Hoppa yfir valmynd

Nr. 322/2019 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 21. júní 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 322/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19040012

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 2. apríl 2019 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...], og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 14. mars 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar hér á landi með vísan til 2. og 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sbr. 42. gr. sömu laga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 12. nóvember 2018. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Svíþjóð. Þann 23. nóvember 2018 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Svíþjóð, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá sænskum stjórnvöldum, dags. 3. desember 2018, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 14. mars 2019 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 19. mars 2019 og kærði kærandi ákvörðunina þann 2. apríl 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 12. apríl 2019, ásamt fylgigögnum.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að sænsk stjórnvöld bæru ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Svíþjóðar ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Svíþjóðar.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur m.a. fram að hann hafi komið til Svíþjóðar sem fylgdarlaust barn, 16 ára að aldri. Eftir að umsókn hans um alþjóðlega vernd hafi verið synjað hafi hann misst bæði húsnæði og framfærslu og verið neitað um læknisaðstoð. Í greinargerðinni kemur fram að hann hafi flúið til Íslands til þess að komast hjá endursendingu til [...]. Andleg líðan kæranda hafi ekki verið góð og hafi ásæknar hugsanir, áhyggjur, lystarleysi, kvíði, ótti og þunglyndi gert honum erfitt fyrir. Hann hafi leitað til sálfræðings vegna þessa í Svíþjóð en ekki eftir komuna til Íslands.

Kærandi byggir á því að umsókn hans um alþjóðlega vernd hér á landi skuli tekin til efnislegrar meðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í því samhengi fjallar kærandi um túlkun á 2. mgr. 36. gr. laganna, m.a. með hliðsjón af lögskýringargögnum við ákvæðið, hugtakinu sérstaklega viðkvæm staða, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga og fyrri úrskurða kærunefndar útlendingamála. Þá gerir kærandi athugasemd við beitingu reglugerðar nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, sem kærandi telji að eigi sér ekki lagastoð. Í því sambandi vekur kærandi athygli á því að orðalag 32. gr. a umræddrar reglugerðar bendi til þess að þau viðmið sem þar komi fram séu nefnd í dæmaskyni og geti því ekki komið í stað heildarmats á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda.

Kærandi getur þess m.a. að andleg vanlíðan hans hafi verið mikil. Hann hafi þurft að flýja heimaríki sitt þegar hann var 14 ára að aldri og hafi þurft að þola mikið ofbeldi þegar honum hafi verið haldið nauðugum í átta mánuði í vinnubúðum í [...]. Framlögð gögn frá Göngudeild sóttvarna staðfesti að kærandi þjáist af miklum kvíða og ótta og glími við erfiðar minningar vegna framangreinds. Til stuðnings sjónarmiðum sínum vísar kærandi enn fremur til úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 553/2017 frá 10. október 2017. Með vísan til ungs aldurs kæranda, erfiðrar reynslu, andlegrar líðanar og stefnu sænskra stjórnvalda hvað varðar endursendingar [...] umsækjanda um alþjóðlega vernd til heimaríkis telji kærandi að skilyrði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga séu uppfyllt.

Jafnframt byggir kærandi á því að ótækt sé að senda hann til Svíþjóðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í 42. gr. laga um útlendinga sé mælt fyrir um grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement, sem kveði á um skýrt bann við sendingu einstaklinga til svæðis þar sem líf þeirra eða frelsi kunni að vera í hættu. Kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd í Svíþjóð og lagt fram skjal þess efnis að hann muni verða sendur þaðan til [...]. Því standi kærandi frammi fyrir raunverulegri hættu á að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu verði hann sendur til Svíþjóðar. Að mati kæranda feli ákvörðun sænska ríkisins um að endursenda sig til [...] í sér brot gegn áðurnefndri grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement. Í ljósi framangreinds myndi ákvörðun íslenskra stjórnvalda um að senda kæranda til Svíþjóðar brjóta í bága við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Til viðbótar framangreindu gerir kærandi fjórar athugasemdir við hina kærðu ákvörðun. Í fyrsta lagi gerir kærandi athugasemd við umfjöllun Útlendingastofnunar um réttindi kæranda í Svíþjóð. Í því sambandi vísar kærandi til umfjöllunar um aðstæður og réttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd í Svíþjóð í greinargerð sinni til Útlendingastofnunar. Í öðru lagi, að Útlendingastofnun hafi ekki fallist á að kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Í því samhengi tekur kærandi m.a. fram að Útlendingastofnun hafi ekki sinnt lögbundinni rannsóknarskyldu í máli sínu.

Ekki hafi farið fram ítarlegt mat á þeim áhrifum sem upplifun kæranda í [...] hafi haft á andlega og líkamlegu heilsu hans, eða mat á áhrifum endursendingar til Svíþjóðar. Hvað þetta varðar vísar kærandi til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Í þriðja lagi, að í hinni kærðu ákvörðun sé því haldið fram að kærandi muni hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í Svíþjóð. Lagabreytingar frá árinu 2017 kveði á um að umsækjendur um alþjóðlega vernd, sem fengið hafa neikvæða lokaniðurstöðu í máli sínu og stendur til að brottvísa, eigi ekki lengur rétt á þjónustu frá sænskum yfirvöldum sé frestur til brottfarar af sjálfsdáðum liðinn. Þá sé heimilt að hneppa umsækjendur, sem endursendir hafa verið til Svíþjóðar á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, í varðhald við endurkomu þeirra til landsins á meðan gengið er frá brottvísun þeirra. Í fjórða og síðasta lagi gerir kærandi alvarlega athugasemd við þá niðurstöðu Útlendingastofnunar að ekkert bendi til þess að flutningur kæranda til Svíþjóðar brjóti í bága við 33. gr. flóttamannasamningsins, 13. gr. mannrétttindasáttmála Evrópu eða 1. og 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að mati kæranda sé þetta sérstaklega athyglisverð niðurstaða í ljósi þess að kærandi hafi fengið lokasynjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd í Svíþjóð, m.a. á þeim grundvelli að hann hafi neitað að fara í læknisfræðilega aldursgreiningu þar í landi. Þá hafi hann lagt fram tilkynningu um brottvísun til [...]. Kærandi telji því miklar líkur á því að sænsk yfirvöld muni ekki veita honum þá vernd sem honum er áskilin í skuldbindingum á sviði mannréttinda, þar á meðal grundvallarreglunni um non-refoulement.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Svíþjóðar á umsókn kæranda er byggð á d-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja sænsk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi [...] einstæður karlmaður. Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun m.a. vera með slæman tannverk og eiga við andleg vandamál að stríða, þ.e. þunglyndi, kvíða, áhyggjur, ásæknar hugsanir og lystarleysi. Af gögnum frá Göngudeild sóttvarna verður ráðið að líkamlegt heilsufar kæranda sé almennt ágætt, þrátt fyrir að kærandi hafi m.a. glímt við [...] og magabólgu. Þá verður ráðið að kærandi glími við andlega erfiðleika, n.t.t. kvíða og svefnleysi, og hafi leitað aðstoðar vegna þess bæði hér á landi og í Svíþjóð.

Það er mat kærunefndar að gögn málsins, þ. á m. viðtöl við kæranda hjá Útlendingastofnun og framlögð heilsufarsgögn, beri ekki með sér að kærandi hafi sérþarfir í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem taka þurfi tillit til við meðferð málsins.

Aðstæður í Svíþjóð

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Svíþjóð, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Amnesty International Report 2017/18 (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Annual Report on the situation of Asylum in the European Union 2017 (European Asylum Support Office, 18. júní 2018);
  • Asylum Information Database, National Country Report: Sweden (European Council on Refugees and Exiles, apríl 2019);
  • Freedom in the World 2018 – Sweden (Freedom House, 28. maí 2018);
  • Good Advice for Asylum Seekers in Sweden (The Swedish Network of Refugee Support Group, janúar 2018);
  • Observations by the United Nations High Commissioner for Refugees Regional Representation for Northern Europe on the draft law proposal on restrictions of the possibility to obtain a residence permit in Sweden (The UN High Commissioner for Refugees, 10. mars 2016);
  • Sweden 2018 Human Rights Report (United States Department of State, 13. mars 2019);
  • Upplýsingar af vefsíðu sænsku útlendingastofnunarinnar (www.migrationsverket.se).

Í framangreindum gögnum kemur fram að sænska útlendingastofnunin (s. Migrationsverket) tekur ákvarðanir er varða umsóknir um alþjóðlega vernd. Umsækjandi um alþjóðlega vernd á þess kost að bera synjun útlendingastofnunarinnar á umsókn sinni undir stjórnsýsludómstól (s. Migrationsdomstolen) og þeim dómi er unnt að áfrýja til áfrýjunardómstóls (s. Migrationsöverdomstolen). Umsækjendur um alþjóðlega vernd, sem hafa fengið endanlega synjun á umsókn sinni hjá sænsku útlendingastofnuninni og framangreindum dómstólum, eiga þess kost að leggja fram viðbótarumsókn hjá sænsku útlendingastofnuninni, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Ef nýjar upplýsingar eða ný gögn liggja fyrir í máli umsækjanda, aðstæður hafa breyst verulega eða verulegir annmarkar hafa verið á fyrri málsmeðferð, geta skilyrði fyrir viðbótarumsókn verið uppfyllt. Synjun sænsku útlendingastofnunarinnar um að taka viðbótarumsókn til skoðunar má kæra og engin takmörk eru á því hversu oft umsækjandi getur lagt fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd. Umsækjendur eiga rétt á takmarkaðri félagslegri aðstoð á meðan viðbótarumsókn er til meðferðar. Þá eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun, skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem muni brjóta í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Svíþjóð er aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir sambandsins vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Samkvæmt framangreindum skýrslum um aðstæður og aðbúnað umsækjenda í Svíþjóð eiga þeir rétt á húsnæði, mataraðstoð og vasapeningum, geti þeir ekki framfleytt sér sjálfir. Þá kemur fram á heimasíðu sænsku útlendingastofnunarinnar og í gagnagrunni Evrópuráðsins um flóttamenn og landflótta einstaklinga, Asylum Information Database, að umsækjendum um alþjóðlega vernd í Svíþjóð er tryggður aðgangur að grunnheilbrigðisþjónustu. Sveitarfélagið sem umsækjandi um alþjóðlega vernd dvelst í hefur milligöngu um að útvega umsækjanda lækni og aðra heilbrigðisþjónustu við hæfi. Þá er tekið tillit til þarfa einstaklinga sem teljast vera í viðkvæmri stöðu, þ. á m. að því er varðar sérfræðiaðstoð. Greiða þarf vægt komugjald vegna heimsóknar á heilsugæslu en innlögn á spítala er umsækjanda að kostnaðarlausu. Fari kostnaður vegna heilbrigðisþjónustu fram úr ákveðinni upphæð er hægt að óska eftir fjárhagsaðstoð frá ríkinu. Umsækjandi um alþjóðlega vernd í Svíþjóð, sem fengið hefur neikvæða niðurstöðu í máli sínu hefur aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu fram að brottför en nýtur hins vegar ekki fjárhagsstuðnings til að greiða fyrir slíka þjónustu eða lyf.

Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér er ljóst að sænsk stjórnvöld uppfylla skyldur sínar varðandi lögfræðiaðstoð við umsækjendur um alþjóðlega vernd skv. tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 32/2013 um málsmeðferð við veitingu og afturköllun alþjóðlegrar verndar, sbr. 19. og 20. gr. hennar. Þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd leggja fram umsókn um vernd í Svíþjóð í fyrsta skipti eiga þeir rétt á lögfræði- og túlkaþjónustu án endurgjalds þegar umsókn er til meðferðar hjá sænsku útlendingastofnuninni og á kærustigum málsins. Umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga hins vegar ekki rétt á lögfræðiþjónustu án endurgjalds við að leggja fram viðbótarumsókn en þeir geta átt rétt á að fá tilnefndan lögmann ef sænska útlendingastofnunin samþykkir að taka viðbótarumsóknina til skoðunar. Endurgjaldslaus túlkaþjónusta er ekki í boði við framangreinda málsmeðferð. Umsækjendur um alþjóðlega vernd geta einnig leitað til frjálsra félagasamtaka, t.d. ráðgjafarmiðstöðvar (s. Rådgivningsbyrån) sem veitir lögfræðiaðstoð og ráðgjöf.

Samkvæmt framangreindri skýrslu gagnagrunns Evrópuráðsins um flóttamenn og landflótta einstaklinga eru ákvarðanir um varðhald umsækjenda um alþjóðlega vernd í Svíþjóð almennt teknar af sænsku útlendingastofnuninni, stjórnsýsludómstólunum eða af lögreglunni. Í 10. kafla sænsku útlendingalaganna eru talin upp skilyrði þess að setja megi einstaklinga í varðhald, þ.m.t. þá sem hafa verið umsækjendur um alþjóðlega vernd. Meðal annars má setja umsækjendur í varðhald ef þeim hefur verið vísað brott frá landinu á tilteknum grundvelli eða að líklegt sé að þeim verði synjað um inngöngu í landið. Slíkt er þó ekki gert nema á grundvelli almannaöryggis eða að hætta sé talin á að umsækjandi muni reyna að koma sér undan brottvísun.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Með vísan til umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Svíþjóð er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Áður hefur verið fjallað um málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Svíþjóð, þ.m.t. möguleika umsækjenda til að fá ákvarðanir um synjun verndar endurskoðaðar hjá sænskum yfirvöldum. Sænsk yfirvöld eru bundin af sambærilegum reglum og Ísland um vernd gegn brottvísun umsækjenda um alþjóðlega vernd til ríkis þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra og frelsi ógnað (non-refoulement), sbr. IV. kafli sænskra laga um útlendinga (s. Utlänningslagen 2005:716). Að mati kærunefndar veitir málsmeðferð sænskra yfirvalda nægilega tryggingu fyrir því að einstaklingsbundið mat sé lagt á aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í því skyni að tryggja að enginn umsækjandi sé sendur þangað sem líf hans og frelsi er í hættu. Þá benda gögn málsins, þ.m.t. ákvörðun sænskra stjórnvalda varðandi umsókn kæranda um alþjóðlega vernd, að mati kærunefndar ekki til þess að málsmeðferð umsóknarinnar hafi verið óforsvaranleg. Samkvæmt framansögðu benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Svíþjóð, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Kemur 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga því ekki í veg fyrir að umsókn kæranda verði synjað um efnismeðferð.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst. Kærunefnd telur að aðstæður kæranda séu ekki þess eðlis að þær teljist sérstakar í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Í því sambandi hefur nefndin m.a. litið til þess að heilsufar kæranda sé ekki með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi eða að aðstæður hans að því leyti séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið. Af gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Svíþjóð verður ráðið að umsækjendur sem fengið hafa synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd í Svíþjóð eigi rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu. Að framangreindu virtu er það mat kærunefndar að kærandi komi til með að hafa aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu þar í landi. Auk þess verður ráðið af framangreindum gögnum að kærandi geti leitað ásjár sænskra yfirvalda, verði hann fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Þá telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki.

Hvað varðar sjónarmið kæranda um að varðhald í Svíþjóð kunni að bíða hans við komuna þangað til lands áréttar kærunefnd það sem þegar hefur komið fram um varðhald þar í landi. Umsækjendum um alþjóðlega vernd sem hlotið hafa endanlega neikvæða niðurstöðu í Svíþjóð getur, eftir atvikum, verið gert að sæta varðhaldi í samræmi við skilyrði sænskra laga þar um og getur það t.d. átt við þegar einstaklingur á yfir höfði sér brottvísun og grunur leikur á um að hann muni koma sér undan slíkri ákvörðun. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að ákvarðanir um varðhald útlendinga í Svíþjóð séu almennt teknar í samræmi við gildandi lög og grundvallarréttindi þar í landi, og reglur sem leiða m.a. af mannréttindasáttmála Evrópu, og þá séu aðstæður og aðbúnaður í sænskum varðhaldsmiðstöðum almennt góðar og hafi ekki sætt alvarlegri gagnrýni af hálfu eftirlitsaðila. Með hliðsjón af framangreindu telur nefndin því ljóst að sá möguleiki að kærandi kunni að vera færður í varðhald leiði ekki til þess að kærandi teljist eiga erfitt uppdráttar í Svíþjóð eða að öðru leyti séu fyrir hendi sérstakar ástæður í máli hans af þeim sökum.Í greinargerð kæranda er til rökstuðnings kröfum hans og sjónarmiðum vísað til fyrri úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 553/2017 og bent á að aðstæður kæranda svipi að miklu leyti til aðstæðna kæranda í því máli. Kærunefnd telur rétt að taka fram að þrátt fyrir að framangreint mál hafi varðað endursendingu kæranda [...] til Svíþjóðar, líkt og í máli kæranda, þá voru aðstæður í því máli annars eðlis, en það varðaði t.d. kæranda sem glímdi við alvarleg andleg og líkamleg veikindi. Að mati kærunefndar getur framangreindur úrskurður því ekki haft fordæmisgildi í máli kæranda.

Að öðru leyti er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður í máli hans. Verður málið því ekki tekið til efnismeðferðar á þeim grundvelli, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 10. janúar 2019 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 12. nóvember 2018.

Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar

Í greinargerð kæranda eru gerðar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, þ. á m. gerir kærandi athugasemd við rannsókn Útlendingastofnunar með vísan til rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, auk þess að gera athugasemd við lagastoð reglugerðar nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga.

Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg en áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar að reglugerðina skorti ekki lagastoð. Kærunefnd telur því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda að þessu leyti.

Kærunefnd hefur að öðru leyti farið yfir hina kærðu ákvörðun og málsmeðferð stofnunarinnar og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Frávísun

Gögn málsins bera það með sér að kærandi hafi komið hingað til lands þann 12. nóvember 2018 og sótt um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Svíþjóðar eigi síðar en 6 mánuðum eftir birtingu þessa úrskurðar, sbr. til hliðsjónar 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa sænsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Svíþjóðar með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

 Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Anna Tryggvadóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta