Hoppa yfir valmynd

Nr. 8/2019 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 15. janúar 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 8/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU18110039

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 27. nóvember 2018 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Palestínu (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 6. nóvember 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Kærandi krefst þess að kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda til efnislegrar meðferðar hér á landi með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 auk 3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr. sömu laga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 18. júní 2018. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann 21. júní 2018, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi og jafnframt að hann hefði hlotið alþjóðlega vernd þar í landi. Í svari frá grískum yfirvöldum, dags. 17. ágúst 2018, kom fram að kærandi væri með alþjóðlega vernd og gilt dvalarleyfi í Grikklandi. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 2. október 2018, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 6. nóvember 2018 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 13. nóvember 2018 og kærði kærandi ákvörðunina þann 27. nóvember 2018 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 6. desember 2018 ásamt fylgigögnum. Þann 3. janúar sl. bárust kærunefnd viðbótargögn frá kæranda.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnun kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar aðstæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Grikklands.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann mótmæli því að vera endursendur til Grikklands. Kærandi hafi ekki haft aðgang að heilbrigðisþjónustu í Grikklandi en hann hafi leitað eftir aðstoð grískra útlendingayfirvalda sem hafi einungis látið hann hafa heimilisfangið hjá sjúkrahúsinu. Á sjúkrahúsinu hafi hann verið beðinn um tryggingu en einungis þeir sem séu með atvinnuleyfi hafi slíka tryggingu. Kærandi kveði sig ekki hafa fengið atvinnuleyfi samhliða dvalarleyfi sínu í Grikklandi. Þá hafi hann ekki fengið framfærslu né annars konar aðstoð frá yfirvöldum og kveði hann að ómögulegt sé að lifa þar og þar sé ekki boðið upp á fjölskyldusameiningu. Kærandi kveði sig hafa verið í fangelsi í Sýrlandi í 45 daga en hann hafi upplifað stríðið og hafi misst allt, bæði fyrirtæki og hús sitt. Þá hafi hann jafnframt verið í haldi í Tyrklandi. Kærandi eigi erfitt með svefn, m.a. vegna stríðsins í Sýrlandi, og hafi fengið ávísað svefnlyfi vegna þess. Hafi andleg heilsa hans verið mun verri í Grikklandi en hér á landi. Hann sé áhyggjufullur um framtíð sína og börn sín sem stödd séu í [...], og hafi kærandi m.a farið á bráðamóttöku geðdeildar Landspítalans þann [...] auk þess sem hann eigi tíma hjá sálfræðingi þann 19. des 2018. Enn fremur kveði kærandi sig þjást af bakverkjum en hann sé með verk í neðanverðu bakinu sem leiði niður í báða fætur og geti hann hvorki gengið langt né staðið lengi. Loks þjáist hann af miklum kviðverk og hafi leitað margoft til læknis hér á landi vegna þess.

Kærandi gerir athugasemd við að Útlendingastofnun hafi ekki metið hann í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi greint frá því að hann glími við svefnvanda og þjáist af endurminningum, en það komi einnig fram í gögnum frá Göngudeild sóttvarna. Þá komi fram í gögnum frá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja að kærandi hafi verið tekinn til fanga í Tyrklandi fyrir tveimur árum síðan og verið geymdur í litlum kassa í tæplega mánuð. Telji kærandi að hann sé einstaklingur í sérstaklegra viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Tekur kærandi fram að það sé jákvæð skylda stjórnvalda að ganga úr skugga um að þær aðstæður sem bíði kæranda og afleiðingar endursendingar á grundvelli 1. mgr. 36. gr. laganna standist ákvæði laga og reglna, bæði landslaga og þeirra alþjóðlegu skuldbindinga sem Ísland eigi aðild að. Þá sé rannsóknarregla stjórnsýsluréttarins öryggisregla og leiði brot á henni alla jafna til ógildingar stjórnvaldsákvörðunar.

Kærandi gerir einnig athugasemd við trúverðugleikamat Útlendingastofnunar. Telji kærandi fráleitt að leggja til grundvallar við úrvinnslu málsins að kærandi geti nýtt sér heilbrigðisþjónustu í Grikklandi, sem honum sé nauðsynleg, þegar opinber gögn um ástand mála í Grikklandi staðfesti að sú sé ekki raunin. Þrátt fyrir að kærandi eigi rétt samkvæmt grískum lögum á grunnheilbrigðisþjónustu þar í landi sé ekki þar með sagt að hann eigi rétt á geðheilbrigðisþjónustu og sérhæfðri heilbrigðisþjónustu sem honum sé nauðsynleg vegna andlegrar vanlíðunar, bak- og kviðverkja.

Í greinargerð kæranda kemur fram að í hinni kærðu ákvörðun sé vísað til 32. gr. a reglugerðar um útlendinga, nr. 540/2017, með síðari breytingum, í tengslum við túlkun ákvæðis 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þar komi fram tiltekin sjónarmið sem líta megi til við mat á því hvort taka megi umsókn til efnislegrar meðferðar á grundvelli sérstakra ástæðna. Í hinni kærðu ákvörðun gangi Útlendingastofnun út frá því að skilyrðin þurfi að vera uppfyllt til þess að sérstakar ástæður séu uppi í málinu. Í 32. gr. a nefndrar reglugerðar komi fram að þau viðmið sem sett séu fram í greininni séu nefnd í dæmaskyni og sé því ekki um að ræða tæmandi talningu á þeim þáttum sem taka beri tillit til við mat á því hvort sérstakar ástæður eigi við. Stofnuninni hafi því borið að framkvæma heildarmat á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda en ekki einungis horfa til afmarkaðra og þröngra skilyrða reglugerðarinnar.

Kærandi byggir á því að uppi séu sérstakar ástæður í máli hans, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Vísi kærandi í því sambandi m.a. til ummæla í frumvarpi til laga nr. 81/2017, um breytingu á lögum um útlendinga, og túlkunar kærunefndar útlendingamála á þeim ummælum. Þá vísi kærandi einnig til úrskurða kærunefndar í málum nr. 550/2017 og nr. 552/2017 frá 10. október 2017, og nr. 583/2017 og nr. 586/2017 frá 24. október 2017. Í þeim úrskurðum hafi kærunefnd komist að þeirri niðurstöðu að þegar viðkvæm staða umsækjenda verði talin leiða til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki skuli það sjónarmið hafa mikið vægi fyrir mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi. Í framangreindum úrskurðum hafi það verið niðurstaða kærunefndar að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka umsóknir kærenda til efnismeðferðar. Með vísan til almennra aðstæðna og aðbúnaðar flóttafólks í Grikklandi, einstaklingsbundinnar stöðu kæranda, m.a. andlegrar vanheilsu hans og þeirra alvarlegu atburða sem kærandi hafi þurft að þola á lífsleiðinni, þá sé hægt að jafna máli kæranda við ofangreindra úrskurði.

Þá vísar kærandi einnig til úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 393/2018 frá 27. september 2018 er varði hjón og börn þeirra sem hafi hlotið alþjóðlega vernd í Grikklandi. Kærunefnd hafi metið það sem svo að viðkvæm staða fjölskyldunnar hafi gert það líklegt að það yrði þeim vandkvæðum bundið að sækja rétt sinn í Grikklandi. Þá hafi aðstæður þeirra gert það að verkum að kærunefnd hafi metið það sem svo að staða þeirra yrði verulega síðri en staða almennings í Grikklandi með vísan til 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Jafnvel þó ekki sé hægt að jafna aðstæðum kæranda á öllu leyti við aðstæður kærenda í ofangreindum úrskurði verði, að mati kæranda, vart litið framhjá afar bágbornum aðstæðum hans í Grikklandi. Telji kærandi ljóst að framkvæmd synjunar á efnismeðferð muni hafa verulegar og óafturkræfar neikvæðar afleiðingar á andlega og líkamlega heilsu kæranda, líkt og gögn málsins beri með sér. Loks telji kærandi ljóst að hann verði fyrir alvarlegri mismunun, sbr. 32. gr. reglugerðar um útlendinga, með síðari breytingum, í Grikklandi vegna stöðu sinnar. Því beri íslenskum stjórnvöldum skylda til að taka umsókn hans til efnismeðferðar.

Kærandi byggir kröfu sína einnig á því að endursending hans til Grikklands muni fela í sér brot gegn grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement í skilningi 42. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. einnig 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Kærandi telji að aðstæður hans í Grikklandi, t.a.m. varðandi möguleika á húsnæði, framfærslu, aðgengi að menntun, heilbrigðisþjónustu og félagslegri þjónustu séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Telji kærandi að með endursendingu til Grikklands myndu íslensk stjórnvöld gerast brotleg við grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement, auk samsvarandi ákvæða íslenskra laga og mannréttindasamninga sem Ísland eigi aðild að, 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. 42. gr. sömu laga, 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi þann 23. september 2016 og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 29. nóvember 2019. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi [...]. [...]. Í komunótum frá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, dags. [...], kemur fram að kærandi farið í segulómun á lendhrygg vegna leiðniverkjar. Af niðurstöðum hennar verður ráðið að hugsanlega glími kærandi við ávala sveigju á lendhrygg sem versni upp í brjósthrygg en ekki sé um umtalsverðar stöðuskekkjur að ræða. Þá hefur kærandi lagt fram meðferðarseðla og bráðamóttökuskrár frá Landspítala, dags. [...], þar sem fram kemur að hann hafi leitað til bráðamóttöku m.a. vegna kviðverkja [...]. Af meðferðarseðlum og bráðamóttökuskrám verður ráðið að kærandi glími við magabólgu og magasár og að hann hafi fengið lyf við þeim kvillum. Þá kemur fram í komunótum frá Göngudeild sóttvarna dags. [...] að kærandi glími við [...] og hafi leitað á bráðadeild geðdeildar vegna þessa en verið vísað aftur á göngudeild sóttavarna. Þá átti kærandi tíma hjá sálfræðingi þann [...].

Að mati kærunefndar bera gögn málsins með sér að kærandi hafi sérþarfir vegna andlegra og líkamlegra veikinda og telst því í viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Asylum Information Database, National Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, mars 2018);
  • 2017 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 20. apríl 2018);
  • Freedom in the World 2018 – Greece (Freedom House, 1. ágúst 2018);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • World Report 2018 – European Union (Human Rights Watch, 18. janúar 2018);
  • UNHCR observations on the current asylum system in Greece (UNHCR, desember 2014);
  • ECRI Report on Greece (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 24. febrúar 2015);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017) og
  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016).

Af framangreindum gögnum má sjá að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur m.a. bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hafa hlotið alþjóðlega vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst nú jafnframt sjálfkrafa aðgengi að vinnumarkaði. Jafnframt eru til staðar frjáls félagasamtök sem aðstoða þá sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi við að kynna sér réttindi sín.

Þá eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu í Grikklandi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Á þetta jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í ríkinu.

Sem fyrr segir eiga einstaklingar með alþjóðlega vernd sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar en aðgengi þeirra að húsnæði er háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með löglega dvöl í Grikklandi. Fá gistiskýli eru í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt getur reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem hafa verið sendir til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum. Þá geta einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar sóst eftir fjölskyldusameiningu við þriðja ríkis borgara samkvæmt grískum rétti sem felur í sér innleiðingu á tilskipun Evrópusambandsins um fjölskyldusameiningu nr. 2003/86.

Í framangreindum gögnum kemur fram að grísk yfirvöld veiti einstaklingum með alþjóðlega vernd sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegrar greiðslu. Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði og má sem dæmi nefna að þeir þurfa að hafa kennitölu, skattnúmer, gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Þá kemur fram í fyrrnefndum gögnum að engin sérúrræði eru til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. fyrir þolendur pyndinga.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 20. apríl 2018 kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að aðbúnaður í fangelsum og varðhaldsstöðvum sé víða ekki fullnægjandi. Klefar séu yfirfullir, óþrifnaður sé mikill og aðgengi að heilbrigðisþjónustu takmarkað. Þá kemur fram að stjórnarskrá Grikklands og lög landsins leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Þá segir að ofbeldisbrot í Grikklandi séu rannsökuð af lögreglu landsins og í þeim tilvikum þegar grunur leikur á því að lögreglan í Grikklandi eigi hlut að máli komi það í hlutverk embættis umboðsmanns í Grikklandi að rannsaka hvort brot af hendi lögreglu hafi átt sér stað. Í Grikklandi fara sjálfstæðir dómstólar með það hlutverk að dæma í málum þar sem ákært hefur verið fyrir ofbeldisbrot. Þrátt fyrir að framangreind skýrsla bendi til þess að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins þá kemur jafnframt fram að lög landsins og stjórnarskrá tryggi sjálfstæði dómstóla í framkvæmd og að réttur þeirra sem brotið hefur verið gegn og þeirra sem ákærðir eru sé tryggður.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstólinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki nái ekki alvarleikastigi 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem stendur til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæltu gegn endursendingu. Kærunefnd tekur ekki undir þá málsástæðu kæranda að sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæli gegn endursendingu hans til Grikklands.

Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í Grikklandi telur kærunefnd að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst og telur kærunefnd að þær séu ekki þess eðlis að viðmið sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga eigi við í málinu. Í því sambandi hefur nefndin m.a. litið til þess að heilsufar kæranda sé ekki með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi eða að aðstæður hans að því leyti séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi eiga þeir sem njóta alþjóðlegrar verndar þar í landi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu sem getur þó verið í sumum tilvikum vandkvæðum bundið að sækja. Þá eiga þeir einnig rétt á endurgjaldslausum lyfjum, rannsóknum á göngudeildum og aðgengi að sjúkrahúsi, auk þess sem þeir eiga rétt á nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu. Telur kærunefnd ekki forsendur til annars, í ljósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður í viðtökuríki, en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti leitað sér aðstoðar vegna heilsufarsvandamála sinna þar.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Vegna athugasemdar í greinargerð kæranda tekur kærunefnd fram að aðstæður kæranda eru ekki sambærilegar þeim aðstæðum sem fjallað var um í úrskurðum kærunefndar útlendingamála nr. 550/2017 og nr. 552/2017 frá 10. október 2017, nr. 583/2017 og nr. 586/2017 frá 24. október 2017, og nr. 393/2018 frá 27. september 2018. Kærunefnd telur að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda við stöðu kærenda í síðastgreinda málinu í ljósi einstaklingsbundinna aðstæðna þeirra, einkum þar sem um var að ræða fjölskyldu með börn þar sem konan var barnshafandi, og að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda við stöðu kærenda í fyrstgreindum úrskurðum þar sem ekki séum að ræða sama viðtökuríki.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þótt fram komi í gögnum málsins að kærandi eigi sambúðarmaka hér á landi verður ekki litið svo á að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 18. júní 2018.

Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi ýmsar athugasemdir í greinargerð sinni við rannsókn og málsmeðferð Útlendingastofnunar. Meðal annars gerir kærandi athugasemd við það mat stofnunarinnar að kærandi teljist ekki einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, auk þess sem athugasemd er gerð við beitingu stofnunarinnar á reglugerð nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga.

Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Kærunefnd hefur metið kæranda í viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga en með vísan til ofangreindrar umfjöllunar telur nefndin ekki sérstakar ástæður skv. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga vera fyrir hendi til þess að umsókn hans um alþjóðlega vernd verði tekin til efnismeðferðar. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um framangreindar athugasemdir kæranda.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands þann 18. júní 2018 og sótti um alþjóðlega vernd þann sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Anna Tryggvadóttir

Árni Helgason                                                                  Erna Kristín Blöndal


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta