Hoppa yfir valmynd

Nr. 114/2022 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 3. mars 2022 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 114/2022

í stjórnsýslumáli nr. KNU22020010

 

Beiðni [...] um endurupptöku

 

I.       Málsatvik

Hinn 16. júní 2021 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 16. mars 2021, um að taka umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Íran (hér eftir nefndur kærandi), um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og vísa honum frá landinu. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda hinn 21. júní 2021. Hinn 28. júní 2021 barst kærunefnd beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa. Beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa var synjað af kærunefnd hinn 8. júlí 2021.

Hinn 3. febrúar 2022 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku. Upplýsingar um málsmeðferð í máli kæranda bárust kærunefnd frá stoðdeild ríkislögreglustjóra hinn 10. febrúar 2022. Athugasemdir bárust frá kæranda hinn 18. febrúar 2022.

Af greinargerð kæranda má ætla að beiðni hans um endurupptöku málsins byggi á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II.        Málsástæður og rök kæranda

Beiðni kæranda um endurupptöku málsins byggir á því að meira en 12 mánuðir séu nú liðnir frá því að hann lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi, en tafir á afgreiðslu málsins séu ekki á hans ábyrgð. Með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 skuli umsókn kæranda því tekin til efnismeðferðar hér á landi. Kærandi vísar til þess að samkvæmt stjórnsýsluframkvæmd hafi afgreiðsla umsóknar í skilningi framangreinds ákvæðis miðast við umsóknardag annars vegar og hins vegar þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda sé framkvæmd með flutningi til viðtökuríkis. Þar sem 12 mánuðir séu nú liðnir og kærandi sé enn á landinu telur hann að stjórnvöldum sé skylt að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi til efnismeðferðar hér á landi.

III.       Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hefur samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum er þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar eru í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst ís2enskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þó að 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði fyrst og fremst raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber sjálfur ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst er að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd á Íslandi hinn 2. febrúar 2021 og rann því umræddur 12 mánaða frestur út á miðnætti hinn 2. febrúar 2022. Kemur því til skoðunar hvort tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda séu á ábyrgð hans sjálfs, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Hinn 8. febrúar 2022 óskaði kærunefnd útlendingamála eftir upplýsingum frá stoðdeild. Sneri fyrirspurn nefndarinnar að því hvort tafir hefðu orðið á meðferð umsóknar kæranda og ef svo væri, hvort tafir væru á ábyrgð kæranda, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í svari stoðdeildar, dags. 10. febrúar 2022, kemur fram að verkbeiðni hafi borist stoðdeild frá Útlendingastofnun hinn 16. júlí 2021. Hinn 20. júlí 2021 hafi stoðdeild haft samband við kæranda símleiðis en hann hafi talað mjög góða ensku. Aðspurður hafi kærandi greint frá því að vilja ekki fara í Covid-19 sýnatöku eða vinna með íslenskum stjórnvöldum. Hinn 29. október 2021 hafi stoðdeild haft samband við kæranda símleiðis og boðað hann í viðtal í Bæjarhraun 18, klukkan 13:00 hinn 1. nóvember 2021. Kærandi hafi mætt í viðtalið þar sem honum var kynnt Tilkynning um framkvæmd frávísunar frá Íslandi til Grikklands á ensku sem kærandi hafi talað og skilið mjög vel. Kærandi hafi greint frá því að vilja ekki fara í Covid-19 sýnatöku og ekki vinna með íslenskum stjórnvöldum. Kærandi hafi neitað að skrifa undir tilkynninguna en hann hafi skilið það sem lesið var fyrir hann. Tveir lögreglumenn hafi undirritað eyðublaðið sem vottar.

Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 17. febrúar 2022, var kærandi upplýstur um afstöðu stoðdeildar og gefinn frestur til að koma að andmælum í samræmi við 13. gr. stjórnsýslulaga. Andmæli kæranda bárust kærunefnd hinn 18. febrúar 2022. Í svari kæranda kemur m.a. fram að hann telji að stoðdeild hafi augljóslega verið að kanna afstöðu hans til fyrirhugaðs flutnings með almennum hætti. Kærandi vísar til þess að kærunefnd hafi kveðið upp úrskurð sinn hinn 16. júní 20201 en umrædd tilkynning hafi verið birt fyrir kæranda hinn 1. nóvember 2021.

Kærandi vísar til þess að engin gögn liggi fyrir um hvort stoðdeild hafi verið búin að undirbúa flutning með öðrum hætti, t.d. með því að bóka flugmiða eða útbúa ferðaskilríki. Að mati kæranda standist ekki skoðun að fresta framkvæmd ákvörðunar úr öllu hófi enda hafi það verið verulega íþyngjandi fyrir kæranda að bíða eftir skilaboðum frá lögreglu um framkvæmd og flutning. Þá telur kærandi það óforsvaranlegt að stoðdeild beri fyrir sig slíka pappíra sem lagðir séu fyrir hann án lögmanns. Þá sé ekkert í málinu sem gefi til kynna að kærandi hafi tafið mál sitt með nokkrum hætti. Af svari stoðdeildar megi ráða að ekki hafi verið gerðar frekari tilraunir af hálfu stoðdeildar að undirbúa flutning á kæranda og því sé framkvæmdin ómarkviss. Kærandi telur enn fremur að munnleg yfirlýsing hans um að hann vilji ekki snúa aftur til Grikklands geti ekki talist töf á afgreiðslu málsins. Kærandi vísar til úrskurða kærunefndar í málum nr. KNU21080008, dags. 22. september 2021 og KNU21070020, dags. 26. ágúst 2021 máli sínu til stuðnings og telur aðstæður vera sambærilegar.

Eins og að framan greinir sótti kærandi um alþjóðlega vernd hér á landi hinn 2. febrúar 2021. Þegar stoðdeild ríkislögreglustjóra hafði samband við kæranda hinn 20. júlí 2021 var því fullnægjandi tími til þess að framkvæma flutning á kæranda til viðtökuríkis áður en 12 mánaða fresturinn sem áskilinn er í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga rann út. Stoðdeild hafði samband við kæranda þann dag til að kanna afstöðu hans til flutnings til viðtökuríkis. Í umræddu símtali hafi kærandi talað mjög góða ensku og hann greint frá því að vilja ekki fara í Covid-19 sýnatöku eða vinna með íslenskum stjórnvöldum. Þá hafi stoðdeild einnig boðað kæranda í viðtal þann 1. nóvember 2021 þar sem kynnt var fyrir kæranda „Tilkynning um framkvæmd ákvörðunar um frávísun frá Íslandi til Grikklands“.  Þar hafi kærandi hakað í svarreit um að hann ætlaði ekki að sýna samstarfsvilja með stjórnvöldum í tengslum við flutning sinn til Grikklands og að hann ætlaði ekki að undirgangast Covid-19 sýnatöku vegna fyrirhugaðrar framkvæmdar. Kærandi hafi svo neitað að skrifa nafn sitt undir eyðublaðið en eyðublaðið hafi verið vottað af tveimur fulltrúum lögreglunnar.

Kærunefnd tekur fram að flutningur umsækjenda um alþjóðlega vernd sem fengið hafa neikvæða niðurstöðu hér á landi í máli sínu er íþyngjandi ákvörðun og því eðlilegt að umsækjendur séu mótfallnir slíkum flutningi. Eins og að framan greinir leið 12 mánaða fresturinn í máli kæranda hinn 2. febrúar 2022. Ljóst er að kærandi lýsti þeirri afstöðu sinni að hann hygðist ekki ætla að sýna samstarfsvilja með íslenskum stjórnvöldum í tengslum við flutning sinn. Þannig kom kærandi í veg fyrir flutning sinn úr landi og tafði málsmeðferðina. Með háttsemi sinni og skýrum yfirlýsingum gerði hann framkvæmd endanlegrar ákvörðunar á stjórnsýslustigi ómögulega innan tilgreindra tímamarka. Þótt slík háttsemi kunni að vera skiljanleg, svo sem að framan greinir, telur kærunefnd ljóst að hún felur í sér tafir af hálfu kæranda enda hafi hún gert stjórnvöldum ókleift að framkvæma flutning.

Með hliðsjón af framangreindu telur kærunefnd að tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda hafi verið á hans ábyrgð, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Af framangreindu leiðir að skilyrði 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er ekki uppfyllt.

Vegna tilvísunar kæranda til úrskurða kærunefndar í málum nr. KNU21070020 frá 26. ágúst 2021 og KNU21080008 frá 22. september 2021, tekur kærunefnd fram að hún telur málsatvik í máli kæranda ekki sambærileg málsatvikum í fyrrgreindum úrskurðum. Í fyrrgreindum málum taldi kærunefnd að þau samskipti sem hafi átt sér stað milli kærenda og stoðdeildar hafi snúið að því að kanna almennt afstöðu kærenda til fyrirhugaðs flutnings til Grikklands. Í máli kæranda liggur fyrir að hann hafi lýst þeirri afstöðu sinni að hann hygðist ekki ætla að vinna með íslenskum stjórnvöldum og ekki undirgangast Covid-19 sýnatöku í tengslum við fyrirhugaða framkvæmd.

Í ljósi framangreinds er því ekki fallist á að atvik hafi breyst verulega í máli kæranda á þann hátt að hann eigi rétt á endurupptöku á máli sínu, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Endurupptöku á máli hans er þar með hafnað.

 

 

Úrskurðarorð:

Kröfu kæranda er hafnað.

The appellant‘s request is denied.

 

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                             Gunnar Páll Baldvinsson


 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta