Mál nr. 11/2015 úrskurður 20. febrúar 2015
Mál nr. 11/2015 Eiginnafn: Antóníus
Hinn 20. febrúar 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 11/2015 en erindið barst nefndinni 4. febrúar:
Eiginnafnið Antóníus (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Antóníusar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Antóníus (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.