Hoppa yfir valmynd

Nr. 341/2018 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 9. ágúst 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 341/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18060031

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 6. mars 2018 kærði […], fd. […], ríkisborgari Pakistan (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 26. febrúar 2018 um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og endursenda hann til Ítalíu.

Þess er aðallega krafist að hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og 42. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga.

Til vara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og málið sent til nýrrar meðferðar með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.         Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 14. október 2017. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Ungverjalandi og á Ítalíu. Þann 19. október 2017 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda á Ítalíu, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Þar sem ekki barst svar innan tilskilins tímafrests litu íslensk stjórnvöld svo á að ítölsk stjórnvöld hefðu samþykkt viðtöku, sbr. 2. mgr. 25. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, og sendi Útlendingastofnun ítölskum yfirvöldum bréf þess efnis, dags. 6. nóvember 2017. Útlendingastofnun ákvað þann 26. febrúar 2018 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Ítalíu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 6. mars 2018 og kærði kærandi ákvörðunina þann sama dag til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda, ásamt fylgigögnum, barst kærunefnd 25. júní 2018.

III.          Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Ítalíu. Flutningur kæranda til Ítalíu fæli ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. og 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Þá var það niðurstaða stofnunarinnar að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun mat aðstæður kæranda slíkar að hann væri í sérstaklega viðkvæmri stöðu vegna andlegra veikinda og alvarlegs líkamlegs ofbeldis skv. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Það var hins vegar mat stofnunarinnar, að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, að sérstakar ástæður væru ekki til staðar í máli hans, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi skyldi yfirgefa Ísland og bæri að senda hann til Ítalíu, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæra frestaði réttaráhrifum, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.          Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann mótmæli því að verða sendur til Ítalíu. Kærandi hafi greint frá því í viðtölum hjá Útlendingastofnun að hann hafi sótt um alþjóðlega vernd á Ítalíu og búið í flóttamannabúðum þar í landi í um eitt ár án þess að fá svar við umsókn sinni. Kærandi hafi ekki fengið að ráðfæra sig við lögfræðing sér að kostnaðarlausu og honum hafi ekki staðið til boða fjárhagsleg aðstoð. Kærandi kveður að hann hafi upplifað ofsóknir og orðið fyrir grófu líkamlegu ofbeldi í heimaríki. Kærandi hafi átt verkstæði í heimaríki en orðið þess áskynja að hópur hryðjuverkamanna hafi stundað ólöglega starfsemi í íbúð fyrir ofan verkstæðið. Kærandi hafi tilkynnt athæfi hópsins til lögreglu en í kjölfarið hafi hópurinn tekið að ásækja hann og sprengt upp verkstæðið hans. Kærandi hafi því yfirgefið heimaríki af ótta við hópinn. Þá hafi kærandi orðið fyrir ofsóknum og ofbeldi í heimaríki þar sem hann sé sjíta-múslimi og tilheyri minnihlutahópi þar í landi. Kærandi kveður að ofbeldið hafi haft áhrif á andlega heilsu hans og hann eigi við alvarleg andleg vandamál að stríða auk þess sem hann hafi mikla verki í baki síðan árásin hafi átt sér stað. Þá hafi sömu aðilar og beittu hann ofbeldi í heimaríki hótað honum á Ítalíu og hann hafi tilkynnt það til lögreglu þar í landi en saga hans hafi ekki verið tekin alvarlega. Kærandi hafi því ákveðið að koma til Íslands. Frá því að kærandi hafi komið hingað til lands hafi hann fengið sálfræðiráðgjöf og gengist undir sálfræðimat þar sem fram komi m.a. að hann uppfylli greiningarskilmerki áfallastreituröskunar auk alvarlegrar geðlægðar. Kærandi hefur máli sínu til stuðnings lagt fram heilsufarsgögn.

Kærandi bendir á í greinargerð sinni að hann hafi verið metinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu í hinni kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar en stofnunin hafi komist að þeirri niðurstöðu að ekkert stæði því í vegi að senda hann aftur til Ítalíu. Kærandi mótmæli þeirri niðurstöðu og vísi til nýlegra heimilda um verulega ágalla á heilbrigðisþjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd á Ítalíu. Slík þjónusta sé oft óaðgengileg og með öllu óvíst hvort kærandi fái viðeigandi aðstoð verði hann endursendur til Ítalíu. Þá bendi kærandi á að tilkynning Útlendingastofnunar til ítalskra yfirvalda vegna andlegrar heilsu hans sé engin trygging fyrir því að þarlend yfirvöld veiti honum þjónustu við hæfi.

Kærandi byggir kröfu sína á því að taka skuli umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli þess að sérstakar ástæður standi til þess, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum við ákvæðið komi fram að einstaklingar sem séu í viðkvæmri stöðu falli undir ákvæðið. Þessi vilji löggjafans sé enn frekar staðfestur í greinargerð með frumvarpi til laga nr. 81/2017, um breytingu á lögum um útlendinga, þar sem fram komi að ávallt skuli taka til efnislegrar meðferðar umsókn um alþjóðlega vernd ef umsækjandi er í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Jafnframt bendi kærandi á að reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, sem birt hafi verið í Stjórnartíðindum þann 14. mars sl., verði ekki beitt í máli kæranda vegna sjónarmiða um bann við afturvirkni íþyngjandi laga og reglna sem leggi þrengri skorður við réttindum manna en áður var. Kærandi hafi lagt fram umsókn sína um alþjóðlega vernd áður en reglugerðin hafi tekið gildi. Þá telur kærandi að megináhersla í framangreindri reglugerð, um mikilvægi samvinnu aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins og skilvirkni umsóknarferlisins, gangi þvert á markmið laga um útlendinga og vilja löggjafans sem komi fram í greinargerð með frumvarpi sem varð að lögum nr. 80/2016 og 81/2017. Kærandi bendi á að óumdeilt sé að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga vegna andlegra og líkamlegra veikinda hans, en fallist hafi verið á það í ákvörðun Útlendingastofnunar. Kærandi bendi á að stjórnvöldum beri skylda til að upplýsa mál hans og þá sérstaklega með tilliti til andlegra veikinda hans og hvaða áhrif endursending muni hafa á hann. Íslenskum stjórnvöldum beri því skylda til að framkvæma heildstætt mat á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda og þess sem bíði hans við endursendingu til Ítalíu. Í því sambandi vísar kærandi m.a. til úrskurða kærunefndar útlendingamála nr. 266/2017 frá 9. maí 2017, nr. 550/2017 frá 10. október 2017 og nr. 242/2018 frá 29. maí 2018. Því séu fyrir hendi slíkar sérstakar ástæður sem skyldi íslensk stjórnvöld til að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í greinargerð kæranda er gerð grein fyrir ýmsum atriðum er varði aðstæður, aðbúnað og réttarstöðu umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu og er í því sambandi vísað til fjölda skýrslna alþjóðlegra stofnana og frjálsra félagasamtaka. Þá er m.a. bent á að kynþáttahatur og mismunun á grundvelli kynþáttar hafi farið vaxandi þar í landi, og margt bendi til þess að viðhorf almennings hafi versnað til muna á síðustu árum.

Af hálfu kæranda er einnig byggt á því að ekki megi senda hann aftur til Ítalíu vegna non-refoulement reglu þjóðaréttar, sbr. 3. mgr. 36. gr., sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Á grundvelli upplýsinga um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu verði að telja að aðstæður sem hann megi búast við séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Í því sambandi vísar kærandi jafnframt til 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna. Þá er byggt á því í greinargerð að ekki sé tækt að endursenda hann til Ítalíu þar sem um kerfisbundinn galla sé að ræða á aðbúnaði og meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd þar í landi. Í greinargerð innanríkisráðuneytisins frá desember 2015 komi m.a. fram að það sé ekki nauðsynlegt að sýna fram á kerfislæga annmarka á málsmeðferð heldur skuli miða við það hvort veruleg ástæða sé til að ætla að hlutaðeigandi einstaklingur standi frammi fyrir raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð í viðtökuríkinu sem samrýmist ekki 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Til stuðnings varakröfu sinni vísar kærandi m.a. til 10. gr. stjórnsýslulaga, 2. mgr. 23. gr. og 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggi m.a. á því að hin kærða ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli ófullnægjandi upplýsinga.

V.           Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í 1. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef heimilt sé að krefja annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda.

Fyrir liggur í máli þessu að ítölsk stjórnvöld bera ábyrgð á umsókn kæranda á grundvelli 2. mgr. 25. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en Ísland skuldbatt sig til að fylgja reglugerðinni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Ítalíu er byggð á því að ítölsk yfirvöld hafi ekki svarað beiðni um endurviðtöku innan tilskilins frests. Eru skilyrði c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Í 32. gr. a-b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í 32. gr. a kemur m.a. fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan, aðrar en þær sem myndu að jafnaði rúmast innan 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá er m.a. nefnt í dæmaskyni ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, ef umsækjandi af sömu ástæðu getur vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki og ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð við er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi umsækjanda um alþjóðlega vernd til ríkis, sem hefur samþykkt að taka við honum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, ber stjórnvöldum að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður þar brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem kveður á um að enginn maður skuli sæta pyndingum eða ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið lagt til grundvallar að sú meðferð, sem einstaklingur eigi von á, verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til þess að falla undir 3. gr. sáttmálans. Við það mat verði að horfa til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar og í einhverjum tilvikum kyns, aldurs og heilsufars viðkomandi. Þá ber stjórnvöldum að leggja mat á hvort málsmeðferð vegna umsókna um alþjóðlega vernd tryggi umsækjendum raunhæfa leið til að ná fram rétti sínum, sbr. 13. gr. sáttmálans. Í samræmi við framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu skal mat á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og móttöku og aðbúnaði umsækjenda í viðtökuríki taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum í hverju máli.

Greining á sérþörfum sbr. 25. gr. og 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga

Kærandi er ungur, einhleypur karlmaður sem var metinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Kærandi greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann væri við ágæta andlega og líkamlega heilsu en hann eigi í vandræðum með svefn, fái martraðir og sé með verki í öllu bakinu. Kærandi kvaðst hafa orðið fyrir alvarlegu líkamlegu ofbeldi í heimaríki og hann beri þess enn merki í dag. Í framlögðum komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 20. október 2017 til 10. janúar 2018, kemur m.a. fram að kærandi sé almennt heilbrigður en hann hafi í tvígang rætt við sálfræðing m.a. um sjálfsvígshugsanir. Í framlögðu sálfræðimati, dags. 3. febrúar 2018, kemur m.a. fram að kærandi uppfylli greiningarskilmerki áfallastreituröskunar og alvarlegrar geðlægðar. Ólíklegt þyki að kærandi nái sér án heilbrigðisþjónustu við hæfi og hann hafi þörf fyrir sérhæfða sálfræðimeðferð og mögulega lyfjagjöf.

Eins og áður segir var kærandi metinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Kærunefnd telur ekki forsendur í þessu máli til að breyta mati Útlendingastofnunar. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður kæranda séu slíkar að hann teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu að því er varðar meðferð máls hans hér á landi, enda eru persónulegir eiginleikar hans og aðstæður þess eðlis að hann teljist hafa sérþarfir sem taka þarf tillit til við meðferð máls hans hér auk þess sem talið verður að hann geti ekki að fullu eða öllu leyti nýtt sér rétt eða uppfyllt skyldur sem kveðið er á um í lögum um útlendinga án aðstoðar eða sérstaks tillits, sbr. 6. tölul. 3. gr. og 25. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður og málsmeðferð á Ítalíu

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð á Ítalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Italy 2017 Human Rights Report (United States Department of State, 20. apríl 2018);
  • Freedom in the World 2018 – Italy (Freedom House, 5. apríl 2018);
  • Asylum Information Database. Country Report – Italy (European Council on Refugees and Exiles, mars 2018);
  • Amnesty International Report 2017/18 - Italy (Amnesty International, 22. febrúar 2018);

  • World Report 2018 – European Union (Human Rights Watch, 18. janúar 2018);
  • Concluding observations of the Committee on the Elimination of Racial Discrimination (UN Committee on the Elimination of Racial Discrimination, 17. febrúar 2017);
  • ECRI Report on Italy (European Commission against Racism and Intolerance, 7. júní 2016);
  • Reception conditions in Italy. Report of the current situation of asylum seekers and beneficiaries of protection, in particular Dublin returnees (Swiss Refugee Council, ágúst 2016);
  • Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union 2015 (European Asylum Support Office, 8. júlí 2016);
  • Information note, Dublin transfers post-Tarakhel: Update on European case law and practice (Elena, European legal network on asylum, október 2015);
  • Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees. For the Office of the High Commissioner for Human Rights’ Compilation Report – Universal Periodic Review: Italy (UNHCR, mars 2014);
  • UNHCR Recommendations on Important Aspects of Refugee Protection in Italy (UNHCR, júlí 2013);

  • Upplýsingar af vefsíðu OSCE Office for Democratic Institutions and Human Rights (http://hatecrime.osce.org/italy);
  • Upplýsingar af vefsíðu ítalska flóttamannaráðsins (í. Consiglio Italiano per I Rifugiati - http://www.cir-onlus.org/en/) og
  • Upplýsingar af vefsíðu samtakanna Baobab Experience (https://baobabexperience.org/).

Í framangreindum gögnum kemur fram að þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd eru sendir til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar geta þeir lagt fram umsókn hjá lögreglunni (í. Questura) eða hjá landamæralögreglunni (í. Polizia di Frontiera) hafi þeir ekki áður lagt fram umsókn þar í landi. Fái umsækjandi um alþjóðlega vernd synjun á umsókn sinni þá hefur hann kost á því að bera synjunina undir stjórnsýsludómstól (í. Tribunale Civile). Jafnframt eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða að um meðferð sé að ræða sem brjóti í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Fyrir liggur að umsækjendur um alþjóðlega vernd á Íslandi sem falla undir ákvæði Dyflinnarreglugerðarinnar eru sendir til baka til meginlandsins með flugi. Í framangreindum gögnum kemur fram að á stærstu flugvöllum landsins, í Róm og Mílanó, eru frjáls félagasamtök til staðar sem veita umsækjendum um alþjóðlega vernd ráðgjöf og þjónustu. Umsækjendur um alþjóðlega vernd á Ítalíu eiga almennt ekki rétt á gjaldfrjálsri lögfræðiaðstoð þegar þeir leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd en frjáls félagasamtök veita gjaldfrjálsa lögfræðiaðstoð í umsóknarferlinu. Þó geta umsækjendur lagt fram beiðni um gjafsókn (í. gratuito patrocinio) kjósi þeir að bera endanlega synjun á umsókn sinni undir dómstóla.

Af framangreindum gögnum má sjá að ítölsk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Hefur Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna meðal annars gagnrýnt skipulag og bolmagn hæliskerfisins til að taka við skyndilegu eða verulegu flæði flóttamanna til landsins. Þá hefur stofnunin einnig gert athugasemdir við brotakennd móttökuskilyrði og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna. Jafnframt hefur Flóttamannastofnun gagnrýnt að aðstoð við sérstaklega viðkvæma umsækjendur um alþjóðlega vernd sé oft ófullnægjandi vegna skorts á samhæfingu þjónustuaðila og eftirfylgni. Verður af framangreindu ráðið að ítölsk stjórnvöld hafa átt við margvíslegan vanda að etja í þessum málaflokki. Hins vegar hefur Flóttamannastofnunin ekki lagst gegn endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér má ráða að í ítalska hæliskerfinu sé ekki skimað kerfisbundið eftir því hvort umsækjendur um alþjóðlega vernd teljist vera viðkvæmir einstaklingar. Hins vegar getur greining á fórnarlömbum pyndinga eða alvarlegs ofbeldis átt sér stað á öllum stigum umsóknarferlisins um alþjóðlega vernd. Svokallaðar svæðisnefndir (í. Commissione territoriale per il riconoscimento della protezione internazionale) taka ákvörðun á fyrsta stigi málsmeðferðar og geta þær óskað eftir því að umsækjandi fari í sérstaka læknisskoðun þar sem fram fer mat á því hvaða áhrif ofsóknir og ofbeldi hafa haft á umsækjanda. Slíkt mat sé framkvæmt í samræmi við leiðbeiningarreglur sem gefnar hafa verið út af heilbrigðisráðuneytinu varðandi þjónustu til handa flóttamönnum sem þjást af andlegum veikindum og/eða eru fórnarlömb pyndinga, nauðgana eða annars konar andlegs, líkamlegs og kynferðislegs ofbeldis.

Ítalía er aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir sambandsins vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Þá er Ítalía jafnframt aðili að flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna (e. 1951 Convention Relating to the Status of Refugees) og mannréttindasáttmála Evrópu, en grundvallarreglan um bann við endursendingu einstaklinga til svæðis þar sem þeir hafi ástæðu til að óttast ofsóknir eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð er lögfest í þessum alþjóðasáttmálum.

Í ofangreindum gögnum kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga rétt á gistirými í móttökumiðstöðvum. Flestir fái úthlutað gistirými í CAS (í. Centro di accoglienza straordinaria) sem eru tímabundnar móttökumiðstöðvar en ella eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd rétt á gistiplássi í SPRAR (í. Sistema di protezione per richiedenti asilo e rifugiati) móttökumiðstöðvunum. Framboðið sé hins vegar takmarkað og ekki fái allir umsækjendur úthlutað gistirými í þessum stöðvum. Þá bjóða sveitarfélög, frjáls félagasamtök og trúfélög í Róm og Mílanó upp á gistiaðstöðu en þau séu einnig af skornum skammti. Ítölsk yfirvöld vinni að því að byggja upp fleiri móttökumiðstöðvar í því skyni að mæta þessum vanda.

Á grundvelli framangreindra skýrslna og gagna sem kærunefnd hefur kynnt sér verður jafnframt ráðið að umsækjendur um alþjóðlega vernd á Ítalíu eiga sama rétt og ítalskir ríkisborgarar til lögboðinnar heilbrigðisþjónustu. Þeir þurfa þó að skrá sig inn í heilbrigðiskerfið en við slíka skráningu fá þeir útgefið tryggingarkort (í. Tessera sanitaria) sem veitir þeim m.a. rétt á meðferð sérfræðilækna.

Af framangreindum skýrslum verður ráðið að fordómar í garð fólks af erlendum uppruna sé vandamál á Ítalíu en ítölsk yfirvöld hafi gripið til aðgerða til að sporna við kynþáttafordómum og mismunun á grundvelli kynþáttar, m.a. með lagasetningu. Í kjölfar athugasemda alþjóðlegra eftirlitsnefnda, stofnana og frjálsra félagasamtaka hafa ítölsk stjórnvöld tekið mikilvæg skref í þá átt að vinna gegn kynþáttafordómum, mismunun á grundvelli kynþáttar og hatursglæpum, þ. á m. með aðgerðaráætlun gegn kynþáttahyggju (e. National Action Plan against Racism, Xenophobia and Intolerance). Þá hefur rannsóknum og ákærum fjölgað í málum er varða mismunun, hatursorðræðu og hatursglæpi á grundvelli kynþáttar og þjóðernis.

Samkvæmt dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er bann við meðferð sem fer gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu fortakslaust en meðferð verður þó að ná ákveðinni lágmarkskröfu um alvarleika til að teljast brot gegn 3. gr. sáttmálans, sem fyrr segir. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur lagt til grundvallar að sú staðreynd ein og sér að efnahagsstaða einstaklings versni við frávísun eða brottvísun frá aðildarríki sáttmálans sé ekki fullnægjandi til að uppfylla grundvallarkröfu um alvarleika sem 3. gr. sáttmálans geri kröfu um, þ.e. þar sem ekki sé um að ræða sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður sem mæli gegn flutningi, sbr. ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (mál nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013. Að því er varðar aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu hefur Mannréttindadómstóll Evrópu lagt til grundvallar að uppbygging og almennar aðstæður í móttökukerfi Ítalíu séu ekki þess eðlis að þær standi í vegi fyrir öllum sendingum umsækjenda um alþjóðlega vernd til landsins, sbr. ákvörðun í máli Ali ofl. gegn Sviss (mál nr. 30474/14) frá 4. október 2016. Aftur á móti hefur í framkvæmd dómstólsins verið byggt á því að viðhlítandi trygging verði að liggja fyrir af hálfu ítalskra yfirvalda um viðunandi móttökuaðstæður áður en umsækjendur um alþjóðlega vernd sem eru í svo viðkvæmri stöðu að þeir þurfi sérstaka vernd eru sendir þangað.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Aðstæður kæranda hafa þegar verið raktar. Með vísan til gagna málsins er kærandi ungur karlmaður sem hefur lýst því að hann glími við andlegar og líkamlegar afleiðingar þess að hafa orðið fyrir alvarlegu ofbeldi í heimaríki og sömu aðilar hafi hótað honum á Ítalíu. Þá liggur fyrir mat íslenskra stjórnvalda á því að kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu að því er varðar meðferð máls hans hér á landi, sbr. 6. tölul. 3. gr. og 25. gr. laga um útlendinga.

Fyrir liggur í málinu að kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Ítalíu og hafði, að hans sögn, ekki fengið niðurstöðu í mál sitt við komuna hingað til lands. Við endursendingu til Ítalíu komi kærandi því til með að fara aftur í móttökukerfi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd þar í landi. Þá glímir kærandi við andlega vanlíðan og hefur þörf fyrir viðeigandi heilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu. Eins og að framan greinir bera skýrslur og gögn málsins með sér að mikið álag er á hæliskerfi Ítalíu. Þrátt fyrir að nauðsynleg þjónusta sé til staðar í landinu benda þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér til þess að það geti verið erfiðleikum háð að nálgast fullnægjandi þjónustu, þá sérstaklega fyrir einstaklinga í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Í því sambandi tekur kærunefnd fram að ekki liggur fyrir að íslensk stjórnvöld hafi fengið sérstaka tryggingu frá ítölskum stjórnvöldum á því að kærandi komi til með að fá aðgang að þeim úrræðum sem hann þarf á að halda vegna stöðu sinnar. Þá benda gögnin jafnframt til þess að á Ítalíu fari ekki fram kerfisbundin skimun á því hvort umsækjendur um alþjóðlega vernd séu einstaklingar í sérstaklega viðkvæmri stöðu.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar, eins og hér stendur á, að fella úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda og leggja fyrir stofnunina að taka mál kæranda til efnislegrar meðferðar á grundvelli 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Með vísan til þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar útlendingamála, eins og hér stendur á, að taka beri mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi.

 

 

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

 

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate shall examine the merits of the applicant‘s application for international protection in Iceland.

 

 

 

Anna Tryggvadóttir

 

 

Árni Helgason                                                                                  Þorbjörg Inga Jónsdóttir

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta