Hoppa yfir valmynd

Nr. 85/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 23. febrúar 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 85/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU22120036

 

Beiðni [...] um endurupptöku

 

  1. Málsatvik

    Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 182/2021, dags. 21. apríl 2021, staðfesti nefndin ákvörðun Útlendingastofnunar frá 27. janúar 2021 um að taka ekki umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Palestínu (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd á Íslandi til efnismeðferðar og vísa honum frá landinu. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda 26. apríl 2021.

    Hinn 13. október 2021 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku málsins. Var þeirri beiðni synjað af kærunefnd 18. nóvember 2021 með úrskurði nr. 587/2021. Þá barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku að nýju 7. desember 2022. Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun, dags. 10. febrúar 2023, er kærandi með dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar hér á landi.

    Beiðni kæranda um endurupptöku byggir á 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

     

  2. Málsástæður og rök kæranda

    Kærandi byggir beiðni sína um endurupptöku á tvíþættum grundvelli, annars vegar á því að aðstæður hafi breyst verulega frá því að ákvörðun var tekin í máli hans og hins vegar að ákvörðun í málinu hafi byggst á ófullnægjandi upplýsingum. Kærandi vísar til dóms Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E-351/2022 frá 13. október 2022. Dómurinn hafi slegið því föstu að ekki hafi verið réttmætt að leggja til grundvallar að umsækjandi í því máli bæri ábyrgð á þeirri töf sem varð á meðferð máls hans og leiddi til þess að ekki varð af flutningi innan 12 mánaðar frestsins sem kveðið sé á um í 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

    Kærandi byggir á því að hann hafi ekki verið upplýstur með formlegum og sannanlegum hætti á móðurmáli sínu um skyldur sínar gagnvart Útlendingastofnun og afleiðingar þess að mæta ekki í sýnatöku eða framvísa ekki bólusetningarvottorði. Þá sé því mótmælt að kærandi hafi með einhverjum hætti tafið mál sitt með röngum upplýsingum. Þegar um svo íþyngjandi afleiðingar sé að ræða telji kærandi að það hafi verið í samræmi við vandaða stjórnsýsluhætti, m.a. í því skyni að fyrirbyggja misskilning og tryggja sönnun, að upplýsa hann með eyðublaði sem væri að öllu leyti þýtt á móðurmál hans og birt honum með aðstoð túlks og að viðstöddum lögmanni hafi þess verið óskað. Í máli kæranda hafi ýmist verið notast við eyðublaðið eða munnlega fundi til þess að fá afstöðu hans í tengslum við flutninginn og sýnatöku. Kærandi vísar til þess að í máli hans liggi ekki fyrir fullnægjandi upplýsingar um hvernig staðið hafi verið að upplýsingagjöf af hálfu stoðdeildar ríkislögreglustjóra eða hvort túlkað hafi verið frá ensku eða íslensku yfir á móðurmál hans. Í samræmi við niðurstöðu framangreinds héraðsdóms sé mikilvægt að kæranda hafi verið veittar upplýsingar um afleiðingar þess að mæta ekki í sýnatöku eða framvísa ekki bólusetningarvottorði. Í fyrri beiðni kæranda um endurupptöku komi ekki fram hvort túlkur hafi verið viðstaddur birtingarferli fyrrnefndrar tilkynningar. Slíkt verklag samræmist hvorki 11. gr. laga um útlendinga né vönduðum stjórnsýsluháttum.

    Kærandi telur að dómur Héraðsdóms Reykjavíkur feli í sér áfellisdóm hvað varði birtingu og framkvæmd ákvarðana Útlendingastofnunar af hálfu stoðdeildar. Af dómnum megi ráða að það verklag sem hafi verið viðhaft gagnvart aðilum sem hafi ílengst hér vegna heimsfaraldurs, m.t.t. framkvæmdar um brottvísun, hafi verið ófullnægjandi.

    Kærandi telur skýr og haldgóð rök fyrir því að 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga verði beitt í máli hans. Með hliðsjón af rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar, meginreglu 11. gr. laga um útlendinga, hagsmunum þeim sem í húfi séu og hvernig nýfallinn dómur Héraðsdóms Reykjavíkur breytir niðurstöðu málsins sé ljóst að fullt tilefni sé til endurupptöku málsins.

  3. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál hans verði tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hefur samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum er þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar eru í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum en ekki við komu til landsins. Þá hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þó að 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst er að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 27. október 2020 og rann því umræddur 12 mánaða frestur út á miðnætti 27. október 2021. Hinn 13. október 2021 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku á þeim grundvelli að hann hefði gengið í hjónaband með íslenskum ríkisborgara og þau ættu von á barni. Með tölvubréfi, dags. 27. október 2021, lagði kærandi fram viðbótarröksemdir sem byggðu á því að meira en 12 mánuðir væru liðnir frá því hann lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi. Með úrskurði kærunefndar í máli nr. 587/2021, dags. 18. nóvember 2021, var það m.a. niðurstaða kærunefndar að tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda hefðu verið á hans ábyrgð, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Var því ekki fallist á beiðni kæranda um endurupptöku máls hans á þeim grundvelli að meira en 12 mánuðir væru liðnir frá því hann lagði fyrst fram umsókn hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Við meðferð framangreindrar endurupptökubeiðni kæranda barst kærunefnd tölvubréf frá stoðdeild ríkislögreglustjóra, dags. 29. október 2021, þar sem fram kemur að 9. júní 2021 hafi verið haft samband við kæranda en hann ekki svarað. Kærandi hafi hringt til baka 11. júní 2021 og greint frá því að vera veikur. Þá kemur fram að kærandi tali og skilji ensku. Hinn 12. júlí 2021 hafi starfsmaður stoðdeildar hringt í kæranda og útskýrt fyrir honum stöðuna á Íslandi og að hann þyrfti að fara til Grikklands. Kærandi hafi neitað að fara til Grikklands og neitað að undirgangast Covid-19 sýnatöku. Hinn 29. september 2021 hafi kærandi verið boðaður í viðtal hjá stoðdeild. Kærandi hafi mætt í umrætt viðtal 30. september 2021 þar sem honum hafi verið birt ,,Tilkynning um framkvæmd ákvörðunar um frávísun frá Íslandi til Grikklands“. Tilkynningin hafi verið lesin upp fyrir kæranda á ensku en þegar lestur hafi verið hálfnaður hafi kærandi framvísað hjúskaparvottorði og greint frá því að hafa lagt fram umsókn um dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar. Í kjölfarið hafi viðtalið verið stöðvað. Hinn 14. október 2021 hafi kærandi verið boðaður í viðtal hjá stoðdeild daginn eftir. Hinn 15. október 2021 hafi kærandi haft samband við stoðdeild, greint frá því að geta ekki mætt í boðað viðtal vegna þreytu og hafi óskað eftir því að viðtalið yrði fært til 18. október 2021 sem hafi verið samþykkt. Kærandi hafi mætt til viðtals hjá stoðdeild umsaminn dag og var ,,Tilkynning um framkvæmd ákvörðunar um frávísun frá Íslandi til Grikklands“ aftur birt fyrir honum. Í umræddri tilkynningu komi m.a. fram að frestur kæranda til sjálfviljugrar heimfarar hafi runnið út og að stoðdeild ríkislögreglustjóra beri ábyrgð á flutningi hans til Grikklands. Þá hafi kærandi verið beðinn um að svara því hvort hann hygðist ætla sýna samstarfsvilja í tengslum við flutning hans úr landi auk þess sem hann hafi fengið leiðbeiningar um tilhögun fyrirhugaðs flutning og næstu skref í tengslum við hann. Kærandi hafi svarað því með neikvæðum hætti með því að merkja við viðeigandi svarreit í tilkynningunni. Í kjölfarið hafi kærandi verið spurður hvort hann myndi undirgangast Covid-19 sýnatöku til að liðka fyrir framkvæmd fyrirhugaðs flutnings. Kærandi hafi greint frá því að ætla ekki að undirgangast Covid-19 sýnatöku í tengslum við flutninginn og hafi merkt við viðeigandi svarreit í tilkynningunni. Kærandi hafi undirritað tilkynninguna og staðfest að hann hafi skilið leiðbeiningarnar og fyrirmæli lögreglu.

Hinn 17. janúar 2023 óskaði kærunefnd eftir frekari gögnum frá stoðdeild ríkislögreglustjóra. Hinn 19. janúar 2023 bárust gögn frá stoðdeild. Engar frekari upplýsingar en áður höfðu legið fyrir komu fram í þeim gögnum. Hinn 24. janúar 2023 var kæranda þó veittur frestur til að koma á framfæri andmælum í samræmi við 13. gr. stjórnsýslulaga. Í tölvubréfi frá lögmanni kæranda, dags. 26. janúar 2023, kemur fram að kærandi mótmæli því að hafa tafið mál sitt með einhverjum hætti. Engin gögn liggi fyrir um undirbúning flutnings eða ferðaskilríkja. Eina tilraun stoðdeildar felist í því að reynt hafi verið að ræða við hann um hugsanlega brottvísun. Þá liggi ekki fyrir hvernig staðið hafi verið að birtingu tilkynningareyðublaðs í tengslum við fyrirhugaðan flutning eða hvort rætt hafi verið við kæranda með aðstoð túlks um skyldur hans gagnvart stjórnvöldum og afleiðingar þess að verða ekki við þeim. Þá mótmælti kærandi því að hafa ekki svarað símanum í maí 2022 en hann telji að samskipti hans við lögregluna sýni fram á að kærandi hafi verið í stöðugu sambandi við lögreglu og boðað forföll með tímanlegum hætti. Ekki sé hægt að leggja til grundvallar að hann hafi reynt að komast undan stjórnvöldum með einhverjum hætti. Aldrei hafi verið haft samband við lögmann hans vegna málsins. Aðgerðir stoðdeildar og framkvæmdin hafi í besta falli verið ómarkviss. Kærandi hafi ekkert gert til að koma í veg fyrir að íslenskum stjórnvöldum væri kleift að endursenda hann til Grikklands.

Með tölvubréfi, dags. 27. janúar 2023, var kæranda sent áðurnefnt eyðublað ,,Tilkynning um fyrirhugaðan flutning frá Íslandi til Grikklands“ auk gagna sem legið höfðu fyrir við meðferð fyrri endurupptökubeiðni hans. Var kæranda veittur frestur til andmæla í samræmi við 13. gr. stjórnsýslulaga. Í svari frá lögmanni kæranda, þann sama dag, vísaði hann til dóms Héraðsdóms Reykjavíkur í máli E-351/2022, frá 13. október 2022. Þá vísar hann til þess að þrátt fyrir að kærandi skilji að einhverju leyti ensku þá hafi umrædd tilkynning ekki verið á einföldu máli og hafi meðal annars að geyma upplýsingar um lagaleg atriði. Því hafi verið fullt tilefni til að tryggja að hann skildi inntak tilkynningarinnar og neðanmálsgrein sem sé eingöngu á íslensku. Þá bendi gögn málsins ekki til þess að búið hafi verið að bóka tíma fyrir kæranda í sýnatöku, sbr. niðurstaða kærunefndar í úrskurðum nefndarinnar nr. 401/2021 frá 26. ágúst 2021 og nr. 450/2021 og 455/2021 frá 22. september 2021.

Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E-351/2022 frá 13. október 2022, var það niðurstaða dómsins að þar sem stefnandi í því máli skildi takmarkaða ensku hefði verið fullt tilefni til að tryggja að hann skildi inntak Tilkynningar um framkvæmd ákvörðunar um frávísun frá Íslandi til Grikklands og mikilvægi þess að mæta til Covid-19 sýnatöku degi síðar. Að mati dómsins stæðist ekki grunnforsenda úrskurðarins um að stefnandi hefði tafið afgreiðslu málsins með því að mæta ekki í sýnatöku nema því yrði slegið föstu að stefnandi hefði áttað sig á því hvar og hvenær sýnatakan ætti að fara fram. Þá hafi neðanmálsgrein í fyrirliggjandi tilkynningu, sem fjallaði m.a. um hugsanlega ábyrgð stefnanda á töfum, einungis verið á íslensku. Samkvæmt 11. gr. laga um útlendinga sé skylt að veita útlendingum leiðbeiningar um réttindi sín og meðferð máls á tungumáli sem ætla má með sanngirni að þeir geti skilið. Tók dómurinn fram að horfa yrði til íþyngjandi áhrifa þess að tafir á málsmeðferð væru taldar á ábyrgð umsækjanda um alþjóðlega vernd, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Dómurinn taldi því ekki réttmætt að leggja til grundvallar að stefnandi bæri ábyrgð á þeirri töf sem varð á meðferð máls hans og leiddi til þess að ekki varð af flutningi hans innan 12 mánaða frestsins. Hafi því úrskurður kærunefndar að þessu leyti verið byggður á efnisannmarka sem teljist verulegur. Af þeirri ástæðu var fallist á kröfu stefnanda um að ógilda úrskurð nefndarinnar frá 18. nóvember 2021 þar sem beiðni stefnanda um endurupptöku málsins var synjað.

Með tilliti til framangreinds telur kærunefnd að aðstæður kæranda í þessu máli séu ólíkar aðstæðum stefnanda í máli Héraðsdóms Reykjavíkur nr. E-351/2022 frá 13. október 2022. Í máli kæranda liggur fyrir að honum hafi verið birt eyðublaðið ,,Tilkynning um framkvæmd ákvörðunar um frávísun frá Íslandi til Grikklands“ og starfsmenn stoðdeildar hafi lesið það upp fyrir hann á ensku en samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum frá stoðdeild ríkislögreglustjóra hafi kærandi bæði talað og skilið ensku. Líkt og að framan greinir hafi kærandi verið beðinn um að svara því hvort hann hygðist ætla sýna samstarfsvilja í tengslum við flutning hans úr landi auk þess sem hann hafi fengið leiðbeiningar um tilhögun fyrirhugaðs flutnings og næstu skref í tengslum við hann. Kærandi hafi svarað því með neikvæðum hætti með því að merkja við viðeigandi svarreit í tilkynningunni. Í kjölfarið hafi kærandi verið spurður hvort hann myndi undirgangast Covid-19 sýnatöku til að liðka fyrir framkvæmd fyrirhugaðs flutnings. Kærandi hafi greint frá því að ætla ekki að undirgangast Covid-19 sýnatöku í tengslum við flutninginn og hafi merkt við viðeigandi svarreit í tilkynningunni. Þá komi einnig fram í tilkynningunni hvaða þýðingu það hefur að neita að sýna samstarfsvilja í tengslum við flutning úr landi. Kærandi hafi þá undirritað tilkynninguna og staðfest að hann hafi skilið leiðbeiningarnar og fyrirmæli lögreglu. Með vísan til þess sem að framan greinir er ljóst að kæranda hafi verið veittar fullnægjandi leiðbeiningar sem með sanngirni megi ætla að hann hafi skilið. Telur því kærunefnd að 11. gr. laga um útlendinga hafi verið uppfyllt í máli kæranda.

Kærunefnd telur að lokum að 11. gr. laga um útlendinga leggi almennt ekki þá skyldu á stjórnvöld að kalla til lögmann þegar þau eiga í samskiptum við umsækjendur um alþjóðlega vernd og er þeirri málsástæðu kæranda því hafnað.

Varðandi tilvísun kæranda til úrskurða kærunefndar nr. 401/2021 frá 26. ágúst 2021 og nr. 450/2021 og 455/2021 frá 22. september 2021, telur kærunefnd að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda í þeim málum við stöðu kæranda í því máli sem hér er til meðferðar. Í framangreindum úrskurðum kærunefndar lá m.a. ekki fyrir ,,Tilkynning um fyrirhugaðan flutning frá Íslandi til Grikklands“.

Í ljósi framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að ekki sé hægt að fallast á að úrskurður kærunefndar útlendingamála, dags. 21. apríl 2021, hafi byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða að atvik málsins hafi breyst verulega frá því að fyrrgreindur úrskurður var kveðinn upp, sbr. 1. og 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga.

Að öllu framangreindu virtu er kröfu kæranda um endurupptöku málsins því hafnað.

 

Úrskurðarorð:

 

Kröfu kæranda um endurupptöku er hafnað.

The appellant‘s request to re-examine the cases is denied.

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                Sandra Hlíf Ocares


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta