Mál nr. 75/2012, úrskurður 11. desember 2012
Mál nr. 75/2012 Eiginnafn: Kjói
Hinn 11. desember 2012 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 75/2012 en erindið barst nefndinni 29. nóvember:
Eiginnafnið Kjói (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Kjóa, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Kjói (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.