Mál nr. 14/2015 úrskurður 20. febrúar 2015
Mál nr. 14/2015 Eiginnafn: Tíbor
Hinn 20. febrúar 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 14/2015 en erindið barst nefndinni 13. febrúar:
Eiginnafnið Tíbor (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Tíbors, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Tíbor (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.