Mál nr. 156/2021 Úrskurður 17. nóvember 2021
Mál nr. 156/2021 Eiginnafn: Éljagrímur
Hinn 17. nóvember 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 156/2021 en erindið barst nefndinni 3. nóvember.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Éljagrímur (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Éljagríms, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Éljagrímur (kk.) er samþykkt og skal það fært á mannanafnaskrá.