Hoppa yfir valmynd

Nr. 89/2018 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 22. febrúar 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 89/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18020001

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 1. febrúar 2018 kærði maður er kveðst heita […], vera fæddur […], og vera ríkisborgari Georgíu (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 24. janúar 2018, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga. Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér ásamt eiginkonu sinni.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og honum verði veitt staða flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. 

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi þann 14. apríl 2017. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun m.a. þann 21. september 2017 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 24. janúar 2018, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála þann 1. febrúar 2018. Kærunefnd barst greinargerð kæranda þann 8. febrúar 2018.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Við meðferð máls kæranda hjá Útlendingastofnun byggði hann umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann væri í hættu í heimaríki sínu vegna ofsókna fyrrum maka eiginkonu sinnar og að honum standi ekki til boða viðeigandi vernd lögreglu.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi sé ekki flóttamaður og honum skuli synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi skv. ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Kæranda var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda er vísað til viðtals hjá Útlendingastofnun þar sem kærandi greindi frá ástæðum flótta síns. Er þess getið að núverandi eiginkona kæranda hafi áður verið í sambandi með manni og eignast með honum barn. Samband eiginkonu kæranda við fyrrum maka hennar hafi ekki gengið vel. Hann hafi til að mynda ekki sýnt neina viðleitni til að afla sér lífsviðurværis í þeim tilgangi að framfleyta sér og fjölskyldu sinni og þá hafi hann beitt eiginkonu kæranda ofbeldi og hótunum. Með nokkrum erfiðleikum hafi eiginkonu kæranda þó tekist að slíta sambandinu. Síðar hafi kærandi kynnst eiginkonu sinni og hafi þau byrjað að búa saman. Fyrrum maki eiginkonu hans hafi ofsótt þau undanfarin ár. Hann hafi m.a. hótað kæranda og barni eiginkonu hans og jafnframt ógnað kæranda með skotvopni og hleypt af því út í loftið. Hegðun fyrrum maka eiginkonu kæranda hafi leitt til þess að kærandi hafi misst viðskiptavini í litlu fyrirtæki sem hann hafi rekið og síðar þurft að selja það.

Kærandi og eiginkona hans hafi margoft leitað til lögreglu eftir vernd en án tilætlaðs árangurs. Lögreglan skipti sér almennt ekki af málum sem varði deilur á milli hjóna, hvort sem það sé milli giftra eða fráskilinna einstaklinga. Þá hafi fyrrum maki eiginkonu kæranda áður starfað sem lögreglumaður og hafi því ítök í lögreglunni sem geri það að verkum að kærandi eða eiginkona hans fái ekki viðhlítandi aðstoð. Kærandi telji georgísk lög ekki vernda konur gegn heimilisofbeldi með fullnægjandi hætti. Vegna hótana fyrrum maka eiginkonu kæranda óttist kærandi um líf sitt og jafnvel að makinn beiti börn kæranda ofbeldi, en kærandi eigi tvö börn úr fyrra sambandi.

Í umfjöllun um aðalkröfu kæranda um vernd sem flóttamaður samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, er fjallað um stöðu mannréttindamála í heimaríki kæranda með hliðsjón af alþjóðlegum skýrslum. Segir m.a. að þrátt fyrir að miklar framfarir hafi átt sér stað hjá yfirvöldum við að koma á umbótum hjá lögreglunni og auka fagmennsku þá sé verk óunnið við að hindra brotastarfsemi með áhrifaríkum hætti og að tryggja að skilvirkar sakamálarannsóknir fari fram í kjölfar afbrota. Þá séu opinberar fjárveitingar til lögreglu ófullnægjandi og t.d. sé þjálfun lögreglumanna oft misgóð. Vandamál tengd mannréttindum í heimaríki kæranda séu m.a. annmarkar á dómskerfinu, ósamræmi í viðbrögðum stjórnvalda í tengslum við ofbeldi eða misnotkun, takmarkað frelsi fjölmiðla og skorður á funda- og félagafrelsi og spilling yfirvalda. Ennfremur segir að stjórnvöld hafi ekki með fullnægjandi hætti reynt að sporna gegn samfélagslegri mismunun gegn konum og einstaklingum af þjóðernis-, trúar- eða öðrum minnihluta vegna kynhneigðar.

Kærandi reisir aðalkröfu sína um vernd samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á ofsóknum sem hann verði fyrir af hálfu fyrrum maka eiginkonu sinnar og aðgerðarleysi lögreglu. Til stuðnings kröfu sinni vísar kærandi til handbókar Flóttamannastofnunarinnar um réttarstöðu flóttamanna. Ljóst sé að eiginkona kæranda verði fyrir ofsóknum sem grundvallist á kynferði hennar og skorti á vernd gegn heimilisofbeldi í heimaríki þeirra. Kærandi fjallar um athugasemdir sem fylgdu með frumvarpi til núgildandi laga um útlendinga varðandi ákvæði 38. gr. laganna. Bendir kærandi m.a. á að þar sé gert ráð fyrir að samsafn athafna geti haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling og athafnir sem taldar séu upp í 1. málsl. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Í leiðbeiningum Flóttamannastofnunarinnar sé m.a. kveðið á um að til samsafnaðra ástæðna geti talist mismunun sem sé samtvinnuð öðru mótlæti, t.d. slæmu öryggisástandi í viðkomandi landi. Hvort ráðstafanir sem feli í sér mismunun jafngildi ofsóknum verði að meta með tilliti til aðstæðna hverju sinni. Þá vísar kærandi ennfremur m.a. til 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga þar sem segi að ofsóknir geti m.a. falist í andlegu, líkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi og löggjöf og aðgerðum stjórnvalda, lögreglu eða dómstóla, sem feli í sér mismunun að efni eða vegna þess hvernig þær séu framkvæmdar. Með því að senda kæranda aftur til heimaríkis yrði brotið gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga sem og m.a. 1. mgr. 68. gr. íslensku stjórnarskrárinnar og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Kærandi vekur athygli á að í rökstuðningi Útlendingastofnunar í hinni kærðu ákvörðun komi fram að kærandi hafi ekki lagt fram gögn máli sínu til stuðnings. Kærandi bendir m.a. á að eðli málsins samkvæmt sé erfitt að leggja fram gögn þegar um heimilisofbeldismál sé að ræða milli hjóna og vernd lögreglunnar lítil sem engin. Þá gagnrýnir kærandi þann rökstuðning stofnunarinnar að ekki sé hægt að fella umrætt ofbeldi undir heimilisofbeldi þar sem eiginkona kæranda hafi farið frá maka sínum fyrir 8 árum. Bendir kærandi m.a. á að ekki ætti að skipta máli hvort framangreint ofbeldi falli undir óskilgreinda afmörkun Útlendingastofnunar á heimilisofbeldi heldur hvort kærandi hafi orðið fyrir ofsóknum og ofbeldi í heimaríki án þess að fá vernd yfirvalda.

Varakrafa kæranda, um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga, er reist á sams konar sjónarmiðum og aðalkrafa, og vísar kærandi í lögskýringargögn sem liggja að baki ákvæðinu. Tekur kærandi fram að meginástæða flótta hans frá heimaríki sé ofbeldi og ofsóknir fyrrum maka eiginkonu hans og tengsl hans við lögregluna á svæðinu. Með hliðsjón af því sem kærandi hafi rakið telji hann að skilyrði þess að fá dvalarleyfi vegna mannúðarsjónarmiða séu uppfyllt. Kærandi telur að flutningur innanlands í heimaríki hans, sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, geti ekki komið til greina. Hann sé ekki öruggur í heimaríki sínu þar sem fyrrum maki eiginkonu hans hafi tengsl við lögreglu og þá sé heimaríki hans tiltölulega lítið land og engin leið að fara þar huldu höfði.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Kærandi hefur ekki lagt fram gögn til að sýna fram á auðkenni sitt. Hann kveðst vera fæddur og uppalinn í borginni Rustavi í Georgíu þar sem hann hafi búið áður en hann hafi flúið heimaríki sitt. Í ákvörðun Útlendingastofnunar var leyst úr auðkenni kæranda á grundvelli trúverðugleikamats og lagt til grundvallar að kærandi væri frá Georgíu. Kærunefnd telur ekkert hafa komið fram í málinu sem gefur tilefni til að draga í efa þjóðerni kæranda og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé georgískur ríkisborgari. Óvíst er þó að öðru leyti hver kærandi sé.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Georgíu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • Amnesty International Report 2016/2017: Georgia (Amnesty International, 22. febrúar 2017);
  • Council of Europe – Action Plan for Georgia 2016-2019 (Council of Europe, 25. febrúar 2016);
  • Corruption prevention in respect of members of parliament, judges and prosecutors (Group of States Against Corruption, Council of Europe, 17. janúar 2017);
  • Freedom in the World 2017 - Georgia (Freedom House, 1. september 2017);
  • Georgia - Country Reports on Human Rights Practices for 2016 (U.S. Department of State, 3. mars 2017);
  • Georgia 2017 Crime and Safety Report (OSAC, mars 2017);
  • Georgia: Korrupsjon i politi og rettsvesen (Landinfo, 9. mars 2017);
  • Georgia: Situasjonen for politisk opposisjonelle UNM medlemmer (Landinfo, 23. mars 2017);
  • Joint Staff Working Document – Association Implementation Report on Georgia (European Commission, 25. nóvember 2016);
  • National Strategy for the Protection of Human Rights in Georgia 2014-2020 (Ministry of Internal Affairs in Georgia, 17. september 2015);
  • Nations in Transit 2017 - Georgia (Freedom House, 9. maí 2017);
  • Report on Progress in the Implementation of the National Strategy for the Protection of Human Rights in Georgia 2014-2020 (United States Agency for International Development (USAID, mars 2017);
  • Second Report Submitted by Georgia Pursuant to Article 25, Paragraph 2 of the Framework Convention for the Protection of National Minorities (Council of Europe, 30. maí 2012);
  • Special Report on Combating and Preventing Discrimination and the Situation of Equality (Public Defender (Ombudsman of Georgia, september 2016);
  • World Report 2017 – Georgia (Human Rights Watch, 12. janúar 2017);
  • Temarapport: Georgien - Politiskt motiverade repressalier och våld mot oppositionella (version 1.0) (Lifos, 30. maí 2017);
  • Temarapport: Georgien – Rätts- och säkerhetssektorn (Lifos, 3. október 2017);
  • 10 December Report on the situation of Protection of Human Rights and Freedoms in Georgia 2016 (Public Defender of Georgia, 2016).

Georgía er lýðræðisríki með um 3,7 milljónir íbúa. Georgía gerðist aðili að Evrópuráðinu árið 1999 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu það sama ár. Georgía gerðist aðili að flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna þann 9. ágúst 1999, alþjóðasamningi um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi þann 3. ágúst 1994 og samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu þann 8. júlí 2005. Þann 1. júlí 2016 gekk í gildi samstarfssamningur milli Evrópusambandsins og Georgíu. Með þeim samningi hefur Georgía meðal annars skuldbundið sig til að efna víðtækar skuldbindingar á sviði lýðræðis, mannréttinda og réttarríkis. Þá var samningur Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi gegn konum og heimilisofbeldi (svonefndur „Istanbúl samningur“) undirritaður af hálfu georgíska ríkisins þann 19. júní 2014 og fullgiltur 19. maí 2017. Þann 19. júlí 2017 setti Útlendingastofnun Georgíu á lista stofnunarinnar yfir örugg upprunaríki.

Í ofangreindum gögnum kemur fram að stjórnarskrá Georgíu kveði á um jafnrétti allra fyrir lögunum og mismunun á grundvelli kynþáttar, litarháttar, tungumáls, kyns, trúar- og lífsskoðana, stjórnmálaskoðana, þjóðernis, félagslegrar stöðu eða tengsla, uppruna, búsetu eða efnahagslegrar stöðu sé refsiverð skv. refsilöggjöf landsins. Umboðsmaður (e. Public Defender (Ombudsman)) hafi verið starfandi í Georgíu frá árinu 1997. Umboðsmaðurinn hafi eftirlit með mannréttindum og frelsi borgaranna í Georgíu innan lögsögu ríkisins. Samkvæmt 2. mgr. 6. gr. stjórnarskrár Georgíu gangi alþjóðasamningar, sem fullgiltir hafi verið af hálfu Georgíu, framar landslögum. Svo framarlega sem slíkir samningar gangi ekki gegn stjórnarskrá landsins sé hægt að beita þeim sem hluta af almennri löggjöf.

Þá komi fram í ofangreindum gögnum að spilling sé þó nokkur í georgíska stjórnkerfinu. Yfirvöld hafi hins vegar gripið til ýmissa aðgerða til að sporna við spillingu og hafi miklar framfarir átt sér stað á undanförnum árum, m.a. hafi verið sett á fót sérstök landsáætlun til að sporna við skipulögðum glæpum í landinu fyrir árin 2015-2018. Þá beri stjórnvöldum að taka allar tilkynningar um misferli lögreglu til skoðunar og aðili sem telji að brotið sé á réttindum sínum geti kært til æðra stjórnvalds eða farið með mál sitt fyrir dómstóla. Einnig komi fram að stofnun sem heyri undir innanríkisráðuneyti landsins (e. General Inspection Department) sé ábyrg fyrir því að rannsaka brot sem framin séu af lögreglumönnum og hafi sú stofnun heimild til að beita agaviðurlögum. Frjáls félagasamtök líkt og GYLA (e. Georgian Young Lawyer Association) hafi hins vegar gagnrýnt þetta fyrirkomulag og bendi m.a. á að stjórnvöld hafi ekki alltaf rannsakað málin með fullnægjandi hætti.

Ákvæði 1 mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Til að teljast flóttamaður hér á landi þarf kærandi að sýna fram á að aðstæður hans séu slíkar að þær falli undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna, eða 2. mgr. 37. gr. sömu laga. Kærandi byggir á því að hann sæti ofsóknum af hálfu fyrrum maka eiginkonu sinnar og enga aðstoð sé að fá hjá lögregluyfirvöldum í heimaríki hans.

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a.   ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c.   aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Almennt ber að telja ótta umsækjanda um alþjóðlega vernd ástæðuríkan ef hann getur á nægilega skýran hátt sýnt fram á að áframhaldandi dvöl í heimaríki sé honum óbærileg af ástæðum sem tilgreindar eru í 1. mgr. 37. gr. eða yrði óbærileg af sömu ástæðum ef hann sneri aftur. Hugtakið „ástæðuríkur ótti við ofsóknir“ inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn a.m.k. að sýna fram á að ákveðnar líkur séu á að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2011). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærandi hefur borið fyrir sig að hann sé í hættu í heimaríki vegna ótta við ofbeldi af hálfu fyrrum maka eiginkonu hans sem ofsæki sig. Hafi hann m.a. hótað kæranda, ógnað honum með skotvopni og grafið undan fyrirtækjarekstri hans. Kærandi hafi ítrekað leitað til lögregluyfirvalda en það hafi ekki borið tilætlaðan árangur. Kærandi telji að verði hann sendur aftur til heimaríkis muni ofsóknirnar halda áfram.

Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða áreiti af hendi yfirvalda í heimaríki. Enn fremur benda gögn ekki til þess að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir yfirvalda eða aðila á þeirra vegum. Þá benda þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér til þess að almennt geti ríkisborgarar Georgíu sem telji að á réttindum sínum hafi verið brotið leitað aðstoðar og verndar yfirvalda þar í landi og fengið lausn sinna mála. Í Georgíu sé til staðar kerfi sem þeir geti leitað til sem telji sig hafa verið beitta órétti af lögreglu. Hægt sé m.a. að leita til stofnunar sem heyri undir innanríkisráðuneyti landsins sem og umboðsmanns. Af þeim gögnum sem kærunefndin hefur tekið til skoðunar má ráða að þessi úrræði séu almennt raunhæf og árangursrík þó svo að úrbóta sé enn þörf að mati umboðsmanns (e. Public Defender (Ombudsman) of Georgia) og frjálsra félagasamtaka í landinu.

Engin gögn liggja fyrir sem benda til þess að kærandi geti ekki nýtt sér þá vernd sem georgísk yfirvöld veita almennt borgurum sínum. Þá hefur ekki verið sýnt fram á að stjórnvöld geti ekki eða vilji ekki veita kæranda viðeigandi vernd, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir athafnir sem gætu falið í sér ofsóknir, sbr. 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærandi hefur því raunhæfan möguleika á því að leita sér ásjár stjórnvalda þar í landi, ef hann telur sig þurfa á aðstoð þeirra að halda. Þá bendir kærunefnd til hliðsjónar á að samkvæmt frásögn kæranda hefur hann notið nokkurrar aðstoðar lögreglu en fyrrum maki eiginkonu hans hafi m.a. verið færður niður á lögreglustöð og látinn skrifa undir skjöl þess efnis að hann myndi láta af háttsemi sinni. 

Með vísan til alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki á nægilega skýran hátt sýnt fram á að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 4. mgr. 38. gr. laganna. Kærandi uppfylli því ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laganna fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefndin að aðstæður hans þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 6. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal stjórnvald sem kemst að því að ákvæði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna eigi ekki við um útlending að eigin frumkvæði taka til skoðunar hvort veita eigi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. sömu laga. Þrátt fyrir að orðalag 1. mgr. 74. gr. kveði ekki með skýrum hætti á um veitingu dvalarleyfis má skilja af athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga nr. 80/2016, fyrirsögn greinarinnar og af 6. mgr. 37. gr. laganna að það hafi þó verið ætlunin með ákvæðinu. Kærunefnd telur því rétt að túlka ákvæðið sem heimild til veitingar dvalarleyfis þegar skilyrði þess eru uppfyllt.

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga má líta til mannúðarsjónarmiða ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Þá er einnig greint frá því í athugasemdum við 74. gr. í greinargerð með frumvarpi til laga um útlendinga að með erfiðum almennum aðstæðum að öðru leyti sé einnig vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu eða þá aðstöðu að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Kærandi kveður sig ekki geta leitað aðstoðar georgískra lögregluyfirvalda þar sem lögreglan skipti sér almennt ekki af málum tengdum heimilisofbeldi og þá hafi fyrrum maki eiginkonu hans ítök í lögreglunni. Svo sem fram hefur komið metur kærunefnd það svo, á grundvelli fyrirliggjandi gagna, að kæranda standi til boða úrræði í heimaríki hans sem feli í sér viðeigandi vernd. 

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 26. apríl 2017 vera við góða líkamlega og andlega heilsu. Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Bann við endursendingu skv. 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli kæranda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

Frávísun og frestur til að yfirgefa landið

Kærandi kom hingað til lands þann 7. apríl 2017 og sótti um alþjóðlega vernd þann 14. apríl s.á. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um vernd og dvalarleyfi hér á landi verið synjað og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi kom hingað til lands ásamt eiginkonu sinni. Kærandi er við ágæta heilsu og kemur frá öruggu upprunaríki. Kærandi skal yfirgefa landið innan þess tímamarks sem kveðið er á um í úrskurðarorði.

Athygli kæranda er vakin á því að ef hann yfirgefur ekki landið innan frests kann að vera heimilt að brottvísa honum. Brottvísun felur í sér bann við komu til landsins síðar og skal endurkomubann að jafnaði ekki gilda skemur en tvö ár, sbr. a-lið 2. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

 

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Lagt er fyrir kæranda að hverfa af landi brott. Kæranda er veittur 7 daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljugur.

 

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. The appellant is requested to leave the country. The appellant has 7 days to leave the country voluntarily.

 

 

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

 

 

Anna Tryggvadóttir                                                                    Pétur Dam Leifsson

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta