Mál nr. 60/2002
Mál nr. 60/2002
Þriðjudaginn, 7. janúar 2003
A
gegn
Tryggingastofnun ríkisins
Úrskurður
Mál þetta úrskurðuðu Guðný Björnsdóttir hdl., Jóhanna Jónasdóttir læknir og Gylfi Kristinsson skrifstofustjóri.
Þann 19. september 2002 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, ódagsett.
Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar:
Samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.) skal kæra berast úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun. Samkvæmt gögnum málsins barst kæranda máls þessa bréf, dags. 29. maí 2002 frá Tryggingastofnun ríkisins, þar sem tilkynnt var hvernig afgreiðslu málsins yrði háttað hjá stofnuninni. Kæran barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála 19. september 2002.
Í 4. mgr. 6. gr. ffl. er um málsmeðferð vísað til stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Í 1. mgr. 28. gr. þeirra laga segir:
?Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá, nema:
1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða
2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.?
Þar sem hvorki verður séð að sérstakar ástæður leiði til þess að afsakanlegt verði talið að kæra hafi komið of seint fram, né að veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin fyrir, kemst nefndin að þeirri niðurstöðu að vísa kærunni frá, þar sem hún er of seint fram komin.
ÚRSKURÐARORÐ:
Kæru A er vísað frá þar sem hún er of seint fram komin.
Guðný Björnsdóttir
Gylfi Kristinsson
Jóhanna Jónasdóttir