Hoppa yfir valmynd

Nr. 670/2017 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 5. desember 2017 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 670/2017

í stjórnsýslumáli nr. KNU17090035

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.         Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 19. september 2017 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 28. ágúst 2017, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og endursenda hann til Svíþjóðar.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli 1.-3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Til vara krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.        Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 16. maí 2017. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Svíþjóð og Ungverjalandi. Þann 29. júní 2017 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Svíþjóð, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Þann 3. júlí 2017 barst svar frá sænskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Útlendingastofnun ákvað þann 28. ágúst 2017 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Svíþjóðar. Kærandi kærði ákvörðunina þann 19. september 2017 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda, ásamt fylgigögnum, barst kærunefnd 5. október 2017.

III.          Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Svíþjóðar. Lagt var til grundvallar að Svíþjóð virði ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna, þar með talið bann við endursendingu til ríkis þar sem líf og frelsi kæranda kynni að vera í hættu (non-refoulement). Því fæli flutningur kæranda til Svíþjóðar ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga. Þá var talið að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun mat aðstæður kæranda slíkar að hann væri í sérstaklega viðkvæmri stöðu skv. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, með hliðsjón af ungum aldri hans og framburði hans af pyndingum og alvarlegu líkamlegu ofbeldi. Það var hins vegar mat stofnunarinnar, að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, að sérstakar ástæður væru ekki til staðar í málinu, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Aðstæður kæranda féllu ekki undir 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og væru ekki slíkar að ástæða væri til að beita 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar í málinu. Kærandi skyldi yfirgefa Ísland og bæri að senda hann til Svíþjóðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Við meðferð máls kæranda hjá Útlendingastofnun byggði hann m.a. á því að taka ætti umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi með vísan til 4. mgr. 8. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar en þar kemur fram að aðildarríkið þar sem ólögráða barn leggur fram umsókn skuli bera ábyrgð á umsókninni, að því tilskildu að slíkt samræmist hagsmunum barnsins. Þá gerði kærandi athugasemd við rannsókn tannfræðilegra gagna vegna aldursgreiningar sem gerð var á honum þann 14. júní 2017. Jafnframt krafðist kærandi að aldur hans yrði ákvarðaður á grundvelli fæðingarvottorðs sem hann lagði fram hjá Útlendingastofnun.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar var tekið fram að í lögregluskýrslu, dags. 16. maí 2017, kvaðst kærandi vera fæddur [...] og að ríkisfang hans væri [...]. Útlendingastofnun sendi sænskum stjórnvöldum beiðni um upplýsingar, dags. 23. júní 2017, á grundvelli 34. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem óskað var eftir upplýsingum um uppgefinn aldur kæranda þegar hann sótti um alþjóðlega vernd og hvort hann hafi lagt fram einhver gögn til að sanna á sér deili og hvort hann hafi undirgengist aldursgreiningu þar í landi. Í svari frá sænskum stjórnvöldum, dags. 3. júlí 2017, kom fram að kærandi hafi gengið undir öðru nafni í Svíþjóð, [...], væri fæddur [...] og væri ríkisborgari [...]. Þá hafi kærandi ekki lagt fram nein gögn þar í landi til að sanna á sér deili og hann hafi ekki undirgengist aldursgreiningu þar sem hann hafi orðið 18 ára þann [...]. Í viðtali hjá Útlendingastofnun hafi kærandi útskýrt framangreindar upplýsingar frá sænskum stjórnvöldum sem mistök af hálfu þess aðila sem hafi aðstoðað hann og sjálfur hafi hann verið ungur og stressaður og ekki vitað betur. Í niðurstöðu Útlendingastofnunar kom fram að fæðingarvottorð sem kærandi lagði fram við meðferð máls hans hjá stofnuninni væri ótrúverðugt. Kærandi var því látinn undirgangast aldursgreiningu þann 14. júní 2017 og niðurstaða þeirrar rannsóknar lá fyrir þann 21. júní 2017 en þar kom fram að kærandi væri eldri en 18 ára og að uppgefinn aldur, [...], gæti ekki staðist. Með hliðsjón af framangreindu var í niðurstöðu ákvörðunar Útlendingastofnunar lagt til grundvallar að kærandi væri eldri en 18 ára.

IV.          Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann sé mótfallinn því að vera endursendur til Svíþjóðar m.a. með vísan til 4. mgr. 8. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Kærandi bendi á að samkvæmt ákvæðinu skuli aðildarríki þar sem fylgdarlaust, ólögráða barn leggi fram umsókn um alþjóðlega vernd, bera ábyrgð á meðferð umsóknarinnar, að því tilskildu að barnið eigi ekki aðstandendur í öðru aðildarríki og að slíkt samræmist hagsmunum barnsins. Við komu kæranda til landsins kvaðst hann vera fæddur þann [...] og hafi hann nokkru síðar lagt fram fæðingarvottorð því til staðfestingar. Kærandi hafi undirgengist tanngreiningu þann 14. júní 2017 og hafi niðurstaða þeirrar greiningar verið birt honum þann 5. júlí 2017 og honum kynnt að á grundvelli fyrirliggjandi gagna og upplýsinga væri mat stofnunarinnar að hann væri 18 ára eða eldri og farið yrði með mál hans sem fullorðins einstaklings. Kærandi hafi áttað sig á því að skráður fæðingardagur hans í Svíþjóð, þ.e. [...], sé rangt reiknaður samkvæmt gregoríska dagatalinu og þegar hann hafi ætlað að leiðrétta hann hafi lögfræðingur hans sagt honum að slík leiðrétting skipti ekki máli þar sem hann sé hvort sem er skráður sem barn í Svíþjóð. Fáist það staðfest í framlögðum gögnum frá sænsku útlendingastofnuninni.

Kærandi byggir á því að frumrit fæðingarvottorðs hans hafi verið lagt fram hér á landi en þar komi fram að kærandi sé fæddur [...]samkvæmt [...] tímatali sem stemmi við uppgefinn aldur hans hér á landi, þ.e. [...], sé áttundi dagur hins áttunda mánaðar í [...] dagatalinu borinn saman við gregoríska tímatalið. Kærandi geri alvarlega athugasemd við niðurstöðu og rangfærslu Útlendingastofnunar við mat stofnunarinnar á fæðingarvottorðinu. Kærandi bendi á að mánuðirnir séu [...] dagatalinu og kærandi sé fæddur í áttunda mánuði hins [...] dagatals. Áttundi mánuður jafngildi því ekki ágúst í hinu gregoríska dagatali, líkt og Útlendingastofnun gangi út frá. Áttundi mánuður [...] dagatalsins sé mánuðurinn [...] og sé [...] hins gregoríska dagatals skoðaður í samanburðardagatali komi upp [...] á hinu [...] dagatali. Sú staðreynd að Útlendingastofnun hafi komist að þeirri niðurstöðu að framburður kæranda sé ótrúverðugur og hafi byggt það á röngum útreikningi sé alvarlegt mál. Ljóst sé að trúverðugleikamat stofnunarinnar hafi verið byggt á röngum forsendum. Stofnuninni hafi mátt vera ljóst að framlögðu fæðingarvottorði hafi verið ætlað að færa sönnur á aldur kæranda en í því samhengi skipti fæðingarárið grundvallarmáli. Þrátt fyrir villur í útreikningi stofnunarinnar á fæðingarmánuði kæranda þá hafi ekki verið deilt um fæðingarárið sem fram komi á vottorðinu, þ.e. að það sé árið [...] í gregorísku tímatali. Kærandi hafi hins vegar verið metinn ótrúverðugur og litið framhjá fæðingarvottorðinu í heild með vísan til útreikninga sem sýnt hafi verið fram á að engin stoð hafi verið fyrir. Gildi og efni fæðingarvottorðsins hafi ekki verið hnekkt og kæranda sé ekki kunnugt um að áreiðanleiki þess hafi verið kannaður þrátt fyrir að kærandi hafi farið fram á að stofnunin myndi rannsaka framlagt fæðingarvottorð.

Kærandi vísar máli sínu til stuðnings til 113. gr. laga um útlendinga og 39. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 þar sem fram komi m.a. að við ákvörðun á aldri skuli fara fram heildstætt mat á aðstæðum einstaklings og frásagnar hans af ævi hans og að niðurstaða úr líkamsrannsóknum skuli metin í samhengi við önnur atriði málsins og vafi metinn viðkomanda í hag. Kærandi bendi á að af framangreindu megi vera ljóst að hann hafi ekki verið látinn njóta þess vafa sem var fyrir hendi í máli hans og hann skuli njóta lögum samkvæmt. Kærandi telji að Útlendingastofnun hafi ekki haft heimild til þess að ákvarða aldur hans aðeins út frá framangreindri tanngreiningu án þess að heildstætt mat hafi verið lagt á aðstæður hans og frásögn og án þess að litið hafi verið til framlagðs fæðingarvottorðs. Kærandi telji ljóst að heildstætt mat hafi ekki farið fram á aldri hans. Þar sem slíkt mat hafi ekki farið fram í máli kæranda og í ljósi rangra útreikninga Útlendingastofnunar á þeim aldri sem fram komi í fæðingarvottorði kæranda sé gerð krafa um að aldur hans verði endurmetinn.

Kærandi vísar til fjölda skýrslna varðandi aldursgreiningar þ. á m. til skýrslu Evrópsku stuðningsskrifstofunnar í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd (e. European Asylum Support Office), frá árinu 2013, og skýrslu Asylum Information Database (AIDA), frá árinu 2015 og leiðbeininga Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, frá árinu 2016, um aldursgreiningar. Kærandi telji að meðhöndla eigi mál hans eins og hann sé fæddur í [...], líkt og hann haldi sjálfur fram og fæðingarvottorð hans staðfesti, og taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi í stað þess að senda hann til Svíþjóðar í samræmi við 4. mgr. 8. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

Kærandi byggir á því að taka skuli umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi m.a. til lögskýringargagna við ákvæðið. Þá kveði c-liður 1. mgr. 36. gr. laganna einungis á um heimild til handa stjórnvöldum til að synja kæranda um efnismeðferð umsóknar sinnar en ekki skyldu. Í athugasemdum við 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga komi fram að einstaklingar sem séu í viðkvæmri stöðu falli undir ákvæðið. Þessi vilji löggjafans sé enn frekar staðfestur í athugasemdum við ákvæði til bráðabirgða við lög um útlendinga, sbr. lög nr. 81/2017, þar sem fram komi að ávallt skuli taka til efnislegrar meðferðar umsóknir um alþjóðlega vernd ef umsækjandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærandi greini frá því að hann sé haldinn [...], bæði hér á landi og í Svíþjóð. Kærandi hafi leitað til sálfræðings í Svíþjóð og einnig hér á landi. Kærandi greini frá því hvernig hann og faðir hans hafi verið frelsissviptir og beittir ofbeldi og systur hans hafi verið nauðgað fyrir framan hann. Kærandi hefur lagt fram nótur frá Göngudeild sóttvarna frá tímabilinu 6. júní til 2. október 2017 þar sem fram komi m.a. að kærandi og fjölskylda hans hafi orðið fyrir endurteknum árásum í heimaríki og kærandi hafi m.a. verið handleggsbrotinn. Á flótta sínum hafi kærandi hafi verið fangelsaður í Líbíu og verið haldið þar í nokkra mánuði og beittur barsmíðum. Kærandi hafi verið beittur harðræði og þvingaður til vinnu af hálfu smyglara sem hafi flutt hann frá Líbíu til Ítalíu en í kjölfarið hafi honum verið bjargað af ítölsku strandgæslunni. Þá sé kærandi mjög ungur að árum. Með vísan í frásögn kæranda og framlagðra gagna sé óumdeilt að kærandi falli undir einstakling í sérstaklega viðkvæmri stöðu og skuli því taka mál hans til efnislegrar meðferðar með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá kemur fram í greinargerð kæranda að hann telji ljóst að hann njóti verndar 42. gr. laga um útlendinga sem mæli fyrir um grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement. Sérstaklega njóti kærandi verndar 2. mgr. 42. gr. laganna sem kveði á um bann við sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki sé tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem mælt sé fyrir um í 1. mgr. ákvæðisins. Kærandi bendi á að í ákvörðun Útlendingastofnunar sé rangt farið með ríkisfang hans en þar komi fram að hann sé frá [...] en hið rétta sé að hann sé frá [...] líkt og fæðingarvottorð hans beri með sér. Þá byggi ákvörðun sænskra stjórnvalda á því að hann sé frá [...] og hann skuli vera endursendur þangað. Að framangreindu virtu sé ljóst að ákvörðun Útlendingastofnunar sé byggð á röngum forsendum þar sem gengið sé út frá því að kærandi sé frá [...] og bíði endursendingar þangað við komuna til Svíþjóðar. Engin afstaða hafi því verið tekin til endursendingar til [...] hjá Útlendingastofnun líkt og skylt sé að kanna sjálfstætt skv. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga. Fyrir liggi að kærandi hafi fengið tvær synjanir á stjórnsýslustigi í Svíþjóð og farið með mál sitt fyrir dómstóla en án árangurs. Því standi hann frammi fyrir flutningi til [...] verði hann endursendur til Svíþjóðar. Þá eru aðstæður í heimaríki kæranda raktar.

Kærandi gerir jafnframt athugasemdir við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun, einkum að rannsókn málsins hafi ekki verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga.

V.           Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í 1. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef heimilt sé að krefja annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda.

Fyrir liggur í máli þessu að sænsk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en Ísland skuldbatt sig til að fylgja reglugerðinni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Samþykki Svíþjóðar er byggt á því að kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi. Eru skilyrði c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi umsækjanda um alþjóðlega vernd til ríkis, sem hefur samþykkt að taka við honum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, ber stjórnvöldum að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður þar brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem kveður á um að enginn maður skuli sæta pyndingum eða ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið lagt til grundvallar að sú meðferð, sem einstaklingur eigi von á, verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til þess að falla undir 3. gr. sáttmálans. Við það mat verði að horfa til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar og í einhverjum tilvikum kyns, aldurs og heilsufars viðkomandi. Þá ber stjórnvöldum að leggja mat á hvort málsmeðferð vegna umsókna um alþjóðlega vernd tryggi umsækjendum raunhæfa leið til að ná fram rétti sínum, sbr. 13. gr. sáttmálans. Í samræmi við framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu skal mat á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og móttöku og aðbúnaði umsækjenda í viðtökuríki taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum í hverju máli.

Nánar um túlkun á 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 veitir stjórnvöldum ríkt svigrúm til mats á því hvað felist í sérstökum ástæðum í skilningi ákvæðisins, á hvaða sjónarmiðum skuli byggt við þetta mat og hvert skuli vera vægi þeirra. Stjórnvöld eru þó ávallt bundin af réttmætisreglu stjórnsýsluréttar en af henni leiðir að sjónarmiðin skulu vera málefnaleg. Þá gerir jafnræðisreglan þá kröfu að við úrlausn mála skuli stjórnvöld gæta samræmis og jafnræðis í lagalegu tilliti. 

Þegar afmarka skal nánar á hvaða málefnalegu sjónarmiðum skuli byggt og vægi þeirra við framangreint mat verður að líta til lagagrundvallar málsins, en í því sambandi er áréttað að heimild ráðherra í 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga hefur ekki verið nýtt til að setja í reglugerð ákvæði um framkvæmd 2. mgr. 36. gr. laganna.

Að mati kærunefndar bendir forsaga ákvæðisins til þess að 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skuli að mestu leyti framkvæma með sambærilegum hætti og 2. mgr. 46. gr. a eldri laga um útlendinga nr. 96/2002 enda var orðalag niðurlags 1. málsl. óbreytt frá eldri lögum. Samkvæmt framkvæmd á grundvelli eldri laga fengu sjónarmið sem varða skilvirkni við meðferð umsókna og mikilvægi samvinnu aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins nokkuð mikið vægi. Við mat sjónarmiða sem tengdust stöðu einstakra umsækjenda var gengið út frá því að ástand og aðstæður í viðtökuríki og fyrri reynsla kæranda þyrftu að vera bæði sérstakar og af ákveðnu alvarleikastigi sem segja má að hafi verið talsvert hátt svo til greina kæmi að beita þágildandi 2. mgr. 46. gr. a eldri laga um útlendinga.

Tilteknar breytingar á framsetningu 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 hafa þó leitt til þess að nefndin hefur talið að veita bæri sjónarmiðum sem tengjast stöðu einstakra umsækjenda aukið vægi í þessu heildarmati. Frá gildistöku laga um útlendinga nr. 80/2016 hefur kærunefnd litið til innra samræmis 36. gr. laga um útlendinga og þeirra breytinga sem voru gerðar á framsetningu 1. mgr. 36. gr. laganna, með hliðsjón af áðurgildandi 1. mgr. 46. gr. a eldri laga um útlendinga svo og þeirra breytinga sem fólust í framsetningu þeirrar reglu sem nú er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá hefur kærunefnd litið til þeirra lögskýringargagna sem tengdust breytingu á ákvæðinu í meðförum þingsins, n.t.t. nefndaráliti meirihluta þingnefndar og ræðu framsögumanns meirihlutans, en í því sambandi er áréttað að kærunefnd hefur hvorki litið til orðalags ákvæðis 2. mgr. 36. gr. eins og það hljóðaði í upphaflegri mynd frumvarps til laga um útlendinga né athugasemda sem fylgdu ákvæðinu í ljósi þeirra breytinga sem urðu á því ákvæði frumvarpsins í meðförum þingsins. Með vísan til lögskýringargagna hefur kærunefnd litið svo á að það hvort einstaklingur teljist í sérstaklega viðkvæmri stöðu sé eitt af þeim sjónarmiðum sem líta verður til við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi í málinu. Við það mat skuli jafnframt bæði litið til aðstæðna einstaklings og aðstæðna og ástands í viðtökuríki. Kærunefnd hefur þó jafnframt lagt nokkra áherslu á forsögu ákvæðisins og litið til þess að ekki hafi verið um að ræða grundvallarbreytingu frá framkvæmd á grundvelli eldri laga um útlendinga að því er varðar vægi hinna kerfislægu sjónarmiða. Í framkvæmd nefndarinnar frá gildistöku laga nr. 80/2016 hefur þetta leitt til þess að málum sem tekin hafa verið til meðferðar á grundvelli sérstakra ástæðna hefur fjölgað lítillega. Þó má segja að skilvirkni umsóknarferlisins og mikilvægi samvinnu aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins hafi áfram vegið þungt í mati nefndarinnar.

Frá gildistöku laga nr. 81/2017 telur kærunefnd rétt að líta til þeirra gagna sem urðu til við meðferð laganna á Alþingi er varða túlkun á 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Hér er um að ræða athugasemdir við frumvarpið, álit meirihluta allsherjar- og menntamálanefndar og framsöguræðu nefndarmanns sem kynnti álitið við 2. umræðu frumvarpsins. Þrátt fyrir að þau lögskýringargögn tengist ekki beint setningu laga um útlendinga nr. 80/2016 eru þau samt sem áður sett fram í tilefni breytinga á inntaki 2. mgr. 36. gr. laganna og því nægilega tengd efni málsgreinarinnar til að hafa áhrif á túlkun hennar. 

Í athugasemdum við frumvarpið sem varð að lögum nr. 81/2017 var áréttaður „sá vilji löggjafans að ávallt skuli taka til efnislegrar meðferðar umsóknir um alþjóðlega vernd ef umsækjandi er í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, líkt og fram kom í athugasemdum við 2. mgr. 36. gr. frumvarps þess sem varð að gildandi lögum um útlendinga.“

Kærunefnd telur að líta verði til þess að álit meirihluta allsherjar- og menntamálanefndar gefur skýrlega til kynna vægi tiltekinna sjónarmiða sem líta eigi til við beitingu ákvæðis 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í því áliti kemur eftirfarandi fram:

Fyrir nefndinni var rætt um texta í greinargerð með frumvarpinu þar sem áréttaður er sá vilji löggjafans að ávallt skuli taka til efnislegrar meðferðar umsóknir um alþjóðlega vernd ef umsækjandi er í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Bent var á að lögskýringargögn væru ekki skýr um þetta atriði og varhugavert geti verið að nýtt þing árétti vilja fyrri þinga án þess að því fylgi breytingar á lögum. Meirihlutinn bendir á að með þessu er áréttað, líkt og fram kom í frumvarpi því er varð að lögum um útlendinga, nr. 80/2016, að taka skuli til efnislegrar meðferðar umsóknir um alþjóðlega vernd ef umsækjandi hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækt sé að hann fái vernd hér á landi eða ef sérstakar ástæður mæla með því að taka skuli mál til efnismeðferðar. Getur þetta átt við í tilfellum útlendinga sem eiga ættingja á Íslandi en ekki í því landi sem þeir yrðu sendir aftur til. Þetta getur einnig átt við í öðrum tilfellum þar sem tengsl eru ríkari en við viðtökuland, svo sem vegna fyrri dvalar. Með sérstökum aðstæðum er vísað til þess að einstaklingar geta verið í viðkvæmri stöðu sem leiði til þess að þeir muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökulandi svo sem vegna heilsufars, aldurs, þungunar eða mismununar sem viðkomandi einstaklingur verður fyrir sökum kynhneigðar, kynþáttar eða kyns, eða fyrri reynslu einstaklinga, t.d. fórnarlömb mansals, ofbeldis og pyndinga.

Í framsöguræðu við 2. umræðu voru þessi sjónarmið árréttuð og hnykkt á með þeim ummælum að ekki ætti „að vera neinn vafi á því hvað átt sé við með sérstakri stöðu.“

Að mati kærunefndar lýsa þessi lögskýringargögn því með nægilega skýrum hætti bæði þeim sjónarmiðum sem löggjafinn telur að stjórnvöldum beri að beita við mat samkvæmt ákvæðinu og að nokkru leyti vægi sjónarmiðanna. Nefndin telur sjónarmiðin málefnaleg og að þau rúmist innan þess mats sem texti ákvæðisins felur stjórnvöldum, sérstaklega í ljósi þess að reglugerðarheimild skv. 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga hefur ekki verið nýtt. Að mati kærunefndar gefa ummæli í þessum lögskýringargögnum með nægilega skýrum hætti til kynna að viðkvæm staða umsækjanda skuli hafa aukið vægi andspænis sjónarmiðum sem tengjast m.a. skilvirkni við meðferð umsókna og mikilvægis samvinnu aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins. Í ljósi mismunar á orðalagi og inntaki athugasemda í frumvarpi því er varð að lögum nr. 81/2017 og umfjöllun meirihluta allsherjar- og menntamálanefndar um þetta atriði er það þó mat kærunefndar að ekki sé skýrt af lögskýringargögnum að ávallt beri að taka umsóknir frá einstaklingum í sérstaklega viðkvæmri stöðu til efnismeðferðar, þótt ótvírætt sé að það sjónarmið skuli hafa aukið vægi andspænis öðrum sjónarmiðum, sé miðað við þá framkvæmd sem tíðkast hefur fram að þessu. Aftur á móti telur kærunefnd að þegar viðkvæm staða umsækjenda verður að mati stjórnvalda talin leiða til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökulandi svo sem vegna heilsufars, aldurs, þungunar eða mismununar sem viðkomandi einstaklingur verður fyrir sökum kynhneigðar, kynþáttar eða kyns, eða fyrri reynslu einstaklinga, t.d. fórnarlömb mansals, ofbeldis og pyndinga, skuli það sjónarmið hafa mikið vægi við matið. Í þeim tilvikum beri að líta svo á að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í málinu og að það skuli almennt tekið til efnismeðferðar.

Mat á aldri sbr. 113. gr. laga um útlendinga

Við komu kæranda til landsins kvaðst hann vera fæddur [...] og að ríkisfang hans sé [...]. Við meðferð máls kæranda hjá Útlendingastofnun lagði hann fram fæðingarvottorð, dags. [...], frá [...]. Þar komi fram fæðingardagurinn [...] samkvæmt [...] tímatali, þ.e. [...] samkvæmt gregorísku tímatali. Útlendingastofnun óskaði ekki eftir rannsókn á áreiðanleika þeirra skilríkja en mat vottorðið ótrúverðugt. Kærandi undirgekkst aldursgreiningu þann 14. júní 2017 sem fólst í rannsókn tannfræðilegra gagna. Í aldursgreiningarskýrslu, dags. 21. júní 2017, kemur fram að það sé mat þeirra tannlækna sem hana skrifa að kærandi sé eldri en 18 ára og að uppgefinn aldur, þ.e. [...], geti ekki staðist. Tekið er fram að niðurstaðan af aldursgreiningu sé byggð á sameiginlegu mati á sjúkrasögu, klínískri skoðun, og aldursútreikningum og mati á röntgenmyndum. Útlendingastofnun sendi sænskum stjórnvöldum beiðni um upplýsingar, dags. 23. júní 2017, á grundvelli 34. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem óskað er eftir upplýsingum um uppgefinn aldur kæranda þegar hann sótti um alþjóðlega vernd í Svíþjóð og hvort hann hafi lagt fram einhver gögn til að sanna á sér deili og hvort hann hafi undirgengist aldursgreiningu þar í landi. Í svari frá sænskum stjórnvöldum, dags. 3. júlí 2017, kemur fram að kærandi hafi gengið undir öðru nafni í Svíþjóð, [...], sé fæddur [...] og sé ríkisborgari [...]. Þá kemur einnig fram að kærandi kvaðst vera frá [...] þegar hann sótti um alþjóðlega vernd í Svíþjóð en hafi síðar breytt framburði sínum á þann veg að ríkisfanghans sé [...]. Jafnframt hafi kærandi ekki lagt fram nein gögn þar í landi til að sanna á sér deili og hann hafi ekki undirgengist aldursgreiningu þar sem hann hafi orðið 18 ára þann [...]. Kærandi greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að framangreindar upplýsingar frá sænskum stjórnvöldum hafi byggst á misskilningi af hans hálfu varðandi breytingu á aldri hans úr [...] tímatali og yfir í gregorískt tímatal. Niðurstaða aldursgreiningar Útlendingastofnunar var birt fyrir kæranda þann 5. júlí 2017 þar sem honum hafi einnig verið tilkynnt að á grundvelli heildstæðs mats á gögnum málsins yrði farið með mál hans sem fullorðins einstaklings. Við meðferð máls kæranda hjá kærunefnd óskaði nefndin eftir rannsókn lögreglunnar á ofangreindu fæðingarvottorði kæranda. Skilríkin voru send til flugstöðvardeildar lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 1. nóvember 2017, til að rannsaka áreiðanleika skilríkjanna. Niðurstaða skýrsluhöfundar, [...], dags. 9. nóvember 2017, er sú að fæðingarvottorðið er grunnfalsað, sem felur í sér að skjalið er að öllu leyti falsað. Kæranda var veittur andmælaréttur vegna rannsóknar lögreglunnar á skilríkjum hans og þann 16. nóvember 2017 mótmælti kærandi því að fæðingarvottorðið væri falsað og kvað hann skilríkin vera upprunaleg.

Í málinu liggja ekki fyrir önnur gögn en framburður kæranda sem benda til þess að hann sé barn. Það skilríki sem kærandi lagði fram til sönnunar á aldri sínum er skv. rannsókn lögreglu grunnfalsað og getur þar af leiðandi ekki komið til skoðunar við matið.

Samkvæmt framansögðu hefur kærandi gefið upp tvo mismunandi fæðingardaga, þ.e. [...] og [...], tvö mismunandi upprunaríki, þ.e. [...] og , og tvö mismunandi nöfn, þ.e. [...] og [...]. Misræmi í frásögn kæranda hefur hann skýrt m.a. með vísan í misskilning af hans hálfu varðandi breytingu á aldri hans úr [...] tímatali og yfir í gregorískt tímatal. Kærandi hefur ekki stutt framburð sinn varðandi aldur öðrum gögnum en þeim sem samkvæmt niðurstöðu lögreglu eru grunnfölsuð. Kærunefnd telur ofangreint misræmi í frásögn kæranda af fæðingardegi hans leiða til þess að framburður hans um aldur hans telst ótrúverðugur og verður frásögn hans því ekki lögð til grundvallar í málinu. Þá liggja fyrir í málinu gögn, bæði tanngreining og gögn frá sænskum stjórnvöldum, sem benda eindregið til þess að ekki sé vafi á því að kærandi sé fullorðinn. Þegar litið er með heildstæðum hætti til gagna málsins, þ.m.t. líkamsrannsóknar á tönnum kæranda, upplýsinga frá sænskum stjórnvöldum og misvísandi framburðar kæranda um aldur sinn sem hann hefur stutt fölsuðum gögnum, er það mat kærunefndar að ekki sé fyrir hendi vafi um að kærandi sé fullorðinn, sbr. 1. mgr. 113. gr. laga um útlendinga. Tekur meðferð máls hans mið af því.

Greining á sérþörfum sbr. 25. gr. og 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga

Kærandi er ungur karlmaður sem kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 11. júlí 2017 vera við góða líkamlega heilsu en andleg heilsa hans sé ekki góð. Aðspurður frekar um andlega líðan kvaðst kærandi [...] og hann hafi leitað til sálfræðings hér á landi og í Svíþjóð. Kærandi hefur máli sínu til stuðnings lagt fram samskiptaseðla frá Göngudeild sóttvarna frá tímabilinu 6. júní til 2. október 2017. Þar komi m.a. fram að kærandi hafi greint frá erfiðri lífsreynslu og líkamlegu ofbeldi í hans garð en hann sé haldinn [...]. Þá greindi kærandi, í ofangreindu viðtali við Útlendingastofnun, frá margs konar ofbeldi, hótunum og pyndingum af hálfu [...] hermanna í heimaríki. Heimili kæranda hafi verið rústað af hálfu þessara manna, hann hafi verið frelsissviptur og orðið vitni að barsmíðum á föður sínum þar sem þeir hafi verið fangelsaðir í sama klefa. Jafnframt hafi kærandi verið neyddur til að horfa á nauðgun á systur sinni. Þá hafi kærandi verið handleggsbrotinn og laminn af áðurnefndum mönnum. Í gögnum sem kærandi hefur lagt fram verður ráðið að ekki sé fullt samræmi milli framangreindrar frásagnar og framburðar hans hjá sænskum stjórnvöldum varðandi ástæður flótta frá heimaríki. Þrátt fyrir þetta ósamræmi telur kærunefnd ekki unnt að leggja annað til grundvallar við úrlausn málsins en að kærandi hafi orðið fyrir erfiðum atburðum í heimaríki sem hafi haft áhrif á andlega heilsu hans.

Samkvæmt framansögðu er kærandi í sérstaklega viðkvæmri stöðu að því er varðar meðferð máls hans hér á landi, enda eru persónulegir eiginleikar hans og aðstæður hans þess eðlis að hann telst hafa sérþarfir sem taka þarf tillit til við meðferð máls hans hér auk þess sem talið verður að hann geti ekki að fullu nýtt sér rétt eða uppfyllt skyldur sem kveðið er á um í lögum um útlendinga án aðstoðar eða sérstaks tillits, sbr. 6. tölul. 3. gr. og 25. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður og málsmeðferð í Svíþjóð

  • Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Svíþjóð, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:
  • ·Asylum Information Database, National Country Report: Sweden (European Council on Refugees and Exiles, mars 2017),
  • Amnesty International Report 2016/17 (Amnesty International, 22. febrúar 2017),  
  • Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union 2015 (European Asylum Support Office, 8. júlí 2016), ·       
  • Freedom in the World 2017 – Sweden (Freedom House, 1. september 2017), ·       
  • Sweden 2016 Human Rights Report (United States Department of State, 3. mars 2017), ·       
  • Good Advice for Asylum seekers in Sweden (The Swedish Network of Refugee Support Group, júní 2015), ·   
  • Observations by the United Nations High Commissioner for Refugees Regional Representation for Northern Europe on the draft law proposal on  restrictions of the possibility to obtain a residence permit in Sweden (The UN High Commissioner for Refugees, 10. mars 2016) og ·     
  • Upplýsingar af vefsíðu sænsku útlendingastofnunarinnar (www.migrationsverket.se).

Í framangreindum gögnum kemur fram að sænska útlendingastofnunin (s. Migrationsverket) tekur ákvarðanir er varða umsóknir um alþjóðlega vernd. Umsækjandi um alþjóðlega vernd á þess kost að bera synjun útlendingastofnunarinnar á umsókn sinni undir stjórnsýsludómstól (s. Migrationsdomstolen) og þeim dómi er unnt að áfrýja til áfrýjunardómstóls (s. Migrationsöverdomstolen). Umsækjendur um alþjóðlega vernd, sem hafa fengið endanlega synjun á umsókn sinni hjá sænsku útlendingastofnuninni og framangreindum dómstólum, eiga þess kost að leggja fram viðbótarumsókn hjá sænsku útlendingastofnuninni, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Ef nýjar upplýsingar eða ný gögn liggja fyrir í máli umsækjanda, aðstæður hafa breyst verulega eða verulegir annmarkar hafa verið á fyrri málsmeðferð, geta skilyrði fyrir viðbótarumsókn verið uppfyllt. Synjun sænsku útlendingastofnunarinnar um að taka viðbótarumsókn til skoðunar má kæra og engin takmörk eru á því hversu oft umsækjandi getur lagt fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd. Umsækjendur eiga rétt á takmarkaðri félagslegri aðstoð á meðan viðbótarumsókn er til meðferðar. Þá eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun, skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem muni brjóta í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Svíþjóð er aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir sambandsins vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Samkvæmt framangreindum skýrslum um aðstæður og aðbúnað umsækjenda í Svíþjóð eiga þeir rétt á húsnæði, mataraðstoð og vasapeningum, geti þeir ekki framfleytt sér sjálfir. Að sama skapi er umsækjendum tryggður aðgangur að grunnheilbrigðisþjónustu í sænskum lögum. Umsækjendum er tryggður aðgangur að heilbrigðisþjónustu vegna líkamlegra eða andlegra vandamála ásamt tannlæknaþjónustu. Sveitarfélagið þar sem umsækjandi um alþjóðlega vernd dvelst í hefur milligöngu um að útvega umsækjanda lækni og aðra heilbrigðisþjónustu við hæfi. Þá er umsækjanda tryggður sérstakur stuðningur og hjálp vegna viðkvæmrar stöðu, t.d. vegna andlegrar heilsu. Greiða þarf komugjald vegna heimsóknar á heilsugæslu en innlögn á spítala er umsækjanda að kostnaðarlausu. Fari kostnaður vegna heilbrigðisþjónustu fram úr ákveðinni upphæð er hægt að óska eftir fjárhagsaðstoð frá ríkinu. Í ljósi innleiðingar tilskipunar Evrópusambandsins vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd í sænsk lög hefur sænska útlendingastofnunin sett á laggirnar starfshóp sem greinir viðkvæma einstaklinga í umsóknarferlinu um alþjóðlega vernd. Sænska útlendingastofnunin hefur því lagt fram ákveðin viðmið sem fara skal eftir til að greina umrædda umsækjendur sem eru í þörf fyrir sérstakar ráðstafanir. Þá eru starfrækt þrjú búsetuúrræði víða um landið sem eru ætluð viðkvæmum umsækjendum, þ. á m. umsækjendum sem eru þolendur pyndinga.

Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér er ljóst að sænsk stjórnvöld uppfylla skyldur sínar varðandi lögfræðiaðstoð við umsækjendur um alþjóðlega vernd skv. tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 32/2013 um málsmeðferð við veitingu og afturköllun alþjóðlegrar verndar, sbr. 19. og 20. gr. hennar. Þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd leggja fram umsókn um vernd í Svíþjóð í fyrsta skipti eiga þeir rétt á lögfræði- og túlkaþjónustu án endurgjalds bæði þegar umsókn er til meðferðar hjá sænsku útlendingastofnuninni og á kærustigum málsins. Umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga hins vegar ekki rétt á lögfræðiþjónustu án endurgjalds við að leggja fram viðbótarumsókn en þeir geta átt rétt á að fá tilnefndan lögmann ef sænska útlendingastofnunin samþykkir að taka viðbótarumsóknina til skoðunar. Endurgjaldslaus túlkaþjónusta er ekki í boði við framangreinda málsmeðferð. Umsækjendur um alþjóðlega vernd geta einnig leitað til frjálsra félagasamtaka, t.d. ráðgjafarmiðstöðvar (s. Rådgivningsbyrån) sem veitir lögfræðiaðstoð og ráðgjöf.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins það með sér að í Svíþjóð sé almennt veitt fullnægjandi vernd gegn brottvísun umsækjenda um alþjóðlega vernd til landa þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra og frelsi ógnað (non-refoulement), sbr. IV. kafli sænskra laga um útlendinga (s. Utlänningslagen 2005:716). Er þá sérstaklega litið til þess að þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda eindregið til þess að málsmeðferð sænskra yfirvalda sé fullnægjandi og veiti umsækjendum um alþjóðlega vernd viðunandi úrræði til að tryggja að réttur þeirra sé ekki brotinn og að einstaklingsbundið mat verði lagt á aðstæður þeirra. Ekkert bendi til þess að umsækjendum sé synjað sjálfkrafa um alþjóðlega vernd í Svíþjóð eða þeir endursendir til heimaríkis án þess að leyst sé úr málum þeirra á einstaklingsgrundvelli.

Athugun kærunefndar á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd í Svíþjóð hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði þeirra þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending kæranda þangað brjóti í bága við 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kæranda séu tryggð úrræði til að leita réttar síns í Svíþjóð bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Enn fremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Svíþjóðar á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Af framangreindum gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Svíþjóð má ráða að umsækjendur eiga rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu sem þeir þurfa á að halda fram að brottflutningi þeirra frá landinu. Þó svo að mikið álag sé á hæliskerfi Svíþjóðar um þessar mundir telur kærunefnd ekki forsendur til annars, í ljósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður í landinu, en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti leitað sér heilbrigðisþjónustu við hæfi þar í landi. Þá er skimað fyrir viðkvæmum einstaklingum í umsóknarferlinu sem eru í þörf fyrir sérstakar ráðstafanir, s.s. geðheilbrigðisþjónustu eða búsetuúrræði ætluðu viðkvæmum einstaklingum. Þrátt fyrir andlega heilsu kæranda og fyrri reynslu hans þá er það mat kærunefndar að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að framkvæmd synjunar á efnismeðferð umsóknar hans hafi í för með sér verulegar og óafturkræfar afleiðingar fyrir heilsufar hans eða að kærandi sé í meðferð hér á landi sem teljist óforsvaranlegt að rjúfa.

Það er mat kærunefndar að gögn málsins beri ekki með sér að líta verði svo á að fyrir hendi séu sérstakar ástæður í máli hans, eða að vegna stöðu umsóknar hans í Svíþjóð eða flutnings hans þangað muni hann eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki. Kærunefnd telur aðstæður kæranda ekki slíkar, að því er varðar heilsu hans, að hann muni eiga erfitt uppdráttar í Svíþjóð vegna þeirra.

Í ljósi aðstæðna í Svíþjóð og að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það því mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi slíkar sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 11. júlí 2017 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 16. maí 2017.

Reglur stjórnsýsluréttar

Líkt og fram hefur komið gerir kærandi athugasemd við rannsókn Útlendingastofnunar með vísan til rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi telur að rannsókn Útlendingastofnunar hafi verið ábótavant þar sem ákvörðunin hafi m.a. verið tekin á grundvelli ófullnægjandi upplýsinga og byggð á röngum forsendum þar sem ríkisfang kæranda sé rangt og aldur kæranda hefði verið rangt reiknaður út á grundvelli framlagðs fæðingarvottorðs.

Rannsóknarreglan í 10. gr. stjórnsýslulaga mælir fyrir um að stjórnvald afli þeirra gagna sem eru nauðsynleg svo mál sé nægilega upplýst. Reglan gerir kröfu um rannsókn sem er fullnægjandi grundvöllur ákvörðunar stjórnvalds en gerir hvorki kröfu um að aflað sé allra upplýsinga sem varpað gætu ljósi á málið né að stjórnvald afli ófáanlegra gagna. Þá segir í 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga að við meðferð mála vegna umsókna um alþjóðlega vernd skuli Útlendingastofnun afla nauðsynlegra og aðgengilegra upplýsinga.

Áður hefur komið fram í úrskurði þessum að við töku ákvörðunar í máli kæranda þann 28. ágúst 2017 lá fyrir áðurnefnt fæðingarvottorð, sem að sögn kæranda ætti að sanna aldur hans og ríkisfang, en stofnunin mat vottorðið ótrúverðugt án þess þó að rannsaka frekar áreiðanleika skilríkjanna. Kærunefnd óskaði eftir rannsókn lögreglu á áreiðanleika skilríkjanna og var niðurstaða rannsóknarinnar sú að fæðingarvottorðið væri grunnfalsað sem feli í sér að skjalið er að öllu leyti falsað. Kærunefnd bendir því á að ekki er hægt að byggja rétt á áðurnefndu skjali og kemur því ekki til frekari skoðunar umfjöllun Útlendingastofnunar á grundvelli skjalsins m.a. hvað varðar útreikning á aldri kæranda eða ríkisfang hans. Kærunefnd hefur nú tekið afstöðu til aldurs og ríkisfangs kæranda, sbr. það sem að framan er rakið, og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun í máli kæranda. Kærunefnd vill þó vekja athygli á því að formleg rannsókn á áreiðanleika skilríkjanna hefði verið betri málsmeðferð hjá Útlendingastofnun. Þá vill kærunefnd gera athugasemd við villu í útreikningi stofnunarinnar á fæðingarmánuði kæranda varðandi umreikning frá [...] tímatali. Með hliðsjón af þessum tveimur atriðum telur kærunefnd að rannsókn Útlendingastofnunar hafi verið ábótavant. Þá gerir kærunefnd ekki athugasemd við málsmeðferð stofnunarinnar að öðru leyti.

Meginmarkmiðið með stjórnsýslukæru er að tryggja réttaröryggi borgaranna með því að gera þeim kleift að fá umfjöllun um mál sín á tveimur stjórnsýslustigum. Það er þó mat kærunefndar, eins og hér stendur á, að umræddir ágallar á rannsókn málsins hafi ekki verið verulegir og að bætt hafi verið úr þeim við rannsókn málsins á kærustigi. Ljóst er, með vísan til framangreindrar niðurstöðu kærunefndar um aðstæður í Svíþjóð og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, að framangreindir ágallar á málsmeðferð Útlendingastofnunar hafi ekki haft efnisleg áhrif á niðurstöðu máls kæranda og séu því ekki slíkir að fella beri ákvörðunina úr gildi af þeirri ástæðu.

Í málinu liggur fyrir jafnframt að kærandi greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann og fjölskylda hans hafi ítrekað sætt ofbeldi, hótunum og pyndingum af hálfu [...] hermanna í heimaríki. Þá kvað kærandi andlega heilsu sína ekki vera góða, hann þjáist af [...] og telji sig þurfa að hitta sálfræðing í kjölfar þessara atburða.

Yfirvöldum á sviði útlendingamála ber að bregðast sérstaklega við vísbendingum um að einstaklingur hafi orðið fyrir pyndingum eða öðrum mannréttindabrotum, sbr. 25. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum sem fylgdu ákvæðinu í frumvarpi til laga um útlendinga þar sem segir m.a. að skylda sé lögð á stjórnvöld að gera ráðstafanir í því skyni að bera möguleg kennsl á og skrá einkenni og ummerki um pyndingar eða annað alvarlegt líkamlegt og andlegt ofbeldi. Þessi skylda á jafnframt rætur að rekja til alþjóðlegra skuldbindinga Íslands. Af 14. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, sbr. lög nr. 19/1996, leiðir að stjórnvöldum ber að tryggja virka verkferla til að bera kennsl á þolendur pyndinga og annarrar ómannlegrar og vanvirðandi meðferðar, sjá jafnframt almenna athugasemd 3 frá nefnd Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum (CAT/C/GC/3).

Í ljósi framangreinds telur kærunefnd að Útlendingastofnun beri að virkja ákveðna verkferla þegar þegar grunur leikur á að umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi orðið fyrir pyndingum. Leggur kærunefnd til að Útlendingastofnun hefji í slíkum tilfellum skimun fyrir pyndingum og afleiðingum þeirra, t.d. með notkun reglna og spurningalista. Í því sambandi vekur nefndin athygli á að Mannréttindastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur gefið út viðmiðunarreglur (e. Istanbul Protocol - Manual on the Effective Investigation and Documentation of Torture and Other Cruel, Inhuman or Degrading Treatment or Punishment) sem hafa verið viðurkenndar af mannréttinda- og svæðisbundnum stofnunum á borð við Evrópusambandið. Þá er unnt að hafa hliðsjón af verkefni sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur fjármagnað, svonefnt PROTECT-ABLE verkefni, sem miðar að því að útbúa og miðla til aðildarríkja sérstökum spurningarlista sem aðstoðar ríki við að skima eftir því hvort umsækjendur um alþjóðlega vernd þjáist af afleiðingum áfalls, t.a.m. vegna pyndinga. Spurningalistinn var þróaður í því skyni að auðvelda ríkjum að haga móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd í samræmi við tilskipanir Evrópuráðsins og að greina fyrr þá einstaklinga sem hafa orðið fyrir áföllum.

Ljóst er að við meðferð máls kæranda hjá Útlendingastofnun lágu fyrir gögn varðandi afleiðingar áfalla sem kærandi kveðst hafa orðið fyrir í heimaríki en áður hefur verið vikið að ósamræmi í framburði kæranda hjá íslenskum og sænskum stjórnvöldum varðandi þennan þátt málsins. Þá var kærandi spurður í viðtali hjá Útlendingastofnun frekar um ofbeldið og hvort það hefði haft afleiðingar á líkamlega eða andlega heilsu hans. Jafnframt var kærandi spurður í viðtali um þörf fyrir lyf og hvort hann teldi sig þurfa að leita til sálfræðings. Þá kemur fram í áðurnefndu viðtali að kærandi hafi leitað til sálfræðings í Svíþjóð. Kæranda var einnig leiðbeint í viðtalinu um mikilvægi þess að leggja fram skriflegar upplýsingar um heilsufar hans til stofnunarinnar ef hann teldi að slíkar upplýsingar hefðu þýðingu í málinu. Þá liggja fyrir samskiptaseðlar frá Göngudeild sóttvarna, dags. 26. júlí og 4. ágúst 2017, þar sem fram kemur að kærandi hafi í tvígang leitaði til sálfræðings hér á landi. Við meðferð máls kæranda hjá Útlendingastofnun var ofangreind frásögn hans af alvarlegu líkamlegu ofbeldi og pyndingum lögð til grundvallar og hann metinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Hjá Útlendingastofnun urðu því framangreindar lýsingar kæranda á atvikum til þess að spurt var nánar út í atburði í lífi kæranda í því skyni að kanna afleiðingar þess fyrir kæranda að vera þolandi pyndinga og annarrar ómannlegrar eða vanvirðandi meðferðar. Jafnframt var lögð áhersla á mikilvægi þess, við kæranda, að leggja fram upplýsingar um heilsufar hans. Þrátt fyrir að Útlendingastofnun hafi ekki virkjað sérstaka verkferla sem aðstoða starfsmenn stofnunarinnar við að skima með skilvirkum hætti eftir því hvort kærandi glími við afleiðingar þess að vera þolandi pyndinga og annarrar ómannlegrar eða vanvirðandi meðferðar þá telur kærunefnd ekki tilefni eins og hér stendur á að vísa máli kæranda til nýrrar meðferðar hjá stofnuninni á þeim grundvelli. Hefur nefndin við þetta mat m.a. litið til gagna sem kærandi lagði fram hjá kærunefnd varðandi meðferð máls hans hjá sænskum stjórnvöldum.

Samantekt

Í máli þessu hafa sænsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Svíþjóðar með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

 

Anna Tryggvadóttir

 

Erna Kristín Blöndal                                                                                  Þorbjörg Inga Jónsdóttir

                                                                                        


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta