Mál nr. 25/2017 Úrskurður 18. apríl 2017
Mál nr. 25/2017 Millinafn: Kaldbak
Hinn 18. apríl 2017 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 25/2017 en erindið barst nefndinni sama dag:
Millinafnið Kaldbak er dregið af íslenskum orðstofni, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn kvenna né sem eiginnafn karla. Nafnið er ekki heldur ættarnafn í skilningi 7. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Millinafnið Kaldbak uppfyllir þannig ákvæði 6. gr. fyrrnefndra laga.
Úrskurðarorð:
Beiðni um millinafnið Kaldbak er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.