Mál nr. 84/2021 Úrskurður 11. ágúst 2021
Mál nr. 84/2021 Eiginnafn: Annþór (kk.)
Mannanafnanefnd hefur borist ábending um að eiginnafnið Annþór (kk.) sé ekki á mannanafnaskrá.
Eiginnafnið Annþór tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Annþórs, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Annþór (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.