Hoppa yfir valmynd

Nr. 6/2019 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 15. janúar 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 6/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU18120010

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 4. desember 2018 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari […] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 13. nóvember 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Þess er krafist að hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar, í fyrsta lagi á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sbr. 1. mgr. 42. gr. laganna og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, og í öðru lagi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 15. ágúst 2018. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann 17. ágúst 2018, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi og að hann nyti þar alþjóðlegrar verndar. Í kjölfarið var grískum stjórnvöldum send beiðni um upplýsingar um stöðu kæranda þar í landi. Í svari grískra yfirvalda, dags. 28. september 2018, kemur fram að kæranda hefði verið veitt réttarstaða flóttamanna 22. janúar 2018 og að hann væri með gilt dvalarleyfi í Grikklandi til 21. janúar 2021. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 19. september 2018, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 13. nóvember 2018 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 20. nóvember 2018 og kærði kærandi ákvörðunina þann 4. desember 2018 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 14. desember 2018 ásamt fylgigögnum.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnun kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar aðstæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Grikklands.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda vísar hann til endurrita af viðtölum hans hjá Útlendingastofnun þar sem fram kemur að hann eigi erfitt með svefn og fái gjarnan höfuðverki og svima. Þá kemur fram að hann sé þunglyndur og sýni [...]. Kærandi kveður að hann hafi orðið fyrir pyndingum í heimaríki og fái martraðir vegna þeirra atburða sem hann hafi upplifað þar. Þá kveður kærandi að veikindi hans hafi haft mikil áhrif á sig. Hann geti ekki haft samband við neinn, hann hafi einangrað sig og sé mjög gleyminn. […]. Í greinargerð kemur fram lýsing kæranda á aðstæðum hans í flóttamannabúðum í viðtökuríki. Þar hafi hann orðið fyrir ofbeldi, áreiti, fengið óætt fæði og ódrykkjarhæft vatn. Kærandi kveður að hann hafi ekki haft aðgengi að húsnæði, aðeins fengið takmarkaða fjárhagsaðstoð, ekki fengið atvinnu og þá hafi engin raunveruleg heilbrigðisþjónusta staðið honum til boða. Í viðtökuríki hafi hann þurft að sofa á götunni, í kirkjum, í almenningsgörðum og á lestarstöðvum. Kæranda hafi hvorki staðið til boða aðstoð né upplýsingar til að hefja nýtt líf, hann hafi ekki fengið kennslu í grísku og þá hafi fordómar verið mikið vandamál.

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi leitað til læknis í Grikklandi og að fyrir liggi mat hans á andlegri heilsu kæranda. Í því mati kemur fram að hann sýni m.a. þunglyndisviðbrögð við mikilli streitu og að hann hafi fengið geðlyf vegna þess. Þá bendir kærandi á að hann hafi farið í heilsufarsskoðun á Göngudeild sóttvarna og í samskiptaseðli frá 10. desember 2018 komi fram upptalning þeirra lyfja sem honum hafi verið ávísað. Kærandi gerir athugasemd við mat Útlendingastofnunar á sérstaklega viðkvæmri stöðu hans, einkum við þá yfirlýsingu stofnunarinnar að fyrirliggjandi gögn bendi ekki til þess að kærandi glími við veikindi af alvarlegum toga. Kærandi bendir á skyldu stjórnvalda skv. 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga til þess að tryggja að fram fari, með aðstoð viðeigandi sérfræðinga, einstaklingsbundin greining á því hvort kærandi teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Þá hafi löggjafinn mælt fyrir um aðkomu sálfræðinga eða geðlækna sé uppi grunur um andleg veikindi. Þá verði mat sérfræðinganna að vera nógu vandað til þess að ólærðir geti greint ástand og getu umsækjenda út frá þeim. Á grundvelli rannsóknarreglu stjórnsýsluréttarins sé stjórnvöldum skylt að leiða hið sanna og rétta í ljós. Kærandi fari fram á að framkvæmt verði formlegt mat sálfræðings svo að ástand hans og geta liggi fyrir og hann metinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Í greinargerð kæranda gerir hann almenna grein fyrir aðstæðum, aðbúnaði og réttarstöðu þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi og vísar í því sambandi til fjölda skýrslna alþjóðlegra stofnana og frjálsra félagasamtaka. Þar komi m.a. fram að vegna landfræðilegrar legu hafi Grikkland þurft að bera þungann af straumi flóttafólks frá Afríku og Mið-Austurlöndum síðastliðin ár, þrátt fyrir að vera það Evrópuríki sem hafi ef til vill verið einna síst í stakk búið til að taka á móti slíkum fjölda fólks vegna efnahags- og stjórnmálakreppu sem hafi haft mikil áhrif á landið. Í greinargerð sinni vísar kærandi til skýrslu mannréttindafulltrúa Evrópuráðsins frá 6. nóvember 2018. Þar komi fram að aðbúnaður umsækjenda um alþjóðlega vernd í flóttamannabúðum sé mjög slæmur. Plássleysi sé mikið og skortur á nauðsynlegri heilbrigðis- og félagslegri þjónustu. Þá sé aðgengi að atvinnu í Grikklandi takmarkað og mikið um fordóma í garð flóttamanna. Kærandi bendir á að íslensk stjórnvöld hafi ekki sent umsækjendur um alþjóðlega vernd til Grikklands síðan í október 2010 og að heimildir beri með sér að staða einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi séu síður en svo betri en staða umsækjenda. Þá kveður kærandi að einstaklingar með alþjóðlega vernd, sem sendir séu aftur til Grikklands, eigi á hættu að dveljast á götunni án þjónustu, matar og drykkja.

Kröfu sína um efnismeðferð byggir kærandi í fyrsta lagi á því að ótækt sé að beita heimild a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem hann njóti verndar 1. mgr. 42. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr. laganna. Kærandi bendi á að íslenska ríkið sé bundið af grundvallarreglunni um non-refoulement þar sem lagt sé bann við því að senda einstakling þangað sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu. Með setningu 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga hafi verið áréttaður sá vilji löggjafans að við möguleg brot gegn grundvallarreglunni skuli taka umsóknir um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar. Kærandi telji að túlkun íslenskra stjórnvalda á dómum Mannréttindadómstóls Evrópu sé röng og að með núverandi framkvæmd firri þau sig ábyrgð skv. framangreindri grundvallarreglu langt umfram efni. Kærandi gerir athugasemdir við trúverðugleikamat Útlendingastofnunar í máli hans og kveður að nauðsynlegt sé að stjórnvöld meti fyrirsjáanlegar og raunverulegar aðstæður kæranda við mögulega endursendingu en fjalli ekki um mál hans með almennum hætti. Þá bendi kærandi á nánar tilgreinda dóma mannréttindadómstólsins, þ.m.t. Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (mál nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, máli sínu til stuðnings og telji að við endursendingu hans til Grikklands muni íslensk stjórnvöld gerast brotleg við grundvallarregluna um non-refoulement. Telji kærandi því að íslenskum stjórnvöldum sé skylt að taka mál hans til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kröfu sína um efnismeðferð byggir kærandi í öðru lagi á því að uppi séu sérstakar ástæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og vísar í því sambandi til lagaáskilnaðarreglu 2. málsl. 2. mgr. 66. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 sem setji stjórnvöldum afar þröngar skorður við setningu stjórnvaldsfyrirmæla vegna meðferðar umsókna um alþjóðlega vernd. Kærandi telji einnig að reglugerð nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, brjóti gegn lögmætisreglunni. Þar séu að finna skilyrði vegna sérstakra ástæðna sem ekki hafi stoð í settum lögum og önnur sem beinlínis gangi gegn ákvæðum laga um útlendinga. Þá vísar kærandi til lögskýringargagna máli sínu til stuðnings og kveður að stjórnvöld hér á landi hafi við túlkun sína á hugtakinu sérstakar ástæður horft í of ríkum mæli til mannréttindasáttmála Evrópu og notað dómafordæmi alþjóðadómstóla til að skerða réttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd. Í ljósi markmiðs laga um útlendinga, sbr. 4. mgr. 2. gr. laganna, um að tryggja beri mannúðlega meðferð stjórnvalda í málefnum útlendinga hér á landi, hafni kærandi því að við mat á sérstökum ástæðum hafi sjónarmið um skilvirkni umsóknarferilsins og mikilvægi samvinnu aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins nokkurt vægi. Þá bendi kærandi á að hvergi í lögskýringargögnum sé að finna kröfur um hátt alvarleikastig erfiðleika, alvarlega mismunun, verulegar og óafturkræfar neikvæðar afleiðingar á andlega eða líkamlega heilsu eða að meðferð sjúkdóms sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Þessar kröfur hafi enga stoð í lögum og gangi gegn lögmætisreglunni. Kærandi telur að hann sé í viðkvæmri stöðu vegna heilsufars og muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki þannig að skylt sé að taka umsókn hans til efnislegrar meðferðar hér á landi.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi þann 22. janúar 2018 og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 21. janúar 2021. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi […] einhleypur og barnlaus karlmaður. Í gögnum um heilsufar kæranda kemur m.a. fram að hann sofi stutt og illa, fái martraðir og vakni um miðjar nætur ringlaður og með höfuðverk. Þá kveðst kærandi glíma við þunglyndi og kemur fram í gögnum málsins að honum hafi verið ávísað lyfjum vegna þess. Í gögnum málsins er að finna niðurstöðu skimunarprófs fyrir áfallastreituröskun en þar kemur fram að kærandi hafi skorað hátt sem bendi til þess að hann glími við andleg bágindi. Þá hefur kærandi einnig lagt fram læknisvottorð og lyfseðla frá viðtökuríki sem gefa enn fremur til kynna að hann glími við andlega erfiðleika.

Þrátt fyrir að framangreind heilsufarsgögn beri með sér að kærandi glími við andlega erfiðleika er það mat kærunefndar að gögn málsins, þ. á m. framlagðar komunótur, beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé svo alvarlegt að hann teljist í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Asylum Information Database, National Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, mars 2018);
  • 2017 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 20. apríl 2018);
  • Freedom in the World 2018 – Greece (Freedom House, 1. ágúst 2018);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • World Report 2018 – European Union (Human Rights Watch, 18. janúar 2018);
  • UNHCR observations on the current asylum system in Greece (UNHCR, desember 2014);
  • ECRI Report on Greece (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 24. febrúar 2015);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017) og
  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016).

Af framangreindum gögnum má sjá að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur m.a. bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hafa hlotið alþjóðlega vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst nú jafnframt sjálfkrafa aðgangur að vinnumarkaði. Jafnframt eru til staðar frjáls félagasamtök sem aðstoða þá sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi við að kynna sér réttindi sín.

Þá eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu í Grikklandi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Á þetta jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í ríkinu.

Sem fyrr segir eiga einstaklingar með alþjóðlega vernd sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar en aðgengi þeirra að húsnæði er háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með löglega dvöl í Grikklandi. Fá gistiskýli eru í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt getur reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem hafa verið sendir til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum.

Í framangreindum gögnum kemur fram að grísk yfirvöld veiti einstaklingum með alþjóðlega vernd sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna. Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði og má sem dæmi nefna að þeir þurfa að hafa kennitölu, skattnúmer, gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Þá kemur fram í fyrrnefndum gögnum að engin sérúrræði eru til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 20. apríl 2018 kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að aðbúnaður í fangelsum og varðhaldsstöðvum sé víða ekki fullnægjandi. Klefar séu yfirfullir, óþrifnaður sé mikill og aðgengi að heilbrigðisþjónustu takmarkað. Þá kemur fram að stjórnarskrá Grikklands og lög landsins leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Þá segir að ofbeldisbrot í Grikklandi séu rannsökuð af lögreglu landsins og í þeim tilvikum þegar grunur leikur á því að lögreglan í Grikklandi eigi hlut að máli komi það í hlutverk embættis umboðsmanns í Grikklandi að rannsaka hvort brot af hendi lögreglu hafi átt sér stað. Í Grikklandi fara sjálfstæðir dómstólar með það hlutverk að dæma í málum þar sem ákært hefur verið fyrir ofbeldisbrot. Þrátt fyrir að framangreind skýrsla bendi til þess að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins þá kemur jafnframt fram að lög landsins og stjórnarskrá tryggi sjálfstæði dómstóla í framkvæmd og að réttur þeirra sem brotið hefur verið gegn og þeirra sem ákærðir eru sé tryggður.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstólinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við frávísun eða brottvísun frá aðildarríki nái ekki alvarleikastigi 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem stendur til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæltu gegn endursendingu. Kærunefnd tekur ekki undir þá málsástæðu kæranda að sérstakar sannfærandi mannúðarástæður mæli gegn endursendingu hans til Grikklands.

Með vísan til framangreinds tekur kærunefnd ekki undir þá málsástæðu kæranda að aðstæður hans í Grikklandi, að því leyti sem þær snúa að aðgangshindrunum að atvinnu- og húsnæðismarkaði, heilbrigðisþjónustu og félagslegri aðstoð, séu þess eðlis að flutningur hans til Grikklands myndi fela í sér brot á grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í Grikklandi telur kærunefnd að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kæranda. Hefur kærandi m.a. borið fyrir sig að sérstakar ástæður eigi við í máli hans þar sem hann verði fyrir mismunun í Grikklandi og staða hans þar sé verulega síðri en almennings. Þá sé hann í viðkvæmri stöðu og skortur sé á viðhlítandi heilbrigðisþjónustu, og annarri félagslegri þjónustu, honum til handa í Grikklandi.

Þrátt fyrir ýmsar aðgangshindranir hefur kærandi heimild til að stunda atvinnu í Grikklandi og á rétt á félagslegri aðstoð til jafns við gríska ríkisborgara. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að kærandi geti leitað ásjár grískra yfirvalda, verði hann fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærandi um öryggi sitt geti hann leitað til lögreglu. Að mati kærunefndar bera gögn málsins því ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Af framburði kæranda og framlögðum gögnum frá Grikklandi, svo og gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður þar, verður ráðið að kærandi eigi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegum lyfjum. Í ljósi fyrirliggjandi upplýsinga telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti fengið viðhlítandi aðstoð í Grikklandi vegna heilsufarsvandamála sinna. Því telur kærunefnd gögn málsins ekki benda til þess að kærandi glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð er aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 19. september 2018 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 15. ágúst 2018.

Gildistaka breytinga á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017

Með reglugerð nr. 276/2018, sem tók gildi 14. mars 2018, voru gerðar breytingar á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Af greinargerð kæranda verður ráðið að hann telji ákvæði reglugerðar nr. 540/2017, sbr. reglugerð nr. 276/2018, ekki eiga sér viðhlítandi stoð í lögum og ganga gegn lögmætisreglunni.

Tilvitnuð ákvæði reglugerðar nr. 276/2018 eru sett með stoð í 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem segir að ráðherra hafi heimild til að setja reglugerð um framkvæmd 36. gr. laganna. Löggjafinn hefur því framselt ráðherra vald til að útfæra framangreind ákvæði nánar og ljóst að reglugerðina skortir ekki lagastoð. Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg eins og að framan hefur verið lýst. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um þessar athugasemdir kæranda.

Frávísun

Kærandi kveðst hafa komið hingað til lands þann 14. ágúst 2018 og sótti um alþjóðlega vernd þann 15. ágúst 2018. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Anna Tryggvadóttir

 

Árni Helgason                                                                          Erna Kristín Blöndal


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta