Hoppa yfir valmynd

Nr. 162/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 23. mars 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 162/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23010014

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 10. janúar 2023 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Palestínu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 10. janúar 2023, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi, aðallega á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, en til vara á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi krefst þess til þrautavara að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til meðferðar á ný á grundvelli 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. , til þrautaþrautavara á grundvelli 11. gr. stjórnsýslulaga og þrautaþrautaþrautavara á grundvelli 22. gr. stjórnsýslulaga. Þá krefst kærandi þess til þrautaþrautaþrautaþrautavara að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til meðferðar á ný á grundvelli réttmætra væntinga.

Í ljósi frásagnar kæranda og gagna málsins taldi kærunefnd ekki ástæðu til að gefa kæranda eða talsmanni hans kost á að koma fyrir nefndina líkt og óskað var eftir í greinargerð, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.      Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 10. ágúst 2022. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum 11. ágúst 2022 kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi. Hinn 3. október 2022 var beiðni um upplýsingar um stöðu kæranda beint til yfirvalda í Grikklandi, sbr. 34. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá grískum yfirvöldum, dags. 5. október 2022, kom fram að honum hefði verið veitt réttarstaða flóttamanns 28. febrúar 2022 og að hann væri með gilt dvalarleyfi þar í landi til 28. febrúar 2025. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 13. október 2022, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 10. janúar 2023 að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda 10. janúar 2023 og kærði kærandi ákvörðunina þann sama dag til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 24. janúar 2023 ásamt fylgigögnum. Þá barst kærunefnd viðbótargreinargerð 7. mars 2023 ásamt fylgigögnum.

III.      Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kæranda hafi verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Grikklands.

IV.      Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd í Grikklandi þar sem það hafi verið eina leiðin til að komast inn í Evrópu en kærandi hafi ætlað að koma til Íslands vegna sérstakra tengsla hans við landið. Kærandi hafi dvalið í Grikklandi í um 5-6 mánuði, ástandið þar hafi verið slæmt og aðstæður ekki mannsæmandi. Kærandi hafi verið heimilislaus og þurft að sofa á götunni sem hafi leitt til húðsjúkdóms á baki og höndum kæranda. Kærandi hafi ekki fengið nauðsynlega læknisaðstoð og verið neitað um heilbrigðisþjónustu. Kærandi hafi upplifað fordóma af hálfu grísku lögreglunnar, verið stöðvaður og yfirheyrður, vegna stöðu sinnar sem flóttamaður. Kærandi sé að mestu heilsuhraustur en sé með húðsjúkdóm. Þá kemur fram að kærandi eigi marga ættingja hér á landi en byggi sérstaklega á tengslum sínum við tvo nafngreinda frændur sína og tvær nafngreindar frænkur sem hafi dvalarleyfi hér á landi. Tengsl þeirra séu náin og sterk og kærandi hafi lagt fram fjölda gagna máli sínu til stuðnings, sem sanni sérstök tengsl hans við Ísland. Auk þess hafi bræður kæranda lagt fram umsóknir um alþjóðlega vernd hér á landi.

Kærandi gerir athugasemdir við niðurstöðu og röksemdafærslu Útlendingastofnunar varðandi sérstök tengsl hans við landið. Í fyrsta lagi gerir kærandi athugasemd við að röksemdafærslan sé haldin verulegum lagalegum annmörkum, enda sé engin leið að ráða á hverju synjun stofnunarinnar byggi. Ekki sé nefnt af hverju tengsl kæranda við landið séu ekki sérstaklega rík og hvaða gögn eða meginsjónarmið hafi verið ráðandi við matið. Rökstuðningur Útlendingastofnunar brjóti gegn 22. gr. stjórnsýslulaga, þar sem kærandi geti ekki skilið af lestri rökstuðnings ákvörðunarinnar hvers vegna Útlendingastofnun hafi komist að niðurstöðu sinni. Þá hafi Útlendingastofnun ekki þýtt gögn sem kærandi hafi lagt fram. Rökstuðningur Útlendingastofnunar sé ófullnægjandi, ómálefnalegur og villandi. Í öðru lagi gerir kærandi athugasemd við tilvísun Útlendingastofnunar til 20. gr. laga um útlendinga og telur hana vera ómálefnalega, taktlausa og ekki í samræmi við vandaða stjórnsýsluhætti. Útlendingastofnun vísi til þess að ekkert bendi til þess að kærandi muni ekki geta nýtt sér rétt sinn samkvæmt 20. gr. laga um útlendinga, komið hingað til lands og ræktað tengsl sín. Röksemdarfærslan sé yfirborðskennd, enda sé ljóst að flóttafólk í Grikklandi eigi flest ekki fyrir nauðsynjavörum, hafi ekki aðgang að húsnæði, atvinnu o.fl. Ekkert bendi því til þess að kærandi muni geta nýtt sér þennan rétt að öðru leyti en að hann sé bundinn inn í íslensk lög. Í þriðja lagi gerir kærandi athugasemd við vísun Útlendingastofnunar til þess að það yrði ekki talið ósanngjarnt gagnvart kæranda eða ættingjum hans að hann yrði endursendur til Grikklands. Við það mat hafi stofnunin aðeins vísað til þess að kærandi sé með dvalarleyfi í Grikklandi og geti haldið áfram að rækta tengsl sín við ættingja sína þar í landi. Kærandi telur að Útlendingastofnun hafi ekki tekið inn í matið að kærandi eigi marga ættingja hér á landi, eða um […] ættingja sem séu búsettir hér, hafi kennitölu og séu flestir ekki fjarskyldir ættingjar. Kærandi hafi búið með frændum og frænkum sínum í heimaríki og alist upp með þeim. Afar ósanngjarnt sé gangvart kæranda og ættingjum hans ef hann yrði endursendur til Grikklands, enda hafi hann engin tengsl við Grikkland, hafi dvalið þar í styttri tíma en hér á landi og eigi enga ættingja þar í landi. Þá væri ósanngjarnt ef kærandi væri sá eini úr fjölskyldunni sem fengi synjun um efnismeðferð á grundvelli sérstaka tengsla við Ísland. Kærandi hafi ekki séð að aðrir einstaklingar úr fjölskyldunni hafi verið sendir úr landi. Í því samhengi vísar kærandi til nafngreinds frænda síns sem hafi fengið efnismeðferð á grundvelli sérstakra tengsla við landið á sama tíma og kærandi hafi fengið synjun. Þá gerir kærandi jafnframt athugasemd við að hann hafi ekki fengið tækifæri til að leggja fram frekari gögn til að staðfesta skyldleika. Þar að auki hafi Útlendingastofnun borið að rannsaka framlögð gögn og taka afstöðu til þeirra í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Engin málefnaleg rök hafi stutt þá ákvörðun stofnunarinnar að rannsaka og þýða ekki gögn sem kærandi hafi lagt fram. Þá bendi allt til þess að Útlendingastofnun hafi ekki skoðað málið heildstætt og telur kærandi að rökstuðningur stofnunarinnar um að hún hafi komist að niðurstöðu á grundvelli fyrirliggjandi gagna, sem hún hafi ekki þýtt, samrýmist ekki 22. gr. stjórnsýslulaga.

Þá gerir kærandi alvarlegar athugasemdir við málsmeðferð og niðurstöðu Útlendingastofnunar og telur hana brjóta gegn 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun hafi ekki verið fært að komast að niðurstöðu í máli kæranda þegar ákvörðun var tekin í ljósi takmarkaðrar rannsóknar. Útlendingastofnun hafi verið í lófa lagið að láta þýða gögn málsins og afla nauðsynlegra og aðgengilegra upplýsinga við ákvörðunartöku í málinu. Þá telur kærandi að hin kærða ákvörðun brjóti gegn 11. gr. stjórnsýslulaga, þar sem frændi kæranda hafi fengið að leggja fram gögn við meðferð máls hans til staðfestingar á skyldleika og tengslum og hafi sem fyrr segir fengið efnismeðferð á grundvelli sérstakra tengsla. Þá telur kærandi að málsmeðferð og niðurstaða Útlendingastofnunar hafi brotið gegn réttmætum væntingum kæranda. Kærandi hafi haft raunverulegar réttmætar væntingar þar sem frændi hans hafi fengið efnismeðferð á grundvelli sérstakra tengsla. Þá hafi kærandi verið í góðri trú um að hann ætti rétt á efnismeðferð þar sem hann eigi um 60 ættingja hér á landi sem hafi fengið alþjóðlega vernd á grundvelli sérstakra tengsla. Þá uppfylli kærandi skilyrði um að væntingar séu réttmætar samkvæmt hlutlægum mælikvarða með vísan til framangreinds rökstuðnings.

Kærandi byggir aðallega á því að umsókn hans verði tekin til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra tengsla hans við Ísland, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til athugasemda í frumvarpi sem varð að lögum um útlendinga, sem gefi greinargóða skýringu til hvaða sjónarmiða Útlendingastofnun sé heimilt að líta við matið. Kærandi vísar til þess að kærunefnd útlendingamála hafi litið til þess hvort kærandi hafi greint frá tengslum sínum við upphaf málsmeðferðar, sbr. úrskurð nefndarinnar nr. 21/2023 frá 12. janúar 2023, máli sínu til stuðnings. Kærandi hafi sérstaklega komið til landsins vegna sterkra fjölskyldutengsla hans hér á landi. Kærandi hafi lagt fram ótal myndir af sér og ættingjum sínum fyrir og eftir komu hans til landsins, ásamt skjáskotum af samskiptum þeirra á milli. Af þeim megi sjá að hann hafi eytt með þeim mörgum gæðastundum, bæði í heimaríki og hér á landi. Þá megi einnig sjá að kærandi hafi átt í samskiptum við ættingja sína á meðan hann hafi verið fastur í Grikklandi og fyrir komu hans til Íslands. Kærandi hafi jafnframt flutt inn til föðurbróður síns vegna náinna tengsla þeirra á milli. Þá ítrekar kærandi að þrátt fyrir að hann nefni umrædd föðursystkini sín, sem hann hafi sterkustu tengslin við, eigi hann stórfjölskyldu hér á landi. Kærandi byggir á því að hann eigi sannanlega ættingja hér á landi, sem hafi heimild til dvalar og hann hafi raunveruleg og sérstök tengsl við. Tengsl kæranda séu ríkari hér á landi en við Grikkland þar sem hann eigi enga ættingja eða vini þar í landi. Þá verði að telja afar ósanngjarnt að endursenda hann til Grikklands þar sem nánast öll fjölskylda hans hafi sameinast hér á landi.

Kærandi telur að þær aðstæður sem kærandi upplifði og muni standa frammi fyrir verði hann endursendur til Grikklands falli að öllu leyti undir þau skilyrði sem sett séu fram í 32. gr. a reglugerðar um útlendingar nr. 540/2017, með síðari breytingum. Því séu uppi sérstakar ástæður í máli kæranda í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í Grikklandi hafi kærandi takmarkaðan aðgang að heilbrigðisþjónustu og lyfjum og gögn málsins styðji lýsingar kæranda um að hann hafi ekki haft aðgang að nauðsynlegri læknisþjónustu í Grikklandi. Kærandi hafi verið að glíma við þunglyndi og kvíða og hafi farið til sálfræðings hér á landi. Þá hafi kærandi takmarkaðan aðgang að húsnæði í Grikklandi. Kæranda hafi verið vísað úr flóttamannabúðum í Grikklandi og hafi neyðst til að sofa á götunni í marga mánuði. Kærandi hafi ekki fengið félagslega framfærslu frá grískum yfirvöldum. Fjölmargt flóttafólk í Grikklandi fái ekki bætur eða aðstoð frá grískum stjórnvöldum sökum skriffinsku, óbilgirni og jafnvel beinnar mismununar af hálfu opinbers starfsfólks. Þá hafi kærandi hvorki skatt- né almannatrygginganúmer í Grikklandi. Kærandi greinir frá því að atvinnuleysi í Grikklandi sé með því hæsta í Evrópu. Samkvæmt heimildum sé atvinnuleysi, efnahagskreppa, tungumálaerfiðleikar og ójöfn staða flóttafólks þegar kemur að starfsnámi í Grikklandi, dæmi um þá fjölmörgu erfiðleika sem geri það nánast ómögulegt fyrir flóttafólk að framfleyta sér í landinu. Verði flóttafólk sér úti um atvinnu sé oftar en ekki um að ræða ólöglega atvinnu sem leiði til þess að það fái ekki aðgang að því félagslega kerfi sem fylgi því að hafa löglega atvinnu og geri flóttafólk enn berskjaldaðra á vinnumarkaði. Kærandi vísar til heimilda og telur að í ljósi þeirra fjölmörgu aðgangshindrana sem nefndar hafa verið auk samkeppni við grískumælandi einstaklinga séu atvinnumöguleikar kæranda litlir sem engir svo telja megi jafngilda útilokun á lagalegum réttindum hans til atvinnu. Þá byggir kærandi á því að hann hafi upplifað fordóma og áreiti frá lögreglunni í Grikklandi. Kærandi hafi búið við mikið óöryggi og orðið reglulega fyrir aðkasti af hálfu lögreglunnar. Kærandi vísar til heimilda um mismunun, ofbeldi og hatursglæpi í Grikklandi máli sínu til stuðnings. Með vísan til alls framangreinds muni kærandi eiga erfitt uppdráttar í Grikklandi vegna alvarlegrar mismununar á grundvelli kynþáttar og stöðu sinnar og geti vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Í máli kæranda séu fyrir hendi sérstakar ástæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og því beri að taka mál hans til efnismeðferðar hér á landi.

Kærandi byggir jafnframt á því að með því að endursenda hann til Grikklands sé brotið gegn grundvallarreglu þjóðaréttar um bann við endursendingu (non-refoulement) sem lögfest hefur verið í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Slík ákvörðun myndi jafnframt brjóta í bága við 2. mgr. 68. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, sbr. lög nr. 10/1979 og 33. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

Kærandi óskar jafnframt eftir því að koma fyrir nefndina og tjá sig um efni máls og einstök atriði í samræmi við 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga.

Í viðbótargreinargerð sem barst kærunefnd 7. mars 2023 ítrekar kærandi fyrri kröfur sínar og krefst þess til viðbótar að við mat á sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verði litið til nýrra heilsufarsgagna um andlega heilsu kæranda og metið hvaða áhrif endursending hans til Grikklands hafi á heilsufar hans.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi karlmaður á [...]. Við meðferð málsins hefur kærandi greint frá því að eiga fjölda ættingja sem séu búsettir hér á landi. Kærandi hafi lagt fram umsókn um og hlotið alþjóðlega vernd í Grikklandi í febrúar 2022 og dvalið þar í landi þar til hann hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi í ágúst 2022. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa verið neitað um aðgang að húsnæði í Grikklandi. Þá hafi kærandi ekki lagt fram umsókn um skatt- eða almannatrygginganúmer í Grikklandi, þar sem hann hafi ekki ætlað sér að dvelja þar í landi. Kærandi hafi jafnframt ekki fengið eða leitað eftir atvinnu eða fjárhagsstuðningi í Grikklandi. Þá hafi kærandi ekki leitað eftir heilbrigðisþjónustu að öðru leyti en hann hafi óskað eftir að fara til tannlæknis og verið greint frá því hann þyrfti að greiða sjálfur fyrir þá þjónustu. Þá greindi kærandi frá því að hann hafi upplifað fordóma af hálfu lögreglu í Grikklandi þegar hann hafi farið út fyrir flóttamannabúðirnar. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að vera við góða andlega og líkamlega heilsu en að hann væri með húðsjúkdóm. Framlög heilsufarsgögn benda til þess að kærandi glími við þunglyndi.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi 28. febrúar 2022 og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 28. febrúar 2025. Að mati kærunefndar telst sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi virk alþjóðleg vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum. Þá hefur kærunefnd jafnframt kynnt sér þær skýrslur sem kærandi vísar til í greinargerð sinni og litið til efnis þeirra við mat á aðstæðum í viðtökuríki.

  • 2022 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 20. mars 2023);
  • Amnesty International Report 2021/22 – The State of the World’s Human Rights (Amnesty International, 29. mars 2022);

  • Annual report 2020 (The Greek Ombudsman Independent Authority, 31. desember 2020);
  • Asylum Information Database, Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, 30. maí 2022);
  • Beneficiaries of international protection in Greece – Access to documents and socio-economic rights (Refugee Support Aegean, 31. mars 2022);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);

  • Freedom in the World 2022 – Greece (Freedom House, febrúar 2022);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Report on the Living Conditions of Beneficiaries of International Protection in Greece (Passerell, nóvember 2020);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);

  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu;

  • Upplýsingar af vefsíðu Doctors of the World (https://mdmgreece.gr/, sótt 23. mars 2023);
  • Upplýsingasíða Refugee Info Greece (http://refugee.info/greece/, sótt 23. mars 2023) og
  • World Report 2023 – Events of 2022 (Human Rights Watch, 12. janúar 2023).

Af framangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagsástand í Grikklandi hafi haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafi vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búi í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Samkvæmt skýrslum European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá í maí 2022 og Passerell frá nóvember 2020 eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu með sömu skilyrðum og grískir ríkisborgarar, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt fyrrnefndri skýrslu hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta eigi jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafi rétt til dvalar í ríkinu. Auk þess hafi útgáfa almannatrygginganúmera (AMKA) (áður nefnt kennitölur) falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt upplýsingasíðu Refugee Info Greece fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og handhafa verndar í Grikklandi og sem veitir upplýsingar á grísku, arabísku, farsi, urdu, frönsku, lingala/bantu, norður-kúrdísku og ensku hafi allir umsækjendur um alþjóðlega vernd fengið svokallað AMKA eða almannatrygginganúmer sem veitti þeim m.a. aðgang að heilbrigðiskerfinu. Í janúar 2020 hafi skilyrði fyrir útgáfu almannatrygginganúmera breyst og fái umsækjendur um alþjóðlega vernd nú útgefin tímabundin almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmer (PAAYPA), meðan þeir sem hlotið hafa alþjóðlega vernd fái útgefið varanlegt almannatrygginganúmer. Þegar umsækjanda sé veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi verði almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmerið óvirkt mánuði eftir að viðkomandi hljóti dvalarleyfi. Einstaklingar geti þá í kjölfarið sótt um varanlegt almannatrygginganúmer í næstu þjónustumiðstöð. Til að sækja um slíkt númer þurfi einstaklingar að framvísa dvalarleyfi eða ferðaskilríkjum og staðfestingu á heimilisfangi. Til að fá varanlegt almannatrygginganúmer gefið út sé nægilegt að sýna fram á heimilisfang í búðum eða í gistiskýli. Þá segir á upplýsingasíðunni að samkvæmt gildandi löggjöf séu allir aðilar í hinum opinbera heilbrigðisgeira skyldugir til að veita öllum fyrstu hjálp þegar nauðsyn beri til. Eigi allir rétt á að leita til sjúkrahúsa og fá ókeypis læknisþjónustu og lyf sem þeir þarfnist þrátt fyrir að viðkomandi hafi hvorki PAAYPA eða AMKA númer. Á upplýsingasíðunni er unnt að eiga í samskiptum við þjónustufulltrúa á netspjalli í gegnum Facebook á áðurgreindum tungumálum. Á upplýsingasíðunni er einnig hægt að nálgast skjal á grísku sem hlaða má niður þar sem þessi réttur til þjónustu fyrir alla er útskýrður.

Í skýrslu ECRE kemur fram að aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi að húsnæði sé háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með heimild til dvalar í Grikklandi. Fá gistiskýli séu í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði sé til staðar sem einungis sé ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt geti reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin sé mikil og dæmi séu um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum og yfirfullum íbúðum við mjög bágar aðstæður. Eigi þetta einnig við um einstaklinga sem hafi verið sendir aftur til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum. Þá hafi í mars 2020 verið gerðar breytingar á útlendingalöggjöfinni í Grikklandi sem kveði á um að þegar ákvörðun um að veita alþjóðlega vernd liggi fyrir skuli draga úr fjár- og húsnæðisstuðningi. Handhöfum alþjóðlegrar verndar sem dvelji í úrræðum innan hins svokallaða ESTIA kerfi eða öðrum úrræðum, þar með talið hótelum og íbúðum, sé skylt að yfirgefa þau innan 30 daga eftir að hafa hlotið alþjóðlega vernd. Þó séu undantekningar frá þessari reglu, sérstaklega þegar um sé að ræða fólk sem glími við alvarlegan heilsubrest. Í skýrslu Passerell kemur fram að félagasamtök bjóði upp á gistiúrræði fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi en langur biðlisti sé eftir plássi þar og barnafjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu gangi fyrir.

Þá kemur fram í skýrslu ECRE að einstaklingar með alþjóðlega vernd eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Þær félagslegu bætur sem í boði séu í Grikklandi séu t.d. bætur fyrir fjölskyldur en skilyrði fyrir slíkum bótum sé að sýnt sé fram á fimm ára óslitna og varanlega búsetu í Grikklandi. Þá veiti grísk yfirvöld einstaklingum, m.a. handhöfum alþjóðlegrar verndar, sem búi undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna, svokallaðan KEA styrk. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir flóttafólk þurfa einstaklingar sem hyggist nýta sér úrræðið að uppfylla ýmis skilyrði; þeir þurfi m.a. að hafa almannatrygginganúmer, skattnúmer (AFM), gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfi þeir að leggja fram ýmis gögn, m.a. framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búi í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfi þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búi. Samkvæmt skýrslu ECRE er erfitt að uppfylla skilyrðin. Þá séu í reynd engir aðrir framfærslustyrkir en KEA í boði. Jafnframt séu engin sérúrræði til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga. Þá sé félagsleg aðstoð ekki bundin við búsetu á tilteknum stað.

Samkvæmt skýrslum ECRE og Passerell hafa einstaklingar með alþjóðlega vernd aðgang að atvinnumarkaðnum með sömu skilyrðum og ríkisborgarar Grikklands. Ekki sé þörf á sérstöku atvinnuleyfi. Atvinnuleysi sé hins vegar mikið í landinu og samkeppni við grískumælandi einstaklinga og erfiðleikar við að fá skattnúmer (AFM) útgefið dragi úr atvinnumöguleikum handhafa alþjóðlegrar verndar. Þessir erfiðleikar við að sækja sér atvinnu hafi leitt til þess að einstaklingar reyni að afla sér tekna með óformlegum og jafnvel ólöglegum leiðum sem hindri þar með aðlögun þeirra að samfélaginu. Þeir einstaklingar sem ekki starfi innan hins hefðbundna atvinnumarkaðar hafi ekki aðgang að almannatryggingakerfinu og vinni sér ekki inn atvinnutengd réttindi, s.s. atvinnuleysisbætur. Mikill meirihluti einstaklinga með alþjóðlega vernd og umsækjendur um vernd reiði sig því á fjárhagsaðstoð og dreifingu matvæla og muna af hálfu stjórnvalda og mannúðarsamtaka til þess að uppfylla grunnþarfir sínar. Í skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafi mætt erfiðleikum við að fá útgefið skattnúmer hjá grískum stjórnvöldum. Útgáfa skattnúmers sé grundvöllur þess að geta lifað og starfað löglega í Grikklandi og þess að einstaklingar geti sótt aðstoð og réttindi hjá grískum stjórnvöldum. Skattnúmerið sé forsenda þess að geta sótt um félagslega aðstoð, til að vinna hvort sem er sem starfsmaður hjá öðrum eða að hefja eigin rekstur, og til þess að gera samninga um leigu á húsnæði. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd þurfi einstaklingar sem hyggjast sækja um skattnúmer að framvísa ferðaskilríki eða dvalarleyfi og staðfestingu á heimilisfangi eða heimilisleysi. Umsóknarferlið fari einungis fram á grísku en umsækjendur geti leitað eftir aðstoð hjá endurskoðendum eða frjálsum félagasamtökum.

Vegna upplýsinga um þessa erfiðleika varðandi útgáfu skattnúmera sendi kærunefnd útlendingamála árið 2020 fyrirspurn til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og óskaði eftir upplýsingum um hvort stofnuninni væri kunnugt um hindranir sem einstaklingar með alþjóðlega vernd í Grikklandi kunni að mæta við að verða sér úti um slíkt skattnúmer. Í svari Flóttamannastofnunnar, dags. 10. mars 2020, kemur m.a. fram að almennt þurfi að sækja um skattnúmerið í eigin persónu hjá viðeigandi stjórnvaldi, umsóknina þurfi að fylla út á grísku og sýna þurfi skilríki s.s. dvalarskírteini. Þá sé engin túlkaþjónusta í boði en öll málsmeðferðin, bæði skriflega umsóknin og samskipti við stjórnvöld, þurfi að fara fram á grísku. Starfsmenn grískra yfirvalda séu ekki skyldugir samkvæmt lögum til þess að tala ensku í störfum sínum eða vinna með gögn sem ekki séu skrifuð eða þýdd yfir á grísku. Niðurstaða umsóknar um skattnúmer sé því undir því komin að starfsmaðurinn sé viljugur til samvinnu og að umsækjandi um skattnúmer hafi grunn í ensku eða grísku. Þá kom fram í svari Flóttamannastofnunar að það væri mismunandi og oft misvísandi framkvæmd milli þeirra stjórnvalda sem sjái um útgáfu númeranna. Framkvæmdin færi í raun eftir því hversu vant starfsfólkið væri að þjónusta þennan hóp. Þá geti viðmót og vilji starfsmanna stjórnvaldsins haft áhrif á niðurstöðu varðandi útgáfu skattnúmers og þeir umsækjendur sem njóti aðstoðar frjálsra félagasamtaka eða lögmanna í umsóknarferlinu séu líklegri til þess að fá jákvætt svar við umsókn sinni. Þá hafi komið upp vandamál hjá þessum hópi varðandi það að tengja skattnúmer hjóna saman. Grísk skattayfirvöld hafi árið 2018, gefið út fyrirmæli um ítarlegri skoðun á skilríkjum erlendra umsækjenda um skattnúmer, sem hafi í kjölfarið leitt til þess að biðtími eftir niðurstöðu hafi lengst töluvert hjá þeim hópi. Flóttamannastofnun, gríski umboðsmaðurinn og frjáls félagasamtök hafi í kjölfarið ítrekað lýst yfir áhyggjum vegna þessa og því hafi grísk stjórnvöld brugðist við með breytingu á framkvæmd, en þó sé þörf á frekari aðgerðum til að bæta þetta ferli. Þá sé óvíst hver staðan sé varðandi þann málafjölda sem enn bíði afgreiðslu af þessum sökum.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2022 kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem séu þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eigi rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilji.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar eftir því sem við á, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Samkvæmt 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Kærandi er karlmaður á [...]. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að vera við góða líkamlega og andlega heilsu. Kærandi væri með húðsjúkdóm sem hann hafi fengið í Grikklandi. Í samskiptaseðli sálfræðings hjá Göngudeild sóttvarna, dags. 23. janúar 2023, kemur fram að kærandi hafi fyllt út skimunarlista fyrir einkenni þunglyndis. Svör kæranda bendi til alvarlegra einkenna þunglyndis. Kærandi hafi greint frá því að aðstæður væru ekki þær sömu og í Grikklandi en hann eigi eftir að átta sig. Kærandi hafi greint frá því að hann muni taka eigið líf verði hann sendur til Grikklands. Sjálfsvígshætta sé aukin en ekki yfirvofandi. Kærandi sé með góðan stuðning ættingja hér á landi. Kærandi hafi greint frá því að hann sofi ekki og sé með minnkaða matarlyst. Kærandi hafi mátt þola ofbeldi af hendi lögreglu í Grikklandi og hafi misst vin sinn. Aðstæður í flóttamannabúðum í Grikklandi hafi verið hræðilegar. Fjöldi ættingja hans hafi fengið vernd hér á landi og hann dvelji hjá frænda sínum og frænku. Samkvæmt samskiptaseðli frá sálfræðingi á Göngudeild sóttvarna, dags. 6. mars 2023, hafi svör kæranda við skimunarlista fyrir einkenni þunglyndis bent til alvarlegra einkenna. Sjálfsvígshætta sé aukin en ekki yfirvofandi. Kærandi sé ósáttur við ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja honum um alþjóðlega vernd hér á landi. Kæranda hafi verið ráðlagt að stunda líkamsrækt og útivist og jafnvel athuga með sjálfboðavinnu. Kærandi óski eftir að fá að koma aftur til sálfræðings. Í málinu liggur fyrir læknisvottorð frá Göngudeild sóttvarna, dags. 13. september 2022, þar sem fram kemur að læknisskoðun hafi farið fram í samræmi við ákvæði sóttvarnalaga.

Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun 13. október 2022, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi teldi hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda, sem nýtur aðstoðar löglærðs talsmanns, jafnframt leiðbeint með tölvubréfi kærunefndar, dags. 11. janúar 2023, um framlagningu frekari gagna í málinu og bárust frekari heilsufarsgögn 7. mars 2023. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar hans og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar hans geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Í því sambandi er sérstaklega vísað til þess að meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Að mati kærunefndar er heilsufar kæranda ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi verður ráðið að kærandi hafi aðgang að grunnheilbrigðisþjónustu þar í landi en eins og áður hefur verið rakið eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi að lögum sambærilegan rétt á grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum, og ríkisborgarar Grikklands þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að nýta rétt sinn. Telur kærunefnd því að aðstæður kæranda tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Við meðferð málsins hefur kærandi jafnframt greint frá því að hann hafi ekki leitað eftir heilbrigðisþjónustu í Grikklandi eftir að hann hlaut alþjóðlega vernd þar í landi.

Kærandi hefur jafnframt borið fyrir sig að hafa ekki fengið húsnæðis-, fjárhags- eða félagslega aðstoð frá grískum yfirvöldum. Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður í Grikklandi kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd þar í landi hafi heimild til að stunda atvinnu, hafi aðgang að húsnæðismarkaðnum og eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að sækja þá þjónustu, eins og áður sagði. Þótt skýrslur um aðstæður í Grikklandi bendi til þess að aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar þar séu um margt lakari en aðstæður þeirra hér á landi, m.a. m.t.t. inntaks félagslegrar aðstoðar og aðgangs að félagslegum húsnæðisúrræðum, er það mat nefndarinnar að almennar aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi séu ekki þess eðlis að þær, einar og sér, teljist til sérstakra ástæðna. Í því sambandi hefur nefndin jafnframt litið til þess sem fram kemur í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga að efnahagslegar ástæður geti ekki talist til sérstakra ástæðna. Þá er það mat kærunefndar að aðstæður kæranda séu ekki slíkar að hann geti ekki borið sig eftir þeirri þjónustu og aðstoð sem hann á að lögum rétt á og þarf á að halda í Grikklandi. Líkt og komið hefur fram eiga handhafar alþjóðlegrar verndar í Grikklandi sem búa undir fátæktarmörkum m.a. rétt á fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna. Skilyrði fyrir styrknum er m.a. að framvísa leigusamningi eða í tilviki heimilislausra, vottorði um heimilisleysi frá gistiskýli eða sveitarfélagi.

Í úrskurðum kærunefndar frá 25. mars 2020 í málum nr. KNU19090042 og KNU20020034, KNU19110022 og KNU19110023 og KNU19110050 og KNU19110051 er fjallað um skattnúmer í Grikklandi. Skattnúmer er nauðsynlegt til þess að starfa löglega í landinu, sækja um félagslegar bætur og gera leigusamning um húsnæði. Það er því grunnforsenda þess að geta framfleytt sér löglega í Grikklandi. Í því máli sem hér er til meðferðar er kærandi heilbrigður og vinnufær. Kærandi hefur greint frá því að hann hafi ekki lagt fram umsókn um skatt- eða almannatrygginganúmer í Grikklandi. Kærunefnd telur ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar að kærandi sé fær um að sækja sér þá þjónustu sem hann þarf á að halda í viðtökuríki, þ. á m. sækja um almannatrygginga- og skattnúmer, þrátt fyrir þær aðgangshindranir sem geti verið til staðar.

Kærandi hefur jafnframt borið fyrir sig að hann hafi mátt þola fordóma og ofbeldi af hálfu lögreglu í Grikklandi. Af framangreindum gögnum má ráða að flóttafólk hafi orðið fyrir fordómum í Grikklandi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærandi um öryggi sitt geti hann leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Þá bera framangreind gögn með sér að kærandi geti lagt fram kvörtun um meint ofbeldi af hálfu lögreglu til umboðsmanns Grikklands þar sem slík brot eru rannsökuð. Þá telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða að hann geti vænst þess að staða hans, í ljósi sömu aðstæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur ekki sýnt fram á að aðstæður hans í viðtökuríki séu slíkar að önnur viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsókn hans til efnismeðferðar hér á landi.

Í greinargerð byggir kærandi jafnframt á því að taka beri umsókn hans til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra ástæðna, þar sem hann eigi til þess réttmætar væntingar. Kærandi eigi frænda sem hafi fengið efnismeðferð á grundvelli sérstakra tengsla hér á landi. Kærandi hafi verið í góðri trú um að fá efnismeðferð á grundvelli sérstakra tengsla þar sem hann eigi um 60 ættingja hér á landi sem hafi fengið efnismeðferð á þeim grundvelli .

Réttmætar væntingar geta stofnast þegar stjórnvöld hafa með yfirlýsingum eða aðgerðum gefið til kynna hver niðurstaða máls verði. Í stjórnsýslurétti hefur, hvað varðar réttmætar væntingar, verið talið að þegar um yfirlýsingu stjórnvalds sé að ræða fari túlkunin fram m.a. með hliðsjón af efni hennar, formi og samhengi við málið svo og þeirri lagaheimild sem á reynir. Taka beri mið af því hvað eðlilegt og réttmætt hafi verið af málsaðila, að binda traust sitt við yfirlýsingu stjórnvaldsins og gera ráðstafanir í samræmi við hana. Þá þurfi jafnframt að líta til þess að þegar málsaðili hefur gert ráðstafanir í samræmi við réttmætar væntingar sínar fái þær meira vægi í því hagsmunamati sem fram fari þegar tekin sé afstaða til þess hvort hagsmunir málsaðila vegi þyngra en annarra af því t.d. að stjórnvaldsákvörðun sé afturkölluð eða hún ógilt. Svo til greina komi að veita væntingum aðila réttarvernd verður málsaðili að hafa upplifað huglægt væntingar um tilteknar framtíðar ráðstafanir. Er þá jafnan metið hvaða væntingar venjulegur maður gæti öðlast í tilefni af tilteknum sannanlegum yfirlýsingum eða aðgerðum/aðgerðarleysi stjórnvalda. Svo slíkar væntingar geti skapast verða yfirlýsingar stjórnvalds að vera nægilega skýrar og sértækar. Almennar leiðbeiningar um venjubundna stjórnsýsluframkvæmd geta almennt ekki vakið aðrar væntingar en að slík framkvæmd verði við lýði þar til henni er réttilega breytt. Þá grípur jafnræðisreglan á því hvort stjórnvöld hafi leyst úr máli af samræmi og jafnrétti með tilliti til eldri ákvarðana og stjórnsýsluframkvæmdar stjórnvalds. Kærandi byggir réttmætar væntingar sínar sem fyrr segir á ákvörðun í máli annars manns, án frekari upplýsinga um forsendur þess máls. Þá hefur kærandi ekki lagt fram gögn sem renni stoðum undir þá staðhæfingu sína að tugir fjölskyldumeðlima sinna hafi fengið efnismeðferð á grundvelli sérstakra tengsla. Útlendingastofnun eða önnur stjórnvöld hafa þá hvorki gefið út yfirlýsingu né tekið stjórnvaldsákvörðun sem beinist að kæranda og gefur til kynna að hann uppfylli skilyrði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Er það mat Útlendingastofnunar hverju sinni, með hliðsjón af fyrirliggjandi gögnum, hvort skilyrði ákvæðisins séu uppfyllt. Kærunefnd telur skilyrði meginreglunnar um réttmætar væntingar ekki vera uppfyllt í máli kæranda og fellst ekki á að mál kæranda skuli tekið til efnismeðferðar á þeim grundvelli.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæla með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun 13. október 2022 eiga skyldmenni hér á landi. Kærandi nefndi sérstaklega tvo föðurbræður sína og tvær föðursystur sem væru búsett hér á landi og hefðu heimild til dvalar. Þá greind kærandi frá því að tveir bræður hans hafi jafnframt lagt fram umsóknir um alþjóðlega vernd hér á landi. Við meðferð málsins hefur kærandi lagt fram fjölda gagna, m.a. fæðingarvottorð, dvalarleyfisskírteini, ljósmyndir, myndbönd og skjáskot af samskiptum á samfélagsmiðlum.

Lög um útlendinga veita ekki skýrar leiðbeiningar um hvernig hugtakið sérstök tengsl samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skuli túlkað í framkvæmd. Við túlkun ákvæðisins hefur kærunefnd litið til athugasemda sem fylgdu ákvæðinu í frumvarpi því er varð að lögum um útlendinga og lagt til grundvallar að ákvæðinu sé ætlað að taka m.a. til þeirra tilvika þegar umsækjendur eiga ættingja hér á landi en ekki í því ríki sem þeir yrðu aftur sendir til. Þetta geti einnig átt við í öðrum tilfellum þar sem tengsl eru ríkari en við viðtökuríki, svo sem vegna fyrri dvalar. Þá gera athugasemdir í frumvarpi og ákvæði 32. gr. b reglugerðar um útlendinga ráð fyrir því að fyrri dvöl umsækjenda hér á landi geti leitt til þess að um sérstök tengsl séu að ræða. Samkvæmt framansögðu getur komið til skoðunar hvort kærandi hafi sérstök tengsl við landið í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þegar hann á ættingja hér á landi. Af orðalagi ákvæðisins er ljóst að það mælir fyrir um tengsl við landið en ekki aðeins tengsl við einstaklinga sem hér kunna að dvelja á einhverjum tíma. Kærunefnd telur ljóst að byggist málsástæða um sérstök tengsl við landið á tengslum við tiltekinn eða tiltekna einstaklinga þurfa þeir einstaklingar almennt að hafa heimild til dvalar hér á landi og að sú heimild þurfi að hafa tiltekinn varanleika. Af þessu leiðir að tengsl við einstakling sem byggir rétt sinn til dvalar á Íslandi á vegabréfsáritun eða tímabundnu dvalarleyfi myndu almennt ekki teljast þess eðlis að þau leiði til þess að umsækjandi hafi sérstök tengsl við landið í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærunefnd telur að leggja skuli til grundvallar að ef umsækjandi um alþjóðlega vernd á sannanlega ættingja hér á landi, sem hefur heimild til dvalar hér, sem hann hefur raunveruleg og sérstök tengsl við hér á landi en ekki í viðtökuríki, geti umsókn hans verið tekin til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli sérstakra tengsla hans við landið. Kærunefnd telur að af framangreindu sé ljóst að meta þurfi einstaklingsbundnar aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd m.t.t. fyrirliggjandi gagna við mat á því hvort skilyrðum ákvæðisins sé fullnægt.

Enga tæmandi talningu er að finna í lögum eða lögskýringargögnum á því hvaða fjölskyldutengsl falli undir hugtakið sérstök tengsl samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærunefnd hefur talið rétt að líta að einhverju leyti til 16. tölul. 3. gr. laga um útlendinga þar sem segir að til nánustu aðstandanda teljist maki, sambúðarmaki, börn viðkomandi yngri en 18 ára í forsjá hans og á framfæri og foreldrar 67 ára aldri. Þó önnur fjölskyldutengsl geti fallið undir 2. mgr. 36. gr. laga um sérstök tengsl, telur kærunefnd að gera þurfi ríkari kröfur til þess að sýnt sé fram á að þau tengsl séu sérstök og rík.

Líkt og fram hefur komið byggir kærandi á því að hafa sérstök tengsl við Ísland í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, þar sem hann eigi föðurbræður og föðursystur sem hafi heimild til dvalar hér á landi. Þá eigi kærandi jafnframt fleiri skyldmenni hér á landi. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hann ætti í nánum samskiptum við föðursystkini sín, bæði fyrir og eftir komu hans til landsins. Kærandi kvaðst dvelja í búsetuúrræði Útlendingastofnunar en heimsækja þau reglulega. Þá kvaðst kærandi ekki hafa fengið fjárhagsstuðning frá þeim. Í greinargerð kæranda kemur m.a. fram að kærandi hafi flutt inn til föðurbróður síns. Kærandi sé náinn ættingjum sínum og hafi m.a. átt í nánum samskiptum við þau þegar hann hafi verið fastur í Grikklandi. Með greinargerð lagði kærandi fram ljósmyndir af sér, föðursystkinum og öðrum ættingjum, bæði í heimaríki og hér á landi. Kærandi lagði jafnframt fram skjáskot af samskiptum í gegnum samfélagsmiðla við föðurbræður og föðursystur sínar, fyrir og eftir komu kæranda til landsins. Af gögnum málsins virðast samskipti ná nokkur ár aftur í tímann. Þá liggja fyrir myndbönd af samskiptum kæranda við föðurbróður sinn í gegnum samskiptamiðla auk myndbands af veislu í heimaríki. Auk þess hefur kærandi lagt fram fæðingarvottorð sitt, foreldra hans, bræðra og föðursystkina ásamt fjölskylduvottorðum frá heimaríki. Kærunefnd dregur ekki í efa tengsl kæranda við föðursystkini sín. Á hinn bóginn hefur kærandi ekki sýnt fram á að þar séu um að ræða ríkari tengsl en almennt gerist á milli ættingja með samskonar ættartengsl eða kunningja. Eins og á stendur í þessu máli varðar það tengsl milli ættingja sem ekki eru nánustu aðstandendur og eru fullorðnir einstaklingar sem eru ekki hvor öðrum háðir. Verður jafnframt að horfa til þess að túlka verður ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga varðandi sérstök tengsl þannig að það nái til atvika þar sem það yrði talið ósanngjarnt gagnvart kæranda eða ættingjum hans að endursenda hann til annars ríkis. Eins og á háttar í þessu máli verður ekki séð að það sé ósanngjarnt gagnvart kæranda eða ættingjum hans að endursenda hann til Grikklands. Kærandi hefur gert athugasemd við að Útlendingastofnun hafi ekki talið ósanngjarnt gagnvart kæranda eða ættingjum hans að endursenda hann til Grikklands. Við mat á framangreindu lítur kærunefnd m.a. til umönnunarsjónarmiða, fjölskyldustöðu og hvort aðilar séu hvor öðrum háðir. Þá er litið til stöðu kæranda í viðtökuríki en af gögnum málsins má ráða að kærandi hafi jafnframt átt skyldmenni í viðtökuríki.

Af gögnum málsins má sjá að kærandi sé handhafi alþjóðlegrar verndar í Grikklandi og hafi fengið útgefið dvalarleyfi til 28. febrúar 2025. Kærandi hefur eingöngu dvalið hér á landi í tengslum við umsókn sína um alþjóðlega vernd. Kærunefnd telur að þegar litið er til tilgangs ákvæðisins og lögskýringargagna að jafnvel þó lagt sé til grundvallar að kærandi sé skyldur viðkomandi aðilum, leiði þau gögn sem kærandi hefur lagt fram ekki til þess að kærandi hafi myndað sérstök tengsl við landið í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þar sem kærandi er handhafi alþjóðlegrar verndar í Grikklandi bendir ekkert til annars en að kærandi geti nýtt rétt sinn til komu og tímabundinnar dvalar hér á landi á grundvelli 20. gr. laga um útlendinga í því skyni að dvelja tímabundið hér á landi og halda tengslum við frændfólk sitt. Kærandi hefur gert athugasemd við að Útlendingastofnun hafi byggt á framangreindu í ákvörðun sinni. Að mati kærunefndar getur komið til skoðunar við heildarmat á aðstæðum kæranda hvort hann hafi vegabréfsáritun skv. 20. gr. laga um útlendinga og geti þannig ferðast og haldið tengslum við skyldmenni sín. Í þessu felst ákveðinn grundvallarmunur á réttindum þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd og þeirra sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd. Af heildarmati á aðstæðum kæranda og fyrirliggjandi gögnum málsins er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sérstök tengsl við landið í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í greinargerð byggir kærandi á því að Útlendingastofnun hafi brotið gegn 11. gr. stjórnsýslulaga, þar sem tilgreindur frændi kæranda hafi fengið að leggja fram gögn til staðfestingar á skyldleika og tengslum og hann hafi fengið efnismeðferð á grundvelli sérstakra tengsla. Kærandi hefur ekki lagt fram ákvörðun eða gögn í máli meints frænda síns. Að mati kærunefndar er niðurstaða og mat Útlendingastofnunar á sérstökum tengslum kæranda, samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, í samræmi við mat og niðurstöður í sambærilegum málum. Kærunefnd ítrekar að kæranda var leiðbeint um mikilvægi framlagningar gagna í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 13. október 2022. Þá hefur kæranda gefist kostur á að koma á framfæri frekari gögnum um skyldleika og tengsl sín við meðferð málsins hjá kærunefnd, líkt og kærandi hefur gert. Kærunefnd fellst því ekki á að Útlendingastofnun hafi brotið gegn 11. gr. stjórnsýslulaga. Þá vísar kærunefnd jafnframt til þess að hún er ekki bundinn af ákvörðunum Útlendingastofnunar.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína 10. ágúst 2022.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.

Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið rétt að hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm í máli Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallinn að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.

Í ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 70. mgr., kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki nái ekki því alvarleikastigi að teljast vanvirðandi meðferð og brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóti alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem standi til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að teljast brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæli gegn endursendingu, sbr. 71. mgr. ákvörðunarinnar. Málið varðaði flutning einstæðrar móður með tvö ung börn sem voru með viðbótarvernd til Ítalíu og komst dómstóllinn einróma að þeirri niðurstöðu að málsástæður hennar um að flutningur til Ítalíu væri brot á 3., 8. og 13. gr. mannréttindasáttmálans væru bersýnilega tilhæfulausar og að mál hennar væri af þeim sökum ekki tækt til meðferðar. Um inntak „sérstaklega sannfærandi mannúðarástæðna“ vísast til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í máli N. gegn Bretlandi (nr. 26565/05), frá 27. maí 2008, 42. mgr., og Sufi og Elmi gegn Bretlandi (nr. 8319/07 og 11449/07) frá 28. nóvember 2011, 281.-292. mgr., en dómarnir setja háan þröskuld fyrir því að meðferð eða aðstæður teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans.

Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins eru lög Evrópusambandsins byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki þess deila þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að gagnkvæmu trausti um að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra réttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr., og Ibrahim o.fl. gegn Þýskalandi, C‑297/17, C‑318/17, C‑319/17 og C‑438/17, frá 30. apríl 2019, 83.-85. mgr.

Það er hins vegar ekki útilokað að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika tengdum aðbúnaði flóttamanna sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. t.d. dóm Evrópudómstólsins í máli N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/1021, frá 21. desember 2011, 81. mgr. Af þeim sökum verður ekki byggt á því skilyrðislaust að aðildarríki Evrópusambandsins tryggi grundvallarmannréttindi, svo sem samkvæmt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr., og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Evrópudómstóllinn hefur talið, m.a. í Jawo, 85. mgr., að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að hann sæti þar eða við flutninginn ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þessu alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda viðtökuríkis hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.

Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.

Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærandi eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og flutningur hans til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki telur kærunefnd jafnframt að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt framansögðu verður mál kæranda ekki tekið til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Athugasemdir kæranda við hina kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar og reglur stjórnsýsluréttar

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, þ. á m. við rannsókn stofnunarinnar á einstaklingsbundnum aðstæðum hans.

Kærandi byggir á því að ákvörðun Útlendingastofnunar brjóti gegn 22. gr. stjórnsýslulaga þar sem röksemdafærsla stofnunarinnar sé haldin verulegum annmörkum og ekki sé hægt að lesa af rökstuðningi ákvörðunarinnar hvers vegna Útlendingastofnun hafi komist að niðurstöðu sinni um að kærandi hafi ekki sérstök tengsl við landið í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi telur jafnframt að Útlendingastofnun hafi brotið gegn 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga þar sem stofnuninni hafi borið að rannsaka framlögð gögn og taka afstöðu til þeirra. Þá hafi Útlendingastofnun borið að þýða og rannsaka gögn sem kærandi hafi lagt fram og gefa kæranda tækifæri til að leggja fram frekari gögn. Í viðtali við kæranda hjá Útlendingastofnun var kærandi m.a. spurður út í tengsl sín hér á landi. Kærandi var m.a. beðinn um að lýsa sambandi sínu við föðursystkini sín, bæði fyrir og eftir komu hans til landsins og leiðbeint um að leggja fram gögn máli sínu til stuðnings. Þá var kæranda leiðbeint um inntak og túlkun sérstakra tengsla samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Líkt og komið hefur fram lagði kærandi fram fjölda gagna um skyldleika við ættingja sína hér á landi og tengsl þeirra á milli. Í ákvörðun Útlendingastofnunar er ekki dregið í efa að kærandi eigi föðursystkini sem hafi heimild til dvalar hér á landi. Að mati stofnunarinnar voru tengsl kæranda við umrædda ættingja ekki talin nægjanlega rík svo um sérstök tengsl væri að ræða, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Af þeim sökum taldi stofnunin ekki ástæðu til að þýða framlögð gögn um skyldleika. Kærunefnd telur að forsendur og gögn málsins hafi ekki leitt þess að þörf hafi verið á að afla þýðingar á framlögðum gögnum kæranda. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að gera athugasemdir við rökstuðning Útlendingastofnunar samkvæmt 22. gr. stjórnsýslulega eða rannsókn stofnunarinnar varðandi sérstök tengsl hans við landið, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Með hliðsjón af framangreindu verður ekki fallist á þrautavarakröfur kæranda um að taka mál hans til meðferðar að nýju. Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun að öðru leyti og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana.

 

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands 10. ágúst 2022 og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd þann sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

 

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

Sandra Hlíf Ocares                                                                Bjarnveig Eiríksdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta