Hoppa yfir valmynd

Nr. 198/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Hinn 6. maí 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 198/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU21030068

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 23. mars 2020 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fædd […], ríkisborgari Nígeríu (hér eftir nefnd kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 26. febrúar 2021, um að synja henni um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og henni verði veitt staða flóttamanns hér á landi með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara krefst kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og henni verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara krefst kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og henni verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Að lokum krefst kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og henni verði veitt dvalarleyfi á grundvelli 75. eða 76. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi hinn 9. mars 2020. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun m.a. 24. júní 2020 og 3. september 2020 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 14. september 2020, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála hinn 6. október 2020. Kærunefnd barst greinargerð kæranda hinn 20. október 2020. Með úrskurði kærunefndar, dags. 13. nóvember 2020, var ákvörðun Útlendingastofnunar felld úr gildi vegna annmarka á málsmeðferð í máli kæranda, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga og 23. gr. laga um útlendinga. Lagt var fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til nýrrar meðferðar. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun að nýju hinn 26. janúar 2021 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 26. febrúar 2021, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var sú ákvörðun birt fyrir kæranda og talsmanni hennar hinn 9. mars 2021 og kærð til kærunefndar útlendingamála hinn 23. mars 2020. Kærunefnd bárust viðbótarathugasemdir kæranda hinn 12. apríl 2020. Þá bárust kærunefnd gögn frá kæranda hinn 15. og 21. apríl 2020.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hún sé í hættu í heimaríki vegna aðildar sinnar að tilteknum þjóðfélagshópi og vegna trúarskoðana.Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi væri ekki flóttamaður og henni skyldi synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi samkvæmt ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.Kæranda var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Kærandi vísar í fyrri greinargerðir sínar til Útlendingastofnunar, dags. 10. júlí 2020, og kærunefndar útlendingamála, dags. 20. október 2020, hvað varðar málsástæður og lagarök til stuðnings krafna sinna. Kemur þar fram að kærandi hafi greint frá því að vera frá Edo fylki í Nígeríu. Hún sé kristinnar trúar og tilheyri ættbálknum Esan. Kærandi eigi engan að í Nígeríu og fái engan stuðning þar, hvorki frá fjölskyldumeðlimum né vinum. Foreldrar hennar séu látnir og hún sé ekki í sambandi við systkini sín. Kærandi hafi starfað á hárgreiðslustofu í Nígeríu hvar hún hafi hitt konu að nafni […]. Konan hafi lofað henni vinnu á hárgreiðslustofu og betra lífi í Evrópu. Kærandi hafi því farið með henni til Möltu árið 2015 þar sem hún hafi gengið í skóla og konan hafi greitt fyrir menntun hennar. Konan hafi jafnframt verið í reglulegu sambandi við hana og heimsótt reglulega. Þegar kærandi hafi lokið námi sínu á Möltu og ætlað að finna sér vinnu hafi konan sannfært hana um að koma með sér til Ítalíu þar sem hún fengi betur greitt fyrir vinnu sína. Á Ítalíu hafi konan þvingað kæranda í vændi sem hún hafi stundað í um fjögur ár. Kærandi hafi verið mjög á móti því og ekki viljað endurgreiða konunni pening sem hún hafi skuldað henni fyrir ferðalagið og menntunina með þessum hætti. Konan hafi tekið skilríki og önnur gögn af kæranda og hún hafi ekki mátt hafa samband við neinn, þ. á m. systkini sín, og hafi sjaldan mátt fara út. Einn daginn hafi konan ferðast til Afríku og hafi kærandi nýtt tækifærið og flúið í skjóli nætur. Hún hafi komist í samband við mann að nafni […] og sagt honum sögu sína. Hann hafi lagt til að kærandi færi til Íslands, keypt miða fyrir hana og aðstoðað hana að öðru leyti. Kærandi hafi greint frá því að líf hennar væri í hættu í Nígeríu vegna konunnar sem hafi neytt hana í vændi. Kærandi geti ekki leitað aðstoðar hjá neinum í heimaríki þar sem hún eigi engan að og enga aðstoð sé að fá frá lögreglu þar í landi.

Í greinargerð kæranda til Útlendingastofnunar er gerð grein fyrir ástandi mannréttindamála í Nígeríu, þ. á m. í Edo fylki, með vísan til skýrslna alþjóðlegra stofnana og mannréttindasamtaka. Fjallað er um stöðu kvenna og mansalsfórnarlamba í Nígeríu. Þá er fjallað um stöðu kristinna einstaklinga og ofsóknir af hálfu Fulani herdsmen í garð þeirra, heilbrigðiskerfið og aðra innviði þar í landi.

Kærandi krefst þess aðallega að henni verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi, samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Hún óttist ofsóknir vegna aðildar sinnar að tilteknum þjóðfélagshópi, sbr. 1. mgr. 37. gr. og 38. gr. laga um útlendinga. Annars vegna þess að hún sé kona og þolandi mansals og hins vegar vegna þess að hún sé kristinnar trúar. Kærandi telur að þeir sem hún óttist, þ.e. nígeríska ríkið og konan sem hafi þvingað hana í mansal og neytt hana í vændi, falli undir a- og c- lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Yfirvöld í Nígeríu séu ekki í stakk búin til að veita kæranda vernd gegn kynbundnum ofsóknum af hendi umræddrar konu. Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að henni verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi eigi á hættu að sæta ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð verði henni gert að snúa aftur til heimaríkis þar sem hún skuldi enn geranda sínum háar fjárhæðir. Kærandi vísar til þess að einstaklingar í hennar stöðu séu sérstaklega viðkvæmir og eigi m.a. á hættu hefndaraðgerðir eða áframhaldandi mansal.

Til þrautavara krefst kærandi þess að henni verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Byggt er á því að kæranda skuli veitt mannúðarleyfi með vísan til heildstæðs mats á einstaklingsbundnum aðstæðum hennar sem einstæðrar konu og mansalsfórnarlambi með sérstakri áherslu á þá erfiðu félagslegu stöðu sem hún sé í. Kærandi hafi orðið fyrir alvarlegu kynferðislegu ofbeldi og bendi heimildir til þess að mansalsfórnarlömb eigi erfitt uppdráttar, snúi þau aftur til Nígeríu. Ástæðurnar séu m.a. hætta á hefndaraðgerðum af hálfu gerenda og hætta á því að vera þvinguð aftur í mansal. Þá standi mansalsfórnarlömb frammi fyrir sérstaklega erfiðum félagslegum aðstæðum og jafnvel samfélagslegri útskúfun í Nígeríu. Kröfu sinni til stuðnings vísar kærandi m.a. til þess að í úrskurði kærunefndar frá 25. júní 2020 hafi mansalsfórnarlambi frá Edo fylki í Nígeríu verið veitt mannúðarleyfi samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Þá hafi Útlendingastofnun einnig veitt mansalsfórnarlömbum frá Nígeríu mannúðarleyfi.

Að lokum krefst kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og henni verði veitt dvalarleyfi á grundvelli 75. eða 76. gr. laga um útlendinga. Byggt er á því að vegna persónulegra aðstæðna kæranda sé nauðsynlegt að veita henni dvalarleyfi hér á landi með vísan til þess að hún sé fórnarlamb mansals. Kærandi skuldi geranda sínum enn háar fjárhæðir og yrði öryggi hennar því ógnað, yrði hún send aftur til heimaríkis. Þá sé andlegt heilsufar kæranda ekki gott vegna þeirra áfalla og þess ofbeldis sem hún hefur orðið fyrir og eigi hún engan að í heimaríki sem geti veitt henni stuðning.

Kærandi gerir margvíslegar athugasemdir við hina kærðu ákvörðun. Til að mynda við mat stofnunarinnar um að hún sé ekki einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu og hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem nái því alvarleikastigi að hún teljist hafi ríka þörf á vernd, líkt og kveðið sé á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Fyrirliggjandi gögn bendi til viðkvæmrar andlegrar stöðu kæranda og gefi sterka vísbendingu um að hún muni eiga erfitt með að fóta sig við endursendingu aftur til heimaríkis. Þá telji kærandi að hún eigi á hættu að vera umskorin í heimaríki.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi ekki lagt fram nein gögn til að sanna á sér deili og leysti stofnunin því úr auðkenni kæranda á grundvelli trúverðugleikamats. Að mati Útlendingastofnunar þótti ekki ástæða til að vefengja að kærandi væri frá Edo fylki í Nígeríu og var það því lagt til grundvallar við úrlausn málsins. Kærunefnd hefur ekki forsendur til að draga í efa það mat Útlendingastofnunar og er því lagt til grundvallar að kærandi sé ríkisborgari Nígeríu. Að öðru leyti er auðkenni hennar óljóst.LandaupplýsingarKærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Nígeríu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Actors of Protection (U.K. Home Office, 28. mars 2019);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Female Genital Mutilation (FGM) (U.K. Home Office, 13. ágúst 2019);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Internal Relocation (U.K. Home Office, mars 2019);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Medical and Healthcare issues (U.K. Home Office, janúar 2020);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Trafficking of women (U.K. Home Office, 4. júlí 2019);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Country Background Note (U.K. Home Office, 7. janúar 2020);Country Profile: FGM in Nigeria (28 Too Many, október 2016);
  • EASO COI Meeting Report – Nigeria – Practical Cooperation Meeting 12-13 June 2017 – Rome (European Asylum Support Office, 1. ágúst 2017);
  • EASO Country Guidance – Nigeria – Guidance note and common analysis (European Asylum Support Office, febrúar 2019);
  • EASO Country of Origin Information Report – Nigeria – Actors of Protection (European Asylum Support Office, nóvember 2018);
  • EASO Country of Origin Information Report – Nigeria – Country Focus (European Asylum Support Office, júní 2017);
  • EASO – Country of Origin Information Report – Nigeria – Security Situation (European Asylum Support Office, nóvember 2018);
  • EASO – Country of Origin Information Report – Nigeria – Targeting of individuals (European Asylum Support Office, nóvember 2018);
  • EASO – Country of Origin Information Report – Nigeria – Trafficking in Human Beings (European Asylum Support Office, apríl 2021);
  • Freedom in the World 2020 – Nigeria (Freedom House, 4. mars 2020);
  • Herders against Farmers: Nigeria’s Expanding Deadly Conflict (International Crisis Group, 19. september 2017);
  • Nigeria - Report on the human rights situation covering 2020 (Amnesty International, 7. apríl 2021);
  • Nigeria 2020 Human Rights Report (U.S. Department of State, 30. mars 2021);
  • Nigeria 2019 International Religious Freedom Report (U.S. Department of State, 10. júní 2020);
  • Nigeria: Rising toll of middle-belt violence (Human Rights Watch, 28. júní 2018);
  • Nigeria: Situation Report (UN Office for Coordination of Humanitarian Affairs, 4. janúar 2021);
  • Nigeria: Situation Report (UN Office for Coordination of Humanitarian Affairs, 21. janúar 2021);
  • Nigeria: Social attitudes toward religious intermarriage (Immigration and Refugee Board of Canada, 19. nóvember 2012);
  • Nigeria: Returforhold for kvinner som har arbeidet i prostitusjon i Europa (Landinfo, 20. mars 2017)Responses to Information Requests (Immigration and Refugee Board of Canada, 20. nóvember 2019);
  • 2016 Strategic Conflict Assessment of Nigeria (Institute for Peace and Conflict Resolution, 2017);
  • Stjórnarskrá Nígeríu (Constitution of the Federal Republic of Nigeria 1999, https://www.wipo.int/edocs/lexdocs/laws/en/ng/ng014en.pdf);
  • Trafficking in Persons Report 2020: Nigeria (U.S. Department of State, 25. júní 2020);
  • The World Factbook - Nigeria (CIA, síðast uppfært 20. apríl 2021);
  • The Law and FGM. An overview of 28 African Countries (28 Too Many, september 2018);
  • World Directory of Minorities and Indigenous Peoples – Nigeria (Minority rights group International, maí 2018) og World Report 2021 – Nigeria (Human Rights Watch, 13. janúar 2021)
  • Upplýsingasíða um Esan ættbálkinn (https://www.esanland.org/p/esanpeople-esan-people-or-ishanpeople.html, sótt 27. apríl 2021);
  • Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (https://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 6. maí 2021) og
  • Covid-19 vefsíða nígerískra heilbrigðisyfirvalda (https://covid19.ncdc.gov.ng/).

Nígería er sambandslýðveldi með rúmlega 219 milljónir íbúa. Nígería var nýlenda Bretlands fram að sjálfstæði þess árið 1960 og sama ár gerðist Nígería aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti bæði alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1993. Þá fullgilti ríkið mannréttindasáttmála Afríku árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1991. Ríkið fullgilti sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu árið 2004, samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 2001 og valfrjálsa viðbótarbókun við þann samning árið 2009.

Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Alþjóðasambands sakamálalögreglu (e. Interpol) er löggæsla ríkisins aðallega í höndum ríkislögreglu Nígeríu sem talin er samanstanda af rúmlega 350.000 lögregluþjónum. Ríkislögreglan annist löggæslustörf í öllum 36 fylkjum Nígeríu og höfuðborginni Abuja. Hlutverk ríkislögreglunnar sé að vernda einstaklinga og eignir, koma í veg fyrir afbrot, upplýsa og rannsaka glæpi auk þess að sækja afbrotamenn til saka. Samkvæmt skýrslum EASO frá 2017 og 2018 séu nokkrar sérhæfðar deildir innan ríkislögreglunnar sem annist sértæk brot. Ríkislögreglan hafi verið gagnrýnd fyrir spillingu og mannréttindabrot af ýmsum rannsakendum og samtökum. Dæmi séu um að lögregluþjónar hafi orðið uppvísir að því að kúga fé af almennum borgurum og sleppa sakborningum gegn mútugreiðslum. Þá hafi mannréttindasamtök greint frá því að u.þ.b. 100.000 lögregluþjónar hafi veitt efnamiklum einstaklingum persónulega þjónustu. Þá sé mikill skortur á lögreglumönnum í ríkinu, auk þess sem þjálfun lögreglumanna sé ábótavant og skortur sé á fjármagni frá ríkinu. Í ríkinu séu þó til staðar formlegar kvörtunarleiðir vegna misferlis lögreglu í starfi eða spillingar en þó tíðkist í miklum mæli að leysa slík mál á óformlegan hátt. Þá skorti skilvirkar leiðir til að eiga við, rannsaka og refsa vegna ofbeldis eða spillingar öryggissveita. Mútuþægni sé víðfeðmur vandi í ríkinu og samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2018 hafi stofnanir sem annist kvörtunarmál í ríkinu greint frá uppsögnum lægra settra lögreglumanna vegna kvartana almennings um fjárkúganir af hálfu lögreglu. Þó hafi fá mál verið rannsökuð eða farið fyrir dómstóla.

Fram kemur í framangreindum gögnum, t.a.m. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2020, að töluverð spilling sé innan dómskerfisins, auk þess sem skortur sé á þjálfun dómara. Þó kemur fram í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 2019 að þrátt fyrir veikleika í stjórnkerfinu standi þeim sem óttist einstaklinga sem starfi ekki fyrir ríkið almennt til boða vernd. Komið hafi verið á fót embætti umboðsmanns í Nígeríu árið 2004 (e. The Public Complaints Commission) en um sé að ræða sjálfstæða og óháða stofnun sem taki á móti kvörtunum borgara og tryggi rétt þeirra gagnvart nígerískum stjórnvöldum endurgjaldslaust. Hægt sé að nálgast skrifstofur umboðsmanns í öllum 36 fylkjum Nígeríu og þrátt fyrir að störf umboðsmannsins verði að einhverju leyti fyrir áhrifum vegna afskipta stjórnvalda þá sé um að ræða virkt úrræði fyrir borgara Nígeríu. Þá kemur fram að ýmsar eftirlitsnefndir starfi í Nígeríu sem almenningur geti beint kvörtunum sínum til, s.s. mannréttindanefndin (e. The National Human Rights Commission (NHRC)) sem hefur það hlutverk að rannsaka meint brot gegn mannréttindum. Þá geti almennir borgarar beint kvörtunum til umboðsmannsins í Nígeríu ef þeir eru ósáttir við málsmeðferð stjórnvalda. Jafnframt geti almenningur leitað til nígeríska lögregluráðsins (e. The Nigerian Police Council) og framkvæmdastjórn lögreglunnar (e. Police Service Commission) sem hafi eftirlit með störfum lögreglunnar.

Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá því í júlí 2019 komi fram að Nígería sé upprunaland, viðkomustaður og áfangastaður mansals og nauðungarvinnu. Flestir þolendur mansals komi frá borginni Benín í Edo fylki. Fram komi að nígerísk stjórnvöld uppfylli ekki enn lágmarksviðmið ríkja vegna baráttu gegn mansali en hafi þó tekið mikilvæg skref til að auka vernd borgara sinna og koma í veg fyrir mansal. Gerðar hafi verið ýmsar stefnubreytingar í þessum málum og sérstök löggjöf sett til að koma í veg fyrir, uppræta og refsa fyrir mansal. Þá hafi stjórnvöld þjálfað lögreglulið landsins, starfsmenn ríkisins og stofnanir til að gera þeim betur kleift að rannsaka, sækja til saka og sakfella gerendur mansals. Lögreglan hafi almennt getu til þess að aðstoða þolendur mansals, jafnvel þótt þolendur standi enn í skuld við gerendur sína. Árið 2003 hafi tekið gildi lög sem komu stofnuninni NAPTIP (e. the National Agency for the Prohibition of Traffic in Persons and Other Related Matters) á laggirnar. Markmið NAPTIP sé að vekja athygli á málefninu, fræða þjóðina og með þeim hætti að reyna að koma í veg fyrir frekara mansal, vernda þolendur mansals ásamt því að sækja gerendur til saka. Einnig hafi verið samþykkt sérstök lög gegn mansali árið 2015 en þau hafi gert það refsivert að stunda mansal og mæli ennfremur fyrir um fangelsisvist allt að fimmtán árum fyrir brot gegn þeim. Starf NAPTIP felist í því að stuðla að framfylgni laga og reglugerða gegn mansali í Nígeríu, rannsaka mansalsmál og fræða og efla lögreglu og aðra aðila sem komi að upprætingu mansals í Nígeríu. Einnig aðstoði stofnunin þolendur mansals með því að veita þeim skjól, ráðgjöf, hafa uppi á fjölskyldumeðlimum þeirra, aðstoða við heimkomu og aðlögun að samfélaginu á ný. Samkvæmt skýrslu EASO frá 2021 hafi NAPTIP til umráða tíu athvörf um land allt fyrir þolendur mansals, þ. á m. í Edo fylki. Dvöl í húsnæði NAPTIP sé ekki langtímalausn og dvelji þolendur í um tvær til sex vikur þar. NAPTIP hafi unnið með frjálsum félagasamtökum sem geti útvegað þolendum mansals langtímahúsnæði og séu a.m.k. fjögur slík athvörf í Edo fylki.

Í framangreindri skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna, sem gefin var út í mars 2021, kemur fram að þótt konur og karlar njóti sömu réttinda samkvæmt stjórnarskrá Nígeríu sé raunin ekki alltaf sú og ógiftar konur eigi sérstaklega undir högg að sækja. Konur verði fyrir margskonar mismunun þegar komi að efnahagslegum réttindum, en til að mynda tryggi lög konum ekki jöfn laun og körlum fyrir sambærileg störf. Auk þess sé mismunun byggð á kyni ekki óheimil við ráðningu í störf. Þá sé venjan sú að konur geti ekki eignast land nema í gegnum eiginmann sinn eða fjölskyldu. Venjan sé jafnframt sú í mörgum tilfellum að konur erfi ekki eiginmenn sína og sitji þá uppi allslausar við fráfall þeirra. Þá sé kynbundið ofbeldi gagnvart konum útbreitt vandamál í Nígeríu og séu ógiftar konur enn líklegri til þess að verða fyrir ofbeldi. Það sé engin alhliða löggjöf sem verndi konur gegn kynbundnu ofbeldi í Nígeríu en einhver fylki, aðallega í suðurhluta Nígeríu, séu með löggjöf sem eigi að veita vernd gegn tilteknu kynbundnu ofbeldi. Heimilisofbeldi í landinu sé útbreitt vandamál og afskiptaleysi meðal lögreglunnar tíðkist í slíkum málum.

Þá kemur í framangreindri skýrslu fram að nígerísk yfirvöld hafi sett fram aðgerðaráætlun sem útrýma eigi kynfæralimlestingu kvenna í landinu fyrir árið 2024 (e. female genital mutilation, FGM). Samkvæmt lögum landsins liggi allt að fjögurra ára fangelsisrefsing við slíku athæfi en fá tilvik hafi verið skráð þar sem yfirvöld hafi gripið til lagalegra aðgerða til að sporna gegn slíku. Gerð hafi verið könnun árið 2018 sem leitt hafi í ljós að um 20 % kvenna í Nígeríu á aldrinum 15 til 49 ára hafi verið umskornar. Í skýrslu 28 Too Many frá 2016 kemur fram að Edo State hafi verið fyrsta fylkið í Nígeríu sem hafi lagt bann við kynfæralimlestingu kvenna árið 1999. Lágmarksrefsing við slíku athæfi í fylkinu sé 6 mánaða fangelsisrefsing.

Samkvæmt skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna frá mars 2020 búi yfir 250 mismunandi þjóðarbrot í Nígeríu. Þrjú stærstu þjóðarbrotin séu Hausa, Igbo og Yoruba, en saman myndi þau um helming íbúafjölda landsins. Meðlimir úr öllum þjóðarbrotum hafi orðið fyrir mismunun en mismununin hafi einkum birst í ráðningum innan einkageirans og hverfaskiptingu í þéttbýli. Fram kemur að spenna milli ákveðinna þjóðarbrota í Nígeríu eigi sér langa sögu. Stjórnvöld í Nígeríu hafi gert tilraunir til að sporna við slíkri mismunun og hafi slíkar tilraunir yfirleitt samanstaðið af öryggisaðgerðum, þar á meðal lögregluaðgerðum og aðgerðum á vegum hersins. Lög í Nígeríu banni mismunun á grundvelli þjóðarbrots. Engu að síður hafi aðilar flestra þjóðarbrota greint frá því að vera jaðarsettir þegar komi að fulltrúum í stjórnmálum landsins og/eða tekjuúthlutun stjórnvalda. Fram kemur í framangreindum gögnum, þ. á m. upplýsingasíðunni esanland.org, að meðlimir Esan ættbálksins séu allt að 700 þúsund talsins. Flestir búi í Edo fylki í suðurhluta Nígeríu og séu kristinnar trúar.

Samkvæmt skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna um trúfrelsi frá árinu 2019 er talið að um helmingur íbúa Nígeríu séu múslimar og hinn helmingurinn kristinn. Þar kemur fram að trúfrelsi sé verndað í stjórnarskrá Nígeríu og einnig sé að finna ákvæði sem banni stjórnvöldum að koma á ríkistrú. Flestir íbúar svæða í Norður-Nígeríu séu múslimar og í Suður-Nígeríu séu kristnir í meirihluta. Bæði kristnir og múslimar hafi greint frá mismunun á grundvelli trúar sinnar á þeim svæðum þar sem þeir séu í minnihluta, m.a. vegna takmarkana á réttindum þeirra til tjáningar og samkomu og einnig við að fá atvinnu hjá ríkinu.

Samkvæmt skýrslu EASO frá 2018 sé öryggisástand landsins hvað verst í norðurhlutanum þar sem hryðjuverkahópurinn Boko Haram beri ábyrgð á andláti mörg þúsund íbúa. Helstu átök í suðurhluta Nígeríu megi rekja til ágreinings í tengslum við olíuauðlindir á svæðinu. Samkvæmt skýrslu innanríkisráðuneytis Bretlands frá janúar 2019 hafi ríkisstjórn Nígeríu aukið öryggisaðgerðir og reynt að takast á við vandann sem fylgir árásum Boko Haram í Norðaustur-Nígeríu, m.a. með því að senda herafla til svæðisins og hafi tekist að minnka umsvif hópsins. Þá hafi ríkisstjórnin einnig handtekið og leitt fyrir dóm yfir 1.500 manns sem sakaðir hafi verið um tengsl við Boko Haram. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins um trúfrelsi fyrir árið 2019 kemur fram að átök hafi verið viðvarandi árið 2019 milli Fulani Herdsmen, sem séu að mestu múslimar, og bænda, sem séu að mestu kristnir, í Norður og Mið- Nígeríu. Átökin hafi þó farið minnkandi frá árunum 2017/2018 vegna inngripa stjórnvalda og viðleitni íbúanna til að leysa deilurnar. Tala látinna almennra borgara hafi farið úr yfir 1.500 árið 2018 í u.þ.b. 350 árið 2019. Alþjóða- og félagssamtök hafi gagnrýnt stjórnvöld í Nígeríu fyrir getuleysi til að koma í veg fyrir eða draga úr ofbeldi milli kristinna og múslimskra samfélaga. Í skýrslu innanríkisráðuneytis Bretlands frá janúar 2020 og skýrslu International Crisis Group frá september 2017 kemur fram að þessi átök snúist fyrst og fremst um baráttu þessara tvegggja hópa um landsvæði, þar sem að þurrkar hafi leitt til skorts á beitilandi í norðri og vaxandi landbúnaður hafi leitt til aukinnar þarfar á ræktarlandi í svokölluðu miðjubelti Nígeríu.

Í skýrslu sérstaks skýrslugjafa Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2019 kemur fram að Evrópusambandið og alþjóða fólksflutningastofnunin (IOM) starfi saman í sérstöku átaksverkefni er lúti að endursendingu fólks til Nígeríu. Fólksflutningastofnunin í samstarfi við ýmsar innlendar stofnanir, svo sem innflytjendaþjónustu Nígeríu (e. Nigerian Immigration Service), nefnd ríkisins fyrir flóttamenn, innflytjendur og fólk á innri flótta (e. the National Commission for Refugees, Migrants and Internally Displaced Persons), NAPTIP, almannavarnir ríkisins og ETAHT (e. Edo State Taskforce against Human Trafficking) veiti ýmsa þjónustu vegna móttöku og aðlögunar einstaklinga sem snúi aftur til Nígeríu. Grunnþjónusta sé veitt, m.a. ferðir áfram til heimabæjar eða þorps, símar til frekari samskipta, matur, skammtímahúsnæði, heilbrigðisþjónusta og vernd. Þá sé einstaklingum með sérþarfir jafnframt vísað til heilbrigðisstofnana, sálfræðinga, í ráðgjöf og veitt aðstoð við fjölskyldusameiningu.

Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá því í janúar 2020 er heilbrigðiskerfinu í Nígeríu skipt í fyrsta, annað og þriðja stig og skiptist jafnframt í opinberan- og einkageira. Fyrsta stig heilbrigðiskerfisins sé starfrækt á vegum sveitarfélaga, annað stigið sé starfrækt á vegum ráðuneyta í hverju og einu fylki og þriðja stigið sé starfrækt á vegum alríkisins. Fyrsta stig heilbrigðiskerfisins feli í sér almenna heilbrigðisþjónustu, m.a. mæðra- og ungbarnavernd, fyrir borgara Nígeríu og fái jafnframt minnsta fjármagnið af stigunum þremur. Því sé almenn heilbrigðisþjónusta almennt illa skipulögð og innviðir hennar veikburða. Aðgengi sé þá ekki gott sökum skorts á heilbrigðisstofnunum og heilbrigðisstarfsfólki víða um Nígeríu. Þá sé lækniskostnaður almennt hár og aðgengi að lyfjum slæmt. Heilbrigðisþjónusta sé fjórfalt aðgengilegri í þéttbýli heldur en í strjálbýli. Heilbrigðisþjónusta innan einkageirans sé almennt betri og skipulagðari en lækniskostnaður sé að meðaltali hærri en hjá opinbera geiranum. Allt að 60% íbúa Nígeríu hafi ekki haft fullnægjandi aðgang að lyfjum en aðgengi sé þó betra á þéttbýlli svæðum landsins. Þá komi fram að heilbrigðisþjónusta sé töluvert aðgengilegri í suðurhluta landsins en í norðurhluta þess. Þá komi fram í skýrslu EASO frá árinu 2018 að konur í norðurhluta landsins séu í frekari hættu á að fá ófullnægjandi aðgang að fæðingaraðstoð en í suðurhluta þess, einkum á strjálbýlum svæðum.

Í framangreindri skýrslu breska innanríkisráðuneytisins kemur fram að í Nígeríu séu átta sjúkrahús sem sérhæfð séu í taugageðlækningum staðsett víðsvegar um landið. Geðdeildir séu jafnframt á öllum háskólasjúkrahúsum, auk þess sem starfrækt séu sex opinber geðsjúkrahús í mismunandi fylkjum í landinu. Þá kemur fram að meðferð við geðsjúkdómum sé aðgengileg á almennum sjúkrahúsum og í Nígeríu sé meðferð í boði við öllum geðsjúkdómum. Um 300 geðlæknar starfi í Nígeríu en skortur virðist vera á geðheilbrigðisstarfsfólki og fjöldi þeirra ekki í samræmi við íbúafjölda landsins. Almennir heilbrigðisstarfsmenn hafi þó fengið þjálfun í greiningu algengra geðsjúkdóma og á fjölda opinberra og einkarekinna sjúkrahúsa hafi sjúklingar aðgengi að geðlæknum, geðhjúkrunarfræðingum og sálfræðingum, ráðgjöf og lyfjameðferð. Þá sé einnig boðið upp á meðferð í búsetuúrræðum og heimaþjónustu. Veruleg misskipting sé á fjölda geðheilbrigðisstarfsfólks milli landshluta en talið sé að norðaustur hluti landsins eigi undir högg að sækja hvað það varðar samanborið við aðra landshluta.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á með heildstæðri og trúverðugri frásögn af atburðum, og eftir atvikum með trúverðugum gögnum, sem eru í samræmi við áreiðanlegar og hlutlægar upplýsingar um almennt ástand í heimaríki hans, að hann hafi orðið fyrir ofsóknum í skilningi laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis. Í þeim tilvikum hvílir það á stjórnvöldum að eyða öllum vafa um slíka hættu, t.d. með vísan til þess að aðstæður í heimaríki hans hafi breyst.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærandi byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hún hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir sem rekja megi til aðildar hennar að tilteknum þjóðfélagshópi sem kona og þolandi mansals. Þá byggir kærandi á því að hún tilheyri minnihlutahópi Esan ættbálksins og sé kristinnar trúar. Þá er í viðbótarathugasemdum til kærunefndar byggt á því að kærandi eigi í hættu að verða umskorin í heimaríki. Kærunefnd telur ekkert hafa komið fram í málinu sem gefi til kynna að kærandi eigi það á hættu. Þá er kynfæralimlesting kvenna, líkt og að framan er rakið, refsiverð í Nígeríu.

Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða að hún óttist ofsóknir af hálfu yfirvalda í Nígeríu sem hafa eða gætu náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Þá benda önnur gögn málsins ekki til þess að slíkar ofsóknir hafi átt sér stað eða að kærandi eigi þær á hættu.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi ekki óttast neitt í heimaríki annað en konuna sem hafi þvingað hana í mansal og neytt hana til að stunda vændi. Kærandi kvaðst ekki hafa heyrt neitt í konunni frá því hún yfirgaf Ítalíu og viti hún því ekki hvar hún sé. Kærandi hefur ekki lagt fram gögn sem styðja við framangreinda atburðarrás eða sýna fram á tilvist umræddrar konu. Af frásögn kæranda verður ekki ráðið að konan eða aðilar á vegum hennar hafi reynt að hafa uppi á kæranda frá því hún kom til landsins. Þá hefur ekkert komið fram í málinu sem gefur til kynna að staða konunnar sé slík í Nígeríu að kærandi geti ekki leitað aðstoðar yfirvalda. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér verður ráðið að þrátt fyrir að þolendur mansals geti átt erfitt uppdráttar við endurkomu til Nígeríu verði þeir almennt ekki fyrir ofsóknum við heimkomu. Mansal sé refsivert í Nígeríu og hafi lögregluyfirvöld og stofnunin NAPTIP almennt getu til þess að aðstoða þolendur mansals, jafnvel þó þolendur standi enn í skuld við gerendur.

Í þeim gögnum sem kærunefnd hefur tekið til skoðunar kemur fram að borgurum landsins standi almennt raunhæf vernd yfirvalda til boða, þurfi þeir á slíkri aðstoð að halda. Með vísan til framangreinds er það mat kærunefndar að kærandi eigi þess kost að leita aðstoðar og verndar yfirvalda, bæði hjá NAPTIP stofnuninni og lögreglu, telji hún sig þurfa þess.

Kærandi hefur, líkt og að framan er rakið, einnig borið fyrir sig að vera i minnihlutahópi í Nígeríu þar sem hún tilheyri Esan ættbálknum og sé kristinnar trúar. Hún hefur ekki borið fyrir sig að hafa orðið fyrir vanvirðandi meðferð eða ofsóknum af þeim sökum. Þá benda framangreindar landaupplýsingar ekki til þess að einstaklingar sem tilheyri Esan ættbálknum og/eða séu kristinnar trúar í Nígeríu eigi á hættu mismunun eða áreiti sem nái því alvarleikastigi að fela í sér ofsóknir eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð í skilningi 1. mgr. 37. gr., sbr. 1. og 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hún hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna.

Telur kærunefnd því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. jafnframt 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrárinnar. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefndin að aðstæður hennar þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunni að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni eða óbærilegum þjáningum. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væri ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Meðal gagna málsins eru komunótur frá Göngudeild sóttvarna, dags. 9. mars 2020 til 19. apríl 2021. Kemur þar m.a. fram að kærandi hafi leitað á bráðamóttöku hinn 12. nóvember 2020 vegna þess að hún hafi skorið í tvo fingur á vinstri hendi við eldamennsku. Grunur hafi verið um sinaskaða á litla fingri og hafi aðgerð því verið framkvæmd. Kærandi hafi verið útskrifuð af spítalanum degi síðar og umbúðir teknar af hinn 16. nóvember 2020. Engin merki hafi verið um sýkingu eða taugaskaða og hafi sjúkraþjálfun gengið ágætlega. Hinn 4. febrúar 2021 hafi kærandi verið útskrifuð úr sjúkraþjálfun og henni leiðbeint um að hún megi nota höndina með hefðbundnum hætti. Þá kemur fram að kærandi hafi leitað sér sálfræðiþjónustu hinn 7. desember 2020, 18. janúar 2021 og 19. apríl 2021. Að mati sálfræðings sé kærandi utan við sig og með mikinn athyglisbrest. Þá óttist hún að vera send aftur til heimaríkis og hafi átt erfitt með svefn vegna kvíða. Þá kemur fram í samskiptaseðli frá heilsugæslunni í Efstaleiti, dags. 31. júlí 2020, að kærandi hafi kvartað undan skrítinni tilfinningu í líkamanum og útlimum. Kærandi hafi talið að hún væri með orma sem væru að skríða í sér og hafi ekki verið talið ólíklegt að hún væri með sníkjudýrasýkingu. Þá hafi hún kvartað undan bak- og höfuðverkjum.

Að teknu tilliti til framlagðra heilsufarsgagna er það mat kærunefndar að kærandi sé ekki í meðferð hér á landi sem óforsvaranlegt væri að rjúfa. Þá telur kærunefnd, með vísan til þeirra gagna sem nefndin hefur kynnt sér, að kæranda standi til boða aðgangur að heilbrigðisþjónustu í heimaríki.

Þá byggir kærandi á því að henni skuli veitt mannúðarleyfi með vísan til heildstæðs mats á einstaklingsbundnum aðstæðum hennar sem einstæðrar konu og mansalsfórnarlambs með sérstakri áherslu á þá erfiðu félagslegu stöðu sem hún sé í. Kærandi hafi orðið fyrir alvarlegu kynferðislegu ofbeldi og bendi heimildir til þess að mansalsfórnarlömb eigi erfitt uppdráttar, snúi þau aftur til Nígeríu. Ástæðurnar séu m.a. hætta á hefndaraðgerðum af hálfum geranda og hætta á því að vera þvinguð aftur í mansal. Þá standi mansalsfórnarlömb frammi fyrir sérstaklega erfiðum félagslegum aðstæðum og jafnvel samfélagslegri útskúfun í Nígeríu. Kröfu sinni til stuðnings vísar kærandi m.a. til þess að í úrskurði kærunefndar nr. 229/2020 frá 25. júní 2020 hafi mansalsfórnarlambi frá Edo fylki í Nígeríu verið veitt mannúðarleyfi samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga er fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við endurkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.

Líkt og að framan er rakið gefa þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér um heimaríki kæranda til kynna að ríkisborgarar Nígeríu geti leitað aðstoðar og verndar yfirvalda þar í landi og fengið lausn mála sinna. Þá séu til staðar raunhæf úrræði í Nígeríu sem þolendur mansals geti leitað til.

Samkvæmt framburði kæranda á hún systkini í heimaríki. Kærunefnd telur því að kærandi eigi bakland í heimaríki sem hún geti leitað stuðnings hjá vegna þeirra vandamála sem hún standi frammi fyrir. Kærandi greindi einnig frá því að hafa stundað nám og rekið eigið fyrirtæki. Með vísan til framangreinds telur kærunefnd að félagslegar aðstæður kæranda við endurkomu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Hvað varðar vísun kæranda í greinargerð til Útlendingastofnunar til ákvarðana stofnunarinnar sem hún telur sambærilegar sínu máli þá tekur kærunefnd fram að forsendur og rökstuðningur ákvarðana Útlendingastofnunar eru ekki bindandi fyrir kærunefnd. Jafnframt telur kærunefnd að málsatvik og aðstæður aðila tilvísaðra mála séu ekki sambærileg þeim aðstæðum sem eiga við í máli kæranda. Kærunefnd telur jafnframt að tilvísun kæranda til úrskurðar kærunefndar nr. 229/2029 frá 25. júní 2020 hafi ekki þýðingu fyrir þetta mál. Kærunefnd telur ljóst að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda við stöðu kæranda í framangreindum úrskurði. Að mati kærunefndar hefur framangreindur úrskurður ekki fordæmisgildi í máli kæranda, m.a. þar sem um var að ræða einstæða móðir sem gat ekki treyst á stuðning barnsföður við uppeldi barns síns á Ítalíu eða í heimaríki.

Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Kærunefnd hefur jafnframt litið til þeirra tímabundnu erfiðleika sem heimaríki kæranda kann að þurfa að glíma við vegna Covid-19 faraldursins. Kærunefnd telur þá erfiðleika ekki vera þess eðlis að þeir leiði til þess, einir og sér eða í samhengi við önnur gögn málsins, að heimilt sé að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Dvalarleyfi vegna mansals eða gruns þar um - 75. og 76. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt ákvæði 75. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem grunur leikur á að sé fórnarlamb mansals dvalarleyfi í allt að níu mánuði þótt skilyrðum 1. og 2. mgr. 55. gr. laganna sé ekki fullnægt. Í athugasemdum við fyrrgreint ákvæði í frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að ákvæðinu sé ætlað að stuðla að því að fórnarlamb mansals fái tækifæri til að ná bata og losna undan áhrifum þeirra sem stunda mansal. Veiting dvalarleyfisins sé óháð því hvort lögreglurannsókn fari fram en dvalarleyfinu sé m.a. ætlað að gefa hugsanlegu fórnarlambi svigrúm til þess að taka upplýsta ákvörðun um samstarf við yfirvöld við rannsókn málsins. Efni ákvæðisins ber með sér að því sé ætlað að veita þeim einstaklingum tímabundið atvinnuleyfi sem nýlega hafa losnað undan mansali eða eru enn undir áhrifum þeirra sem stunda mansal.

Í 76. gr. laga um útlendinga kemur fram að heimilt sé að veita fórnarlambi mansals og barni viðkomandi sem statt er hér á landi endurnýjanlegt dvalarleyfi til eins árs þegar sérstaklega stendur á, þótt skilyrðum 1. og 2. mgr. 55. gr. sé ekki fullnægt, þegar það telst nauðsynlegt ýmist vegna persónulegra aðstæðna viðkomandi eða að mati lögreglu vegna samvinnu viðkomandi við yfirvöld vegna rannsóknar og meðferðar sakamáls. Í athugasemdum við fyrrgreint ákvæði í frumvarpi til laga um útlendinga kemur m.a. fram að ákvæðið sæki fyrirmynd sína til 14. gr. samnings Evrópuráðsins um aðgerðir gegn mansali og fullnægi einnig skuldbindingum samkvæmt 1. mgr. 7. gr. Palermó-bókunarinnar. Í athugasemdum er vísað til greinargerðar með samningi Evrópuráðsins um aðgerðir gegn mansali þar sem fram komi að persónulegar aðstæður fórnarlambs mansals geti verið allt frá öryggi eða heilsufari þess til fjölskylduaðstæðna.

Í greinargerð kæranda til Útlendingastofnunar kemur fram að hún sé fórnarlamb mansals og nauðsynlegt sé að veita henni dvalarleyfi á þeim grundvelli. Kærandi skuldi geranda sínum enn háar fjárhæðir og yrði öryggi hennar því ógnað, yrði hún send aftur til heimaríkis. Þá sé andlegt heilsufar kæranda ekki gott vegna þeirra áfalla og þess ofbeldis sem hún hefur orðið fyrir og eigi hún engan að í heimaríki sem geti veitt henni stuðning.

Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun hafði stofnunin samband við lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins og óskaði eftir upplýsingum um hvort lögreglan væri að rannsaka mansalsmál þar sem kærandi væri brotaþoli. Í svari lögreglu, dags. 14. desember 2020, kemur fram að ekki yrði hafin rannsókn á málefnum kæranda nema grunur eða gögn um ólögmætan verknað kæmu fram. Með vísan til þess, og að teknu tilliti til framburðar kæranda, hafi það verið mat Útlendingastofnunar að fyrirliggjandi gögn í máli kæranda hafi ekki gefið ástæðu til að draga í efa að kærandi hafi komið sjálfviljug til Íslands.

Kærandi kom hingað til lands hinn 9. mars 2020. Er því rúmt ár liðið frá því að kærandi kom hingað til lands og verður ekki séð af gögnum málsins að kærandi sé enn undir áhrifum þeirra aðila sem hún kveður hafa beitt sig mansali. Er það því mat kærunefndar að sá umþóttunartími sem ákvæðinu er ætlað að gefa mögulegum þolendum mansals eigi ekki við í tilfelli kæranda. Að mati kærunefndar, með vísan til framangreinds og annarra gagna málsins, er hvorki grundvöllur fyrir veitingu dvalarleyfis samkvæmt 75. laga um útlendinga né 76. gr. sömu laga.

Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli kæranda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

Frávísun og frestur til að yfirgefa landið

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd 9. mars 2020. Eins og að framan greinir hefur umsókn hennar um vernd og dvalarleyfi hér á landi verið synjað og hefur hún því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hennar um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hún verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hennar hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi er við ágæta heilsu. Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 30 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið.

Athygli kæranda er vakin á því að ef hún yfirgefur ekki landið innan frests kann að vera heimilt að brottvísa honum. Brottvísun felur í sér bann við komu til landsins síðar og skal endurkomubann að jafnaði ekki gilda skemur en tvö ár, sbr. a-lið 2. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Lagt er fyrir kæranda að hverfa af landi brott. Kæranda er veittur 30 daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljugur.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. The appellant is requested to leave the country. The appellant has 30 days to leave the country voluntarily.

 

Tómas Hrafn Sveinsson

Sindri M. Stephensen                                                 Þorbjörg I. Jónsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta