Mál nr. 34/2013, úrskurður 6. júní 2013
Mál nr. 34/2013 Eiginnafn: Obba
Hinn 6. júní 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 34/2013 en erindið barst nefndinni sama dag:
Eiginnafnið Obba (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Obbu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Obba (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.