Hoppa yfir valmynd

Nr. 279/2019 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 21. maí 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 279/2019

í stjórnsýslumálum nr. KNU19030026 og KNU19030033

Kæra [...]

og [...]

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 12. mars 2019 kærðu [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir K) og [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir M) ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 4. og 5. mars 2019 um að taka ekki til efnismeðferðar umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa þeim frá landinu.

Þess er krafist að hinar kærðu ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka ofangreindar umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi til efnismeðferðar, í fyrsta lagi á grundvelli 3. mgr. 36. gr., sbr. 1. mgr. 42. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem lögfestur var hér á landi með lögum nr. 62/1994, og í öðru lagi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og bárust kærurnar fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærendur lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 29. júlí 2018. Kærendur framvísuðu grískum flóttamannavegabréfum og gildum grískum dvalarleyfum sem gáfu til kynna að kærendur væru með gild dvalarleyfi þar í landi til 3. janúar 2020 í tilfelli M og til 16. maí 2021 í tilfelli K. Kærendur komu til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 5. febrúar 2019, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað dagana 4. og 5. mars 2019 að taka ekki umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að þeim skyldi vísað frá landinu. Ákvarðanirnar voru birtar fyrir kærendum þann 12. mars 2019 og kærðu þau ákvarðanirnar þann sama dag til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kærenda barst kærunefnd 21. mars 2019 ásamt fylgigögnum. Þá bárust kærunefnd frekari upplýsingar þann 12. apríl 2019.

III. Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kom fram að kærendum hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd yrðu því ekki teknar til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kærenda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefðu kærendur ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að þau fengju hér vernd eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsóknir kærenda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærendum var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldu þau flutt til Grikklands.

IV. Málsástæður og rök kærenda

Í greinargerð sinni vísa kærendur til viðtala sinna hjá Útlendingastofnun, en þar hafi þau m.a. lýst veikindum sínum og ástæðum flótta þeirra frá heimaríki. M þjáist m.a. af [...] en K glími við verki í [...]. M flúði frá heimaríki vegna hótana [...] en hann kveði sig tilheyra minnihlutahópi í heimaríki. K hafi flúið frá heimaríki vegna hótana frá [...] en henni hafi verið rænt af þeim þegar hún var ung [...]. Kærendur geri þá athugasemdir við að vera send aftur til Grikklands en þau hafi lýst slæmum aðstæðum sínum þar, flóttamannabúðirnar hafi verið yfirfullar, matur af litlum gæðum og drykkjarvatni hafi verið skammtað mjög naumt. Hafi K m.a. orðið veik vegna þessa. Þá hafi kærendur haft mjög takmarkaðan aðgang að heilbrigðiskerfinu í Grikklandi og hafi ekki fengið aðstoð félagsmálayfirvalda. Eina framfærslan sem þau hafi fengið hafi verið 90 evrur á mánuði frá Sameinuðu þjóðunum. Loks hafi þau orðið fyrir fordómum af hálfu heimamanna í Grikklandi.

Kærendur gera nokkrar athugasemdir við hina kærðu ákvörðun í greinargerð sinni og lýsa þau m.a. furðu sinni á rökstuðningi Útlendingastofnunar um að K hafi ekki verið metin í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Kærendur vísi m.a. í því sambandi til samskiptaseðils frá Göngudeild sóttvarna frá 8. febrúar 2019 þar sem fram komi m.a. að K hafi [...]. Þá komi fram að hún hafi [...] eftir að hafa orðið fyrir alvarlegu ofbeldi, auk þess sem henni hafi verið rænt, [...]. Þá hafi K enn fremur verið greind með [...] hér á landi. Þá hafi K skorað hátt á skimunarlista vegna andlegrar vanlíðunar sem Útlendingastofnun hafi lagt fyrir hana. Fari kærendur fram á að kallað verði eftir sérfræðimati á andlegri heilsu og getu K áður en ákvörðun í máli hennar sé tekin, en hún telji augljóst að hún sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Telji kærendur að Útlendingastofnun hafi gerst sek um valkvætt val á málavöxtum við mat á sérstaklega viðkvæmri stöðu, þar sem svör í viðtölum hjá stofnuninni hafi meira vægi en læknisfræðileg gögn. Kærendur séu nú bæði í lyfjameðferð við [...] og samkvæmt sérfræðingi [...] er mikilvægt að meðferð þeirra verði kláruð hér á landi svo tryggt sé að þau fái viðunandi eftirlit og rétta lyfjagjöf.

Þá gera kærendur athugasemd við trúverðugleikamat í hinum kærðu ákvörðunum. Í fyrsta lagi sé fullyrt að kærendum standi til boða fullnægjandi heilbrigðisþjónusta í Grikklandi. Í heimildum sem kærendur vísa til í greinargerð sinni, m.a. Asylum Information Database (AIDA) og Pro Asyl, komi m.a. fram að aðgengi flóttafólks að heilbrigðisþjónustu í Grikklandi sé afar takmarkað og takmörkunum háð, og það eigi líka við um aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu. Í öðru lagi hafni kærendur þeirri fullyrðingu Útlendingastofnunar að kærendum standi til boða félagsþjónusta í Grikklandi og að þar eigi þau rétt til nauðsynlegrar aðstoðar og framfærslu, m.a. með vísan til framangreindra skýrslna. Kærendur hafi lýst því að eina aðstoðin sem þeim hafi staðið til boða hafi verið takmörkuð framfærsla sem Sameinuðu þjóðirnar hafi veitt. Í þriðja lagi vísi kærendur til þess að þeim verði gert ómögulegt að verða sér úti um atvinnu í Grikklandi. Heimildir sem kærendur vísa til í greinargerð sinni beri með sér að atvinnuleysi meðal flóttafólks í Grikklandi sé mun meira en meðal grísks almennings og grísk stjórnvöld hindri jafnvel flóttafólk að geta unnið eða fá atvinnuleysisbætur með því að synja þeim um skattnúmer. Auk þess sé ljóst að aðgerðir þarlendra stjórnvalda til að berjast gegn fátækt nái eingöngu til þeirra sem tala grísku og þá sé engri skipulagðri aðlögun flóttafólks inn í grísk samfélag til að dreifa. Í fjórða lagi telji kærendur allar líkur vera á því að þau muni standa uppi heimilislaus í Grikklandi verði þeim gert að snúa aftur þangað. Vísi kærendur m.a. í því sambandi til upplýsinga í áðurnefndri skýrslu AIDA, þar sem fram komi að margar hindranir standi flóttafólki í Grikklandi í vegi við að verða sér úti um húsnæði, m.a. stjórnsýslulegar.

Kærendur byggja kröfu sína um að taka skuli mál þeirra til efnismeðferðar hér á landi í fyrsta lagi á því að ótækt sé að beita heimild a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem þau njóti verndar 1. mgr. 42. gr. sömu laga, sbr. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem lögfestur sé hér á landi. Íslenska ríkið sé bundið af grundvallarreglu þjóðaréttar um vísa fólki ekki brott þangað sem líf þess eða frelsi kann að vera í hættu (non-refoulement), sbr. framangreind lagaákvæði. Í athugasemdum í frumvarpi til núgildandi laga um útlendinga hafi vilji löggjafans staðið til þess að árétta að við möguleg brot gegn reglunni um non-refoulement, með endursendingu til annars Evrópuríkis, skuli taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi. Kærendur telji þá túlkun íslenskra stjórnvalda á dómum Mannréttindadómstóls Evrópu vera ranga og að með núverandi framkvæmd firri þau sig ábyrgð skv. framangreindri grundvallarreglu langt umfram efni. Vísi kærendur í því sambandi til nánar tilgreindra dóma Mannréttindadómstólsins sem kærendur telji að sýni að mannréttindasáttmáli Evrópu tryggi umsækjendum um alþjóðlega vernd og flóttafólki ákveðin lífskjör. Þá telji kærendur að það lágmarksalvarleikastig sem Mannréttindadómstóll Evrópu hafi sett og íslensk stjórnvöld vísi oft til kunni að vera hærra en góðu hófi gegnir og sé ekki heldur algilt.

Kærendur telja að við endursendingu til Grikklands muni lífsgæði þeirra ekki aðeins versna verulega heldur muni lífskjör þeirra ná því lágmarki sem 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu verndi. Telji kærendur því ljóst að þau muni standa frammi fyrir ómannúðlegum og vanvirðandi aðstæðum þar í landi, enda munu þau ekki hafa neina von um að aðstæður þeirra vænkist. Kærendur hafi lýst aðstæðum sínum þar í landi. Þau hafi m.a. búið í yfirfullum og heilsuspillandi flóttamannabúðum á Chios, þar sem þau hafi upplifað sinnuleysi stjórnvalda og andúð og fordóma Grikkja.

Kærendur reisa kröfu sína einnig á því að íslenskum stjórnvöldum sé skylt að taka mál þeirra til efnislegrar meðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Vísi kærendur í því sambandi til lagaáskilnaðarreglu 2. málsl. 2. mgr. 66. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 sem og til lögmætisreglunnar. Telji kærendur að nýleg reglugerð nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, brjóti gegn lögmætisreglunni m.a. vegna þess að þar sé að finna skilyrði vegna sérstakra ástæðna sem hafi ekki stoð í settum lögum auk skilyrða sem gangi gegn ákvæðum laga um útlendinga. Kærendur vísi til lögskýringargagna að baki 2. mgr. 36. gr. laganna og kveði að stjórnvöld hafi við túlkun sína á hugtakinu sérstakar ástæður horft í of ríkum mæli til mannréttindasáttmála Evrópu og notað dómafordæmi alþjóðadómstóla til að skerða réttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd. Samkvæmt lögskýringargögnum hafi íslenskum stjórnvöldum ávallt verið eftirlátið mat vegna sérstakra ástæðna og hafi haft heimild til að taka mál til efnismeðferðar umfram það sem leiði af sérstökum reglum, m.a. reglum mannréttindasáttmála Evrópu. Í ljósi markmiðs laga um útlendinga, sbr. 4. mgr. 2. gr. laganna, hafni kærendur því að við mat á sérstökum ástæðum hafi sjónarmið um skilvirkni umsóknarferlisins og mikilvægi samvinnu aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins nokkurt vægi. Þá bendi kærendur á að hvergi í lögskýringargögnum sé að finna kröfur um hátt alvarleikastig erfiðleika, alvarlega mismunun, verulegar og óafturkræfar neikvæðar afleiðingar á andlega eða líkamlega heilsu eða að meðferð sjúkdóms sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Þessar kröfur hafi enga stoð í lögum og gangi gegn lögmætisreglunni. Telji kærendur því að líta beri framhjá umræddri reglugerð við meðferð málsins eða, í öllu falli, að hún skuli túlkuð í samræmi við framangreint.

Kærendur vísa til þess í greinargerð sinni að löggjafinn hafi ítrekað áréttað að umsóknir sérstaklega viðkvæmra einstaklinga eigi að taka til efnismeðferðar hér á landi. Kærendur hafi lýst aðstæðum sínum í Grikklandi og telji fráleitt sé að jafna stöðu þeirra við stöðu almennings í Grikklandi í skilningi 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þau hafi m.a. verið í raun útilokuð frá atvinnuþátttöku, heilbrigðisþjónustu og félagslegri þjónustu vegna uppruna síns, auk þess sem þau hafi orðið fyrir miklum fordómum og sætt alvarlegri mismunun. Telji kærendur því að íslenskum stjórnvöldum sé skylt að taka umsóknir þeirra til efnislegrar meðferðar á grundvelli sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málanna var kærendum veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Hefur K gilt dvalarleyfi þar í landi til 16. maí 2021 og M hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 3. janúar 2020. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærendur njóta í Grikklandi í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kærenda

Samkvæmt gögnum málsins eru kærendur ung, barnlaus hjón.

Af gögnum um heilsufar K má m.a. ráða að hún hafi glímt við [...]. Þá eigi hún við [...] og glími í dag við vandamál tengd því. Kærandi kveðst jafnframt hafa [...].

Í heilsufarsgögnum kemur fram að K hafi leitað á bráða- og göngudeild Landspítalans þann 14. janúar sl. vegna hósta, hita og uppkasta. Kærandi hafi þar verið greind með [...] og legið inni á [...] Landspítala til 26. janúar sl. Þar hafi kærandi hafið [...]. Samkvæmt bréfi frá sérfræðingi í [...] hefur ekki tekist að [...] sem kærandi er smitaður af og því sé ekki jafn öruggt að meðferð virki eins og ef um [...] væri að ræða. Er það mat sérfræðings að þörf sé á nánu eftirliti alla meðferðina, [...]. Þá kemur fram að mikilvægt sé að [...] sjúklingar klári alla meðferðina við sjúkdómnum og missi ekki úr lyfjaskammta, [...].

Í gögnum um heilsufar M kemur m.a. fram að hann hafi glímt við kviðverki og fengið ávísað viðeigandi lyfjum. Þá hafi verið settur á [...].Samkvæmt framangreindu verður ráðið af gögnum málsins að K hafi átt við nokkur veikindi vegna [...] og sé enn í meðferð vegna hennar. Eins og að framan greinir er það mat sérfræðings að þörf sé á nánu eftirliti með kæranda vegna eðlis þeirrar sýkingar sem hún glími við. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum heilsufarsgögnum að K hefur sérþarfir sem taka þarf til við meðferð mála M og K, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem taka þurfi tillit til við meðferð málsins.Fyrir hönd kæranda K er lýst þeirri afstöðu í greinargerð að afla verði sérfræðimats á andlegri heilsu K. Í ljósi framangreinds telur kærunefnd að mál kæranda sé nægilega upplýst er varðar heilsufar hennar, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga, og telur ekki tilefni til að afla sérstaks mats á heilsu kæranda.Aðstæður í GrikklandiKærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2017 Report on International Religious Freedom – Greece (United States Department of State, 29. maí 2018);
  • 2018 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 13. mars 2019);
  • Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Asylum Information Database, National Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, mars 2019);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • ECRI Report on Greece (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 24. febrúar 2015);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Freedom in the World 2018 – Greece (Freedom House, 1. ágúst 2018);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);
  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • UNHCR observations on the current asylum system in Greece (UNHCR, desember 2014);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu, og
  • World Report 2019 – European Union (Human Rights Watch, 17. janúar 2019).

Af ofangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur m.a. bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hafa hlotið alþjóðlega vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt sjálfkrafa aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi eiga rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Á þetta jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í ríkinu.

Sem fyrr segir eiga einstaklingar með alþjóðlega vernd sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar en aðgengi þeirra að húsnæði er háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með löglega dvöl í Grikklandi. Fá gistiskýli eru í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt getur reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem hafa verið sendir til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum.

Í framangreindum gögnum kemur fram að grísk yfirvöld veiti einstaklingum með alþjóðlega vernd sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna. Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði og má sem dæmi nefna að þeir þurfa að hafa kennitölu, skattnúmer, gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Þá kemur fram í fyrrnefndum gögnum að engin sérúrræði eru til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Í framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram á vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem séu þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eigi rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilji.

Þá kemur fram í ofangreindri skýrslu Asylum Information Database að dvalarleyfi einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd eða viðbótarvernd í Grikklandi séu gefin út til þriggja ára í senn. Umsókn um endurnýjun dvalarleyfis þurfi að berast 30 dögum áður en að leyfið renni út en ef umsókn berist eftir þann tíma leiði það þó ekki eitt og sér til þess að umsókn sé synjað. Umsókn sé þá að jafnaði endurnýjuð. Við málsmeðferð umsókna um endurnýjun dvalarleyfis sé þó framkvæmd könnun á sakaferli sem geti leitt til þess að alþjóðleg vernd umsækjanda sé afturkölluð og honum í kjölfarið synjað um endurnýjun dvalarleyfis. Þá sé málsmeðferðartími umsókna um endurnýjun dvalarleyfis u.þ.b. tveir mánuðir en þó séu dæmi um að það tímabil geti lengst upp í sex mánuði, en á meðan umsókn sé í vinnslu fái umsækjendur sérstakt kort sem veiti þeim sömu réttindi og fylgi dvalarleyfinu útgefið til tveggja mánaða.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstólinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við frávísun eða brottvísun frá aðildarríki nái ekki alvarleikastigi 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem stendur til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæltu gegn endursendingu.

Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsókna kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Ekki er fallist á með kærendum að lífskjör þeirra við endursendingu til Grikklands, þ. á m. möguleiki á húsnæði, framfærslu og heilbrigðisþjónustu, séu þess eðlis að þau jafnist á við ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð enda verður ekki séð að kærendur verði í aðstæðum í Grikklandi þar sem þau þurfa að öllu leyti að treysta á framfærslu ríkisins. Þar sem kærendur njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi telur kærunefnd að tryggt sé að þau verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kærenda. Hafa kærendur m.a. borið fyrir sig að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli þeirra vegna heilsufarsvandamála þeirra.

Eins og að framan hefur verið rakið er kærandi K með [...] og í yfirstandandi lyfjameðferð vegna þeirra. Þá er kærandi M [...]. Í áðurnefndu bréfi frá sérfræðilækni á Landspítala, dags. 21. mars 2019, kemur m.a. fram að það „væri í allra hag“ ef K fengi að klára lyfjameðferðina í þeirra umsjá til að tryggja örugga lyfjameðferð og eftirlit. Annars væri mikilvægt að tryggja að hún kæmist í skjótt og öruggt eftirlit heilbrigðisyfirvalda í því landi sem hún færi til. Í ljósi framangreinds óskaði kærunefnd eftir upplýsingum frá stoðdeild ríkislögreglustjóra sem annast framkvæmd ákvarðana um frávísun og brottvísun ásamt Útlendingastofnun, sbr. 7. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Í svari, dags. 6. maí 2019, kemur m.a. fram að stoðdeild væri í sambandi við heilbrigðisyfirvöld í Grikklandi og gæti komið skilaboðum til grískra heilbrigðisyfirvalda varðandi K. Myndi stoðdeild því óska eftir því við grísk yfirvöld að heilbrigðisstarfsmaður yrði viðstaddur við komu þangað sem tæki á móti K.

Í ljósi þessara upplýsinga telur kærunefnd að K hafi aðgang að viðhlítandi aðstoð í Grikklandi vegna [...] og annarra heilsufarsvandamála, en af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi verður ráðið að kærendur eigi rétt á endurgjaldslausri heilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Með hliðsjón af framangreindu er það mat kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að meðferð við veikindum kærenda sé aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í máli kærenda er varða heilsufar þeirra sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Þrátt fyrir ýmsar aðgangshindranir hafa kærendur heimild til að stunda atvinnu í Grikklandi og eiga rétt á félagslegri aðstoð til jafns við gríska ríkisborgara. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að kærendur geti leitað ásjár grískra yfirvalda, verði þau fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærendur um öryggi sitt geti þau leitað til lögreglu eða annarra þar til bærra stjórnvalda vegna þess. Að mati kærunefndar bera gögn málsins því ekki með sér að kærendur muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærendur geti af sömu ástæðu vænst þess að staða þeirra verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál þeirra verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærendur kváðust í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 5. febrúar 2019 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málanna sem bendir til þess að þau hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í málum kærenda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að þau sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi, en þau lögðu fram umsóknir sínar þann 29. júlí 2018.

Athugasemdir við ákvarðanir Útlendingastofnunar

Eins og að framan greinir verður ráðið af gögnum málsins að K hafi haft umtalsverða þörf fyrir sérhæfða meðferð [...] og því með sérþarfir sem taka hefur þurft tillit til við meðferð máls hennar hér á landi, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Í hinum kærðu ákvörðunum Útlendingastofnunar er að finna almenna umfjöllun um aðgengi einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi að heilbrigðiskerfi landsins. Þar er aftur á móti engin umfjöllun um þær aðstæður sem bíða kærenda í Grikklandi m.t.t. meðferðar við [...], þ.m.t. hvort þau muni geta haldið áfram læknismeðferð sinni þar í landi. Telur kærunefnd að gögn málsins beri með sér að fullt tilefni hafi verið til þess að Útlendingastofnun rannsakaði þetta atriði sérstaklega og gerði grein fyrir því í rökstuðningi, sbr. 10. gr. og 22. gr. stjórnsýslulaga. Kærunefnd telur þó ekki tilefni til að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi vegna framangreinds enda hafi verið bætt úr þessum ágöllum við meðferð málsins á kærustigi.

Að öðru leyti telur kærunefnd ekki tilefni til að gera athugasemd við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun. Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kærenda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg en áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar að reglugerðina skortir ekki lagastoð. Þá hefur kærunefnd endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kærenda.

Frávísun

Samkvæmt gögnum máls komu kærendur hingað til lands þann 29. júlí 2018 og sóttu um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hafa þau því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kærendum því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda höfðu þau verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsókna þeirra hófst hjá Útlendingastofnun.

Í ljósi framangreinds og með vísan til þess að kærendur hafa þörf fyrir tiltekna meðferð samkvæmt áðurnefndu bréfi sérfræðilæknis á Landspítala, dags. 21. mars 2019, telur kærunefnd æskilegt að flutningur kærenda verði ekki framkvæmdur fyrr en nauðsynlegt er svo kærandi K geti notið eftirfylgni heilbrigðisyfirvalda hér á landi eftir því sem unnt er. Þá telur kærunefnd mikilvægt að þau stjórnvöld sem annast flutning á kærendum miðli upplýsingum um heilsufar kærenda til grískra yfirvalda tímanlega áður en flutningur fer fram svo þarlend yfirvöld hafi nægilegt ráðrúm til að bregðast við komu þeirra til Grikklands.  

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvarðanir Útlendingastofnunar.

Athygli kærenda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.

 

Anna Tryggvadóttir

Árni Helgason                                                                        Hilmar Magnússon


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta