Nr. 228/2023 Úrskurður
KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA
Hinn 19. apríl 2023 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 228/2023
í stjórnsýslumáli nr. KNU23020034
Kæra [...]
á ákvörðun
Útlendingastofnunar
-
Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 13. febrúar 2023 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Rússlands (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 31. janúar 2023, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.
Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og lagt verði fyrir stofnunina að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
II. Málsmeðferð
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 28. september 2022. Á grundvelli vegabréfsáritunar til Spánar í vegabréfi kæranda var 17. október 2022 beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda á Spáni, sbr. 2. eða 3. mgr. 12. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá spænskum yfirvöldum, dags. 21. október 2022, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 2. nóvember 2022, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 31. janúar 2023 að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda 1. febrúar 2023 og kærði hann ákvörðunina 13. febrúar 2023 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 25. febrúar 2023. Þá bárust viðbótargögn 23. mars 2023.
III. Ákvörðun Útlendingastofnunar
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að spænsk stjórnvöld beri ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Spánar ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn hans til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Spánar.
IV. Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi aðeins dvalið skamman tíma á Spáni enda hafi för hans ávallt verið heitið til Íslands. Kærandi þekki ekki til hæliskerfisins á Spáni. Kærandi eigi systur á Íslandi sem hann vilji sameinast, enda séu þau náin. Þá greinir kærandi frá því að hann glími við alvarleg andleg veikindi og vandamál í skjaldkirtli sem hann taki lyf vegna.
Kærandi byggir á því að hann sé bæði einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga og viðkvæmur einstaklingur í skilningi 2. mgr. 36. gr. sömu laga. Kærandi gagnrýnir málsmeðferð Útlendingastofnunar vegna veikinda hans en stofnunin hafi aðeins leiðbeint honum um framlagningu gagna sem ekki eru til og honum sé ómögulegt að útvega í stað þess að sinna lögbundinni frumkvæðis- og rannsóknarskyldu sinni samkvæmt 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga, 2. mgr. 23. gr. sömu laga og 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Kærandi byggir aðallega á því að hann hafi sérstök tengsl við landið samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi eigi nafngreinda systur sem sé með gilt dvalarleyfi hér á landi. Systir hans sé í sambúð með íslenskum ríkisborgara síðan í september 2021 og uppfylli tímamark fyrir dvalarleyfi samkvæmt 70. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi lagt fram fjölda gagna sem styðji tengsl hans við systur sína. Kærandi gerir athugasemd við hina kærðu ákvörðun og vísar til þess að rökstuðningur Útlendingastofnunar um synjun á því að kærandi hafi sérstök tengsl við landið bendi til þess að íslensk stjórnvöld séu að herða skilyrði þess að sérstök tengsl geti átt við. Gæta verði að jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga við breytingar á túlkun laga. Í því samhengi vísar kærandi til úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 326/2019 frá 27. júní 2019. Þá vísar kærandi til athugasemda í frumvarpi með 2. mgr. 36. gr. sem varð að lögum um útlendinga. Samkvæmt þeim sé nóg að umsækjandi um alþjóðlega vernd eigi ættingja hér á landi en ekki í því ríki sem til skoðunar er að senda hann til. Engin krafa sé gerð um varanleika dvalar ættingjans eða að tengslin séu raunveruleg eða sérstök svo að umsækjandi geti haft sérstök tengsl við Ísland. Stjórnvöld verði að gæta þess að þau sjónarmið sem þau beiti þegar komi að matskenndum lagareglum séu málefnaleg og gangi ekki gegn lögskýringargögnum. Kærandi mótmælir þeirri kröfu að ættingi umsækjanda um alþjóðlega vernd skuli hafa fasta búsetu hér á landi og fyrirséð sé að svo verði um einhvern tíma. Ekki sé gerð krafa um slíkt í lögskýringargögnum, þ.e. um varanleika hinnar föstu búsetu. Löng hefð sé fyrir því að umsækjendur um alþjóðlega vernd fái mál sín tekin til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra tengsla í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, þegar þeir eigi ættingja hér á landi sem hafi tímabundin leyfi, jafnvel ársleyfi og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Þá sé ljóst að búseta systur hans verði varanleg hér á landi. Hún sé ekki einungis námsmaður hér á landi heldur í sambandi með íslenskum ríkisborgara og hafi sótt um dvalarleyfi á þeim grundvelli.
Kærandi gerir athugasemd við að í hinni kærðu ákvörðun telji Útlendingastofnun að meta þurfi hversu rík tengsl séu á milli ættingja. Þetta atriði geti komið til skoðunar ef um mjög fjarskylda ættingja sé að ræða en ekki þegar tengsl eru í beinan legg eða á milli systkina. Þá sé nóg að umsækjandi eigi ættingja hér á landi en ekki í viðtökuríki. Kærandi telur þau sjónarmið sem Útlendingastofnun horfi til, hvað þetta atriði varðar, í engum tengslum við lögskýringargögn og geti ekki talist málefnaleg eða lögmæt. Aldur aðila, heilbrigði þeirra, hvort þeir séu hvor öðrum háðir og hvað geti talist sanngjörn krafa til aðila um að þeir rækti sambönd sín yfir landamæri. Þessi sjónarmið séu ný og gangi þvert gegn fyrri framkvæmd og brjóti gegn jafnræðisreglu stjórnsýslulaga. Auk þess hafi kæranda ekki verið veittur frestur til að leggja fram gögn eða andmæli um þessi sjónarmið. Hvað þessi sjónarmið varðar megi nefna í máli kæranda veikindi hans, þá staðreynd að hann sé háður systur sinni og hann hafi ekki ferðaheimild frá Spáni sem umsækjandi um alþjóðlega vernd. Kærandi hafnar niðurstöðu stofnunarinnar og telur ljóst að hann hafi sýnt fram á sérstök tengsl við ættingja á Íslandi sem hefur heimild til dvalar hér á landi. Tengslin séu raunveruleg og sérstök. Kærandi og systir hans séu samrýmd og hann búi hjá systur sinni í dag.
Kærandi byggir jafnframt á því að raunverulega hætta sé á því að hann muni koma til með að eiga erfitt uppdráttar á Spáni vegna þeirrar alvarlegu mismununar sem margir umsækjendur um alþjóðlega vernd verði fyrir sökum álags á hæliskerfinu þar í landi. Undanfarin ár hafi Spánn verði í öðru eða þriðja sæti yfir þau ríki sem flestir umsækjendur um alþjóðlega vernd leiti til í Evrópu. Kærandi hafnar fullyrðingu Útlendingastofnunar um að umsækjendur sem komi aftur til Spánar á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar eigi ekki í erfiðleikum með að komast inn í verndarkerfið. Staðreyndin sé skýr um að álag hafi leitt til þess að margir umsækjendur um alþjóðlega vernd hafi ekki fengið aðgang að hæliskerfinu á Spáni. Þá hafi hjálparsamtök og fréttamiðlar greint frá því að umsækjendur um alþjóðlega vernd hafi verið án húsnæðis og því á götunni á Spáni. Þeim sem fái aðgang að hæliskerfinu sé gert að standa að verulegu leyti á eigin fótum eftir sex mánuði. Kærandi vísar til alþjóðlegra skýrslna máli sínu til stuðnings.
Kærandi andmælir fullyrðingu Útlendingastofnunar um að kæranda standi til boða öll nauðsynleg grunnþjónusta í landinu og að hann hafi aðgang að verndarkerfi landsins. Kærandi glími við alvarlega mismunun og sé útilokaður frá spænsku samfélagi, m.a. vegna tungumálaörðugleika. Kærandi geti vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en almennings á Spáni. Þá ítrekar kærandi þau andlegu veikindi sem hann hafi lýst og hversu erfitt það verði fyrir hann að nálgast nauðsynlega þjónustu og lyf á götunni á Spáni. Kærandi vísar jafnframt til þess að hann telji reifun Útlendingastofnunar á landaupplýsingum vera efnislega ranga.
V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Aðstæður kæranda
Samkvæmt gögnum málsins er kærandi einstæður [...] karlmaður. Við meðferð málsins hefur kærandi greint frá því að hann eigi systur sem sé námsmaður hér á landi, með tímabundna heimild til dvalar á grundvelli þess til 15. júlí 2023, og sé í sambúð með íslenskum ríkisborgara. Kærandi hafi komið til Spánar í september 2022 og dvalið þar í landi hjá kunningjum sínum í innan við viku. Þá hafi kærandi komið til Íslands og lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd 28. september 2022. Kærandi hafi ekki lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd á Spáni og þekki ekki til verndarkerfisins þar í landi. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hann væri með vanvirkan skjaldkirtil og taki lyf vegna þess. Auk þess sé andleg heilsa hans slæm og hann glími við kvíða, ótta og þunglyndi.
Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.
Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Spánar á umsókn kæranda er byggð á 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi hefur fengið útgefna vegabréfsáritun þar í landi. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja spænsk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Aðstæður á Spáni
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd á Spáni, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices – Spain (United States Department of State, 20. mars 2023);
- Amnesty International Report 2021/22 – Spain (Amnesty International, 28. mars 2022);
- Asylum Information Database, Country Report: Spain (European Council on Refugees and Exiles, 21. apríl 2022);
- ECRI Report on Spain (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 27. febrúar 2018);
- Freedom in the World 2023 – Spain (Freedom House, mars 2023);
- Concluding observations on the sixth periodic report of Spain (UN Committee against Torture, 29. maí 2015);
- Concluding observations on the twenty-first to twenty-third periodic reports of Spain (UN Committee on the Elimination of Racial Discrimination, 21. júní 2016);
- Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees For the Office of the High Commissioner for Human Rights‘ Compilation Report Universal Periodic Review: Spain (UNHCR, júlí 2019) og
- World Report 2023 – European Union (Human Rights Watch, 12. janúar 2023).
Spánn er eitt af aðildarríkjum Evrópusambandsins og því bundið af reglum sambandsins þegar kemur að málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd, t.a.m. tilskipunum sambandsins er varða meðferð umsókna um alþjóðlega vernd nr. 2013/32/EU, um móttökuaðstæður nr. 2013/33/EU og um lágmarksviðmið til þess að teljast flóttamaður nr. 2011/95/EU. Þá hefur Spánn verið aðili að Evrópuráðinu frá 24. nóvember 1977 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu 26. september 1979. Spánn gerðist aðili að samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri illri og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð 21. október 1987 og fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna um borgarleg og stjórnmálaleg réttindi og efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi 27. apríl 1977 og barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna árið 1990. Þá gerðist ríkið aðili að Flóttamannasamningnum 14. ágúst 1978.
Í framangreindri skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) kemur fram að á Spáni sæti umsóknir um alþjóðlega vernd tvenns konar málsmeðferð, annars vegar málsmeðferð við landamæri (e. border procedure) og hins vegar málsmeðferð umsókna sem lagðar eru fram innan yfirráðasvæðis ríkisins. Í skýrslunni kemur einnig fram að umsóknir einstaklinga sem séu endursendir til Spánar á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar sæti hefðbundinni málsmeðferð. Umsóknir sem lagðar séu fram á yfirráðasvæði Spánar séu skoðaðar af spænsku útlendingastofnuninni (s. Oficina de Asilo y Refugio (OAR)) og lagðar fyrir nefnd (e. Inter-Ministerial Asylum and Refugee Commission (CIAR)) sem taki ákvörðun í málinu. Ákvarðanir séu kæranlegar til spænska innanríkisráðuneytisins (s. Ministerio del Interior). Þá verði ákvarðanirnar bornar undir dómstóla. Umsækjendur um alþjóðlega vernd á Spáni eigi rétt á viðtali með aðstoð túlks áður en ákvörðun sé tekin í máli þeirra. Þá eigi umsækjendur rétt á lögfræðiþjónustu á fyrsta stigi málsmeðferðar sem og við kærumeðferð.
Í skýrslu ECRE kemur fram að umsækjendur sem hafi verið endursendir til Spánar á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar hafi í einstaka tilvikum átt í erfiðleikum með aðgengi að móttökukerfinu þar í landi. Samkvæmt lögum um útlendinga á Spáni eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd rétt á ýmis konar þjónustu og aðstoð á meðan umsókn þeirra er til meðferðar þar í landi. Stofnun aðlögunar og mannúðaraðstoðar (e. Genereal Directorate for Inclusion and Humanitarian Aid (DGIAH)) sem fer með málefni útlendinga á Spáni hefur gefið út fyrirmæli um að umsækjendur sem endursendir eru til Spánar á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar skuli hafa aðgang að þeirri þjónustu sem umsækjendur um alþjóðlega vernd eigi rétt á þar í landi. Voru fyrirmælin gefin út eftir að dómstóll í ríkinu gagnrýndi spænska ríkið fyrir að synja slíkum umsækjendum um þjónustu. Umsækjendur fái úthlutað vasapeningum mánaðarlega, svo og ýmsum nauðsynjum til persónulegra nota, t.d. fatnaði. Þá standi spænsk yfirvöld straum af ýmsum kostnaði s.s. vegna samgangna, menntunar og annarrar þjálfunar, t.d. tungumálanáms. Umsækjendur fái úthlutað gistirými í móttökumiðstöðvum á meðan málsmeðferð umsóknar þeirra standi yfir. Þegar umsækjendur hljóta alþjóðleg vernd eigi þeir rétt á stuðningi til þess að útvega sér eigin húsnæði svo þeir geti hafið aðlögun að spænsku samfélagi. Umsækjendur fái ekki greiddan vasapening þá en geti fengið fjárstuðning til að mæta ákveðnum grunnþörfum.
Umsækjendur um alþjóðlega vernd á Spáni geti fengið atvinnuleyfi að sex mánuðum liðnum frá móttöku umsóknar þeirra, á meðan þeir bíði eftir niðurstöðu. Engin frekari skilyrði séu sett fyrir útgáfu slíks atvinnuleyfis. Þá eigi umsækjendur rétt á heilbrigðisþjónustu á vegum hins opinbera, til jafns við spænska ríkisborgara og aðra ríkisborgara þriðju ríkja í löglegri dvöl á Spáni. Þá geti einstaklingar sem þess þurfa fengið aðgang að sérhæfðari heilbrigðisþjónustu, t.d. þolendur líkamlegs eða andlegs ofbeldis eða annarra áfalla.
Í framangreindum skýrslum kemur fram að spænsk stjórnvöld hafi verið gagnrýnd fyrir að tryggja ekki nógu snemma í umsóknarferlinu greiningu á því hvort einstaklingar séu í viðkvæmri stöðu og hafi sérþarfir af þeim sökum. Þá séu úrræðin sem séu í boði fyrir umræddan hóp almenn og nái ekki að fullu utan um sérþarfir þeirra sem séu hvað viðkvæmastir. Þeim bjóðist þó að leita til einkaaðila eða utanaðkomandi aðila eftir þjónustu.
Í skýrslu Evrópunefndar gegn kynþáttafordómum (e. European Commission against Racism and Intolerance) kemur m.a. fram að fordómar og hatursorðræða, einkum gagnvart múslimum, Rómafólki og hinsegin fólki, sé vandamál á Spáni en að spænsk yfirvöld hafi, með hjálp frjálsra félagasamtaka, unnið markvisst gegn þeim, þ. á m. með lagabreytingum, þjálfun lögreglu og slitum félaga með kynþáttahyggju að markmiði. Framangreindar skýrslur bera enn fremur með sér að almenningur á Spáni geti leitað aðstoðar hjá spænskum löggæsluyfirvöldum vegna ofbeldisbrota og hótana. Í framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að spænsk stjórnvöld viðhaldi góðri stjórn á löggæsluyfirvöldum ríkisins og hafi almennt skilvirka verkferla til að rannsaka og refsa fyrir misnotkun á valdi. Samkvæmt vefsíðu lögreglunnar á Spáni séu starfræktar sérhæfðar deildir sem rannsaki brot eftir viðfangsefni. Þá kemur fram að erlendir ríkisborgarar geti leitað til lögreglunnar, í persónu eða gegnum síma, telji þeir á sér brotið og óskað eftir stuðningi eða tilkynnt um brot.
Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar eftir því sem við á, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með „aðild Íslands að Dyflinnarsamstarfinu hefur ríkið skuldbundið sig til að fylgja og virða þær reglur sem felast í Dyflinnarreglugerðinni“ og að „íslensk stjórnvöld sem starfa að útlendingamálum [beiti] ákvæðum reglugerðarinnar við mat á því hvaða ríki beri ábyrgð á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd sem lagðar eru fram hér á landi.“ Ákvæði 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. byggir á heimild í 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og felur í sér frávik frá þeirri meginreglu reglugerðarinnar um að ákvarða skuli hvaða ríki beri ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd á grundvelli þeirra viðmiða sem fram koma í reglugerðinni.
Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.
Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.
Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.
Samkvæmt 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.
Kærandi er einstæður [...] karlmaður. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hann væri líkamlega hraustur en væri með vanvirkan skjaldkirtil og taki hormónalyf vegna þess. Þá greindi kærandi frá því að geðheilsa hans væri slæm. Kærandi glími við kvíða, ótta og þunglyndi, m.a. vegna atburða í lífi hans. Kærandi hafi verið í meðferð hjá sálfræðingi frá árinu 2014 og eigi vikulega rafrænan fund hjá sálfræðingi. Í greinargerð sálfræðings hjá Sálfræðistofunni, dags. 22. mars 2023, kemur fram að kærandi hafi upplifað andlegt ofbeldi af hálfu föður síns í æsku. Þá kemur fram að kærandi sýni merki um streitu og önnur klínísk einkenni sem auki hættu á kvíðaröskun og þunglyndi. Í máli kæranda liggur fyrir læknisvottorð frá Göngudeild sóttvarna, dags. 17. nóvember 2022, þar sem fram kemur að læknisskoðun hafi farið fram í samræmi við ákvæði sóttvarnarlaga.
Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun 2. nóvember 2022, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi teldi hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda, sem nýtur aðstoðar löglærðs talsmanns, jafnframt leiðbeint með tölvubréfi kærunefndar, dags. 14. febrúar 2023, um framlagningu frekari gagna í málinu. Kærandi lagði fram frekari heilsufarsgögn 23. mars 2023. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar hans geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.
Kærunefnd telur ljóst að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Kærunefnd telur ekki forsendur til annars, í ljósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður á Spáni, en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti fengið nauðsynlega heilbrigðisþjónustu þar í landi. Að framangreindu virtu er það mat kærunefndar að kæranda komi því til með að standa til boða fullnægjandi heilbrigðisþjónusta þar í landi, en hann muni e.t.v. þurfa að greiða fyrir slíka þjónustu sjálfur. Kærunefnd áréttar það sem kemur fram í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar, þ.e. að meðferð við veikindum teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana. Telur kærunefnd því að aðstæður kæranda tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar.
Kærunefnd áréttar að Útlendingastofnun og stoðdeild ríkislögreglustjóra ber að gæta þess að flutningur kæranda fari fram með þeim hætti að heilsufari hans verði ekki stefnt í hættu. Gætt verði að því að kærandi hafi meðferðis þau lyf sem hann þarfnist og að upplýsingum um heilsufar kæranda verði miðlað til spænskra yfirvalda, sbr. 31. og 32. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.
Kærunefnd telur að gögn málsins, að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, beri ekki með sér að hann muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. áðurnefnd viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá áréttar kærunefnd að gögn málsins bera með sér að kærandi hafi ekki lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd í viðtökuríki og því hafi hann ekki reynslu af móttökukerfinu þar í landi.
Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæla með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun 2. nóvember 2022 hafa sérstök tengsl við Ísland þar sem nafngreind systir hans væri búsett hér á landi. Hún sé námsmaður hér á landi og í sambúð með íslenskum ríkisborgara. Við meðferð málsins hefur kærandi lagt fram fjölda gagna máli sínu til stuðnings, m.a. ljósmyndir af sér og systur sinni, skjáskot af samskiptum þeirra á milli, stuðningsvottorð frá systur hans, fæðingarvottorð og afrit af vegabréfi og dvalarleyfisskírteini systur hans. Samkvæmt framlögðu dvalarleyfisskírteini er meint systir kæranda með tímabundið námsleyfi hér á landi með gildistíma til 15. júlí 2023.
Lög um útlendinga veita ekki skýrar leiðbeiningar um hvernig hugtakið sérstök tengsl samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skuli túlkað í framkvæmd. Við túlkun ákvæðisins hefur kærunefnd litið til athugasemda sem fylgdu ákvæðinu í frumvarpi því er varð að lögum um útlendinga og lagt til grundvallar að ákvæðinu sé ætlað að taka m.a. til þeirra tilvika þegar umsækjendur eiga ættingja hér á landi en ekki í því ríki sem þeir yrðu aftur sendir til. Þetta geti einnig átt við í öðrum tilfellum þar sem tengsl eru ríkari en við viðtökuríki, svo sem vegna fyrri dvalar. Þá gera athugasemdir í frumvarpi og ákvæði 32. gr. b reglugerðar um útlendinga ráð fyrir því að fyrri dvöl umsækjenda hér á landi geti leitt til þess að um sérstök tengsl séu að ræða. Samkvæmt framansögðu getur komið til skoðunar hvort kærandi hafi sérstök tengsl við landið í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þegar hann á ættingja hér á landi.
Af orðalagi ákvæðisins er ljóst að það mælir fyrir um tengsl við landið en ekki aðeins tengsl við einstaklinga sem hér kunna að dvelja á einhverjum tíma. Kærunefnd telur ljóst að byggist málsástæða um sérstök tengsl við landið á tengslum við tiltekinn eða tiltekna einstaklinga þurfa þeir einstaklingar almennt að hafa heimild til dvalar hér á landi og að sú heimild þurfi að hafa tiltekinn varanleika. Af þessu leiðir að tengsl við einstakling sem byggir rétt sinn til dvalar á Íslandi á vegabréfsáritun eða tímabundnu dvalarleyfi myndu almennt ekki teljast þess eðlis að þau leiði til þess að umsækjandi hafi sérstök tengsl við landið í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærunefnd telur að leggja skuli til grundvallar að ef umsækjandi um alþjóðlega vernd á sannanlega ættingja hér á landi, sem hefur heimild til dvalar hér, sem hann hefur raunveruleg og sérstök tengsl við hér á landi en ekki í viðtökuríki, geti umsókn hans verið tekin til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli sérstakra tengsla hans við landið.
Af framangreindu er ljóst að meta þarf tengsl kæranda við Ísland m.t.t. fyrirliggjandi gagna. Líkt og komið hefur fram byggir kærandi á tengslum við nafngreinda systur sína og dregur kærunefnd ekki í efa tengsl kæranda við hana. Systir kæranda er með tímabundið námsleyfi hér á landi til 15. júlí 2023 og hefur lagt fram umsókn um dvalarleyfi hjá Útlendingastofnun, dags. 3. janúar 2023, á grundvelli sambúðar með maka. Samkvæmt gögnum málsins er um að ræða sambúð með nafngreindum íslenskum ríkisborgara sem hófst 30. ágúst 2022 samkvæmt sambúðarvottorði. Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun, dags. 27. mars 2023, hefur umsóknin ekki verið afgreidd hjá stofnuninni. Með hliðsjón af framangreindu er það mat kærunefndar að þrátt fyrir að systir kæranda sé stödd hér á landi á grundvelli námsleyfis og er með umsókn um dvalarleyfi til meðferðar hjá Útlendingastofnun, að tengsl kæranda við landið séu ekki slík að hægt sé að fallast á að skilyrði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga séu uppfyllt. Í því máli sem hér er til meðferðar er um að ræða tengsl við einstakling sem er með tímabundið námsleyfi sem rennur út innan fárra mánaða. Auk þess hefur kærandi ekki sýnt fram á að um sé ræða ríkari tengsl en almennt gerist á milli systkina. Eins og á stendur í þessu máli varðar það tengsl milli systkina sem eru fullorðnir einstaklingar sem eru ekki hvor öðrum háðir. Verður jafnframt að horfa til þess að túlka verður ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga varðandi sérstök tengsl þannig að það nái til atvika þar sem það yrði talið ósanngjarnt gagnvart kæranda eða ættingjum hans að endursenda hann til annars ríkis. Eins og á háttar í þessu máli verður ekki séð að það sé ósanngjarnt gagnvart kæranda eða ættingjum hans að endursenda hann til Spánar. Þá verða veikindi kæranda og aðstæður hans og systur hans að öðru leyti ekki talin vera þess eðlis að þau sé hvort öðru háð.
Í greinargerð vísar kærandi til úrskurðar kærunefndar nr. 326/2019 frá 27. júní 2019 og þess að gæta þurfi að jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga. Í því máli hafði aðilinn rík tengsl við börn þeirra einstaklinga sem hún byggði tengsl sín við en aðilinn hafði gengið börnunum í móðurstað á mikilvægu þroskaskeiði þeirra og þar til henni tókst að flýja heimaríki og sameina börnin móður þeirra. Kærunefnd taldi engu að síður að ekki væri unnt að telja að aðilinn hefði sérstök tengsl við landið í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, heldur var niðurstaðan byggð á hinu svokallaða fullveldisákvæði Dyflinnarreglugerðarinnar, sbr. 1. mgr. 17. gr. hennar, og vísað til hagsmuna barnanna. Var í þeirri niðurstöðu jafnframt vísað til 6. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga en tilvísuð ákvæði fjalla um skyldur stjórnvalda til að hafa hagsmuni barna að leiðarljósi. Af ofangreindu máli má ráða að heildstætt mat á hagsmunum aðila fer fram en aðeins í undantekningartilvikum, þegar brýnir hagsmunir barna eiga í hlut, hefur kærunefnd vikið frá þeirri meginreglu að tengsl umsækjanda við aðila sem ekki hafa heimild til dvalar hér á landi geta ekki leitt til þess að taka eigi umsókn, sem annars yrði afgreidd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, til efnismeðferðar. Að mati kærunefndar er ekki hægt að jafna stöðu kæranda í þessu máli við stöðu aðila í framangreindum úrskurði.
Í greinargerð gerir kærandi margvíslegar athugasemdir við mat og túlkun Útlendingastofnunar á sérstökum tengslum hans við landið, m.a. um hversu rík og náin tengsl þurfi að vera og telur sjónarmið stofnunarinnar vera ný og ganga gegn fyrri framkvæmd. Kærandi vísar jafnframt til þess að það geti komið til skoðunar að meta hversu rík tengsl séu milli fjarskyldra ættingja en ekki þegar tengsl séu í beinan legg eða á milli systkina. Kærunefnd vísar til þess að í úrskurðarframkvæmd nefndarinnar hefur verið talið rétt að líta að einhverju leyti til 16. tölul. 3. gr. laga um útlendinga þar sem segir að til nánustu aðstandanda teljist maki, sambúðarmaki, börn viðkomandi yngri en 18 ára í forsjá hans og á framfæri og foreldrar 67 ára eða eldri. Ljóst er að systkini falla ekki þar undir. Þrátt fyrir að önnur fjölskyldutengsl geti fallið undir 2. mgr. 36. gr. laga um sérstök tengsl, hefur kærunefnd talið að gera þurfi ríkari kröfur til þess að sýnt sé fram á að þau tengsl séu sérstök og rík. Kærunefnd vísar jafnframt til þess, sem áður hefur komið fram að ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga um sérstök tengsl er matskennt ákvæði og lög um útlendinga veita ekki skýrar leiðbeiningar um hvernig hugtakið skuli túlkað í framkvæmd. Við túlkun ákvæðisins ber stjórnvöldum m.a. að gæta að rannsóknar- og jafnræðisreglu stjórnsýslulaga. Í úrskurðarframkvæmd kærunefndar hefur verið litið til ýmissa þátta við mat á sérstökum tengslum og eru þau sjónarmið ekki ný af nálinni. Kærunefnd hefur m.a. litið til umönnunarsjónarmiða, samskipta, stöðu og annarra atriða sem varpað geta ljósi á tengsl viðkomandi aðila. Að mati kærunefndar er mat Útlendingastofnunar á sérstökum tengslum kæranda við Ísland samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga í samræmi við lög og reglugerð um útlendinga, lögskýringargögn og stjórnsýslulög. Þá hefur kærandi hvorki lagt fram gögn né annað sem gefi til kynna að brotið hafi verið gegn jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga.
Af heildarmati á aðstæðum kæranda og fyrirliggjandi gögnum málsins er það því niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sérstök tengsl við landið í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að hann sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína 28. september 2022.
Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.
Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið að til að stuðla að einsleitinni framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar á meðal aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins sé rétt að líta til dóma Evrópudómstólsins í málum sem tengjast framkvæmd reglugerðarinnar.
Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm í máli Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tiltekni lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. m.a. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr. Í því sambandi hefur dómstóllinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 251. mgr., og dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012, 97. mgr.
Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallin að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.
Dómstóllinn hefur talið að 3. gr. mannréttindasáttmálans verði ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 249. mgr.
Í dómaframkvæmd Evrópudómstólsins er vísað til þess að framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar verði að vera í samræmi við sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi og er þar fyrst og fremst vísað til 4. gr. sáttmálans sem, í þeim atriðum sem máli skipta, er sambærileg 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins eru lög Evrópusambandsins byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki þess deila þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að gagnkvæmu trausti um að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra grundvallarréttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. t.d. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., og Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr. Dyflinnarreglugerðin er byggð á nefndri meginreglu um gagnkvæmt traust og miðar að því að hraða og straumlínulaga afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd til hagsbóta fyrir umsækjendur og aðildarríki samstarfsins. Því verði að gera ráð fyrir því að meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd í aðildarríkjum Dyflinnarsamstarfsins samrýmist þeim kröfum sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, flóttamannasáttmálinn og Mannréttindasáttmáli Evrópu gera, sbr. dóm Evrópudómstólsins í N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/1021, frá 21. desember 2011, 78.-80. mgr. Það er hins vegar ekki útilokað að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika við framkvæmd reglugerðarinnar sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. áðurnefndan dóm í máli N. S. o.fl., 81. mgr. Af þeim sökum verður ekki byggt á því skilyrðislaust að aðildarríki Evrópusambandsins tryggi grundvallarmannréttindi, svo sem samkvæmt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr., og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Evrópudómstóllinn hefur talið, m.a. í Jawo, 85. mgr., að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að hann sæti ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, verði hann fluttur til viðtökuríkis. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmálans um grundvallarréttindi. Þessu alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda aðildarríkis Dyflinnarsamstarfsins hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.
Hátt stig óöryggis eða veruleg hnignun lífsskilyrða viðkomandi umsækjanda myndi þar af leiðandi ekki ná þessu alvarleikastigi nema ofangreindar aðstæður efnislegrar sárafátæktar séu fyrir hendi. Sama á við þó að umsækjanda skorti það félagslega stuðningsnet, eins og t.d. fjölskyldutengsl, sem vegur á móti afleiðingum ófullnægjandi félagslegs kerfis aðildarríkis, sbr. Jawo, 93. og 94. mgr. Enn fremur, það eitt að lífsskilyrði séu ákjósanlegri í endursendingarríki en í viðtökuríki getur heldur ekki leitt til þess að um brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sé að ræða, sbr. til hliðsjónar Jawo, 97. mgr.
Eins og ráða má af ofangreindu þurfa annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans að ná mjög háu alvarleikastigi til að endursending teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og tekur beiting 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga mið af því.
Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.
Að mati kærunefndar bera gögn málsins jafnframt með sér að í viðtökuríki sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða það endursent til ríkja þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem lífi þeirra og frelsi er ógnað. Í því sambandi hefur kærunefnd einkum litið til þess að gögnin benda til þess að meðferð stjórnvalda viðtökuríkis á umsóknum um alþjóðlega vernd sé með þeim hætti að lagt sé einstaklingsbundið mat á aðstæður einstaklinga. Telur kærunefnd að gögn málsins gefi ekki til kynna að endursending kæranda til viðtökuríkis sé í andstöðu við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. ákvæðisins.
Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði á Spáni, bæði að landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.
Áður hefur verið fjallað um málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd á Spáni, þ.m.t. möguleika umsækjenda til að fá ákvarðanir um synjun verndar endurskoðaðar af spænskum yfirvöldum. Spænsk yfirvöld eru bundin af sambærilegum reglum og Ísland um vernd gegn brottvísun umsækjenda um alþjóðlega vernd til ríkis þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra eða frelsi ógnað (non-refoulement). Að mati kærunefndar veitir málsmeðferð spænskra yfirvalda nægilega tryggingu fyrir því að einstaklingsbundið mat sé lagt á aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í því skyni að tryggja að enginn umsækjandi sé sendur þangað sem líf hans eða frelsi er í hættu. Kærunefnd telur gögn málsins bera með sér að á Spáni sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða endursent til ríkja þar sem það eigi á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem líf þess eða frelsi sé ógnað. Samkvæmt framsögðu benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði á Spáni, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Sambærileg aðferðarfræði er varðar mat á því hvort viðtökuríki tryggi raunhæfa vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða endursent til ríkja þar sem það eigi á hættu að verða fyrir ofsóknum eða lífi þess og frelsi er ógnað kemur fram í dómi Hæstaréttar í máli nr. 405/2013, dags. 24. október 2013.
Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd á Spáni og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærandi eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd og flutningur hans til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.
Samkvæmt framansögðu verður mál kæranda ekki tekið til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar
Svo sem fram hefur komið gerir kærandi í greinargerð sinni athugasemdir við hina kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar, þ. á m. við mat stofnunarinnar á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd á Spáni og málsmeðferð og rannsókn stofnunarinnar.
Vegna umfjöllunar kæranda um mat Útlendingastofnunar á sérstaklega viðkvæmri stöðu hans, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, sbr. 25. gr. sömu laga, vill kærunefnd árétta að ákvörðun um hvort umsækjandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga lýtur að því hvort þörf sé á sérstökum stuðningi við umsækjanda í gegnum umsóknarferlið og á meðan á dvöl hans stendur hér á landi. Í 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur m.a. fram að við meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd skuli Útlendingastofnun tryggja, eins fljótt og kostur er, að fram fari, með aðstoð viðeigandi sérfræðinga, einstaklingsbundin greining á því hvort umsækjandi teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Sé hann í slíkri stöðu skal stofnunin meta hvort hann hafi einhverjar sérþarfir, t.d. þörf á tiltekinni heilbrigðisþjónustu. Þá er tekið fram í 2. mgr. sama ákvæðis að ákvæði IV., V. og VII. kafla stjórnsýslulaga um andmælarétt, um birtingu ákvörðunar, rökstuðning o.fl. og um stjórnsýslukæru og viðeigandi ákvæði I. og IX. kafla laga um útlendinga gilda ekki um ákvörðun um sérstaklega viðkvæma stöðu samkvæmt 1. mgr. Skilgreining á stöðu samkvæmt 1. mgr. hefur ekki önnur réttaráhrif en þau sem sérstaklega er getið í lögum eða reglugerð. Kærunefnd telur því ljóst að mat samkvæmt 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem fram fer hjá Útlendingastofnun, sé ekki kæranlegt til kærunefndar og hafi ekki önnur réttaráhrif en sérstaklega er getið um í lögum eða reglugerð. Kærunefnd leggur þannig áherslu á að ákvörðun um hvort umsækjandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu er annað en mat á einstaklingsbundnum aðstæðum umsækjanda þó svo að þessi hugtök skarist nokkuð. Að því er varðar mat Útlendingastofnunar á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda tekur kærunefnd fram að kæranda var leiðbeint um framlagningu heilsufarsgagna við málsmeðferð hjá Útlendingastofnun, en í viðtali var honum leiðbeint um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem hann teldi hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Við meðferð málsins hjá kærunefnd hefur kæranda auk þess verið leiðbeint um framlagningu frekari heilsufarsgagna. Við meðferð málsins hefur kærandi lagt fram greinargerð sálfræðings á andlegri heilsu hans. Líkt og fram hefur komið benda heimildir til þess að kærandi eigi rétt á heilbrigðisþjónustu á vegum hins opinbera til jafns við spænska ríkisborgara. Þá benda heimildir til þess að einstaklingar geti fengið aðgang að sérhæfðri heilbrigðisþjónustu, t.d. þolendur líkamlegs eða andlegs ofbeldis. Þegar litið er til þeirra viðmiða sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga setur fram er ljóst að þau gögn sem liggja fyrir í málinu benda ekki til þess að frekari gagnaöflun geti haft áhrif á niðurstöðu málsins. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að gera athugasemdir við mat Útlendingastofnunar á þeim einstaklingsbundnu aðstæðum kæranda sem horfa beri til við mat á því hvort rétt sé að taka umsókn hans til efnismeðferðar hér á landi.
Hvað varðar athugasemdir kæranda varðandi umfjöllun Útlendingastofnunar um aðstæður í viðtökuríki tekur kærunefnd fram að lagt hefur verið sjálfstætt mat á aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd þar í landi og vísar í því sambandi til framangreindra skýrslna og umfjöllunar nefndarinnar þar um. Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana.
Frávísun
Kærandi kom hingað til lands 28. september 2022 og sótti um alþjóðlega vernd þann sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.
Kærandi skal fluttur til Spánar innan tilskilins frests nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.
Samantekt
Í máli þessu hafa spænsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda hann til Spánar með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Þorsteinn Gunnarsson
Bjarnveig Eiríksdóttir Sandra Hlíf Ocares