindi séu nægilega tryggð. Heildarmat skuli fara fram á öllum þáttum máls áður en leyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða sé veitt. Kærandi telur að hann hafi ríka þörf fyrir vernd hér á landi þar sem hann sé í mjög erfiðri stöðu félagslega í heimaríki þar sem hann hafi þurft að þola mikinn þrýsting, áreiti og hótanir vegna stjórnmálaþátttöku sinnar, mannréttindabaráttu og opinbers stuðnings við hinsegin fólk.

Kærandi gerir þá kröfu til þrautavara að ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann í máli hans verði felld úr gildi og honum verði gefinn kostur á að fara sjálfviljugur úr landi verði ákvörðun stofnunarinnar staðfest að öðru leyti. Kærandi mótmæli því harðlega að umsókn hans um alþjóðlega vernd hafi verið metin bersýnilega tilhæfulaus af Útlendingastofnun. Kærandi vísar til úrskurðar kærunefndar frá 2. nóvember 2017 í máli nr. KNU17090052 þar sem fram hafi komið að tilhæfuleysi umsóknar þurfi að blasa við stjórnvöldum til að heimilt sé að stytta frest til að yfirgefa landið sjálfviljugur eða veita engan frest til þess. Þá bendir kærandi á þessu til hliðsjónar að víða sé stuðst við þá grunnhugmynd að umsókn geti eingöngu talist bersýnilega tilhæfulaus ef umsækjandi ber fyrir sig atvik sem ekki geta kallað á vernd, svo sem efnahags- eða félagslegar aðstæður. Þá segi við mat á bersýnilegu tilhæfuleysi að skoða skuli m.a. hvort ljóst sé við fyrstu sýn að málsástæður varði ekki þá þætti sem 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga taki til. Af þessu tilefni bendi kærandi á að ástæður flótta hans falli ekki undir efnahags- eða félagslega ástæður heldur falli þær undir skilgreiningu 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga eða 1. mgr. 74. gr. sömu laga. Því teljist umsókn hans ekki bersýnilega tilhæfulaus í skilningi b-liðar 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga og þar af leiðandi hafi ekki verið heimild fyrir hendi til að fella niður frest til handa honum til þess að yfirgefa landið sjálfviljugur og jafnframt hafi ekki verið lagaskilyrði til að beita brottvísun skv. 2. tl. b-liðar 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga.

Jafnframt telur kærandi að ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann í máli hans sé í andstöðu við meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga og vitnar hann til athugasemda við ákvæðið í greinargerð með frumvarpi því sem varð að stjórnsýslulögum því til stuðnings. Kærandi telur að stofnunin hafi ekki tekið tillit til hagsmuna og réttinda hans líkt og áskilið sé. Einnig telji kærandi að ljóst sé að völ hafi verið á fleiri úrræðum til að ná tilsettu markmiði, sem geti talist vægari í garð kæranda. Útlendingastofnun hafi t.a.m. heimild til að veita kæranda styttri frest en sjö daga, sbr. 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga, í stað þess að veita honum engan frest með vísan til sömu málsgreinar. Hefði stofnunin farið þá leið hefði ekki komið til endurkomubanns, skv. b-lið 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Með vísan til þess að meðalhófs hafi ekki verið gætt við töku hinnar kærðu ákvörðunar um brottvísun og endurkomubann sé hún haldin annmörkum og beri að fella ákvörðunina úr gildi hvað þann þátt varðar.

Þá gerir kærandi í greinargerð sinni athugasemd við rannsókn og málsmeðferð Útlendingastofnunar. Kærandi telur að Útlendingastofnun hafi ekki rökstutt með fullnægjandi hætti að aðstæður kæranda nái ekki því alvarleikastigi sem þurfi til að sýna fram á þörf fyrir vernd. Þá telur kærandi að rannsókn Útlendingastofnunar á félagslegum aðstæðum kæranda hafi verið ábótavant. Telur kærandi að rannsóknarregla 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi ekki verið uppfyllt við meðferð máls hans.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað georgísku vegabréfi. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi sé georgískur ríkisborgari.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Georgíu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • Amnesty International Report 2016/2017: Georgia (Amnesty International, 22. febrúar 2017);
  • Council of Europe – Action Plan for Georgia 2016-2019 (Council of Europe, 25. febrúar 2016);

  • Corruption prevention in respect of members of parliament, judges and prosecutors (Group of States Against Corruption, Council of Europe, 17. janúar 2017);
  • Constitution of Georgia (http://www.parliament.ge/uploads/other/28/28803.pdf, sótt, 17. janúar 2018);
  • ECRI Report on Georgia (European Commission against Racism and Intolerance, 1. mars 2016);
  • Freedom in the World 2016 - Georgia (Freedom House, 14. júlí 2016);
  • From Prejudice to Equality: Study of Societal Attitudes, Knowledge and Information Regarding the LGBT Community and their Rights in Georgia (Women's Initiatives Supporting Group (WISG), júní 2016);
  • Georgia - Country Reports on Human Rights Practices for 2016 (U.S. Department of State, 3. mars 2017);
  • Georgia – Parliamentary Elections 8 and 30 October (OSCE – Office for Democratic Institutions and Human Rights, 3. febrúar 2017);

  • Georgia 2017 Crime and Safety Report (OSAC, mars 2017);
  • Georgia: Korrupsjon i politi og rettsvesen (Landinfo, 9. mars 2017);
  • Georgia: Situasjonen for politisk opposisjonelle UNM medlemmer (Landinfo, 23. mars 2017);
  • Georgia: The Human Rights Education and Monitoring Center (EMC), including office location and source of funding; relationship with the government, including treatment of its members by the police and other authorities (Canada: Immigration and Refugee Board of Canada, 30. júní 2015);
  • ILGA-Europe Annual Review 2017 (ILGA-Europe, maí 2017);
  • Legal Situation of LGBTI Persons in Georgia (Human Rights Education and Monitoring Center (EMC), mars 2016);
  • Joint Staff Working Document – Association Implementation Report on Georgia (European Commission, 25. nóvember 2016);
  • National Strategy for the Protection of Human Rights in Georgia 2014-2020 (Ministry of Internal Affairs in Georgia, 17. september 2015);
  • Nations in Transit 2017 - Georgia (Freedom House, 9. maí 2017);
  • Report on Progress in the Implementation of the National Strategy for the Protection of Human Rights in Georgia 2014-2020 (United States Agency for International Development (USAID), mars 2017);
  • Second Report Submitted by Georgia Pursuant to Article 25, Paragraph 2 of the Framework Convention for the Protection of National Minorities (Council of Europe, 30. maí 2012);
  • Special Report on Combating and Preventing Discrimination and the Situation of Equality (Public Defender (Ombudsman) of Georgia, september 2016);

  • World Report 2017 – Georgia (Human Rights Watch, 12. janúar 2017);
  • Temarapport: Georgien - Politiskt motiverade repressalier och våld mot oppositionella (version 1.0) (Lifos, 30. maí 2017);
  • Temarapport: Georgien – Rätts- och säkerhetssektorn (Lifos, 3. október 2017) og
  • 10 December Report on the situation of Protection of Human Rights and Freedoms in Georgia 2016 (Public Defender of Georgia, 2016).

Georgía er lýðræðisríki með um 3,7 milljónir íbúa. Georgía gerðist aðili að Evrópuráðinu árið 1999 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu það sama ár. Georgía gerðist aðili að flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna þann 9. ágúst 1999, alþjóðasamningi um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi þann 3. ágúst 1994 og samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu þann 8. júlí 2005. Þann 1. júlí 2016 gekk í gildi samstarfssamningur milli Evrópusambandsins og Georgíu. Með þeim samningi hefur Georgía meðal annars skuldbundið sig til að efna víðtækar skuldbindingar á sviði lýðræðis, mannréttinda og réttarríkis. Þann 19. júlí 2017 setti Útlendingastofnun Georgíu á lista stofnunarinnar yfir örugg upprunaríki.

Í ofangreindum gögnum kemur fram að stjórnarskrá Georgíu kveði á um jafnrétti allra fyrir lögunum og mismunun á grundvelli kynþáttar, litarháttar, tungumáls, kyns, trúar- og lífsskoðana, stjórnmálaskoðana, þjóðernis, félagslegrar stöðu eða tengsla, uppruna, búsetu eða efnahagslegrar stöðu sé refsiverð skv. refsilöggjöf landsins. Umboðsmaður (e. Public Defender (Ombudsman)) hafi verið starfandi í Georgíu frá árinu 1997. Umboðsmaðurinn hafi eftirlit með mannréttindum og frelsi borgaranna í Georgíu innan lögsögu ríkisins. Samkvæmt 2. mgr. 6. gr. stjórnarskrár Georgíu gangi alþjóðasamningar, sem fullgiltir hafi verið af hálfu Georgíu, framar landslögum. Svo framarlega sem slíkir samningar gangi ekki gegn stjórnarskrá landsins sé hægt að beita þeim sem hluta af almennri löggjöf.

Þá kemur fram að fyrstu lýðræðislegu stjórnarskiptin í sögu sjálfstæðrar Georgíu hafi átt sér stað í október 2012. Þá hafi síðustu þingkosningar í október 2016 að mestu leyti farið vel fram að mati kosningaeftirlitsmanna þrátt fyrir harða kosningabaráttu. Flokkur Georgíska draumsins hafi aukið við fylgi sitt þar sem flokkurinn hafi hlotið 44 þingmenn af 73. Þá komi fram í ofangreindum gögnum að spilling sé þó nokkur í georgíska stjórnkerfinu. Yfirvöld hafi hins vegar gripið til ýmissa aðgerða til að sporna við spillingu og hafi miklar framfarir átt sér stað á undanförnum árum, m.a. hafi verið sett á fót sérstök landsáætlun til að sporna við skipulögðum glæpum í landinu fyrir árin 2015-2018. Þá beri stjórnvöldum að taka allar tilkynningar um misferli lögreglu til skoðunar og aðili sem telji að brotið sé á réttindum sínum geti kært til æðra stjórnvalds eða farið með mál sitt fyrir dómstóla. Einnig komi fram að stofnun sem heyri undir innanríkisráðuneyti landsins (e. General Inspection Department) sé ábyrg fyrir því að rannsaka brot sem framin séu af lögreglumönnum og hafi sú stofnun heimild til að beita agaviðurlögum. Frjáls félagasamtök líkt og GYLA (e. Georgian Young Lawyer Association) hafi hins vegar gagnrýnt þetta fyrirkomulag og bendi m.a. á að stjórnvöld hafi ekki alltaf rannsakað málin með fullnægjandi hætti.

Í ofangreindum gögnum kemur fram að í Georgíu séu enn ríkjandi íhaldssöm viðhorf gagnvart hinsegin fólki og það eigi á hættu að verða fyrir fordómum, einkum verði transfólk fyrir áreiti. Þá hefur georgíska rétttrúnaðarkirkjan, sem þrátt fyrir aðskilnað kirkju og ríkis hafi enn mikil pólitísk völd, verið áberandi í andstöðu sinni gegn minnihlutahópum eins og hinsegin einstaklingum.

Í apríl 2014 hafi georgíska þingið samþykkt aðgerðaráætlun um verndun mannréttinda í Georgíu og í maí sama ár hafi tekið gildi lög sem banni mismunun í hvaða mynd sem hún birtist og sé í þeim lögum meðal annars lagt bann við mismunun vegna kynhneigðar. Umboðsmaður hafi eftirlit með framfylgd laganna og hafi m.a. verið sett á stofn sérstök jafnréttisdeild innan embættis umboðsmannsins til að hafa umsjón með málaflokknum. Fram kemur í ofangreindum gögnum að fjöldi kvartana til umboðsmanns á grundvelli laganna sé mikill og þá hafi almenn vitneskja meðal fólks um réttindi sín samkvæmt lögunum aukist. Í ofangreindri skýrslu USAID kemur fram að með lögunum frá 2014 hafi margt þokast í rétta átt í þessum efnum en mælt sé samt sem áður með frekari aðgerðum til ná markmiðum laganna, m.a. sé mælt með því að umboðsmaður fái víðtækari úrræði til að framfylgja lögunum og að dómstólar verið skyldaðir til að halda tölfræði um mál byggð á mismunun. Í ofangreindum gögnum kemur fram að þrátt fyrir að búið sé að lögfesta lagaákvæði um hatursglæpi þá sé í mörgum málum er snúa að ofbeldi gegn hinsegin fólki ekki saksótt á þeim grundvelli. Unnið sé að úrbótum með aukinni fræðslu og þjálfun saksóknara og rannsakenda í málum er varði hatursglæpi. Þá hafi umfjöllun fjölmiðla um mál er varði hinsegin einstaklinga batnað á undanförnum árum og einkennist nú frekar af hlutleysi í stað fordóma. Þá séu starfandi frjáls félagasamtök í Georgíu sem kallist Identoba sem berjist m.a. fyrir réttindum hinsegin fólks og veiti ýmis konar aðstoð og fræðslu. 

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Til að teljast flóttamaður hér á landi þarf kærandi að sýna fram á að aðstæður hans séu slíkar að þær falli undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna, eða 2. mgr. 37. gr. sömu laga. Kærandi byggir á því í greinargerð að hann hafi orðið fyrir nafnlausum hótunum vegna opinbers stuðnings við mannréttindabaráttu LGBTQIA fólks og stjórnmálastarfs síns í heimaríki.

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a.   ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c.   aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Almennt ber að telja ótta umsækjanda um alþjóðlega vernd ástæðuríkan ef hann getur á nægilega skýran hátt sýnt fram á að áframhaldandi dvöl í heimaríki sé honum óbærileg af ástæðum sem tilgreindar eru í 1. mgr. 37. gr. eða yrði óbærileg af sömu ástæðum ef hann sneri aftur. Hugtakið „ástæðuríkur ótti við ofsóknir“ inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn a.m.k. að sýna fram á að ákveðnar líkur séu á að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2011). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærandi hefur í greinargerð borið fyrir sig að hann sé í hættu í heimaríki sínu, Georgíu, vegna hótana ónafngreindra aðila í hans garð vegna stuðnings hans við mannréttindabaráttu LGBTQIA fólks og stjórnmálastarfs í gegnum tíðina.

Af frásögn kæranda í endurriti viðtals hans hjá Útlendingastofnun þann 26. janúar 2018 verður ekki ráðið að kæranda hafi verið hótað vegna starfa hans í stjórnmálum. Kærandi greindi frá einu atviki þar sem til átaka hafi komið milli tveggja hópa þegar Þjóðhreyfingin hafi viljað fara með viljayfirlýsingu til yfirvalda, hafi hann verið í öðrum hópnum og verið laminn. Aðspurður kvaðst kærandi ekki vera með opinber gögn sem sýni fram á að hann hafi orðið fyrir ofbeldi.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi hafa flúið heimaríki vegna hótana sem hann hafi orðið fyrir vegna stuðnings síns við baráttu LGBT einstaklinga í Georgíu. Kærandi hafi búið í þorpi þar sem allir þekki alla og samfélagið hafi verið andsnúið honum vegna skoðana hans. Kærandi hafi ekki vitað hverjir það væru sem hafi hótað honum en hann hafi grunað að einhverjir þeirra væru í lögreglunni. Aðspurður í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi ekki vera með gögn er styddu frásögn hans. Engin gögn voru lögð fram við málsmeðferð máls kæranda hjá kærunefnd til stuðnings frásagnar kæranda um ofangreinda atburði og atvik þau er leitt hafi til flótta hans frá heimaríki. Kærunefnd telur að ekkert bendi til þess að flótta kæranda hafi borið svo brátt að að ósanngjarnt sé að gera þá kröfu að hann afli gagna sem leggi grunn að málsástæðum hans.

Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða að hann óttist ofsóknir af hálfu georgískra yfirvalda. Kærandi hefur staðhæft að sumir þeirra sem hafi hótað honum kunni að vera lögreglumenn. Ekkert bendir þó til þess að kæranda stafi hættu af þeim á grundvelli stöðu þeirra, ef slík hætta sé til staðar. Önnur gögn málsins benda ennfremur ekki til þess að slíkar ofsóknir hafi átt sér stað eða að kærandi eigi þær á hættu. Þá kvaðst kærandi í viðtali hjá Útlendingastofnun ekki hafa leitað til lögreglu þar sem hann hafi ekki viljað stefna fjölskyldu sinni í hættu og að hann gruni að þeir sem hafi hótað honum séu mögulega í lögreglunni. Kærunefnd hefur yfirfarið gögn málsins, svo og skýrslur opinberra stofnana og frjálsra félagasamtaka um aðstæður í Georgíu. Gögn bendi til þess að þeir ríkisborgarar Georgíu sem telja að á réttindum sínum sé brotið geti leitað sér aðstoðar og verndar yfirvalda þar í landi og fengið lausn sinna mála. Hægt sé m.a. að leita til stofnunar sem heyri undir innanríkisráðuneyti landsins sem og umboðsmanns (e. Public Defender (Ombudsman) of Georgia). Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur tekið til skoðunar um aðstæður í Georgíu má ráða að þessi úrræði séu almennt raunhæf og árangursrík þó svo að úrbóta sé enn þörf að mati frjálsra félagasamtaka í landinu.

Að mati kærunefndar hefur kærandi ekki sýnt fram á það að georgísk stjórnvöld skorti vilja eða getu til að veita honum viðeigandi vernd gegn athöfnum sem feli í sér hótanir, áreiti eða ofbeldi, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir þær athafnir. Í því sambandi tekur kærunefnd fram að kærandi hefur ekki borið að hann tilheyri hópi LGBT einstaklinga. Þó ekki sé hægt að útloka að einhverjir einstaklingar hafi hótað kæranda og áreitt vegna stuðnings hans við baráttu hinsegin fólks í Georgíu þá er það mat kærunefndar að kærandi hafi raunhæfan möguleika á að leita sér ásjár yfirvalda í heimaríki sínu.

Með vísan til ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki á nægilega skýran hátt sýnt fram á að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði ákvæðisins fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefndin að aðstæður hans þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 6. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal stjórnvald sem kemst að því að ákvæði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna eigi ekki við um útlending að eigin frumkvæði taka til skoðunar hvort veita eigi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. sömu laga. Þrátt fyrir að orðalag 1. mgr. 74. gr. kveði ekki með skýrum hætti á um veitingu dvalarleyfis má skilja af athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga nr. 80/2016, fyrirsögn greinarinnar og af 6. mgr. 37. gr. laganna að það hafi þó verið ætlunin með ákvæðinu. Kærunefnd telur því rétt að túlka ákvæðið sem heimild til veitingar dvalarleyfis þegar skilyrði þess eru uppfyllt.

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga má líta til mannúðarsjónarmiða ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við 74. gr. í greinargerð með frumvarpi til laga um útlendinga segir m.a. að með erfiðum almennum aðstæðum að öðru leyti sé einnig vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu eða þá aðstöðu að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Kærandi ber m.a. fyrir sig að hann geti ekki leitað aðstoðar yfirvalda í heimaríki þar sem hann treysti þeim ekki og vilji ekki stofna lífi fjölskyldu sinnar í hættu. Svo sem fram hefur komið metur kærunefnd svo, á grundvelli fyrirliggjandi gagna, að kæranda standi til boða úrræði í heimaríki hans sem feli í sér viðeigandi vernd. 

Kærandi sem er 52 ára gamall karlmaður kom hingað til lands einsamall. Samkvæmt gögnum málsins er kærandi andlega og líkamlega heilsuhraustur. Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Bann við endursendingu skv. 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli kæranda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

Brottvísun og endurkomubann

Með vísan til atvika málsins tekur kærunefnd undir forsendur Útlendingastofnunar varðandi frávísun kæranda á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. til hliðsjónar 2. málsl. 3. mgr. 42. gr. reglugerðar nr. 540/2017.

Ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun kæranda er byggð á því að skilyrði b-liðar 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga séu fyrir hendi. Samkvæmt ákvæðinu er heimilt að fella niður frest útlendings til að yfirgefa landið sjálfviljugur ef umsókn hans um dvalarleyfi eða alþjóðlega vernd telst bersýnilega tilhæfulaus eða hann hefur vísvitandi gefið misvísandi eða rangar upplýsingar við umsókn. Í ákvörðun Útlendingastofnunar er vísað til þess að í viðtali við kæranda hafi hann kveðið að ástæður flótta hans frá heimaríki megi rekja til hótana óþekktra aðila og andúð almennings vegna stuðnings hans við málstað LGBT einstaklinga. Það var mat Útlendingastofnunar, með hliðsjón af frásögn kæranda, trúverðugleikamati, gögnum máls og fyrirliggjandi landaupplýsingum, að kærandi hefði ekki vísað til neinna atvika eða aðstæðna sem gætu gefið til kynna að þeim yrði jafnað til meðferðar sem 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga tækju til. Þá hafi ekkert bent til þess að aðstæður kæranda í heimaríki væru þess eðlis eða á því alvarleikastigi að þær gætu leitt til þeirrar niðurstöðu að heimilt væri að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Í því sambandi hafi Útlendingastofnun litið til orðalags 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga sem kveði á um að aðili þurfi að sýna fram á ríka þörf á vernd og mat stjórnvalda á tilhæfuleysi þessarar umsóknar taki mið af þeirri ábyrgð sem lögð sé á aðila að þessu leyti.

Lög um útlendinga skilgreina ekki hvað felist í orðalaginu „bersýnilega tilhæfulaus“ í skilningi b-liðar 2. mgr. 104. gr. laganna. Athugasemdir við 104. gr. með frumvarpi til laga um útlendinga varpa ekki ljósi á inntak orðalagsins „bersýnilega tilhæfulaust“. Þar er þó vísað til þess að ákvæðið sé í samræmi við 7. gr. tilskipunar 2008/115/EB um brottvísun útlendinga í ólögmætri dvöl. Við skoðun á tilskipun 2008/115/EB verður að hafa hugfast að tilskipunin hefur ekki verið tekin upp í EES-samninginn. Aftur á móti er þess að gæta að árið 1996 undirritaði íslenska ríkið Schengen samninginn sem tók gildi árið 2001. Með þátttöku íslenska ríkisins í Schengen samstarfinu hefur ríkið að þjóðarétti gengist undir þær skuldbindingar sem í því felast. Í 28. lið formálsorða tilskipunar 2008/115/EB er kveðið á um að tilskipunin feli í sér þróun á ákvæðum Schengen gerða í skilningi samnings sem ráð Evrópusambandsins, Ísland og Noregur gerðu með sér um framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerða, sem fellur undir C. lið 1. gr. ákvörðunar ráðsins 1999/437/EB um sérstakt fyrirkomulag varðandi beitingu á þeim samning. Samkvæmt framangreindu ber íslenska ríkið skuldbindingar af þjóðréttarlegum toga til að virða tilskipun 2008/115/EB. Í íslenskum rétti er almennt viðurkennd sú meginregla að túlka beri landsrétt til samræmis við þær þjóðréttarlegu skuldbindingar sem íslenska ríkið hefur gengist undir.

Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. tilskipunarinnar skal almennt veita útlendingi 7-30 daga frest til að yfirgefa landið en í 4. mgr. greinarinnar kemur m.a. fram að heimilt sé að stytta eða fella niður þennan frest þegar umsókn um löglega dvöl hefur verið hafnað sem bersýnilega tilhæfulausri (e. manifestly unfounded). Hugtakið „manifestly unfounded“ er hins vegar ekki skilgreint í 7. gr. eða 3. gr. tilskipunarinnar sem fjallar um skilgreiningar. Í dómaframkvæmd Evrópudómstólsins sem að vissu leyti má hafa hliðsjón af hefur dómstóllinn áréttað að hugtök í Evrópurétti sem ekki eru skilgreind í þar til gerðri löggjöf sambandsins skuli sæta þröngri túlkun ef þau fela í sér undantekningu frá almennri reglu, sbr. dómur í máli C-554/13 Z.Zh. og O (42. mgr. dómsins). Í dómi Evrópudómstólsins í máli C-61/11 El Dridi lagði dómstóllinn m.a. áherslu á að samkvæmt 2. lið formálsorða ofangreindrar tilskipunar beri við brottvísanir á einstaklingum að hafa mannúð, grundvallarréttindi og mannlega reisn að leiðarljósi (31. mgr. dómsins). Í sama máli tiltók dómstóllinn að nema kveðið sé á um annað eigi að gefa forgang þeirri reglu að einstaklingum sé heimilt að yfirgefa land sjálfviljugir, sbr. ákvæði 1. mgr. 7. gr. tilskipunarinnar (36. mgr. dómsins). Í máli Z.Zh. og O vísaði Evrópudómstóllinn jafnframt til þess að samkvæmt 4. mgr. 7. gr. tilskipunarinnar gætu ríki einungis í sérstökum aðstæðum stytt hinn 7-30 daga frest til sjálfviljugrar brottfarar eða fellt hann alveg niður (46. mgr. dómsins). Þá hefur Evrópudómstóllinn lagt áherslu á að gæta skuli meðalhófs við beitingu 7. gr. tilskipunarinnar, sbr. dómur í máli El Dridi (41. mgr. dómsins). Þrátt fyrir að þessir dómar Evrópudómstólsins séu ekki eiginleg fordæmi í íslenskum rétti veita þeir engu að síður vísbendingar um framkvæmd umræddra Schengen-gerða og þá hvaða sjónarmið leggja megi til grundvallar við túlkun á hugtakinu „bersýnilega tilhæfulaust“ í 4. mgr. 7. gr. tilskipunarinnar, sbr. b-lið 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Til hliðsjónar bendir kærunefnd á að samkvæmt upplýsingum sem systurstofnun kærunefndar í Noregi aflaði frá innflytjendayfirvöldum aðildarríkja Evrópusambandsins árið 2014 um túlkun og notkun á hugtakinu „bersýnilega tilhæfulaus umsókn“ (e. manifestly unfounded application) í tengslum við brottvísanir frá aðildarríkjum Schengen-samstarfsins er notkun hugtaksins mismunandi á milli aðildarríkja. Af upplýsingunum má þó sjá að víða er stuðst við þá grunnhugmynd að umsókn geti eingöngu talist bersýnilega tilhæfulaus ef umsækjandi ber aðeins fyrir sig atvik sem ekki geta kallað á vernd, svo sem efnahagslegar eða félagslegar aðstæður, eða að umsóknin feli í sér misnotkun á hæliskerfi viðkomandi ríkis.

Með vísan til ofangreinds sem og orðalags ákvæðis b-liðar 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga er ljóst að svo að til greina komi að veita styttri eða engan frest til að yfirgefa landið sjálfviljugur er ekki nægilegt að umsókn sé tilhæfulaus, hún þarf að vera bersýnilega tilhæfulaus. Af orðalagi ákvæðisins leiðir því að tilhæfuleysi umsóknar þarf að blasa við stjórnvaldi þegar við skoðun málsins. Um er að ræða sérstakt mat á því hvort umsókn sé bersýnilega tilhæfulaus í skilningi ákvæðisins sem þarf að fara fram bæði hjá Útlendingastofnun og hjá kærunefnd. Að mati kærunefndar telst umsókn um dvalarleyfi eða alþjóðlega vernd bersýnilega tilhæfulaus í skilningi b. liðar 2. mgr. 104. gr. laganna ef eftirfarandi tilvik eiga einkum við:

a) ljóst er, við fyrstu sýn, að málsástæður umsækjanda varða ekki þá þætti sem 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga taka til,

b) ljóst er, við fyrstu sýn, að málsástæður umsækjanda séu ekki þess eðlis eða nái ekki því alvarleikastigi að þær gætu leitt til þeirrar niðurstöðu að heimilt væri að veita umsækjenda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, og

c) að frekara mat og gagnaöflun, þar með talið viðtal við umsækjanda, hafi ekki breytt ofangreindu upphaflegu mati.

Ekki er nægjanlegt að kærandi hafi ríkisfang í ríki sem er á lista Útlendingastofnunar yfir örugg upprunaríki sem vísað er til í 2. mgr. 29. gr. laga um útlendinga. Þó svo að 2. mgr. 104. gr. laganna innihaldi ekki tilvísun til þess lista telur kærunefnd engu að síður að heimilt sé að styðjast við slíkan lista við mat á því hvort umsókn um dvalarleyfi eða alþjóðlega vernd teljist bersýnilega tilhæfulaus, enda eru ákveðin tengsl á milli ákvæða b-liðar 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga og 29. gr. laganna.

Kærandi hefur borið fyrir sig að hann hafi sætt hótunum í heimaríki sínu af hálfu ónafngreindra aðila vegna stuðnings hans við baráttu hinsegin fólks og stjórnmálastarfs hans í gegnum tíðina. Kærandi kveðst ekki hafa getað leitað aðstoðar lögreglu þar sem hann hafi grunað að einhverjir af hinum ónafngreindu aðilum væru mögulega lögreglumenn. Útlendingastofnun taldi frásögn kæranda af stuðningi hans við réttindi samkynhneigða trúverðuga. Þó að nokkuð skorti upp á að trúverðugleiki þessa hluta frásagnar kæranda hafi verið kannaður til hlítar er kærunefnd ekki í aðstöðu til að draga mat Útlendingastofnunar á þessum þætti í efa. Sem fyrr segir eru enn ríkjandi íhaldssöm viðhorf til samkynhneigðar og telja verður að líkur séu á að slík viðhorf beinist einnig að nokkru leyti að þeim sem styðja réttindabaráttu samkynhneigðra. Engu að síður komst kærunefnd að þeirri niðurstöðu að kæranda standi til boða vernd stjórnvalda gegn þeirri hættu sem hann kveðst vera í og, að teknu tilliti til gagna um heimaríki kæranda og aðstæður hans þar, að kærandi eigi ekki rétt á alþjóðlegri vernd skv. 37. gr. laga um útlendinga eða dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. Að þeirri niðurstöðu var hins vegar ekki komist án undangenginnar rannsóknar á aðstæðum þess hóps sem kærandi kveður sig tilheyra og þeirri vernd stjórnvalda sem þeim hópi standi til boða. Í því sambandi verður að líta til þess að á grundvelli gagna málsins og með hliðsjón af skilgreiningu d-liðar 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga virðist kærandi teljast til þeirra hópa sem njóta verndar skv. 1. mgr. 37. gr. laganna.

Það er því niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið ljóst við fyrstu sýn að umsókn kæranda varðaði ekki þá þætti sem 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga tekur til. Umsókn kæranda telst því ekki bersýnilega tilhæfulaus.

Með vísan til ofangreinds eru ekki forsendur til að staðfesta þann hluta ákvörðunar Útlendingastofnunar er varðar brottvísun og endurkomubann.

Rannsóknarregla stjórnsýslulaga

Líkt og áður segir gerir kærandi athugasemd við rannsókn Útlendingastofnunar með vísan til rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Kærandi telur að ekki hafi farið fram nein sjálfstæð rannsókn á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda, né rökstutt sérstaklega hvernig raunverulegar aðstæður hans séu í heimaríki.

Samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga skal stjórnvald sjá til þess að mál sé nægilega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því og afla í því skyni nauðsynlegra upplýsinga. Mál telst nægilega rannsakað þegar þeirra upplýsinga hefur verið aflað sem nauðsynlegar eru til þess að hægt sé að taka efnislega rétta ákvörðun í því. Um frekari afmörkun á því hversu ítarlega beri að rannsaka mál, ber m.a. að líta til þess hversu mikilvægt það er. Því tilfinnanlegri eða meira íþyngjandi sem stjórnvaldsákvörðun er, þeim mun strangari kröfur verður að gera til rannsóknar á þeim atvikum sem leiða til niðurstöðunnar. Markmið rannsóknarreglunnar er að tryggja að stjórnvaldsákvarðanir verði bæði löglegar og réttar. Í þeim tilvikum þegar ákvörðun stjórnvalds byggist á mati verður að afla þeirra upplýsinga sem nauðsynlegar eru svo hægt sé að beita þeim sjónarmiðum sem ætlunin er að byggja stjórnvaldsákvörðun á. Þá verður efni rökstuðnings ákvarðananna að endurspegla þessi sjónarmið enda segir m.a. í 22. gr. stjórnsýslulaga að í rökstuðningi skuli vísa til þeirra réttarreglna sem ákvörðun byggir á, meginsjónarmiða sem ráðandi voru við mat og málsatvika sem höfðu verulega þýðingu við úrlausn málsins.

Að mati kærunefndar hefur ekkert komið fram í málinu sem bendir til þess að skort hafi á að nauðsynlegar upplýsingar lægju fyrir um ástandið í heimaríki kæranda, við ákvörðunartöku hjá Útlendingastofnun. Í því sambandi er tekið fram að kærunefnd hefur yfirfarið þau gögn sem aflað var við rekstur málsins, svo og skýrslur opinberra stofnana, og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun að því er varðar umsókn um alþjóðlega vernd og vernd á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Það er því mat kærunefndar að málsmeðferð Útlendingastofnunar í máli kæranda hafi verið í nægilegu samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga.

Frávísun og frestur til að yfirgefa landið

Kærandi kom hingað til lands þann 25. janúar 2018 og sótti um alþjóðlega vernd þann sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um vernd og dvalarleyfi hér á landi verið synjað og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi er við ágæta heilsu og kemur frá öruggu upprunaríki. Kærandi skal yfirgefa landið innan þess tímamarks sem kveðið er á um í úrskurðarorði.

Athygli kæranda er vakin á því að ef hann yfirgefur ekki landið innan frests kann að vera heimilt að brottvísa honum. Brottvísun felur í sér bann við komu til landsins síðar og skal endurkomubann að jafnaði ekki gilda skemur en tvö ár, sbr. a-lið 2. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar um synjun á umsókn um alþjóðlegri vernd og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Felld er úr gildi ákvörðun stofnunarinnar um brottvísun og endurkomubann.

 

 

 

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar að því er varðar umsókn um alþjóðlega vernd, dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða og frávísun er staðfest. Felld er úr gildi ákvörðun um brottvísun og endurkomubann. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að gera ríkislögreglustjóra viðvart um niðurstöðu kærunefndar. Kærandi skal yfirgefa landið innan 7 daga.

 

The decision of the Directorate of Immigration regarding the application for international protection, residence permit on humanitarian grounds and refusal of entry is affirmed. The Directorate’s decision on expulsion and re-entry ban is vacated. The Directorate is instructed to inform the National Commissioner of the Icelandic Police about this decision. The appellant shall leave the country within 7 days.

 

 

Anna Tryggvadóttir                                                                    Pétur Dam Leifsson

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta