Mál nr. 113/2022 Úrskurður 5. september 2022
Mál nr. 113/2022 Eiginnafn: Sólar (kk.)
Hinn 5. september 2022 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 113/2022 en erindið barst nefndinni 25. ágúst.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Sólar (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Sólars, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Sólar (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.