Hoppa yfir valmynd

Nr. 576/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 12. október 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 576/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23060011

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 1. júní 2023 barst kærunefnd útlendingamála sjálfkrafa kæra, samkvæmt 3. málsl. 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, á ákvörðun Útlendingastofnunar um að taka ekki til efnismeðferðar hér á landi umsókn [...], fd. [...], ríkisborgari Nígeríu (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd og vísa henni frá landinu.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi.

II.        Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 15. mars 2023. Þar sem kærandi framvísaði dvalarleyfisskírteini frá ítölskum yfirvöldum var, dags. 29. mars 2023, beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hennar um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda á Ítalíu, sbr. 1. eða 3. mgr. 12. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir Dyflinnarreglugerðin). Þá var send upplýsingabeiðni til ítalskra stjórnvalda á grundvelli 34. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar 3. maí 2023. Í svari frá ítölskum yfirvöldum, dags. 19. maí 2023, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli 1. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Þá kom fram í svari frá ítölskum yfirvöldum, dags. 29. maí 2023, að kærandi hafi fengið dvalarleyfi á Ítalíu á grundvelli fjölskyldusameiningar með gildistíma til 7. maí 2024. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 3. apríl 2023, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 31. maí 2023 að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að henni skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda sama dag og barst greinargerð kæranda 12. júní 2023 ásamt fylgigögnum. Þá bárust upplýsingar frá kæranda 20. september 2023 og frekari gögn 22. september 2023.

III.      Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að ítölsk stjórnvöld beri ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Ítalíu ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hún fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hún flutt til Ítalíu.

IV.      Málsástæður og rök kæranda

Kærandi vísar til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar og viðtals síns hjá stofnuninni hvað málsatvik varðar. Kærandi hafi komið til Ítalíu á grundvelli fjölskyldusameiningar 7. maí 2022 þar sem eiginmaður hennar sé með alþjóðlega vernd þar í landi. Hann sé enn staddur á Ítalíu en vilji sameinast kæranda og ófæddu barni þeirra hér á landi. Kærandi hafi ekki önnur tengsl við Ítalíu. Kærandi sé hraust líkamlega en hún sé þunguð af sínu fyrsta barni og hafi glímt við nýrnasýkingu sem hafi ágerst á meðgöngunni og hún sé verkjuð. Þá sé kærandi með meðfæddan hjartagalla sem hafi komið upp að nýju eftir að hún varð ófrísk. Kærandi hafi verið lögð inn á sjúkrahús hér á landi vegna þess. Hjartagallinn lýsi sér þannig að hún sé með stækkað hjarta og hjartsláttatruflanir auk fleiri einkenna og hafi farið í rannsóknir hér á landi. Kærandi hafi ekki fengið nauðsynlega læknisaðstoð eða mæðravernd á Ítalíu og kynþáttafordómar viðgangist þar í landi. Kærandi hafi farið frá Ítalíu þar sem hún og eiginmaður hennar hafi ekki fengið aðstoð frá ítölskum yfirvöldum, s.s. húsnæði og fjárhagsaðstoð. Þegar þau hafi reynt að sækja um hafi þeim verið vísað frá og sagt að þau gætu ekki fengið atvinnu eða húsnæði vegna húðlitar þeirra. Kærandi sjái ekki mannsæmandi framtíð fyrir ófætt barn sitt á Ítalíu og hafi komið til Íslands í leit að betra og öruggara lífi fyrir sig og barnið sitt.

Kærandi fjallar um aðstæður og réttindi flóttafólks á Ítalíu með vísan til alþjóðlegra skýrslna. Fjöldi flóttamanna hafi komið til Ítalíu síðustu ár sem hafi haft í för með sér álag á flóttamannakerfið og aðstæður og aðbúnaður umsækjenda hafi sætt gagnrýni í kjölfar þess. Þá séu möguleikar umsækjenda um alþjóðlega vernd til þátttöku og aðlögunar í samfélaginu takmarkaðir, sérstaklega fyrir einstaklinga með sérþarfir. Auk þess sé aðgangur að heilbrigðis- og félagsþjónustu takmarkaður, þ. á m. sálfræðiþjónustu og margir búi við bágar aðstæður og eigi á hættu að verða þolendur mansals. Þá hafi ítölsk stjórnvöld hneppt umsækjendur í varðhald í þeim tilgangi að hefta för þeirra og stýra för flóttamanna inn í landið.

Kærandi byggir á því að hún sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, vegna einstaklingsbundinna aðstæðna sinna. Kærandi sé þunguð af sínu fyrsta barni og glími við líkamleg og andleg vandamál. Þá sé hún í áhættumeðgöngu, einkum vegna hjartagalla sem hún þjáist af. Kærandi vísar til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga um að taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef sérstakar ástæður mæli með því. Með því sé átt við einstakling sem sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu, s.s. vegna heilsufars, sbr. athugasemdir í greinargerð með frumvarpi því sem varð að lögum um útlendinga. Þá vísar kærandi til 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum. Kærandi sé ekki vel á sig komin líkamlega sökum verkja og einkenna vegna hjartagalla sem hún hafi þjáðst af frá fæðingu. Kærandi hafi ekki fengið úthlutað húsnæði eða fengið fjárhagsaðstoð á Ítalíu auk þess sem hún hafi ekki haft aðgang að ýmiss konar grunnþjónustu, þrátt fyrir að eiga rétt á því samkvæmt lögum, s.s. mæðravernd. Því verði ekki annað séð en að kærandi hafi átt erfitt uppdráttar á Ítalíu, staða hennar hafi verið síðri en staða almennings í landinu og leiða megi líkur að því, með hliðsjón af frásögn hennar og landaupplýsingum, að það hafi stafað af stöðu hennar sem flóttamaður. Auk þess gæti kærandi þurft á sálfræðiaðstoð að halda sökum andlegra veikinda sinna en ekki sé tryggt að hún hafi aðgengi að þeirri þjónustu á Ítalíu.

Kærandi krefst þess að umsókn hennar verði tekin til efnismeðferðar á grundvelli meginreglunnar um bann við endursendingu (non-refoulement), sbr. 42. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til 1. mgr. 33. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna og 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 36. gr. laganna. Kærandi vísar til þess að aðstæður flóttamanna á Ítalíu séu slæmar, þar viðgangist fordómar og mismunun, t.a.m. á vinnumarkaði. Auk þess sé skortur á húsnæði og margir búi á götunni við slæmar aðstæður. Við slíkar aðstæður sé velferð kæranda og barns hennar stofnað í hættu. Þá sé kærandi ósammála mati Útlendingastofnunar í hinni kærðu ákvörðun um að aðstæður í málefnum flóttamanna á Ítalíu feli ekki í sér ómannúðlegar aðstæður sem brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Máli sínu til stuðnings vísar kærandi til niðurstöðu í dómi frá Hollandi þess efnis að ekki hafi verið heimilt að senda tvo flóttamenn til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Kærandi telji ljóst að aðstæður sem ríki í málefnum flóttamanna á Ítalíu nái því lágmarks alvarleikastigi að falla undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá vísar kærandi til þess að taka beri tillit til ófædds barns hennar sem sé eðli máls samkvæmt sérstaklega viðkvæmt og aðstæður á Ítalíu óboðlegar nýfæddu barni.

Þá vísar kærandi til 1. mgr. 3. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar um að hverju aðildarríki sé heimilt að taka til meðferðar umsókn um alþjóðlega vernd þrátt fyrir að það beri ekki ábyrgð á slíkri umsókn samkvæmt þeim viðmiðum sem komi fram í III. kafla reglugerðarinnar, sbr. 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar. Því sé ekki um að ræða skyldu til að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd heldur hafi íslenska ríkið þvert á móti heimild til þess að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar. Kærandi vísar til þess að þrátt fyrir að samkvæmt lögum séu mannréttindi flóttamanna tryggð á Ítalíu virðist svo ekki vera í framkvæmd. Ekki sé nóg að umsækjendur um alþjóðlega vernd eigi rétt á grunnþjónustu samkvæmt ítölskum lögum heldur þurfi einnig að líta til þess hvort umsækjendur fái í raun þá nauðsynlegu aðstoð sem lög kveði á um. Kærandi vísar til frásagnar sinnar, sem fái stoð í landaupplýsingum, þess efnis að svo virðist sem kærandi hafi ekki fengið þá aðstoð sem hún hafi átt rétt á samkvæmt lögum og hafi verið í þörf fyrir. Vitað sé að aðstæður sem flóttamenn búi almennt við á Ítalíu séu oft slæmar og takmarkaður aðgangur sé að ýmiss konar grunnþjónustu, s.s. læknis- og sálfræðiþjónustu.

Kærandi vísar til þess að þar sem hún sé þunguð og eigi von á barni fljótlega beri að líta til sjónarmiða um hagsmuni barna. Kærandi vísar til 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga, um að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og að tekið sé tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Þá vísar kærandi til 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga um að ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess, félagslegum þroska og möguleika þess að sameinast fjölskyldu sinni. Framangreinda meginreglu megi einnig finna í 1. mgr. 4. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 og 1. og 2. mgr. 3. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013. Auk þess vísar kærandi til 22. gr. samningsins. Þar sem kærandi sé stödd hér á landi þunguð af barni sem von sé á, beri íslenskum stjórnvöldum að hafa framangreind ákvæði að leiðarljósi. Kærandi hafi búið við bágar aðstæður á Ítalíu, húsnæðislaus án aðstoðar frá ítölskum yfirvöldum og hafi m.a. ekki haft aðgang að mæðravernd. Verði kærandi endursend geti komið til þess að hún muni búa með nýfætt barn sitt við slæmar aðstæður, jafnvel á götunni. Það sé óásættanlegt og andstætt alþjóðlegum mannréttindareglum, einkum er lúti að vernd og réttindum barna, að senda kæranda aftur til Ítalíu í þá óvissu og öryggisleysi sem bíði hennar og ófæddu barni hennar þar í landi. Ljóst sé að það sé ófæddu barni hennar ekki fyrir bestu að hafa ekki aðgengi að húsnæði, framfærslu eða annars konar félagsþjónustu.

Þá vísar kærandi til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga, um að við meðferð máls beri Útlendingastofnun að afla allra nauðsynlegra og aðgengilegra upplýsinga og rannsaka mál til þess að mál teljist nægjanlega upplýst áður en ákvörðun sé tekin. Kærandi vísar til handbókar um réttarstöðu flóttamanna þar sem fram komi í greinum 203-205 að umsækjandi eigi að njóta vafans. Það sé oft ómögulegt fyrir umsækjanda að sanna öll atriði í máli sínu. Kærandi hafi bent á hvernig mannréttindi flóttamanna á Ítalíu séu fótum troðin og þá fordóma sem ríki gagnvart flóttamönnum þar í landi. Kærandi sé best til þess fallin að skýra frá því hvers vegna hún vilji ekki snúa aftur og sömuleiðis verði af vitnisburði hennar best séð hvort hún sé að segja sannleikann eður ei. Frásögn kæranda og landaupplýsingar fái einnig stoð í því sem komi fram í niðurstöðu dómstóls í Hollandi um að aðstæður í málefnum flóttamanna á Ítalíu séu það slæmar að þær teljist vera brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Útlendingastofnun hafi borið að rannsaka betur aðstæður á Ítalíu og einstaklingsbundnar aðstæður kæranda þar í landi.

Í viðbótarupplýsingum sem bárust kærunefnd 20. september 2023 kemur fram að kærandi hafi eignast barn hér á landi og að það væri við ágætis heilsu.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Aðstæður kæranda

Kærandi er kona á [...] sem er stödd hér á landi ásamt barni sínu sem fæddist á fæðingardeild Landspítalans [...]. Við meðferð málsins hefur kærandi greint frá því að eiginmaður hennar sé staddur í viðtökuríki og hafi hlotið alþjóðlega vernd þar í landi. Kærandi hafi komið til Ítalíu 7. maí 2022 á grundvelli fjölskyldusameiningar og dvalið þar í landi þar til hún hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi 15. mars 2023. Kæranda hafi ekki verið útvegað húsnæði eða fengið fjárhagsaðstoð á Ítalíu. Kærandi og eiginmaður hennar hafi búið hjá vini eiginmanns kæranda og borgað honum leigu. Þá hafi kærandi ekki fengið heilbrigðiskort á Ítalíu þar sem hún hafi ekki verið með húsnæði og því hafi hún ekki fengið mæðraskoðun. Kærandi hafi verið með atvinnuleyfi en hafi ekki fundið vinnu. Eiginmaður kæranda hafi verið með atvinnu og þau hafi framfært sér á tekjum hans en nú hafi hann misst vinnuna. Kærandi hafi mátt þola fordóma vegna húðlitar síns á Ítalíu og hafi m.a. ekki fengið atvinnu af þeim sökum. Kærandi greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hún hafi dvalið í þrjár vikur á spítala á Ítalíu vegna sýkingar í nýra. Samkvæmt framlögðum heilsufarsgögnum hefur kærandi verið að glíma við vöðvaæxli í legi og hjartavandamál.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema:

c. heimilt sé að krefja annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda.

Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Kærandi vísar til þess að ákvæði 3. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar kveði á um heimild en ekki skyldu íslenskra stjórnvalda til að synja því að taka umsókn til meðferðar og vísar jafnframt til 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Framangreint ákvæði er undanþáguákvæði frá meginreglu reglugerðarinnar um að ákvarða skuli hvaða ríki beri ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd á grundvelli þeirra viðmiða sem fram komi í reglugerðinni. Kærunefnd hefur í eftirfarandi umfjöllun lagt mat á einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og aðstæður í viðtökuríki um hvort taka beri umsókn kæranda til efnismeðferðar. Kærunefnd áréttar að samkvæmt orðalagi 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skal umsókn um alþjóðlega vernd skv. 37. gr. laganna tekin til efnismeðferðar nema aðstæður í a – d-lið ákvæðisins eigi við um umsóknina. Af því orðalagi er ljóst að stjórnvöldum beri skylda til að beita ákvæðum a – d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi þau við. Þá eru íslensk stjórnvöld jafnframt bundin af jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga við mat á því hvort umsókn skuli tekin til efnismeðferðar.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Ítalíu á umsókn kæranda er byggð á 1. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, þar sem kærandi er handhafi gilds dvalarleyfisskjals þar í landi. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja ítölsk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærunefnd telur ljóst af eftirfarandi gögnum að nýfætt barn kæranda muni einnig geta sótt um dvalarleyfi á Ítalíu á grundvelli alþjóðlegrar verndar föður síns og dvalarleyfis móður sinnar og öðlast sömu réttindi þar í landi.

Aðstæður á Ítalíu

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd á Ítalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum. Þá hefur kærunefnd jafnframt kynnt sér þær skýrslur sem kærandi vísar til í greinargerð sinni og litið til efnis þeirra við mat á aðstæðum í viðtökuríki.

  • Amnesty International Report 2022/23 – The State of the World’s Human Rights (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union 2021 (European Asylum Support Office, 28. júní 2022);
  • Asylum Information Database. Country Report – Italy (European Council on Refugees and Exiles, 31. maí 2023);
  • Asylum Information Database. Housing out of reach. The reception of refugees and asylum seekers in Europe (European Council on Refugees and Exiles, 29. maí 2019);
  • Concluding observations of the Committee on the Elimination of Racial Discrimination (UN Committee on the Elimination of Racial Discrimination, 17. febrúar 2017);
  • ECRI Report on Italy (European Commission against Racism and Intolerence, 7. júní 2016);
  • Freedom in the World 2023 – Italy (Freedom House, mars 2023);
  • Information note, Dublin transfers post-Tarakhel: Update on European case law and practice (Elenea, European legal network on asylum, október 2015);
  • Italy: A new system of reception and integration (European Web Site on Integration - Migrant Integration Information and good practices, 25. janúar 2021);
  • Italy: How has the reception system for asylum seekers and refugees changed (European Web Site on Integration - Migration Integration Information and good practices, 4. febrúar 2021);
  • Italy 2022 Human Rights Report (United States Department of State, 20. mars 2023);
  • Mutual Trust is Still Not Enough. The situation of persons with special reception needs transferred to Italy under the Dublin III Regulation (Danish Refugee Council og Swiss Refugee Council, 12. desember 2018);
  • Reception conditions in Italy. Updated report on the situation of asylum seekers and beneficiaries of protection, in particular Dublin returnees, in Italy (Swiss Refugee Council, janúar 2020);
  • Report of mission to Italy on racial discrimination, with a focus on incitement to racial hatred and discimination (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights, 2019);
  • Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees. For the Office of the High Commissioner for Human Rights‘ Compilation Report – Universal Periodic Review: Italy (UNHCR, desember 2019);
  • The ELENA Index (Elena, European legal network on asylum og European Council on Refugees and Exiles, uppfært febrúar 2019);
  • UNHCR Guidelines L’identificazione delle vittime di tratta tra i richiedenti protezione internazionale e procedure di referral (UNCHR, janúar 2021)
  • Country profiles – Italy: Policies and progress towards investing in children: (European Commission, 11. júní 2021);
  • Upplýsingar af vefsíðu ítalska flóttamannaráðsins (í. Consiglio Italiano per I Rifugiati – (http:www.cir-onlus.org/eng/);
  • Upplýsingar af vefsíðu OSCE Office for Democratic Institutions and Human Rights (www.hatecrime.osce.org/italy) og
  • Upplýsingar af vefsíðu samtakanna Baobab Experience (https://baobabexperience.org/)

Ítalía er eitt af aðildarríkjum Evrópusambandsins og því bundið af reglum sambandsins við málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd, t.a.m. tilskipunum sambandsins um meðferð umsókna um alþjóðlega vernd nr. 2013/32/EU, um móttökuaðstæður nr. 2013/33/EU og um lágmarksviðmið til þess að teljast flóttamaður nr. 2011/95/EU. Þá hefur Ítalía verið aðili að Evrópuráðinu frá 5. maí 1949 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu 16. október 1955. Ítalía fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð 12. janúar 1989 og fullgilti samninga Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978 og barnasáttmálann árið 1991. Þá gerðist ríkið aðili að Flóttamannasamningnum 15. nóvember 1954.

Í skýrslu European Council on Refugee and Exciles (ECRE) kemur fram að þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd séu sendir til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar geti þeir lagt fram umsókn hjá lögreglunni (í. Questura) eða hjá landamæralögreglunni (í. Polizia di Frontiera) hafi þeir ekki áður lagt fram umsókn þar í landi. Fái umsækjandi um alþjóðlega vernd synjun á umsókn sinni geti hann áfrýjað þeirri niðurstöðu. Þá eigi hann kost á því að bera synjunina undir dómstóla (í. Tribunale Civile). Jafnframt eigi umsækjendur um alþjóðlega vernd þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun samkvæmt 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða að um meðferð sé að ræða sem brjóti í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu. Þá kemur fram í skýrslum ECRE og svissneska flóttamannaráðsins að umsækjendur um alþjóðlega vernd, sem fengið hafi endanlega synjun á umsókn sinni hjá ítölskum yfirvöldum, eigi þess kost að leggja fram viðbótarumsókn á grundvelli nýrra gagna í máli þeirra hjá lögreglunni og njóti þá sömu almennu réttinda og aðrir umsækjendur um alþjóðlega vernd.

Fyrir liggur að umsækjendur um alþjóðlega vernd á Íslandi sem falla undir ákvæði Dyflinnarreglugerðarinnar eru sendir til baka til meginlandsins með flugi. Í framangreindum gögnum, s.s. skýrslum ECRE og svissneska flóttamannaráðsins, kemur fram að á stærstu flugvöllum landsins, í Róm og Mílanó, séu frjáls félagasamtök til staðar sem veiti umsækjendum um alþjóðlega vernd ráðgjöf og þjónustu. Umsækjendur um alþjóðlega vernd á Ítalíu eigi almennt ekki rétt á gjaldfrjálsri lögfræðiaðstoð þegar þeir leggi fram umsókn um alþjóðlega vernd en frjáls félagasamtök veiti gjaldfrjálsa lögfræðiaðstoð í umsóknarferlinu.

Í skýrslum ECRE og svissneska flóttamannaráðsins kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd sem sendir séu til baka á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar eigi rétt á þjónustu og gistirýmum í tilteknum móttökumiðstöðvum. Ef engin pláss séu til staðar í slíkum móttökumiðstöðvum séu til staðar gistirými í móttökumiðstöðvum sem nefnist CAS (í. Centro di accoglienza straordinaria). CAS miðstöðvarnar hafi upphaflega einungis verið ætlaðar til tímabundinnar dvalar en vegna mikils fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu nýtur meirihluti umsækjenda um alþjóðlega vernd eingöngu þjónustu í CAS miðstöðvunum. Umræddar miðstöðvar hafa verið gagnrýndar fyrir afskekktar staðsetningar og fyrir að vera yfirfullar og skorta hreinlæti. Samkvæmt upplýsingum af vefsíðu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins tóku ný lög nr. 130/2020 gildi árið 2020 sem kveða á um breytingar á móttökumiðstöðvum og búsetuúrræðum fyrir flóttamenn og umsækjendur um alþjóðlega vernd. Samkvæmt ákvæðum laganna hefur móttöku- og húsnæðiskerfið SIPRIOMI, sem áður var einungis ætlað þeim sem hlotið hafa alþjóðlega vernd og fylgdarlausum börnum, verið endurskipulagt og fengið nýtt nafn, SAI (e. System of reception and integration). Búsetuúrræðinu hafi verið skipt í tvennt; annars vegar móttökumiðstöðvar og búsetuúrræði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og hins vegar búsetuúrræði og þjónustu fyrir þá sem hlotið hafa alþjóðlega vernd á Ítalíu. Samkvæmt lagabreytingum sem tóku gildi í maí 2023 verði móttökukerfinu SAI breytt í undirkerfi og sé einungis ætlað handhöfum alþjóðlegrar verndar.

Af framangreindum gögnum, s.s. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins, má sjá að ítölsk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Af skýrslum ECRE og svissneska flóttamannaráðsins má ráða að í ítalska hæliskerfinu sé ekki skimað kerfisbundið eftir því hvort umsækjendur um alþjóðlega vernd teljist vera viðkvæmir einstaklingar. Hins vegar geti greining á þolendum pyndinga eða alvarlegs ofbeldis átt sér stað á öllum stigum umsóknarferlisins um alþjóðlega vernd. Svokallaðar svæðisnefndir (í. Commissione territoriale per il riconoscimento della protezione internazionale) taki ákvörðun á fyrsta stigi málsmeðferðar og geti þær m.a. óskað eftir því að umsækjandi fari í sérstaka læknisskoðun þar sem fram fari mat á því hvaða áhrif ofsóknir og ofbeldi hafi haft á umsækjanda. Slíkt mat sé framkvæmt í samræmi við leiðbeiningarreglur sem gefnar hafa verið út af heilbrigðisráðuneytinu varðandi þjónustu handa flóttamönnum sem þjást af andlegum veikindum og/eða eru þolendur pyndinga, nauðgana eða annars konar andlegs, líkamlegs og kynferðislegs ofbeldis.

Á grundvelli framangreindra skýrslna og gagna sem kærunefnd hefur kynnt sér, s.s. skýrslum ECRE og svissneska flóttamannaráðsins, verður ráðið að umsækjendur um alþjóðlega vernd á Ítalíu, bæði börn og fullorðnir, eigi sama rétt og ítalskir ríkisborgarar til lögboðinnar heilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu. Þeir þurfi þó að skrá sig inn í heilbrigðiskerfið en við slíka skráningu fái þeir útgefið tryggingarkort sem veiti þeim m.a. rétt á meðferð sérfræðilækna. Fyrir útgáfu tryggingarkortsins eigi umsækjendur um alþjóðlega vernd þó rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Skortur á sérhæfingu í málefnum flóttamanna og tungumálakunnátta geri þó sumum umsækjendum um alþjóðlega vernd erfitt fyrir að sækja sér viðunandi heilbrigðisþjónustu, einkum einstaklingum í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Umsækjendur um alþjóðlega vernd fái aðgang að ítalska vinnumarkaðnum tveimur mánuðum eftir að þeir hafi lagt fram umsókn sína. Þó kemur fram í framangreindum gögnum að atvinnuleysi á Ítalíu hafi verið mikið á undanförnum árum og erfitt hafi reynst fyrir marga, jafnt ítalska ríkisborgara sem og umsækjendur um alþjóðlega vernd, að finna atvinnu.

Á heimasíðu ítalska menntamálaráðuneytisins kemur fram að foreldrar barna á aldrinum þriggja mánaða til tveggja ára geti sótt um aðgang að vöggustofum en aðgengi að þeim sé stjórnað af hverju sveitarfélagi fyrir sig. Börn á aldrinum þriggja til sex ára hafi aðgang að leikskólum sem séu hluti af samfelldri menntastefnu landsins og opinberir leikskólar séu gjaldfrjálsir. Í skýrslu ECRE og skýrslu samtakanna Education International Research kemur m.a. fram að ítölsk lög kveði á um skólaskyldu til 16 ára aldurs. Öll börn sem dvelja á ítölsku yfirráðasvæði eigi því rétt á skyldubundinni menntun frá sex til 16 ára aldurs, til jafns við ítalska ríkisborgara, án tillits til réttarstöðu þeirra á Ítalíu og án endurgjalds. Þá eigi erlend börn rétt á sérstakri aðstoð hafi þau sérþarfir og jafnframt bjóði sumir skólar upp á sérstakt undirbúningsnámskeið til að aðstoða erlenda nemendur við að aðlagast skólanum. Þegar erlend börn leggi fram umsókn um skólavist þá sé krafist sömu upplýsinga um barnið og hjá ítölskum börnum en skortur á framlagningu gagna komi ekki í veg fyrir að barn sé skráð í skólann.

Af fyrrnefndum skýrslum, s.s. skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins og samtakanna Human Rights Watch, verður jafnframt ráðið að fordómar í garð fólks af erlendum uppruna séu vandamál á Ítalíu. Í skýrslu Mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna, sem gefin var út í kjölfar sendifarar til Ítalíu sem farið var í árið 2019 til þess að meta aukna mismunun á grundvelli kynþáttar, kemur fram að í ítalskri löggjöf sé kveðið á um vernd gegn mismunun á grundvelli kynþáttar. Þá sé í stjórnarskrá landsins kveðið á um vernd ákveðinna hópa, þ. á m. útlendinga. Ítölsk yfirvöld hafi tekið mikilvæg skref í þá átt að vinna gegn kynþáttafordómum, mismunun á grundvelli kynþáttar og hatursglæpum. Á Ítalíu sé starfrækt stofnun (í. Ufficio Nazionale Antidiscriminazioni Razziali (UNAR)) sem hafi það hlutverk að berjast gegn hvers kyns mismunun. Einstaklingar sem telji sig hafa orðið fyrir mismunun þ. á m. vegna kynþáttar eða kynhneigðar og þurfa á aðstoð eða ráðgjöf að halda geti leitað til stofnunarinnar og tilkynnt hvers kyns mismunun í gegnum vefsíðu hennar. Þá reki lögreglan stofnun sem hafi það hlutverk að bæta forvarnir og aðgerðir lögreglu við hatursglæpum (í. Osservatorio per la Sicurezza Contro gli Atti Discriminatori (OSCAD)) sem vinni náið með UNAR. Stofnuninni sé m.a. ætlað að auka þjálfun lögreglufólks og stuðla að því að hatursglæpir séu tilkynntir og skráðir. Stofnunin sé með netfang þar sem unnt sé að tilkynna mismunun á grundvelli m.a. kynþáttar, ríkisfangs og trúar. Þær tilkynningar sem teljist geta falið í sér glæpsamlegt athæfi séu áframsendar lögreglu til rannsóknar en aðrar séu áframsendar til UNAR. Þá standi dómstólar landsins styrkum fótum sem hafi stuðlað að virkri framkvæmd hluta löggjafar um vernd gegn mismunun á grundvelli kynþáttar. Framangreindar skýrslur bera enn fremur með sér að almenningur á Ítalíu geti leitað sér aðstoðar ítalskra löggæsluyfirvalda vegna ofbeldisbrota og hótana. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kveður stjórnarskrá Ítalíu á um að dómsvald skuli vera sjálfstætt. Þá er einnig kveðið á um rétt til réttlátrar og opinberrar málsmeðferðar. Sakborningar séu álitnir saklausir uns sekt er sönnuð og eigi þeir rétt á að vera viðstaddir réttarhöld í máli sínu og njóta aðstoðar lögmanns. Þá geti þeir krafist réttarúrræða fyrir innlendum dómstólum vegna mannréttindabrota og farið með mál fyrir Mannréttindadómstól Evrópu vegna mannréttindabrota stjórnvalda hafi þeir nýtt sér þau réttarúrræði sem þeim standi til boða innanlands.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:

Ef svo stendur á sem greinir í 1. mgr. skal þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mála annars með því.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með „aðild Íslands að Dyflinnarsamstarfinu hefur ríkið skuldbundið sig til að fylgja og virða þær reglur sem felast í Dyflinnarreglugerðinni“ og að „íslensk stjórnvöld sem starfa að útlendingamálum [beiti] ákvæðum reglugerðarinnar við mat á því hvaða ríki beri ábyrgð á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd sem lagðar eru fram hér á landi.“ Ákvæði 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. byggir á heimild í 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og felur í sér frávik frá þeirri meginreglu reglugerðarinnar um að ákvarða skuli hvaða ríki beri ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd á grundvelli þeirra viðmiða sem fram koma í reglugerðinni.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, eins og efnahagslegar ástæður, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Samkvæmt 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Kærandi er kona á [...]. Samkvæmt gögnum málsins eignaðist hún barn hér á landi [...]. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hún hafi fengið sýkingu í nýrun og dvalið í þrjár vikur á spítala á Ítalíu þar sem hún hafi fengið meðferð. Þá hafi kærandi verið greind með hjartagalla þegar hún var sjö ára og hafi tekið lyf vegna þess í um fimm ára skeið. Þá kvaðst kærandi vera við ágæta andlega heilsu. Samkvæmt nótu frá Göngudeild mæðraverndar og fósturgreiningar, dags 5. maí 2023, var kærandi lögð inn vegna kviðverkja þá gengin 33 vikur á leið og henni gefin verkjalyf. Samkvæmt nótu, dags. 8. júní 2023, hafi staðið til að útskrifa kæranda og henni ávísað verkja- og hjartalyfjum en útskrift hafi verið frestað þar sem niðurstaða úr hjartaómskoðun hafi ekki legið fyrir. Í bréfi til kæranda frá Landspítalanum, dags. 8. maí 2023, kemur fram að kærandi hafi verið lögð inn á meðgöngudeild spítalans vegna kviðverkja. Talið sé að verkurinn stafi af vöðvaæxli (e. myoma) í legi og kæranda hafi verið ávísað verkjalyfjum. Þá hafi verið gerð ómskoðun á hjarta vegna hraðtakts. Ómskoðun hafi leitt í ljós örlítið lækkað útfallsbrot í hjarta. Eftir ráðfæringu við hjartalækna hafi kærandi verið sett á hjartalyf. Bókaður hafi verið tími í eftirfylgni viku síðar. Samkvæmt nótu frá hjartalyfjalækni, dags. 9. maí 2023, kemur fram að gerð hafi verið hjartaómun á kæranda og hún hafi verið mæld í kringum 120-130 í púls, kærandi sé með merki um skútahraðtakt (e. sinus tachycardia) og skert útfallsbrot. Kæranda hafi verið ráðlagt að taka hjartalyf til að byrja með og mælt með að hún yrði færð í áhættumeðgöngu svo auðvelt væri að endurmeta stöðuna. Auk þess þyrfti kærandi að vera í eftirliti hjá hjartalækni eftir fæðingu. Samkvæmt læknabréfi, dags. 9. maí 2023, hafi kærandi verið útskrifuð og færð í áhættumeðgöngu á Landspítalanum. Samkvæmt samskiptaseðli mæðraverndar, dags. 17. maí 2023, hafi kærandi komið í skoðun í áhættumæðravernd vegna vöðvaæxlis í legi og vægrar hjartabilunar. Kærandi hafi m.a. greint frá því að hún fái hjartsláttaköst öðru hvoru og finni þá einnig fyrir mæði. Kærandi láti vel af sér en greini frá því að hún finni stundum fyrir verkjum vegna vöðvaæxlis, sérstaklega við áreynslu, og taki verkjalyf vegna þess kvölds og morgna. Send hafi verið beiðni til félagsráðgjafa fyrir kæranda vegna aðstæðna hennar. Samkvæmt göngudeildarskrá frá félagsráðgjafa, dags. 24. maí 2023, hafi kærandi mætt í viðtal og rætt um aðstæður sínar. Kærandi hafi greint frá því að hún eigi lítið fyrir barn sitt og vanti ýmsa hluti. Samkvæmt samskiptaseðli frá mæðravernd, dags 24. maí 2023, hafi kærandi verið greind með meðgöngusykursýki. Henni hafi verið útvegaður mælir og rætt við hana um matarræði og hreyfingu. Kærandi hafi verið send í frekari rannsóknir á hjarta og samkvæmt þeim hafi ekki greinst blóðtappi í lungum. Hjartalyfjaskammtur kæranda hafi verið aukinn. Samkvæmt nótu, dags. [...], hafi kærandi verið lögð inn vegna minnkaðra hreyfinga. Kærandi hafi verið send í sónar og í ljós hafi komið gruggugt legvatn og litlar hreyfingar barns. Kærandi hafi verið lögð inn og sett í gangsetningu. Samkvæmt nótu um upplýsingar um fæðingu hafi kærandi eignast dreng í gegnum fæðingarveg [...]. Samkvæmt dagáli, dags. [...], kemur fram að kærandi sé með væga hjartabilun sem geti versnað eftir meðgöngu og fylgjast þurfi með fyrstu 1-2 sólarhringana eftir fæðingu. Kærandi láti vel af sér og finni ekki fyrir mæði eða hjartsláttaróþægindum. Kærandi sé mæld með hraðann púls og hafi fengið lyf. Samkvæmt nótu frá lækni dags, 26. júní 2023, kemur fram að kæranda hafi verið ávísað lyfi vegna hjartabilunar og sé ráðlagt að koma í eftirfylgd á göngudeild hjartabilunar innan tveggja vikna. Kærandi hafi verið útskrifuð við góða líðan, hún hafi farið í eftirlit á Göngudeild hjartabilunar og sé í eftirliti hjá heimaljósmóður. Samkvæmt nótu frá ljósmóður, dags, 28. júní 2023, hafi kærandi komið með leigubifreið á bráðaþjónustu kvennadeildar ásamt barni sínu. Kærandi hafi kvartað undan erfiðleikum við öndun og mæði. Mælingar og lífsmörk hafi verið borin undir deildarlækni sem í samráði við sérfræðing hafi viljað fá hana í skoðun og mat á bráðaþjónustu. Samkvæmt göngudeildarnótu sama dag kemur fram að kærandi sé ekki móð að sjá, hvorki hvíldar né talmóð. Kærandi sé með vægan fótbjúg sem henni finnist hafa aukist. Kærandi sé með eðlilega lungna og hjartahlustun eins og áður fyrir utan hraðtakt. Skoðun sé óbreytt frá útskrift og engin klínísk merki séu um hjartabilun. Kærandi hafi verið sett á símalista til að fylgja því eftir að hún fái tíma á Göngudeild hjartabilunar. Samkvæmt meðferðarseðli, dags. 11. júlí 2023, hafi kærandi komið í skoðun á Göngudeild hjartabilunar. Kærandi hafi látið vel af sér, finni minna fyrir mæði en finni stundum fyrir hjartslættinum. Kærandi hafi ekki fundið fyrir brjóstverk eða þyngslum. Kærandi vakni bjúglaus en svo komi bjúgur á fætur, aðallega í kringum ökkla og nái upp að hnjám. Kærandi hafi verið send í hjartaómskoðun og niðurstaða hennar sé um 50% útfallsbrot. Engin hlébilsvanstarfsemi eða lokusjúkdómur og útlit sé fyrir að kærandi sé að jafna sig af hjartavöðvakvilla eftir fæðingu (e. post partum cardiomyopathya). Samkvæmt samskiptaseðli frá Göngudeild sóttvarna, dags. 13. september 2023, kemur fram að kærandi hafi leitað þangað vegna blóðs í hægðum og verkja. Kærandi hafi fengið hægðatregðu en hægðir séu í lagi núna. Kærandi hafi átt barn fyrir tveimur mánuðum og sé líklega með gyllinæð. Kærandi hafi fengið tíma hjá lækni til skoðunar með tilliti til meðferðar. Kærandi hafi einnig óskað eftir að komast í eftirlit hjá hjartalækni. Kærandi hafi verið í auknu eftirliti vegna hjartakvilla á meðgöngu en hún finni nú fyrir hröðum hjartslætti og óþægindum. Á meðal gagna málsins eru jafnframt niðurstöður úr fóstur- og hjartaómskoðun ásamt niðurstöðum úr blóðprufu. Þá liggja fyrir heilbrigðisgögn frá Ítalíu. Kærandi greindi frá því í tölvubréfi til kærunefndar, dags. 20. september 2023, að barnið hennar væri við góða heilsu fyrir utan smá kvef. Þá kveðst kærandi þjást af alvarlegum hjartasjúkdómi líkt og gögn málsins beri með sér. Kærandi hafi fengið hjartaáfall og þurft að leita á spítala en hún eigi tíma í eftirlit hjá hjartalækni 4. október 2023. Kærandi hefur ekki lagt fram gögn sem styðja frásögn hennar þess efnis að hún hafi fengið hjartaáfall.

Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, 3. apríl 2023, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hennar hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda jafnframt leiðbeint með tölvubréfi kærunefndar, dags. 1. júní og 20. september 2023, um framlagningu frekari gagna í málinu. Frekari heilsufarsgögn bárust 13. júní og 22. september 2023. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hennar. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar hennar geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Samkvæmt framangreindum heilbrigðisgögnum hefur kærandi verið að glíma við hjartavandamál og hefur verið á lyfjum og í eftirliti af þeim sökum. Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hún teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður á Ítalíu verður ráðið að kærandi geti fengið nauðsynlega heilbrigðisþjónustu þar í landi, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu. Telur kærunefnd því að aðstæður kæranda tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verið fram hjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Kærunefnd áréttar að samkvæmt 31. og 32. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar skuli miðla upplýsingum um heilsufar umsækjenda um alþjóðlega vernd til yfirvalda í viðtökuríki, að uppfylltum skilyrðum ákvæðanna, þannig að flutningur viðkomandi fari fram með þeim hætti að heilsufari þeirra verði ekki stefnt í hættu. Auk þess er gerð sú krafa í samþykki ítalskra stjórnvalda á viðtöku kæranda, dags. 19. maí 2023, að upplýsingum um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu eða sérstakar þarfir sé miðlað til ítalskra yfirvalda a.m.k. 10 virkum dögum fyrir flutning. Samkvæmt frásögn kæranda og gögnum málsins hefur kærandi notið heilbrigðisþjónustu á Ítalíu og m.a. dvalið á spítala þar í landi. Hefur kærandi lagt fram ítölsk heilsufarsgögn vegna þessa.

Kærandi hefur greint frá því að hún hafi mátt þola kynþáttafordóma og mismunun á Ítalíu. Framangreindar heimildir bera með sér að fordómar viðgangist á Ítalíu en að löggæslan sé virk og kærandi geti leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra yfirvalda óttist hún um öryggi sitt eða telji sér ógnað. Af framangreindum gögnum verður jafnframt ráðið að ítölsk yfirvöld hafi tekið mikilvæg skref í þá átt að vinna gegn kynþáttafordómum, mismunun á grundvelli kynþáttar og hatursglæpum. Lögreglan á Ítalíu reki m.a. stofnun sem hafi það hlutverk að bæta forvarnir og aðgerðir lögreglu við hatursglæpum (í. Osservatorio per la Sicurezza Contro gli Atti Discriminatori). Stofnunin sé með netfang þar sem unnt sé að tilkynna mismunun á grundvelli m.a. kynþáttar, ríkisfangs og trúar.

Kærandi hefur jafnframt borið fyrir sig að hún hafi ekki fengið félagslega framfærslu eða húsnæðisaðstoð á Ítalíu. Kærandi hafi leigt herbergi ásamt eiginmanni sínum en ekki fengið atvinnu. Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður á Ítalíu kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd sem sendir séu til baka á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar eigi rétt á þjónustu og gistirýmum í tilteknum móttökumiðstöðvum. Það er jafnframt mat kærunefndar með hliðsjón af þeim heimildum sem nefndin hefur kynnt sér að þær aðstæður sem hafi verið til staðar í móttökukerfinu á Ítalíu undanfarið séu tímabundnar. Þá bendi umræddar heimildir ekki til annars en að ítölsk stjórnvöld vinni að lausn á vandanum og muni standa við alþjóðlegar skuldbindingar sínar varðandi móttöku, þjónustu og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd þar í landi. Kærunefnd telur að gögn málsins, að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hún geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hennar verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. áðurnefnd viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda m.a. til þess að telji kærandi sér mismunað eða óttist hún um öryggi sitt að einhverju leyti geti hún leitað aðstoðar hjá þar til bærum stjórnvöldum. Þá áréttar kærunefnd að gögn málsins bera með sér að kærandi hafi ekki lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd í viðtökuríki og því hafi hún ekki reynslu af móttökukerfinu þar í landi.

Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga koma jafnframt fram sérviðmið er varða börn og ungmenni. Þar segir m.a. að við mat á því hvort taka skuli umsókn til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna skuli hagsmunir barnsins hafðir að leiðarljósi. Þá segir að við mat á hagsmunum barns skuli meðal annars líta til þess hvort flutningur til viðtökuríkis hafi í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist eða muni aðskiljast. Sem fyrr segir eru fjölskyldur sem leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd á Ítalíu almennt vistaðar saman. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að leyst sé úr umsóknum þeirra m.t.t. meginreglunnar um einingu fjölskyldunnar.

Samkvæmt framangreindum heimildum kveða ítölsk lög á um að öll börn á ítölsku yfirráðasvæði eigi rétt á skyldubundinni menntun frá sex til sextán ára aldurs, til jafns við ítalska ríkisborgara, án tillits til réttarstöðu þeirra á Ítalíu og án endurgjalds. Þá hafi börn á aldrinum þriggja til sex ára aðgang að leikskólum sem séu hluti af samfelldri menntastefnu landsins og opinberir leikskólar séu gjaldfrjálsir. Líkt og komið hefur fram þurfa umsækjendur um alþjóðlega vernd að skrá sig inn í heilbrigðiskerfið og njóta þá sömu réttinda til heilbrigðisþjónustu og ítalskir ríkisborgarar. Samkvæmt skýrslu ECRE veitir skráning m.a. aðgang að barnalæknum, ljósmæðrum og kvensjúkdómalæknum. Þá eiga börn á Ítalíu rétt á heilbrigðisþjónustu, þ. á m. bólusetningum og er almenn læknisþjónusta tryggð fyrir börn til 16 ára aldurs.

Að öðru leyti og með vísan til niðurstöðu í máli kæranda og umfjöllunar um aðstæður barna sem sækja um alþjóðlega vernd á Ítalíu er það mat kærunefndar að flutningur kæranda og barns hennar til Ítalíu samrýmist hagsmunum barnsins þegar litið er m.a. til öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska, sbr. 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Þá vísar kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu, m.a. í máli M.T. og aðrir gegn Svíþjóð nr. 22105/18 frá 20. október 2022, þar sem vísað er til þeirrar meginreglu að þrátt fyrir að barni muni vegna betur í einu aðildarríki mannréttindasáttmálans en öðru teljist það ekki falla undir hugtakið bestu hagsmunir barnsins.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæla með því að mál hennar verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun 3. apríl 2023 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hún lagði fram umsókn sína 15. mars 2023.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:

Ef beiting 1. mgr. mundi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skal taka umsókn til efnismeðferðar.

Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.

Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið að til að stuðla að einsleitinni framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar á meðal aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins sé rétt að líta til dóma Evrópudómstólsins í málum sem tengjast framkvæmd reglugerðarinnar.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm í máli Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. m.a. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr. Í því sambandi hefur dómstóllinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 251. mgr., og dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012, 97. mgr.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallin að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.

Dómstóllinn hefur talið að 3. gr. mannréttindasáttmálans verði ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 249. mgr.

Í dómaframkvæmd Evrópudómstólsins er vísað til þess að framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar verði að vera í samræmi við sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi og er þar fyrst og fremst vísað til 4. gr. sáttmálans sem, í þeim atriðum sem máli skipta, er sambærileg 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins eru lög Evrópusambandsins byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki þess deila þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að gagnkvæmu trausti um að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra grundvallarréttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. t.d. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., og Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr. Dyflinnarreglugerðin er byggð á nefndri meginreglu um gagnkvæmt traust og miðar að því að hraða og straumlínulaga afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd til hagsbóta fyrir umsækjendur og aðildarríki samstarfsins. Því verði að gera ráð fyrir því að meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd í aðildarríkjum Dyflinnarsamstarfsins samrýmist þeim kröfum sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, flóttamannasáttmálinn og Mannréttindasáttmáli Evrópu gera, sbr. dóm Evrópudómstólsins í N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/10, frá 21. desember 2011, 78.-80. mgr. Það er hins vegar ekki útilokað að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika við framkvæmd reglugerðarinnar sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. áðurnefndan dóm í máli N. S. o.fl., 81. mgr. Af þeim sökum verður ekki byggt á því skilyrðislaust að aðildarríki Evrópusambandsins tryggi grundvallarmannréttindi, svo sem samkvæmt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr., og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Evrópudómstóllinn hefur talið, m.a. í Jawo, 85. mgr., að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að hann sæti ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, verði hann fluttur til viðtökuríkis. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmálans um grundvallarréttindi. Þessu alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda aðildarríkis Dyflinnarsamstarfsins hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.

Hátt stig óöryggis eða veruleg hnignun lífsskilyrða viðkomandi umsækjanda myndi þar af leiðandi ekki ná þessu alvarleikastigi nema framangreindar aðstæður efnislegrar sárafátæktar séu fyrir hendi. Sama á við þó að umsækjanda skorti það félagslega stuðningsnet, eins og t.d. fjölskyldutengsl, sem vegur á móti afleiðingum ófullnægjandi félagslegs kerfis aðildarríkis, sbr. Jawo, 93. og 94. mgr. Ennfremur, það eitt að lífsskilyrði séu ákjósanlegri í endursendingarríki en í viðtökuríki getur heldur ekki leitt til þess að um brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sé að ræða, sbr. til hliðsjónar Jawo, 97. mgr.

Eins og ráða má af framangreindu þurfa annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans að ná mjög háu alvarleikastigi til að endursending teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og tekur beiting 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga mið af því.

Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins jafnframt með sér að í viðtökuríki sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða það endursent til ríkja þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem lífi þeirra og frelsi er ógnað. Í því sambandi hefur kærunefnd einkum litið til þess að gögnin benda til þess að meðferð stjórnvalda viðtökuríkis á umsóknum um alþjóðlega vernd sé með þeim hætti að lagt sé einstaklingsbundið mat á aðstæður einstaklinga. Telur kærunefnd að gögn málsins gefi ekki til kynna að endursending kæranda til viðtökuríkis sé í andstöðu við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. ákvæðisins.

Að mati kærunefndar eru einstaklingsbundnar aðstæður kæranda ekki slíkar að vegna stöðu hennar sem umsækjanda um alþjóðlega vernd á Ítalíu verði endursending hennar þangað talin ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð. Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærandi eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd og flutningur hennar til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Samkvæmt framansögðu verður mál kæranda ekki tekið til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar og reglur stjórnsýsluréttar

Vegna umfjöllunar kærenda um mat Útlendingastofnunar á sérstaklega viðkvæmri stöðu hennar, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, sbr. 25. gr. sömu laga, vill kærunefnd árétta að ákvörðun um hvort umsækjandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga lýtur að því hvort þörf sé á sérstökum stuðningi við umsækjanda í gegnum umsóknarferlið og á meðan á dvöl hans stendur hér á landi. Í 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur m.a. fram að við meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd skuli Útlendingastofnun tryggja, eins fljótt og kostur er, að fram fari, með aðstoð viðeigandi sérfræðinga, einstaklingsbundin greining á því hvort umsækjandi teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Sé hann í slíkri stöðu skal stofnunin meta hvort hann hafi einhverjar sérþarfir, t.d. þörf á tiltekinni heilbrigðisþjónustu. Þá er tekið fram í 2. mgr. sama ákvæðis að ákvæði IV., V. og VII. kafla stjórnsýslulaga um andmælarétt, um birtingu ákvörðunar, rökstuðning o.fl. og um stjórnsýslukæru og viðeigandi ákvæði I. og IX. kafla laga um útlendinga gilda ekki um ákvörðun um sérstaklega viðkvæma stöðu samkvæmt 1. mgr. Skilgreining á stöðu samkvæmt 1. mgr. hefur ekki önnur réttaráhrif en þau sem sérstaklega er getið í lögum eða reglugerð. Kærunefnd telur því ljóst að mat samkvæmt 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem fram fer hjá Útlendingastofnun, sé ekki kæranlegt til kærunefndar og hafi ekki önnur réttaráhrif en sérstaklega er getið um í lögum eða reglugerð. Kærunefnd leggur þannig áherslu á að ákvörðun um hvort umsækjandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu er annað en mat á einstaklingsbundnum aðstæðum umsækjanda þó svo að þessi hugtök skarist nokkuð. Að því er varðar mat Útlendingastofnunar á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda tekur kærunefnd fram að kæranda var leiðbeint um framlagningu heilsufarsgagna við málsmeðferð hjá Útlendingastofnun, en í viðtali var henni leiðbeint um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem hún taldi hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Við meðferð málsins hjá kærunefnd hefur kæranda auk þess verið leiðbeint um framlagningu frekari heilsufarsgagna líkt og hún hefur gert. Líkt og fram hefur komið benda heimildir til þess að umsækjendur um alþjóðlega vernd á Ítalíu, bæði börn og fullorðnir, eigi sama rétt og ítalskir ríkisborgarar til lögboðinnar heilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu. Þegar litið er til þeirra viðmiða sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga setur fram er ljóst að þau gögn sem liggja fyrir í málinu benda ekki til þess að frekari gagnaöflun geti haft áhrif á niðurstöðu málsins. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að gera athugasemdir við mat Útlendingastofnunar á þeim einstaklingsbundnu aðstæðum kæranda sem horfa beri til við mat á því hvort rétt sé að taka umsókn hennar til efnismeðferðar hér á landi.

Vegna tilvísunar kæranda í greinargerð til dóms hollensks dómstóls tekur kærunefnd fram að nefndin er ekki bundin af framkvæmd dómstóla í Hollandi.

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar og telur m.a. að Útlendingastofnun hafi brotið gegn 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. laga um útlendinga við meðferð málsins. Kærunefnd hefur tekið afstöðu til athugasemda kæranda að framan og telur þær ekki leiða til þess að um brot sé að ræða á grundvelli 10. gr. stjórnsýslulaga.

Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun að öðru leyti og telur ekki tilefni til þess að gera frekari athugasemdir við hana.

Frávísun

Kærandi kom hingað til lands 15. mars 2023 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hún því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hún verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hennar hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal flutt til Ítalíu innan tilskilins frests nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa ítölsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Ítalíu með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

 

Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

 

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Valgerður María Sigurðardóttir

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                            Sandra Hlíf Ocares


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta