Hoppa yfir valmynd

Nr. 427/2019 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 12. september 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 427/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19060011

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 4. júní 2019 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 20. maí 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Þess er krafist að hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsóknir kæranda og barns hans um alþjóðlega vernd á Íslandi til efnismeðferðar á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 9. desember 2018 ásamt eiginkonu sinni og barni (hér eftir A). [...].

Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann 11. desember 2018, kom í ljós að fingraför hans höfðu m.a. verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Frakklandi. Þann 9. janúar 2019 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Frakklandi, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá frönskum yfirvöldum, dags. 15. janúar 2019, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli b-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 20. maí 2019 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 20. maí 2019 og kærði kærandi ákvörðunina þann 4. júní 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 18. júní 2019 ásamt fylgigögnum.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að frönsk stjórnvöld bæru ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Frakklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Frakklands.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kemur fram að kærandi og fjölskylda hans hafi kunnað vel við sig í Frakklandi, en þau hafi flúið landið af sömu ástæðu og þau hafi flúið heimaríki, þ.e. vegna ofsókna fjölskyldu eiginkonu hans.

Í greinargerð sinni gerir kærandi athugasemdir við hina kærðu ákvörðun, einkum að Útlendingastofnun hafi ekki fjallað nægilega ítarlega um hagsmuni barns kæranda, A sem sé [...] ára gamall. A eigi rétt á einstaklingsbundnu mati sem mælt sé fyrir um í lögum um útlendinga og að mati kæranda sé nauðsynlegt að meta einstaklingsbundið hvað sé A fyrir bestu og tryggja svo einingu fjölskyldunnar. Kærandi vísi til þess að börn teljist ávallt til sérstaklega viðkvæms hóps umsækjenda um alþjóðlega vernd, hvort sem þau séu í fylgd umönnunaraðila sinna eða ekki, og sé íslenskum stjórnvöldum ávallt skylt að hafa það sem barni sé fyrir bestu í forgangi þegar ákvarðanir eru teknar um málefni þess, sbr. 3. mgr. 76. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, sbr. einnig 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003. Þá vísar kærandi til samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, en samkvæmt honum sé íslenskum stjórnvöldum skylt að gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn, sem leitar eftir réttarstöðu sem flóttamaður, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eiga og kveðið sé á um í samningnum og öðrum alþjóðlegum löggerningum á sviði mannréttinda- eða mannúðarmála sem ríkið sé aðili að. Kærandi vísar enn fremur til ákvæða laga um útlendinga, nánar tilgreindra tilskipana Evrópuþingsins og ráðsins sem og Dyflinnarreglugerðarinnar um að aðildarríkjum beri skylda að hafa það sem barni sé fyrir bestu í forgangi. Kærandi telji það A ekki fyrir bestu að senda hann til Frakklands, jafnvel þótt hann verði í fylgd föður síns, heldur sé honum tvímælalaust fyrir bestu að íslensk stjórnvöld taki mál allrar fjölskyldunnar til efnislegrar meðferðar hér á landi og veiti þeim alþjóðlega vernd.

Kærandi vísar þá til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar að því er varðar aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í Frakklandi.

Krafa kæranda er reist á því að íslenskum stjórnvöldum sé skylt að taka mál fjölskyldunnar allrar til efnislegrar meðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi fjallar almennt um sérstakar ástæður í greinargerð sinni og vísar annars vegar til lagaáskilnaðarreglu 2. mgr. 66. gr. stjórnarskrárinnar og hins vegar til lögmætisreglunnar í því sambandi, en kærandi telji að reglugerð nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga, brjóti gegn lögmætisreglunni í ljósi þröngra skorða lagaáskilnaðarreglunnar. Telji kærandi að í umræddri reglugerð sé að finna skilyrði vegna sérstakra ástæðna sem hafa enga stoð í lögum og gangi gegn lögmætisreglunni.

Þá telji kærandi að stjórnvöld hafi, við túlkun hugtaksins sérstakar ástæður, horft í of ríkum mæli til skilgreiningar mannréttindasáttmála Evrópu á mörkum 3. gr. sáttmálans og notað dómafordæmi alþjóðadómstóla til að skerða réttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd til að fá mál sín tekin til efnislegrar meðferðar á grundvelli sérstakra ástæðna, sem kærandi telji að gangi m.a. gegn 17. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Í ljósi markmiðs gildandi laga um útlendinga, sbr. 4. mgr. 2. gr. laganna, hafni kærandi því alfarið að við mat á sérstökum ástæðum skuli sjónarmið um skilvirkni umsóknarferlisins og mikilvægi samvinnu aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins hafa nokkurt vægi. Þá telji kærandi að við mat á sérstökum ástæðum skuli litið til viðkvæmrar stöðu umsækjanda um alþjóðlega vernd og vísi hann til lögskýringargagna að baki 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga máli sínu til stuðnings, en kærandi telji að lögskýringargögn beri það með sér að stjórnvöldum sé eftirlátið mat og að þau hafi heimild til að taka mál til efnismeðferðar umfram það sem leiði af sérstökum reglum, m.a. reglum mannréttindasáttmála Evrópu.

Kærandi vísar þá til þess að Útlendingastofnun hafi metið kæranda og A í sérstaklega viðkvæmri stöðu, m.a. með vísan til læknisfræðilegra gagna. Telji kærandi að lögskýringargögn hafi ítrekað áréttað að mál einstaklinga í viðkvæmri stöðu eigi að taka til efnismeðferðar hér á landi. Þá telji kærandi fráleitt að jafna stöðu feðganna við stöðu almennings í skilningi 32. gr. a reglugerðar nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga. Þeirra bíði töluverð óvissa þar í landi og mikið óöryggi, einkum m.t.t. líkamlegra veikinda A. [...].

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Frakklands á umsókn kæranda er byggð á b-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi sé með umsókn um alþjóðlega vernd til meðferðar þar í landi. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja frönsk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi rúmlega þrítugur karlmaður sem sótti um alþjóðlega vernd hér á landi ásamt eiginkonu sinni og [...] syni, A. Í framlögðum heilsufarsgögnum kemur fram að kærandi sé almennt heilbrigður karlmaður [...].[...]. Þótt leyst sé úr málum fjölskyldunnar í tveimur úrskurðum haldast mál kæranda og sonar hans í hendur. Útlendingastofnun mat kæranda og son hans í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga og hefur kærunefnd ekki forsendur til að breyta því mati.

Aðstæður í Frakklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Frakklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2019 Country Reports on Human Rights Practices – France (United States Department of State, 13. mars 2019),
  • 4th quarterly activity report 2016 by Nils Muižnieks, Council of Europe Commissioner for Human Rights (1 October to 31 December 2016) (Council of Europe, 22. febrúar 2017),
  • Amnesty International Report 2017/18 – France (Amnesty International, 22. febrúar 2018),
  • Annual Report 2017 – Paris (International Committee of the Red Cross (ICRC), 13. júní 2018),
  • Applying for asylum in France (Groupe d‘information et de soutien des immigrés, http://www.gisti.org. Síðast uppfært 18. apríl 2019),
  • Asylum Information Database, Country Report – France (European Council on Refugees and Exiles, 20. mars 2019),
  • France - Country report - Non-discrimination (European Commission, 12. september 2017),
  • First Steps for Demanding Asylum (Dom‘Asile, nóvember 2015),
  • Freedom in the World 2018 – France (Freedom House, 28. maí 2018),
  • Guide for Asylum Seekers in France (Ministry of the Interior, General Directorate for Foreign Nationals in France, 1. nóvember 2015),
  • Stjórnarskrá Frakklands (aðgengileg á ensku á vefsíðu stjórnlagaráðs Frakklands, http://www.conseil-constitutionnel.fr/),
  • Universal Periodic Review. National report submitted in accordance with paragraph 5 of the annex to Human Rights Council resolution 16/21 – France (United Nations Human Rights Council, 13. nóvember 2017),
  • Vefsíða innanríkisráðuneytis Frakklands (https://www.police-nationale.interieur.gouv.fr) og
  • World Report 2019 – European Union (Human Rights Watch, 17. janúar 2019).

Í framangreindum gögnum kemur fram að þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd eru sendir til Frakklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar fær umsókn þeirra hefðbundna meðferð í hæliskerfi landsins. Umsækjendur geta sótt um alþjóðlega vernd hjá stjórnsýslustofnun (f. Préfecture) eða þar til bærum undirstofnunum. Umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga rétt á viðtali hjá sérstakri stofnun (f. Office français de l’immigration et de l’intégration (OFII)) þar sem fram fer greining á því hvort umsækjandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu eða hafi sérstakar þarfir. Önnur stjórnsýslustofnun, OFPRA (f. Office français de protection des réfugiés et des apatrides), tekur svo efnisákvörðun í málinu.

Umsækjendur sem hafa fengið synjun á umsókn sinni hjá OFPRA geta kært niðurstöðuna til sérstaks stjórnsýsludómstóls (f. Cour nationale du droit d’asile (CNDA)). Kæra til dómstólsins frestar almennt réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar, en dómstóllinn endurskoðar bæði málsástæður og lagarök í hverju máli. Niðurstöðu CNDA er hægt að áfrýja til héraðsdómstóls (f. Conseil d’Etat) þar sem fram fer formleg endurskoðun. Þeim umsækjendum sem synjað hefur verið um alþjóðlega vernd eiga möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggja fyrir í máli umsækjenda geta skilyrði viðbótarumsóknar verið uppfyllt. Þá eiga umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brýtur í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Umsækjendur um alþjóðlega vernd í Frakklandi eiga almennt ekki rétt á lögfræðiaðstoð við að leggja fram umsókn sína. Þegar umsókn hefur verið lögð fram geta þeir þó óskað eftir gjaldfrjálsri lögfræðilegri aðstoð á grundvelli efnahags, en slíka beiðni skal leggja fram hjá þar til bærri skrifstofu hjá stjórnsýsludómstól. Umsækjendur geta einnig leitað aðstoðar hjá frjálsum félagasamtökum sem veita lögfræðilega aðstoð, þ. á m. í viðtölum umsækjenda hjá OFII og OFPRA. Þá eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd einnig rétt á lögfræðiaðstoð við áfrýjun neikvæðrar niðurstöðu þeirra til CNDA stjórnsýsludómstólsins, en slík aðstoð er í mörgum tilvikum gjaldfrjáls. Umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga einnig rétt á að því að hafa túlk viðstaddan málsmeðferðina.

Í skýrslu Asylum Information Database frá 20. mars 2019 kemur fram að umsækjendur eigi möguleika á að fá húsaskjól í hefðbundnum móttökumiðstöðvum, CADA (f. Centre d‘accueil de demandeurs d‘asile) eða í tímabundnum miðstöðvum. Þeir sem eru endursendir til Frakklands geta leitað til móttökumiðstöðvanna AT-SA (f. Accueil temporaire – serivce de l‘asile), PRADHA (f. d’accueil et d’hébergement des demandeurs d’asile), CAO (f. Centre d’accueil et d’orientation) eða HUDA (f. hébergement d‘urgence dédié aux demandeurs d‘asile). Árið 2017 var einnig komið á fót tímabundnum úrræðum, CAES (f. centres d‘accueil et d‘examen de situation administrative), þar sem einstaklingar geta verið á meðan beðið er eftir úthlutun á gistirými í hefðbundnum móttökumiðstöðvum. Sökum mikils álags á hæliskerfinu í Frakklandi hefur þó reynst nokkur bið á því að umsækjendur komist að í móttökumiðstöðvum. Umsækjendur sem fá úthlutað gistirými í þessum miðstöðvum fá gefin út vottorð um búsetu (f. attestation de domiciliation) sem gildir í eitt ár, en slíkt vottorð gerir umsækjendum m.a. kleift að stofnað bankareikning og fá greiðslukort. Fái umsækjendur ekki pláss í framangreindum miðstöðvum geti umsækjendur leitað til frjálsra félagasamtaka sem bjóða m.a. upp á lögfræðiaðstoð í tengslum við umsóknir um alþjóðlega vernd, líkt og áður hefur komið fram.

Þá kemur fram í skýrslu Asylum Information Database að fjölskyldur og einstæðir foreldrar með börn njóti forgangs þegar kemur að úthlutun á húsnæði og margar móttökumiðstöðvar eru sérstaklega skipulagðar til að taka á móti fjölskyldum. Að öllu jöfnu eru fjölskyldur vistaðar saman í húsnæði á meðan umsókn þeirra um alþjóðlega vernd er til meðferðar. Sé nauðsynlegt að vista fjölskyldur í neyðarskýli eru herbergi kynjanna þó stundum aðskilin.

Í fyrrgreindum skýrslum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda í Frakklandi kemur fram að umsækjendum um alþjóðlega vernd þar í landi er tryggður aðgangur að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu í frönskum lögum, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu. Umsækjendur sem sæta hefðbundinni málsmeðferð hafa aðgang að heilbrigðisþjónustu á grundvelli sjúkratryggingakerfisins þar í landi (f. Protection Universelle Maladie (PUMA)) en þeir þurfa þó að sækja um aðgang að kerfinu. Jafnvel þótt umsækjendur séu ekki komnir með aðgang að sjúkratryggingakerfinu geti þeir engu að síður leitað til opinberra heilsugæslustöðva (f. Permanence d’accès aux soins de santé (PASS)) sem séu til staðar á öllum opinberum spítölum og fengið þar aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Á grundvelli PUMA eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd í Frakklandi einnig rétt á nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu en í skýrslum kemur þó fram að dæmi séu um að læknar neiti að veita einstaklingum sem ekki tala frönsku þjónustu.

Í framangreindum gögnum kemur fram að börn umsækjenda um alþjóðlega vernd eigi sama rétt og frönsk börn til endurgjaldslausrar menntunar til 16 ára aldurs. Þrátt fyrir þetta eru hindranir í framkvæmd, svo sem skortur á frönskukunnáttu barnanna. Þá kemur fram í framangreindum gögnum að börn sem ekki eru frönskumælandi taki próf sem metur þörf þeirra fyrir sérhæfðari kennslu sem undirbýr þau til þess að geta hlotið menntun við hæfi.

Þá benda framangreind gögn jafnframt til þess að löggæsluyfirvöld í Frakklandi hafi yfir að ráða fullnægjandi úrræðum til að veita einstaklingum sem til þeirra leita viðhlítandi aðstoð og vernd.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Með vísan til umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Frakklandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Frakklandi, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst og telur kærunefnd að þær séu ekki þess eðlis að viðmið sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga eigi við í málinu. Það er mat kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi eða að aðstæður hans að því leyti séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið. Af gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Frakklandi eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu samkvæmt frönskum lögum, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins þá ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur m.a. borið fyrir sig að hann og fjölskylda hans hafi verið í lífshættu í Frakklandi en tengdafjölskylda hans hafi komið þangað og hún vilji gera kæranda og fjölskyldu hans mein. Kærandi kvað sig jafnframt hafa leitað til lögreglu vegna þessa en að hún hafi ekki getað aðstoðað hann. Af framangreindum gögnum verður ráðið að óttist kærandi um öryggi sitt eða fjölskyldu sinnar geti hann leitað ásjár franskra yfirvalda vegna þess.

Í greinargerð kæranda er byggt á því að hagsmunir A eigi að leiða til þess að mál kæranda og fjölskyldu hans verði tekið til efnismeðferðar. Eins og fram kemur í úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 426/2019 var það niðurstaða nefndarinnar að flutningur fjölskyldunnar til Frakklands samrýmist hagsmunum A þegar litið væri m.a. til öryggis hans, velferðar og félagslegs þroska, sbr. 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Þá var það niðurstaða nefndarinnar að ekki væru fyrir hendi sérstakar ástæður í máli A sem leiddu til þess að taka bæri umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laganna. Í þessu ljósi er ekki tilefni til frekari umfjöllunar um þennan þátt málsins. Þá er að öðru leyti mat kærunefndar að aðstæður kæranda séu ekki þess eðlis að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í málinu.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það niðurstaða kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 6. febrúar 2019 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 9. desember 2018.

Athugasemdir kæranda við hina kærðu ákvörðun

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi í greinargerð sinni athugasemd við hina kærðu ákvörðun þess efnis að ekki hafi verið nógu ítarlega fjallað um hagsmuni barns kæranda, A, auk þess að gera fyrirvara við lagastoð og lögmæti reglugerðar nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga.

Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg en áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar að reglugerðina skorti ekki lagastoð.

Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Að mati kærunefndar eru því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda.

Frávísun

Kærandi kom hingað til lands þann 8. desember 2018. Hann sótti um alþjóðlega vernd þann 9. desember 2018. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Frakklands innan tilskilins frests nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa frönsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Frakklands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Kæranda er leiðbeint um að með úrskurði kærunefndar nr. 350/2019, dags. 28. ágúst 2019, ákvað nefndin að breyta framkvæmd varðandi afmörkun 12 mánaða tímabilsins sem vísað er til í 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Eins og fram kemur í úrskurðinum eru lok tímabilsins þegar fyrir liggur endanleg ákvörðun á stjórnsýslustigi vegna þess stjórnsýslumáls sem hófst með framlagningu umsóknar um alþjóðlega vernd. Þessi breytta stjórnsýsluframkvæmd leiðir til þess að þótt ekki komi til flutnings kæranda úr landi innan 12 mánaða frá upphafi málsins hefur það ekki þýðingu fyrir þann frest sem 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekur til.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Anna Tryggvadóttir

Gunnar Páll Baldvinsson                                                                                  Bjarnveig Eiríksdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta