Mál nr. 97/2021 Úrskurður 11. ágúst 2021
Mál nr. 97/2021 Eiginnafn: Blár (kk.)
Hinn 4. ágúst 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 97/2021, en erindið barst nefndinni 29. apríl.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Blár (kk.) getur talist leitt af karlkynsnafnorðinu blár ‘himinn’ og telst uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn. Nafnið beygist svo: nf. Blár, þf. Blá, þgf. Blá, ef. Blás.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Blár (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.