Mál nr. 9/2015 úrskurður 20. febrúar 2015
Mál nr. 9/2015 Eiginnafn: Júlína
Hinn 20. febrúar 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 9/2015 en erindið barst nefndinni 29. janúar:
Eiginnafnið Júlína (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Júlínu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Júlína (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.