Mál nr. 84/2018 Úrskurður 16. október 2018
Mál nr. 84/2018 Eiginnafn: Binna (kvk.)
Hinn 16. október 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 84/2018 en erindið barst nefndinni 2. október.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
-
Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
-
Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
-
Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
-
Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.
-
Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Binna (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Binnu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Binna (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.