Mál nr. 73/2012, úrskurður 11. desember 2012
Mál nr. 73/2012 Eiginnafn: Adelía
Hinn 11. desember 2012 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr.73/2012 en erindið barst nefndinni 26. nóvember:
Eiginnafnið Adelía (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Adelíu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Adelía (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.