Hoppa yfir valmynd

Nr. 540/2018 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 30. nóvember 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 540/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18100052

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 16. október 2018 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Georgíu (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 16. október 2018, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að kæranda verði veitt dvalarleyfi á Íslandi af mannúðarástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Til vara krefst kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar hvað varðar brottvísun og endurkomubann, sbr. 2. tölul. 2. mgr. 98. gr. og b-lið 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga, verði felld úr gildi..

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi þann 15. október 2018. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun þann 16. október 2018 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. sama dag, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og honum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Var ofangreind ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála þann 16. október 2018. Að ósk kæranda var veittur frekari rökstuðningur fyrir ákvörðun Útlendingastofnunar með bréfi stofnunarinnar, dags. 25. október 2018. Kærunefnd barst greinargerð kæranda þann 30. október 2018.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann verði fyrir hótunum og ofbeldi af hendi ónafngreindra aðila sem hann hafi átt í viðskiptum við í sjálfstjórnarhéruðunum Abkasíu og Suður-Ossetíu.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi sé ekki flóttamaður og honum skuli synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi skv. ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Kæranda var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði ekki réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 2. mgr. 35. gr. laga um útlendinga. Kæranda var brottvísað frá landinu með vísan til 2. tölul. b-liðar 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga, sbr. b-liðar 2. mgr. 104. gr. laganna. Var kæranda ákveðið endurkomubann hingað til lands í tvö ár, sbr. 101. gr. sömu laga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun 15. og 16. október 2018 að hann hafi þurft að þola ofsóknir í heimaríki sínu um langt skeið. Megi upphaf ofsóknanna rekja til viðskipta sem kærandi hafi stundað á svæðum Abkasíu og Ossetíu en hann hafi stofnað til skulda við ákveðna, nafnlausa einstaklinga á þeim svæðum. Hafi kærandi verið um árabil í felum í Georgíu og erlendis og hafi ekki verið óhultur vegna hótana og ofbeldis milligöngumanna. Hafi kæranda verið hótað síðast tveimur mánuðum áður en hann hafi komið til Íslands. Kærandi kvað enga lögregluvernd að fá í heimaríki sínu þar sem stjórnvöld hafi hvorki vilja né getu til þess að vernda hann frá þessum aðilum þar sem þeir séu ekki georgískir ríkisborgarar heldur glæpahópar í rússneskri lögsögu. Kærandi hafi komið hingað til lands til þess að vera óhultur fyrir hótunum og ofbeldi.

Í greinargerð kæranda er að finna almenna umfjöllun um ástand mannréttindamála í Georgíu. Í því sambandi vísar kærandi til fjölda skýrslna og gagna, þ. á m. skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar frá árinu 2016 en þar komi m.a. fram að spilling sé viðvarandi vandamál í Georgíu. Þá er í greinargerð jafnframt umfjöllun um átök sem hafi átt sér stað um Suður-Ossetíu og Abkasíu milli Rússlands og Georgíu árið 2008. Hafi togsteita, spenna og átök ríkt í langan tíma á milli Georgíu og Suður-Ossetíu og Rússlands og sýni alþjóðlegar mannréttindaskýrslur að þetta samband sé áhyggjuefni meðal mannréttindasamtaka, alþjóðastofnana og fleiri aðila. Er í greinargerð kæranda gerð athugasemd við að Útlendingastofnun hafi ekki fjallað sérstaklega um aðstæður á stjórnsýslumörkum framangreindra svæða. Telur kærandi að ekki sé hægt að komast að ákvörðun í máli hans án þess að fjalla um raunverulega ástæðu flótta hans og aðstæður sem hann óttist á framangreindum svæðum.

Kærandi krefst þess aðallega að honum verði veitt dvalarleyfi á Íslandi af mannúðarástæðum, skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Ákvæðið heimili veitingu dvalarleyfis á þeim grundvelli ef útlendingur geti sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. vegna erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi. Kærandi búi við mikið óöryggi og ótta í heimaríki við ákveðna óþekkta einstaklinga sem hann telji að séu líklega meðlimir rússnesks glæpagengis. Hann óttist að verða fyrir ofbeldi af hálfu þessara einstaklinga og telji að yfirvöld hafi ekki burði til þess að aðstoða hann eða veita honum vernd. Með vísan til sem að framan hafi verið rakið telur kærandi að hann uppfylli skilyrði 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Til vara krefst kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar, hvað varðar brottvísun og endurkomubann, verði felld úr gildi, sbr. 2. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi ekki viljað afturkalla umsókn sína þar sem hann geti ekki hugsað sér að snúa aftur til heimaríkis síns af ótta við að lenda í lífshættu þar. Að refsa kæranda með þessum hætti og binda hann við búsetu utan Schengen svæðisins án möguleika til þess að flýja lífshættu sem hann sé í heimaríki muni reynast honum mjög þungbært. Kærandi telur enn fremur að á grundvelli 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga, um frávísun og brottvísun, hafi Útlendingastofnun verið óheimilt að ákveða kæranda brottvísun. Jafnframt hafi Útlendingastofnun gerst brotleg við meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 með því að beita kæranda brottvísun og endurkomubanni, enda sé sú ráðstöfun verulega íþyngjandi úrræði.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað georgísku vegabréfi. Telur kærunefnd því ljóst að kærandi sé georgískur ríkisborgari.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Georgíu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • Amnesty International Report 2017/2018: Georgia (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Annual Report; State of Human Rights in Georgia, 2017 (Human Rights Center, 1. febrúar 2018);
  • Council of Europe – Action Plan for Georgia 2016-2019 (Council of Europe, 25. febrúar 2016);
  • Corruption prevention in respect of members of parliament, judges and prosecutors (Group of States Against Corruption, Council of Europe, 17. janúar 2017);
  • Freedom in the World 2017 - Georgia (Freedom House, 16. febrúar 2018);
  • Georgia Country Report (Bartelsmann Stiftung (BTI), 2018);
  • Georgia - Country Reports on Human Rights Practices for 2017 (U.S. Department of State, 20. apríl 2018);
  • Georgia 2018 Crime and Safety Report (OSAC, 15. febrúar 2018);
  • Georgia: Korrupsjon i politi og rettsvesen (Landinfo, 9. mars 2017);
  • National Strategy for the Protection of Human Rights in Georgia 2014-2020 (Ministry of Internal Affairs in Georgia, 17. september 2015);
  • Nations in Transit 2018- Georgia (Freedom House, 11. apríl 2018);
  • Report on Progress in the Implementation of the National Strategy for the Protection of Human Rights in Georgia 2014-2020 (United States Agency for International Development (USAID), mars 2017);

  • Temarapport: Georgien - Politisk motiverade reprassalier och våld mot oppositionella (version 1.0) (Lifos, 30. maí 2017);
  •  

  • 10 December Report on the situation of Protection of Human Rights and Freedoms in Georgia 2016 (Public Defender of Georgia, 2016);
  • World Report 2017 – Georgia (Human Rights Watch, 2017) og
  • World Report 2018 – Georgia (Human Rights Watch, 2018).
  • Temarapport: Georgien – Rätts- och säkerhetssektorn (Lifos, 3. október 2017);

Georgía er lýðræðisríki með um 3,7 milljónir íbúa. Georgía gerðist aðili að Evrópuráðinu árið 1999 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu það sama ár. Georgía gerðist aðili að flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna þann 9. ágúst 1999, alþjóðasamningi um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi þann 3. ágúst 1994 og samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu þann 8. júlí 2005. Þann 1. júlí 2016 gekk í gildi samstarfssamningur milli Evrópusambandsins og Georgíu. Með þeim samningi hefur Georgía meðal annars skuldbundið sig til að efna víðtækar skuldbindingar á sviði lýðræðis, mannréttinda og réttarríkis. Þann 19. júlí 2017 setti Útlendingastofnun Georgíu á lista stofnunarinnar yfir örugg upprunaríki.

Í ofangreindum gögnum kemur fram að stjórnarskrá Georgíu kveði á um jafnrétti allra fyrir lögunum og mismunun á grundvelli kynþáttar, litarháttar, tungumáls, kyns, trúar- og lífsskoðana, stjórnmálaskoðana, þjóðernis, félagslegrar stöðu eða tengsla, uppruna, búsetu eða efnahagslegrar stöðu sé refsiverð skv. refsilöggjöf landsins. Þá kemur fram að umboðsmaður hafi verið starfandi í Georgíu frá árinu 1997. Umboðsmaðurinn hafi eftirlit með mannréttindum og frelsi borgaranna í Georgíu innan lögsögu ríkisins. Samkvæmt 2. mgr. 6. gr. stjórnarskrár Georgíu gangi alþjóðasamningar, sem fullgiltir hafi verið af hálfu Georgíu, framar landslögum. Svo framarlega sem slíkir samningar gangi ekki gegn stjórnarskrá landsins sé hægt að beita þeim sem hluta af almennri löggjöf. Þá hafi mannréttindadeild embættis saksóknara (e. Chief Prosecutor´s Office) eftirlit með ákærum og fylgist með því að alþjóðlegum stöðlum mannréttinda sé fylgt í þeim málum. Saksóknarembættið tók við 15 kvörtunum frá GYLA (e. Georgian Young Lawyer Association) á árinu 2017 vegna meintra pyntinga og illrar meðferðar. Embættið hafi talið tilefni til að rannsaka í átta málum. Þá hafi embættið rannsakað að ósk Umboðsmanns, tíu mál vegna brota lögreglufulltrúa í starfi. Þá kemur fram að þann 30. apríl 2014 hafi áætlun um vernd mannréttinda í Georgíu fyrir árin 2014 til 2020 verið samþykkt. Sú áætlun gefi til kynna að stjórnvöld séu reiðubúin til þess að fylgja hæstu stöðlum alþjóðasamfélagsins varðandi mannréttindi. Þrátt fyrir að áætluninni hafi ekki verið komið í framkvæmd að fullu veiti hún möguleika fyrir samfélagið að efla eftirlit með mannréttindum í landinu.

Suður-Ossetía er formlega hluti af Georgíu en það er landlukt svæði sem staðsett er í suðurhluta Kákasusfjalla, nyrst í Georgíu. Landamæri þess eru við Norður-Ossetíu sem er hluti af Rússlandi. Í framangreindum gögnum kemur meðal annars fram að ýmis togstreita, spenna og átök hafi ríkt í langan tíma á milli Georgíu annars vegar og Suður-Ossetíu og Rússlands hins vegar. Árið 2008 hafi brotist út stríð milli Georgíu og Suður-Ossetíumanna, en þeir síðarnefndu hafi notið stuðnings Rússa. Átökin, sem hafi farið fram innan alþjóðlegra skilgreindra landamæra Georgíu, hafi m.a. leitt af sér mannfall og eyðileggingu innviða, auk þess sem fjöldi fólks hafi misst heimili sín og lífsviðurværi. Vopnahlé hafi komist á fyrir tilstilli Evrópusambandsins þann 12. ágúst 2008. Suður-Ossetía hafi í kjölfarið lýst yfir sjálfstæði sínu en það sé almennt ekki viðurkennt af alþjóðasamfélaginu. Flestir Georgíubúar hafi flúið Suður-Ossetíu í kjölfar átakanna árið 2008 og séu íbúar svæðisins því flestir Ossetíumenn sem vilji ekki vera undir stjórn Georgíu heldur vilji sjálfstæði og nánari tengsl við Rússland.

Abkasía er svæði, um það bil 8600 ferkílómetrar á stærð, sem staðsett er við austurhluta Svartahafs. Samkvæmt ofangreindum gögnum er staða þess að þjóðarétti umdeild en það mun vera eins konar sjálfstjórnarhérað í norðvesturhluta Georgíu. Fram kemur að stjórnvöld í Abkasíu hafi lýst yfir sjálfstæði þess í kjölfar stríðsátaka á svæðinu árin 1992 og 1993 en að örfá ríki heims hafi viðurkennt sjálfstæðisyfirlýsinguna og að yfirvöld í Georgíu líti á svæðið sem hluta af yfirráðasvæði landsins. Greint er frá því að eftir átök milli Georgíu og Rússlands árið 2008, einkum vegna Suður-Ossetíu, hafi stjórnvöld í Rússlandi og Abkasíu gert með sér ýmsa samninga um stjórnmála- og hernaðarlega samvinnu. Samkvæmt gögnunum eru stjórnsýslumörk Abkasíu mörkuð af girðingum sem enn sé verið að reisa.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a.   ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c.   aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2011). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærandi ber fyrir sig að hann hafi orðið fyrir ofsóknum, m.a. ofbeldi og hótunum, af hálfu ákveðinna óþekktra einstaklinga sem hann telji að séu meðlimir rússnesks glæpahóps sem séu búsettir í Abkasíu og Suður-Ossetíu.

Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða að hann óttist ofsóknir af hálfu georgískra yfirvalda sem hafa eða gætu náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Þá benda önnur gögn málsins ekki til þess að slíkar ofsóknir hafi átt sér stað eða að kærandi eigi þær á hættu.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun kom fram að kærandi sé fæddur og uppalinn í Kutaisi í Georgíu og hafi verið búsettur þar í borg áður en hann hafi farið frá landinu. Kærandi greindi frá því í viðtalinu að hann væri ekki að flýja heimaríki sitt vegna aðstæðna í því heldur vegna vandamála sem tengjast viðskiptasamningum og skuld við einstaklinga frá Abkasíu og Suður-Ossetíu. Kærandi kvaðst hafa átt í ágreiningi við einstaklinga frá Abkasíu árið 1993 og við einstaklinga frá Suður-Ossetíu árið 2008. Aðspurður í viðtalinu kvaðst kærandi ekki geta greint frá nöfnum þessara einstaklinga. Þá vísaði kærandi til þess að þessir einstaklingar hafi notað milligöngumenn til að áreita sig, hóta og beita ofbeldi Kærandi kvaðst aðspurður ekki hafa leitað til lögreglu þar sem hann teldi það ekki bera árangur og myndi bara gera illt verra.

Kærandi hefur engin gögn lagt fram til stuðnings frásögn sinni að hafa orðið fyrir ofsóknum, ofbeldi eða hótunum af hendi einstaklinga frá Abkasíu eða Suður-Ossetíu eða einstaklinga á þeirra vegum. Þá var framburður kæranda í viðtali hjá Útlendingastofnun um það hverjir standi að baki áreiti og hótunum gegn honum óskýr. Verður þó lagt til grundvallar að kærandi kunni að hafa átt í ágreiningi við einstaklinga í sjálfstjórnarsvæðum Suður-Ossetíu og Abkasíu. Það er hins vegar mat kærunefndar að kærandi hafi ekki með framburði sínum lagt grundvöll að þeim staðhæfingum að hann eigi á hættu á að verða fyrir ofsóknum í heimaríki sem nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. lag um útlendinga vísar til.

Kærunefnd hefur yfirfarið gögn málsins, svo og skýrslur opinberra stofnana og frjálsra félagasamtaka um aðstæður í Georgíu. Þau gögn benda til þess að þeir ríkisborgarar Georgíu sem telji að á réttindum sínum sé brotið geti leitað sér aðstoðar og verndar yfirvalda þar í landi og fengið lausn sinna mála. Hægt sé m.a. að leita til stofnunar sem heyri undir innanríkisráðuneyti landsins sem og umboðsmanns. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur tekið til skoðunar um aðstæður í Georgíu má ráða að þessi úrræði séu almennt raunhæf og árangursrík þó svo að úrbóta sé enn þörf að mati frjálsra félagasamtaka í landinu. Að mati kærunefndar hefur kærandi ekki sýnt fram á það að georgísk stjórnvöld skorti vilja eða getu til að veita honum viðeigandi vernd gegn athöfnum sem feli í sér ofbeldi, hótanir eða áreiti, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir þær athafnir. Kærandi hefur því raunhæfan möguleika á því að leita sér ásjár stjórnvalda þar í landi, ef hann telur sig þurfa á aðstoð þeirra að halda.

Með vísan til ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. og 3. mgr. 38. gr. laganna.

Telur kærunefnd því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á hvort aðstæður umsækjanda um alþjóðlega vernd séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Umsækjandi um alþjóðlega vernd verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn umsækjanda um alþjóðlega vernd að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefndin að aðstæður hans þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 6. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal stjórnvald sem kemst að því að ákvæði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna eigi ekki við um útlending að eigin frumkvæði taka til skoðunar hvort veita eigi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. sömu laga. Þrátt fyrir að orðalag 1. mgr. 74. gr. kveði ekki með skýrum hætti á um veitingu dvalarleyfis má skilja af athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga nr. 80/2016, fyrirsögn greinarinnar og af 6. mgr. 37. gr. laganna að það hafi þó verið ætlunin með ákvæðinu. Kærunefnd telur því rétt að túlka ákvæðið sem heimild til veitingar dvalarleyfis þegar skilyrði þess eru uppfyllt.

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga má líta til mannúðarsjónarmiða ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur m.a. fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni eða óbærilegum þjáningum. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hann sé með sykursýki 2 og sjúkdóm í öðru auga og sé nánast blindur á því. Í ofangreindum gögnum um aðstæður í Georgíu kemur fram að allir hafi rétt á heilbrigðisþjónustu og að ekki megi mismuna einstaklingum, er þurfa á slíkri aðstoð að halda, á grundvelli eignastöðu. Þá geti þeir sem lifi undir fátæktarmörkum fengið aðstoð við að kaupa sjúkdómatryggingu. Þá kvaðst kærandi hafa fengið meðferð við sjúkdómum sínum í heimaríki. Með vísan til ofangreindra gagna um heilbrigðisaðstæður í Georgíu og framburðar kæranda telur kærunefnd að fullnægjandi aðstoð sé til staðar í Georgíu. Þá er kærandi ekki í meðferð hér á landi sem sé læknisfræðilega óforsvaranlegt að rjúfa.

Kærandi hefur greint frá því að hann óttist ofbeldi af hálfu einstaklinga sem hann þekki ekki deili á en telji að séu meðlimir rússnesks glæpahóps sem hafi búsetu og starfsemi í Abkasíu og Suður-Ossetíu. Af hálfu kæranda er byggt á því að lögregla í heimaríki hans geti ekki veitt honum vernd gegn umræddum einstaklingum. Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi einnig til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu eða þá aðstöðu að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður í heimaríki kæranda, Georgíu, telur kærunefnd að aðstæður hans séu ekki slíkar að tilefni sé til að veita honum dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Bann við endursendingu skv. 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli kæranda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

Frávísun, brottvísun og endurkomubann

Með vísan til atvika málsins tekur kærunefnd undir forsendur Útlendingastofnunar varðandi frávísun kæranda á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. til hliðsjónar 2. málsl. 3. mgr. 42. gr. reglugerðar nr. 540/2017.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað og ákvarðað endurkomubann, sbr. b-lið 2. tölul. 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga. Ástæða þess er að Útlendingastofnun mat umsókn kæranda bersýnilega tilhæfulausa í skilningi b-liðar 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga en ákvæðið veitir stjórnvöldum heimild til að fella niður frest sem að jafnaði er veittur útlendingi til að yfirgefa landið sjálfviljugur í kjölfar ákvörðunar um að yfirgefa landið í þeim tilvikum þegar umsókn útlendings um dvalarleyfi eða alþjóðlega vernd telst bersýnilega tilhæfulaus eða hann hefur vísvitandi gefið misvísandi eða rangar upplýsingar við umsókn.

Lög um útlendinga skilgreina ekki hvað felist í orðalaginu „bersýnilega tilhæfulaus“ í skilningi b-liðar 2. mgr. 104. gr. laganna. Við túlkun ákvæðisins telur kærunefnd að líta verði til þess að orðið tilhæfulaus lýsir einhverju sem byggir ekki á staðreyndum eða á ekki við rök að styðjast. Þá leiðir af orðalagi ákvæðisins að tilhæfuleysi umsóknar þarf að vera bersýnilegt, þ.e. blasa við stjórnvaldi við skoðun málsins. Með vísan til orðalags ákvæðisins og til samræmis við ákvæði tilskipunar 2008/115/EB um brottvísun útlendinga í ólögmætri dvöl telur kærunefnd að umsókn um dvalarleyfi eða alþjóðlega vernd sé bersýnilega tilhæfulaus í skilningi b-liðar 2. mgr. 104. gr. laganna ef eftirfarandi tilvik eiga einkum við þegar: :

a) ljóst er, við fyrstu sýn, að málsástæður umsækjanda varða ekki þá þætti sem 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga taka til,

b) ljóst er, við fyrstu sýn, að málsástæður umsækjanda séu ekki þess eðlis eða nái ekki því alvarleikastigi að þær gætu leitt til þeirrar niðurstöðu að heimilt væri að veita umsækjenda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, og

c) að frekara mat og gagnaöflun, þar með talið viðtal við umsækjanda, hafi ekki breytt ofangreindu upphaflegu mati.

Kærandi hefur borið fyrir sig að hann sé í hættu í heimaríki þar sem hann eigi í viðskiptalegum ágreiningi við einstaklinga sem búsettir séu í sjálfstjórnarhéruðunum Abkasíu og Suður-Ossetíu þar sem hann standi í skuld við þá. Ótti hans tengist atburðum sem hann segir hafa átt sér stað árin 1993 og 2008. Kærandi hefur engin gögn lagt fram til stuðnings framburði sínum. Það er mat kærunefndar, að teknu tilliti til gagna um heimaríki kæranda og aðstæður hans þar, að það hafi verið bersýnilegt að málsástæður kæranda vörðuðu ekki þá þætti sem 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga taka til. Ennfremur hafi verið bersýnilegt að aðrar aðstæður í heimaríki kæranda séu ekki þess eðlis eða nái því alvarleikastigi að þær gætu leitt til þeirrar niðurstöðu að heimilt væri að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiðar, sbr. 1. mgr. 74. gr. Í þessu sambandi lítur kærunefnd til þess að orðalag 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um að aðili þurfi að sýna fram á ríka þörf á vernd og tekur mat stjórnvalda á tilhæfuleysi slíkra umsókna mið af þeirri ábyrgð sem lögð er á aðila að þessu leyti. Þá er einnig ljóst að frekara mat hafi ekki breytt ofangreindu mati.

Að mati kærunefndar eru líkur á því að ákvörðun um niðurfellingu frests hafi varnaðaráhrif sem þjóni því markmiði að stuðla að fækkun bersýnilega tilhæfulausra umsókna frá öruggum upprunaríkjum. Fyrir liggur mat Útlendingastofnunar á því að framangreindu markmiði verði ekki náð með öðru og vægara móti. Er það því mat kærunefndar að 12. gr. stjórnsýslulaga standi því ekki í vegi að kæranda verði ekki veittur frestur til að yfirgefa landið. Þá fær kærunefnd ekki séð að 1. mgr. 31. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna komi í veg fyrir að framangreindu úrræði verði beitt í máli kæranda.

Með vísan til framangreinds er fallist á það mat Útlendingastofnunar að umsókn kæranda um dvalarleyfi eða alþjóðlega vernd sé bersýnilega tilhæfulaus, sbr. b-lið 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga, og heimilt að veita kæranda ekki frest til að yfirgefa landið sjálfviljugur. 

Eins og að framan greinir hefur kæranda verið vísað frá landinu og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar hér á landi. Þá hefur kærunefnd komist að þeirri niðurstöðu að heimilt sé að fella niður frest til að kærandi geti yfirgefið landið sjálfviljugur. Liggur því fyrir að kærandi dvelst ólöglega í landinu, sbr. a-lið 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga, og er því heimilt að brottvísa honum. 

Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga skal ekki ákveða brottvísun ef hún, með hliðsjón af málsatvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Kærandi sótti um alþjóðlega vernd þann 15. október 2018. Kærandi kveðst í greinargerð vera í lífshættu í heimaríki. Þrátt fyrir mótmæli kæranda, þá er það mat kærunefndar, í ljósi grundvallar brottvísunar kæranda og með vísan til umfjöllunar kærunefndar um aðstæður í heimaríki kæranda, að ótti kæranda við hótanir í heimaríki og erfiðleikar sem tengjast takmörkunum á ferðum vegna endurkomubanns vegi ekki nægilega þungt til að talið verði að brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun í máli hans. Kærandi svaraði aðspurður að hann hefði engin sérstök tengsl við Ísland eða önnur Schengen-ríki. Af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun hans og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð kæranda, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. 

Er ákvörðun Útlendingastofnunar er varðar brottvísun og endurkomubann því staðfest.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

 

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

 

F.h. kærunefndar útlendingamála,

 

 

Hjörtur Bragi Sverrisson, formaður

 


 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta