Hoppa yfir valmynd

Nr. 622/2021 Úrskurður

 KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 2. desember 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 622/2021

í stjórnsýslumálum nr. KNU21100032 og KNU21100033

 

Kæra [...] og [...]

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 12. október 2021 kærðu [...], fd. [...], ríkisborgari Kólumbíu og Venesúela (hér eftir nefnd A), og [...], fd. [...], ríkisborgari Venesúela (hér eftir nefnd B), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 27. september 2021, um að taka ekki til efnismeðferðar umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa þeim frá landinu.

Kærendur krefjast þess aðallega að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsóknir þeirra til efnismeðferðar á grundvelli 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, til vara á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og til þrautavara á grundvelli 3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr. sömu laga.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og bárust kærurnar fyrir lok kærufrests.

II.        Málsmeðferð

Kærendur lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 23. júlí 2021. Við umsókn framvísaði A vegabréfi frá Kólumbíu og útrunnu vegabréfi frá Venesúela og B vegabréfi frá Venesúela. Í kjölfar frásagnar kærenda í viðtölum hjá Útlendingastofnun af dvöl þeirra og stöðu í Síle óskaði stofnunin eftir því við stoðdeild ríkislögreglustjóra að afla upplýsinga um stöðu kærenda í Síle. Þann 13. ágúst 2021 barst svar þar sem fram kom að A er með ótímabundið dvalarleyfi í Síle og gilt dvalarleyfisskírteini með gildistíma til 25. júní 2026. Þá er B með tímabundið dvalarleyfi í Síle og dvalarleyfisskírteini með gildistíma til 12. febrúar 2022. Kærendur komu til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. dagana 18., 24. og 31. ágúst 2021, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 27. september 2021 að taka ekki umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að þeim skyldi vísað frá landinu. Ákvarðanirnar voru birtar fyrir kærendum þann 28. september 2021 og kærðu þær ákvarðanirnar þann 12. október 2021 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kærenda barst kærunefnd 20. október 2021 ásamt fylgigögnum.

II.        Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að kærendur séu með gilt dvalarleyfi í Síle. Umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd yrðu því ekki teknar til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kærenda til Síle ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærendur hefðu ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að þær fengju hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsóknir kærenda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærendum var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldu þær fluttar til Síle.

IV.       Málsástæður og rök kærenda

Kærendur vísa í greinargerð sinni til greinargerða sinna til Útlendingastofnunar og annarra gagna málsins er varðar málavexti. Kærendur hafi flúið frá heimaríki vegna almennt slæmra aðstæðna þar í landi og stöðu þeirra sem samkynhneigðra kvenna. Þá hafi kærendur flúið Síle fyrst og fremst vegna almenns óöryggis þar í landi auk fordóma og mismununar gagnvart samkynhneigðum. Þá hefðu fordómar og andúð í garð einstaklinga frá Venesúela aukist í Síle síðustu mánuði.

Í greinargerð kærenda er fjallað almennt um aðstæður LGBT+ einstaklinga í Síle. Heimildir beri með sér að mismunun og ofbeldi gagnvart LGBT+ einstaklingum viðgangist í Síle og hafi farið vaxandi þar í landi á síðustu árum. Að mati kærenda séu frásagnir þeirra í viðtölum hjá Útlendingastofnun í samræmi við þær heimildir sem vísað sé til í umfjöllun þeirra um stöðu LGBT+ einstaklinga í Síle en kærandi B hafi m.a. sætt kynferðislegu ofbeldi á vinnustað sínum auk þess sem að þær hafi greint frá erfiðleikum með að útvega sér leiguhúsnæði og atvinnu vegna kynhneigðar sinnar. Þá fjalla kærendur almennt um stöðu einstaklinga frá Venesúela í Síle, s.s. í tengslum við innviði ríkisins og réttarstöðu flóttamanna þar í landi.

Kærendur byggja aðallega á því að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsóknir þeirra til efnismeðferðar á grundvelli 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í hinni kærðu ákvörðun telur Útlendingastofnun að heimilt sé að beita undantekningarákvæði a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem kærendur séu handhafar dvalarleyfis í Síle en þessu mótmæli kærendur. Kærendur fjalla um 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga en að mati þeirra sé ljóst að greinin hafi ekki verið hugsuð fyrir tilvik líkt og það sem um ræðir í málum kærenda en ekkert formlegt samstarf sé á milli yfirvalda á Íslandi og í Síle hvað varðar meðferð umsókna um alþjóðlega vernd. Kærendur fjalla í greinargerð sinni um hugtakið fyrsta griðland og vísa í því samhengi til tiltekinna heimilda máli sínu til stuðnings. Að mati kærenda sé með öllu óljóst hvort hugtakið geti átt við um einstaklinga sem hafi ekki hlotið einhverskonar vernd í þriðja ríki auk þess sem að Útlendingastofnun hafi ekki litið til allra þeirra atriða sem Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna telji mikilvæg. Þá hafi Útlendingastofnun ekki gengið úr skugga um að stjórnvöld í Síle muni í raun taka á móti kærendum eða að þær hafi aðgang að raunverulegri vernd þar í landi. Kærendur hafi komið hingað til lands vegna ofbeldis og mismununar sem þær hafi orðið fyrir vegna kynhneigðar sinnar og þjóðernis. Eitt grundvallarskilyrði þess að unnt sé að beita a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé að umsækjandi þurfi ekki að óttast ofsóknir í þriðja ríki. Með vísan til umfjöllunar í greinargerð um aðstæður í Síle og frásagnar kærenda sé ljóst að samkynhneigðir þurfi að þola takmarkanir á grundvallarréttindum í Síle auk þess sem þær eigi á hættu mismunun og fordóma vegna uppruna síns. Að mati kærenda geti samansafn athafna í tilviki þeirra haft sömu eða sambærileg áhrif á þær og ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Að framangreindu virtu sé ljóst að skilyrði fyrir beitingu a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga séu ekki uppfyllt og því beri að taka umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar í samræmi við meginreglu 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærendur byggja til vara á því að 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiði til þess að umsóknir þeirra verði teknar til efnismeðferðar hér á landi. Í greinargerð kærenda er lögð áhersla á að sú réttarvernd sem umsækjendum um alþjóðlega vernd er tryggð innan Evrópu sé ekki til staðar í Síle. Því verði að gera strangari kröfur til rannsóknar Útlendingastofnunar þegar meta skuli hvort óhætt sé að beita a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Með hliðsjón af framburði kærenda og fyrirliggjandi heimildum sé ljóst að kærendur muni eiga afar erfitt uppdráttar þar í landi vegna mismununar og úlfúðar sem rekja megi til kynhneigðar þeirra og uppruna.

Þá byggja kærendur umsókn sína til þrautavara á því að endursending þeirra til Síle myndi einnig fela í sér brot gegn grundvallarreglunni um bann við endursendingum sem sé lögfest í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga og alþjóðlegum skuldbindingum sem Ísland eigi aðild að. Með vísan til stöðu þeirra sem samkynhneigðra kvenna frá Venesúela hafi þær fullt tilefni til að óttast ofsóknir í Síle. Þá sé ekki tryggt að kærendur verði ekki sendar aftur til heimaríkis frá Síle.

Kærendur gera athugasemd við að Útlendingastofnun hafi með aðstoð stoðdeildar ríkislögreglustjóra haft samband við yfirvöld í Síle og athugað lagalega stöðu kærenda þar í landi. Kærendur reifa 1. mgr. og 2. mgr. 15. gr. laga um útlendinga í því samhengi. Útlendingastofnun hafi óskað eftir upplýsingum frá Síle þann 12. ágúst 2021, áður en viðtal vegna málsmeðferðar hafi farið fram. Útlendingastofnun hafi því ekki haft neinar forsendur á þeim tímapunkti til að meta hvort hagsmunum kærenda yrði stefnt í hættu ef haft yrði samband við Síle. Þá geri kærendur athugasemd við þá framkvæmd Útlendingastofnunar að afla skriflegs samþykkis til gagnaöflunar frá umsækjendum um alþjóðlega vernd á fyrstu stigum málsmeðferðar áður en umsækjendur hafi fengið tækifæri til að ræða við talsmann. Þessi framkvæmd brjóti gegn 3. mgr. 28. gr. laga um útlendinga og eigi sér ekki stoð í lögum. Þá gera kærendur athugasemd við að Útlendingastofnun telji þau gögn sem liggi fyrir í málunum gefi skýra mynd af lagalegri stöðu kærenda í Síle og staðhæfingar Útlendingastofnunar varðandi aðgerðir stjórnvalda í Síle til að stemma stigu við ofbeldi og fordómum gegn minnihlutahópum.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Í tilviki kærenda er litið til þess hvort þær, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem þær þurftu ekki að sæta ofsóknum, gátu óskað eftir að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt gögnum málsins og eftirfarandi umfjöllun um aðstæður í móttökuríki er ekkert sem bendir til þess að kærendur hafi ástæðu til að óttast ofsóknir í Síle, sbr. 37. og 38. gr. laga um útlendinga, eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu að þær séu í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málanna hafa kærendur dvalið í Síle undanfarin ár. A er handhafi ótímabundins dvalarleyfis þar í landi og B handhafi tímabundins dvalarleyfis sem gildir til 12. febrúar 2022. Samkvæmt fyrirliggjandi heimildum verður ekki annað ráðið en að kærendur eigi þess kost að óska eftir alþjóðlegri vernd í viðtökuríki. Að mati kærunefndar uppfylla kærendur því skilyrði a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

 

 

Aðstæður í Síle

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Síle, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2020 Country Reports on Human Rights Practices: Chile (United States Department of State, 30. mars 2021);
  • Amnesty International Report 2020/21: The State of the World‘s Human Rights (Amnesty International, 7. apríl 2021);
  • Cartagena Declaration on Refugees (UNHCR, ódagsett);
  • Chile 2020 Crime & Safety Report (OSAC, 3. október 2020);
  • Chile same-sex marriage vote delayed, abortion bill shelved (Buenos Aires Times, sótt 1. desember 2021);
  • Fact Sheet: Chile (UNHCR, mars 2021);
  • Fact Sheet: Chile (UNHCR, ágúst 2019);
  • Freedom in the World 2021 – Chile (Freedom House, 3. mars 2021);
  • Guidelines on International Protection No. 12: Claims for refugee status related to situations of armed conflict and violence undir Article 1A(2) of the 1951 Convention and/or 1967 Protocol relation to the Status of Refugees and the regional refugee definitions (UNHCR, 2. desember 2016);
  • Health in the Americas+. Summary: Regional Outlook and Country Profiles (Pan American Health Organization, uppfært 12. desember 2017);
  • International Migration Outlook 2020 (OECD, 19. október 2020);
  • Profile of the Health Service System: Chile (World Health Organization, ódagsett);
  • Rights and obligations of permanent residents; instances under which permanent residence is lost (Immigration and Refugee Board of Canada, 25. janúar 2017);
  • Social protection and Venezuelan migration (International Organization for Migration, ódagsett 2021);
  • Socioeconomic Integration of Venezuelan Migrants and Refugees (International Organization for Migration, júlí 2021);
  • Summary Conclusions on the interpretation of the extended refugee definition in the 1984 Cartagena Declaration (UNHCR, 7. júlí 2021);
  • Upplýsingar af vefsíðu Mannréttindastofnunar Síle (www.indh.cl, sótt 2. desember 2021);
  • Upplýsingar af vefsíðu ráðuneytis innflytjendamála í Síle (www.extranjeria.gob.cl., sótt 2. desember 2021);
  • Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (https://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 2. desember 2021);
  • Upplýsingasíða Sóttvarnarstofnunar Evrópu (https://www.ecdc.europa.eu/en/cases-2019-ncov-eueea, sótt 2. desember 2021) og
  • World Report 2021 (Human Rights Watch, 13. janúar 2021).

Á framangreindri vefsíðu ráðuneytis innflytjendamála í Síle kemur fram að einstaklingar geti verið handhafar tímabundins eða ótímabundins dvalarleyfis þar í landi. Tímabundið dvalarleyfi gildi í eitt ár og að hægt sé að framlengja það einu sinni en að því loknu þurfi handhafi dvalarleyfis að óska eftir ótímabundnu dvalarleyfi hjá Innanríkis- og almannaöryggisráðuneyti Síle. Þá kemur fram að umsækjandi sem hafi fengið synjun á umsókn sinni geti beðið ráðuneytið um endurskoðun á ákvörðuninni auk þess sem að tryggt sé í lögum að hann geti borið lögmæti ákvörðunarinnar undir þar til bæra aðila. Einstaklingar sem séu með gilt dvalarleyfi í Síle og hafi haft búsetu þar í landi í fimm ár geti sótt um ríkisborgararétt þar í landi.

Samkvæmt framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2021 er kveðið á um veitingu alþjóðlegrar verndar eða stöðu flóttamanns í lögum í Síle auk þess sem að stjórnvöld hafi komið á fót kerfi til að veita flóttamönnum vernd, þ. á m. aðgang að menntun og heilbrigðisþjónustu. Síle sé aðili að flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna og þá kemur fram í framangreindri samantekt og leiðbeiningum UN High Commissioner for Refugees (UNHCR) að Síle sé aðili að Cartagena yfirlýsingunni sem sé samkomulag milli ríkja í Suður-Ameríku sem varði málefni flóttamanna. Orðalag yfirlýsingarinnar bendi til þess að skilgreining hennar á flóttamannahugtakinu sé rýmri en t.a.m. í flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna og geti þannig tekið til einstaklinga sem séu í þörf fyrir alþjóðlega vernd en falli ef til vill ekki undir skilgreiningu flóttamannasamningsins á hugtakinu. Sú skilgreining á hugtakinu flóttamaður sem fyrirfinnst í Cartagena yfirlýsingunni hafi verið innleidd í löggjöf ýmissa ríkja Suður-Ameríku, þ. á m. Síle. Þá árétti yfirlýsingin m.a. grundvallarregluna um bann við endursendingum og rétt einstaklinga til alþjóðlegrar verndar.

Samkvæmt framangreindum skýrslum World Health Organization og Pan American Health Organization er öllum tryggður réttur til heilbrigðisþjónustu í stjórnarskrá Síle óháð því hvort viðkomandi sé með ríkisborgararétt. Heilbrigðiskerfi Síle samanstandi af opinberu og einkareknu kerfi. Ríkisborgarar Síle og þeir sem hafi heimild til löglegrar dvalar þar í landi hafi aðgang að endurgjaldslausri og niðurgreiddri heilbrigðisþjónustu í gegnum ríkisrekið sjúkratryggingakerfi. Þá kemur fram í framangreindri skýrslu International Organization for Migration (IOM) að allir innflytjendur og flóttamenn hafi aðgang að heilbrigðiskerfi Síle þótt þau geti mætt ákveðnum hindrunum við að nýta sér þá þjónustu.

Samkvæmt framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins er jafnræði og bann við mismunun verndað af stjórnarskrá Síle. Árið 2020 hafi verið dæmi þess að minnihlutahópar yrðu fyrir mismunun í heilbrigðis- og menntakerfinu en stjórnvöld hafi komið á fót þjálfunaráætlun fyrir opinbera starfsmenn í því skyni að aðstoða innflytjendur og auka aðgang að túlkaþjónustu hjá hinu opinbera. Í framangreindri skýrslu IOM um félagslega stöðu ríkisborgara Venesúela í völdum löndum Suður-Ameríku kemur fram að innflytjendur frá Venesúela hafi upplifað mismunun. Af skýrslunni má sjá að útlendingaandúð í Síle hafi lengst af beinst gegn einstaklingum frá Haítí. Samkvæmt rannsókn á efni á samfélagsmiðlinum Twitter hafi 63% af mismunun beinst gegn einstaklingum frá Haítí þrátt fyrir að hlutfall innflytjenda í Síle sem séu frá Venesúela sé mun hærra en þeirra sem séu frá Haítí. Þá sýni rannsókn frá árunum 2018-2019 að tveir þriðju íbúa Síle hafi talið að stjórnvöld ættu að veita innflytjendum og flóttamönnum frá Venesúela heilbrigðisaðstoð, menntun og húsnæði. Þá sýni rannsókn frá árinu 2021 að 84% íbúa Síle styðji að innflytjendur og flóttamenn frá Venesúela hafi jafnan aðgang að menntun og heilbrigðisþjónustu. Þá er starfrækt sjálfstæð mannréttindastofnun (s. Instituto Nacional De Derechos Humanos) sem hefur það að markmiði að efla og vernda mannréttindi allra þeirra sem séu búsettir í Síle.

Í framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2021 kemur m.a. fram að ofbeldi og mismunun gagnvart LGBTI+ einstaklingum er vandamál í Síle. Algengustu tilvik mismununar séu niðrandi ummæli og mismunun varðandi aðgengi að opinberri þjónustu, s.s. menntun og heilbrigðisþjónustu. Í Síle sé til staðar löggjöf sem banni mismunun á grundvelli kynhneigðar eða kynvitundar á húsnæðis- og atvinnumarkaði og varðandi aðgengi að opinberri þjónustu. Árið 2019 hafi tekið gildi lög um kynvitund fólks sem bæti réttarstöðu trans einstaklinga til muna. Þann 13. nóvember 2020 samþykkti ríkisstjórn Síle að setja á fót stofnun sem hafi það markmið að beita sér gegn ofbeldi gagnvart LGBTI+ einstaklingum, bæta aðstoð við þolendur, þjálfa opinbera starfsmenn og lögreglu og standa að herferðum gegn mismunun. Samkvæmt framangreindri skýrslu Amnesty International fyrir árið 2020 viðurkenndi dómstóll í Síle í fyrsta skipti tvær konur sem mæður barns og fyrirskipaði þjóðskrá landsins (e. Civil Registry) að skrá þau sem fjölskyldu en þjóðskrá hafði áður neitað slíkri skráningu. Frá og með júlí 2020 hafi barnið verið skráð opinberlega með tvær mæður. Þá bera fréttir með sér, s.s. af vefsíðunni Buenos Aires Times, að lagt hafi verið fram frumvarp fyrir þingið í Síle sem heimili hjónabönd samkynhneigðra og ættleiðingu samkynhneigðra. Frumvarpið hafi verið samþykkt af neðri deild þingsins en bíði úrlausnar efri deildar. Í áðurnefndri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur jafnframt fram að öryggislögreglan (s. Carabineros) ásamt rannsóknarlögreglunni beri ábyrgð á löggæslu, m.a. landamæraeftirliti og almannaöryggi. Þá hafi innanríkis- og almannaöryggisráðuneytið yfirumsjón með báðum stofnunum. Þó kemur fram í skýrslunni að löggæsluyfirvöld séu treg til að nota úrræði í lögum sem banni mismunun, þ.m.t. að gefa út ákærur vegna hatursglæpa. Samkvæmt skýrslu OSAC er öryggislögreglan ein fagmannlegasta og best þjálfaða lögreglusveit rómönsku Ameríku ásamt því að vera ein af þeim minnst spilltu.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar eftir því sem við á, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Af 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar má jafnframt ráða að heilsufar umsækjanda hafi takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Samkvæmt gögnum málsins eru kærendur konur á þrítugs- og fertugsaldri. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun hafi A greint frá því að vera líkamlega og andlega heilbrigð. Af framlögðum gögnum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 12. ágúst 2021, má sjá að heilbrigðisskoðun A hafi farið fram í samræmi við ákvæði sóttvarnarlaga. Þá hafi A greint frá því að hafa verið bólusett gegn Covid-19. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun hafi B greint frá því að líkamlegt heilsufar hennar væri almennt gott en hún væri þó með stoðkerfisvandamál auk þess að vera greind með skjaldkirtilsvandamál. Þá fái B mígreni og sé með magabólgu (e. gastritis) auk þess sem að hún hafi greint frá því að hafa verið bólusett gegn Covid-19. Af framlögðum gögnum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 12. ágúst 2021, kemur fram að heilbrigðisskoðun B hafi farið fram í samræmi við ákvæði sóttvarnarlaga.

Kærunefnd tekur fram að kærendur hafi haft tækifæri við meðferð mála þeirra hjá Útlendingastofnun til að leggja fram gögn um heilsufar sem kærendur telji hafa þýðingu fyrir mál sitt og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls þeirra hjá Útlendingastofnun. Þá var kærendum, sem njóta aðstoðar löglærðs talsmanns á vegum Rauða krossins, jafnframt leiðbeint með tölvubréfi kærunefndar þann 12. október 2021 um framlagningu uppfærðra heilsufarsgagna. Engin frekari heilsufarsgögn voru lögð fram við meðferð málsins hjá kærunefnd. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kærenda sé nægjanlega upplýst hvar varðar heilsufar þeirra og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður þeirra. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar þeirra geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufarar kærenda sé með þeim hætti að þær teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, svo sem áskilið er í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Að mati kærunefndar er heilsufar kærenda ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Síle verður ráðið að kærendur hafi aðgang að heilbrigðisþjónustu þar í landi. Telur kærunefnd því að aðstæður kærenda tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kærenda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verið fram hjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar.

Kærendur hafa borið fyrir sig að hafa orðið og eiga á hættu að verða fyrir fordómum og mismunun í Síle vegna kynhneigðar og þjóðernis. Af framangreindum gögnum má ráða að mismunun og ofbeldi á grundvelli þjóðernis og kynhneigðar sé vandamál í Síle, þ. á m. hafi samkynhneigðir einstaklingar orðið fyrir niðrandi ummælum og mismunun varðandi aðgang að opinberri þjónustu. Kærunefnd telur ljóst af framangreindum gögnum að kærendur geti leitað ásjár yfirvalda í Síle verði þær fyrir mismunun á grundvelli kynhneigðar eða þjóðernis þar í landi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærendur um öryggi sitt geti þær leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærendur muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða þær vænst þess að staða þeirra, í ljósi sömu ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærendur hafa ekki sýnt fram á að aðrar aðstæður þeirra í viðtökuríki séu slíkar að önnur viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsóknir þeirra til efnismeðferðar hér á landi.

Við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsóknir kærenda hljóti efnismeðferð hér á landi hefur kærunefnd litið til þeirra aðstæðna sem hafa verið og eru uppi vegna Covid-19 faraldursins. Með vísan til framangreinds, þ.m.t. þeirra skýrslna og gagna sem kærunefnd hefur kynnt sér, telur nefndin ljóst að verulega hafi dregið úr þeirri óvissu sem til staðar var í upphafi Covid-19 faraldursins og að ekkert bendi til þess að aðstæður í Síle vegna faraldursins séu þannig að það geti leitt til þess að taka eigi mál kærenda til efnismeðferðar hér á landi. Samkvæmt gögnum málsins hafa kærendur verið bólusettar gegn Covid-19 auk þess sem að þær upplýsingar sem kærunefnd hefur kynnt sér bera með sér að bólusetning sé vel á veg komin í viðtökuríkinu.

Þá lítur kærunefnd einnig til þess að samkvæmt 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga er Útlendingastofnun heimilt að fresta flutningi á umsækjanda ef það telst nauðsynlegt vegna sérstakra aðstæðna hans eða ómögulegt er að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Er það mat kærunefndar að tímabundnar takmarkanir á endursendingum til Síle geti ekki eins og hér stendur á, leitt til þess að sérstakar ástæður mæli með því að umsóknir kærenda verði teknar til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kærenda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda og á grundvelli heildarmats á áhrifum Covid-19 faraldursins á aðstæður þeirra er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæla með því að mál þeirra verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2 mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærendur kváðust í viðtölum hjá Útlendingastofnun dagana 18., 24. og 31. ágúst 2021 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærendur hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kærenda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærendur sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi, en þær lögðu fram umsóknir sínar þann 23. júlí 2021.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.

Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr. og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallinn að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr. og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.

Í ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 70. mgr., kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við frávísun eða brottvísun frá aðildarríki nái ekki því alvarleikastigi að teljast vanvirðandi meðferð og brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóti alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem standi til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að teljast brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæli gegn endursendingu, sbr. 71. mgr. ákvörðunarinnar. Málið varðaði flutning einstæðrar móður með tvö ung börn sem voru með viðbótarvernd til Ítalíu og komst dómstóllinn einróma að þeirri niðurstöðu að málsástæður hennar um að flutningur til Ítalíu væri brot á 3., 8. og 13. gr. mannréttindasáttmálans væru bersýnilega tilhæfulausar og að mál hennar væri af þeim sökum ekki tækt til meðferðar. Um inntak „sérstaklega sannfærandi mannúðarástæðna“ vísast til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í máli N. gegn Bretlandi (nr. 26565/05), frá 27. maí 2008, 42. mgr., og Sufi og Elmi gegn Bretlandi (nr. 8319/07 og 11449/07) frá 28. nóvember 2011, 281.-292. mgr., en dómarnir setja háan þröskuld fyrir því að meðferð eða aðstæður teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans.

Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.

Kærendur hafa borið fyrir sig að hafa orðið fyrir mismunun vegna þjóðernis og kynhneigðar í viðtökuríki og að þær hafi fullt tilefni til að óttast ofsóknir vegna samansafns ástæðna þar í landi. Líkt og að framan greinir gefa þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér til kynna að einstaklingar geti orðið fyrir mismunun á grundvelli kynhneigðar og þjóðernis í viðtökuríki. Þrátt fyrir það bendir heildarmat á gögnum málsins ekki til þess að slík mismunun nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. sömu laga. Þá er það mat kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda séu ekki slíkar að vegna stöðu þeirra í viðtökuríki verði endursending þeirra þangað talin ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð.

Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður í viðtökuríki og einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærendur eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsókna kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi og flutningur þeirra til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Kærunefnd hefur við framangreint mat m.a. litið til þess að stjórnvöld í Síle eru aðilar að Cartagena yfirlýsingunni þar sem veitt er vernd gegn endursendingum einstaklinga til ríkis þar sem þeir eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra og frelsi ógnað (non-refoulement). Þá eru stjórnvöld í Síle aðilar að mannréttindasáttmála Ameríku þar sem m.a. er mælt fyrir um bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð.

Samkvæmt framansögðu verða mál kærenda ekki tekin til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Athugasemdir kærenda við hinar kærðu ákvarðanir Útlendingastofnunar

Svo sem fram hefur komið gera kærendur ýmsar athugasemdir við ákvarðanir Útlendingastofnunar, þ. á m. við umfjöllun stofnunarinnar um aðstæður þeirra í Síle og öflun gagna frá viðtökuríki.

Kærendur gera í greinargerð sinni athugsemdir við að Útlendingastofnun hafi haft samband við yfirvöld í Síle og spurst fyrir um lagalega stöðu þeirra þar í landi. Af gögnum málsins má sjá að við upphaf málsmeðferðar hjá Útlendingastofnun hafi kærendur skrifað undir umboð til gagnaöflunar þar sem m.a. kemur fram að íslensk stjórnvöld hafi heimild til að afla upplýsinga frá íslenskum og erlendum stjórnvöldum en að ekki megi afla upplýsinga um persónuleg málefni kærenda frá stjórnvöldum þess ríkis sem kærandi hafi greint frá að séu ábyrg fyrir ofsóknum á hendur þeim. Þann 5. ágúst 2021 hafi kærendur mætt í fyrsta viðtal hjá Útlendingastofnun þar sem þær hafi m.a. verið spurðar út í ástæður þess að þær hafi flúið frá heimaríki sínu. Í umræddum viðtölum var ekki spurt út í aðstæður kærenda í Síle og af hvaða ástæðum þær hefðu yfirgefið landið. Þann 12. ágúst 2021 hafi Útlendingastofnun beðið stoðdeild ríkislögreglustjóra að kanna lagalega stöðu kærenda í Síle og barst svar stoðdeildar þann 13. ágúst 2021. Samkvæmt 2. mgr. 15. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum ekki heimilt að afla upplýsinga eða veita upplýsingar um einstök mál, er varðar umsókn útlendings um alþjóðlega vernd hér á landi, á þann hátt að þeir sem valdir hafa verið af ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í máli viðkomandi útlendings geti fengið upplýsingar um mál hans þannig að öryggi viðkomandi eða fjölskyldu hans sé teflt í tvísýnu. Af gögnum málsins er því ljóst að þegar Útlendingastofnun aflaði upplýsinga frá yfirvöldum í Síle þá lá ekki fyrir með fullnægjandi hætti á hvaða grundvelli kærendur væru að sækja um alþjóðlega vernd hér á landi. Kærunefnd gerir athugasemd við framangreind vinnubrögð Útlendingastofnunar en telur þennan annmarka þó ekki geta haft áhrif á niðurstöðu í málum þeirra. Kærunefnd beinir því til Útlendingastofnunar að haga málsmeðferð sinni er varðar upplýsingaöflun til samræmis við áskilnað 2. mgr. 15. gr. laga um útlendinga.

Kærunefnd hefur farið yfir hinar kærðu ákvarðanir að öðru leyti og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við þær.

Frávísun

Samkvæmt gögnum máls komu kærendur hingað til lands þann 23. júlí 2021 og sóttu um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hafa þær því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kærendum því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda höfðu þær verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsókna þeirra hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvarðanir Útlendingastofnunar.

Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin, m.a. ef afleiðingar Covid-19 faraldursins muni vara lengur og vera alvarlegri en gera má ráð fyrir nú.

Athygli kærenda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.


 

Úrskurðarorð:

 

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.

 

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                             Sandra Hlíf Ocares

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta