Mannanafnanefnd, úrskurður 6. október 2010
Mál nr. 83/2010 Eiginnafn: Björney
Hinn 6. október 2010 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 83/2010 en erindið barst nefndinni þann sama dag:
Eiginnafnið Björney (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Björneyjar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Björney (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.