Mál nr. 36/2013, úrskurður 6. júní 2013
Mál nr. 36/2013 Eiginnafn: Addú
Hinn 6. júní 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 36/2013 en erindið barst nefndinni sama dag.
Eiginnafnið Addú (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Addúar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Addú (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.