Hoppa yfir valmynd

Nr. 592/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 16. október 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 592/2023

í stjórnsýslumálum nr. KNU23080058 og KNU23080059

 

Kæra [...] og [...]

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 22. ágúst 2023 kærðu [...], fd. [...] (hér eftir nefndur A), og [...], fd. [...] (hér eftir nefnd B), ríkisborgarar Kína (saman nefnd kærendur), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 10. ágúst 2023, um að synja þeim um vegabréfsáritanir til Íslands.

Af kæru má ráða að kærendur krefjist þess að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að þeim verði veittar vegabréfsáritanir til Íslands.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og bárust kærur þeirra fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, með síðari breytingum, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsóknum, dags. 13. júlí 2023, óskuðu kærendur eftir vegabréfsáritunum til Íslands og Schengen-svæðisins í 20 daga, frá 16. október 2023 til 4. nóvember 2023. Umsóknum kærenda var synjað með ákvörðunum Útlendingastofnunar, dags. 10. ágúst 2023. Hinn 22. ágúst 2023 barst kærunefnd kæra frá kærendum ásamt fylgigögnum.

III.    Málsástæður og rök kærenda

Í kæru vísa kærendur til fyrirliggjandi ákvarðana Útlendingastofnunar og þeirra ástæðna sem ákvarðanirnar eru byggðar á. Kærendur telja niðurstöðuna ranga og vísa í fyrsta lagi til þess að þau hafi áreiðanlega ferðasögu til ýmissa ríkja, m.a. innan Schengen-svæðisins. Enn fremur eigi þau fasteignir í heimaríki og hafi engan áhuga á því að setjast að á Íslandi. Vísað er til þess að þau hafi fengið inngöngu í framhaldsnám í bandarískan háskóla frá og með vormisseri 2024. Af því tilefni séu séu þau að afla sér dvalarheimildar í Bandaríkjunum og hafi því hætt atvinnu í heimaríki til þess að undirbúa sig fyrir námið og tímann í Bandaríkjunum. Vegna þessa hafi kærendur ekki lagt fram þau atvinnutengdu gögn sem sendiráðið í Peking krafðist, en nánar er fjallað um það síðar í úrskurði þessum. Ferðalagið til Íslands er ætlað sem brúðkaupsferð kærenda en þau eru áhugasöm um íslenska náttúru og vísa því til stuðnings til áhuga síns á sjónvarpsþáttum um krúnuleikana, sem að hluta voru teknir upp á Íslandi. Meðal fylgigagna með kæru eru afrit af hjúskaparvottorði, inngöngubréf beggja kærenda í [...]University í Bandaríkjunum, ljósmyndir af stimplum og vegabréfsáritunum í vegabréfum þeirra, auk gagna um fasteignaskráningu kærenda.

IV.    Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Kína þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt.

Með aðild að Schengen-samstarfinu og undirritun Brussel-samningsins hinn 18. maí 1999 tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins, en með aðild Íslands að Schengen-samstarfinu fylgir skuldbinding til þess að fylgja sameiginlegri stefnu að því er lýtur ferðum fólks, sbr. reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins (EB) nr. 810/2009 um vegabréfsáritanir.

Við veitingu vegabréfsáritana ber íslenskum stjórnvöldum sem einu af Schengen-ríkjunum ekki aðeins að ganga úr skugga um að öllum formskilyrðum sé fullnægt heldur einnig að meta hvort hætta sé talin á að viðkomandi útlendingur muni dvelja lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt og/eða snúa ekki aftur til heimalands. Þessi skylda íslenskra stjórnvalda er lögfest í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þannig er reynt af fremsta megni að stemma stigu við því að gildandi reglur um dvalarleyfi séu sniðgengnar með því að útlendingur sæki um vegabréfsáritun í staðinn. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að rétt sé að lögfesta ákveðin sjónarmið sem beri að miða við í mati á umsókn um vegabréfsáritun. Séu þessi sjónarmið í samræmi við markmið laganna og hafi mótast í framkvæmd Schengen-ríkjanna. Enn fremur segir í athugasemdum með frumvarpinu að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í nokkrum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem nefnd eru ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Synjunarform Útlendingastofnunar er í samræmi við reglugerð um vegabréfsáritanir og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um vegabréfsáritanir (2009/810/EB), en nánari tilvísun er að finna í ákvörðunum stofnunarinnar í málum kærenda. Í ákvörðunum Útlendingastofnunar er notað staðlað form þar sem hægt er að merkja í reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðunum kærenda er merkt í reit 2 vegna synjunar á umsóknum þeirra, þ.e. að ekki hafi verið færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar. Uppfylltu kærendur þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kærendum jafnframt leiðbeint um að þau gætu óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun óskuðu kærendur ekki eftir slíkum rökstuðningi.

Í 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga kemur fram að Útlendingastofnun taki ákvörðun um umsókn um útgáfu vegabréfsáritunar og þá sé heimilt að fela utanríkisþjónustunni að taka ákvörðun um slíkar umsóknir. Enn fremur sé heimilt að fela utanríkisþjónustu annars ríkis sem taki þátt í Schengen-samstarfinu að verða við umsókn um vegabréfsáritun. Í athugasemdum með ákvæðinu í frumvarpi að lögum um útlendinga kemur fram að miðað sé við að umsóknir um vegabréfsáritun verði lagðar fram í skrifstofum sendiráða og ræðisskrifstofa erlendis og þær sendar Útlendingastofnun til ákvörðunar. Viðkomandi sendiráð eða ræðisskrifstofa muni síðan gefa áritunina út að fenginni heimild Útlendingastofnunar. Þá kemur fram að gert sé ráð fyrir að ráðherra geti heimilað utanríkisþjónustunni að taka ákvörðun um umsóknir um vegabréfsáritun. Íslenska sendiráðið í Peking tekur á móti og fer með meðferð umsókna um vegabréfsáritanir til Íslands sem lagðar eru fram í Kína, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Í gögnum málsins liggur m.a. fyrir afrit úr málaskrá Útlendingastofnunar vegna mála kærenda þar sem málsmeðferð umsókna þeirra hjá utanríkisþjónustunni er rakin. Fram kemur að tiltekin fylgigögn með umsóknum hafi skort eða verið ófullnægjandi á annan hátt. Þar kemur fram að hótelbókanir hafi verið afbókaðar, og gögn frá vinnuveitanda á borð við rekstrarleyfi, ráðningarsamningur og staðfesting á orlofi hafi verið ófullnægjandi. Sömu upplýsingar um gögn vinnuveitanda má finna í athugasemdum á gátlistum kærenda, sem undirritaðir eru 13. júlí 2023, og því ljóst að þau voru upplýst um ófullnægjandi fylgigögn. Líkt og kemur fram í kæru hafa kærendur fengið inngöngu í nám í Bandaríkjunum á vormisseri 2024 en samkvæmt inngöngubréfum þeirra áttu þau að hafa lokið skráningu og greiðslu staðfestingargjalds fyrir 5. maí 2023. Valdi fyrirhuguð dvöl í Bandaríkjunum því að kærendur hafi sagt upp atvinnu sinni og geti því ekki lagt fram fullnægjandi gögn frá vinnuveitanda en þessi málsástæða var hvorki færð fram hjá sendiráðinu né Útlendingastofnun. Þrátt fyrir þessar skýringar lítur kærunefnd til þess að grundvöllur vegabréfsáritunar kærenda til Íslands og Schengen-svæðisins væri brottför og endurkoma til heimaríkis enda liggur ekkert fyrir í gögnum málsins um fyrirliggjandi dvalarheimild kærenda í Bandaríkjunum. Þá taka nauðsynleg fylgigögn samkvæmt gátlista mið af staðbundnum aðstæðum, þ. á m. gögn frá vinnuveitanda, sbr. 5. mgr. 14. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Þá hefur kærunefnd einnig lagt mat á hótelbókanir kærenda sem hafa verið afbókaðar án þess að nýjar bókanir hafi verið lagðar fram. Að mati kærunefndar eru því framkomin gögn og málsástæður kærenda ekki þess eðlis að ástæða sé til að hnekkja mati Útlendingastofnunar á umsóknum þeirra um vegabréfsáritun.

Að öllu framangreindu virtu tekur kærunefnd undir það mat Útlendingastofnunar að kærendur hafi ekki fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, sbr. ii-lið a-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig verið ástæða til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar kærenda hingað til lands, sbr. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verða hinar kærðu ákvarðanir um að synja kærendum um vegabréfsáritanir til landsins því staðfestar.

Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum