Mál nr. 82/2023 Úrskurður 25. ágúst 2023
Mál nr. 82/2023 Aðlögun kenninafns: Róbertsdóttir
Hinn 25. ágúst 2023 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 82/2023.
Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 17. ágúst 2023, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni XX og YY um að kenna dóttur sína við föður sinn, Roberto, og nafnið jafnframt lagað að íslensku máli. Óskuðu þau þess að kenninafn hennar verði skráð í þjóðskrá Róbertsdóttir.
Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.
Úrskurðarorð:
Fallist er á föðurkenninguna Róbertsdóttir.