Hoppa yfir valmynd

Nr. 431/2022 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 9. nóvember 2022 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 431/2022

í stjórnsýslumáli nr. KNU22100021

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 4. október 2022 kærði […], fd. […], ríkisborgari Palestínu ( hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 27. september 2022, um að synja umsókn hans um dvalarleyfi á grundvelli 78. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla við landið, sbr. 78. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994 auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II.            Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla við landið 3. ágúst 2021. Samkvæmt ákvörðun Útlendingastofnunar var tiltekið í dvalarleyfisumsókn kæranda að tilgangur dvalar hans væri fjölskyldusameining. Af þeirri ástæðu hafi kæranda verið sent bréf 2. júní 2022 þar sem óskað hafi verið eftir því að hann tilgreindi betur á hvaða grundvelli hann hygðist sækja um dvalarleyfi og að hann legði fram útfyllta og undirritaða umsókn samhliða. Útlendingastofnun hafi borist greinargerð frá umboðsmanni kæranda 9. júní 2022 þar sem fram hafi komið að hann væri frændi kæranda. Kvaðst umboðsmaður kæranda hafa misst föður sinn tveimur árum áður og í kjölfarið hafi hann farið að hafa áhyggjur af móður sinni, […] ára, og systur, […] ára, í Palestínu sem báðar þörfnuðust sérhæfðrar læknisþjónustu. Í maí 2021 hafi hluti húss þeirra í Palestínu eyðilagst í loftárás og hafi hann í kjölfarið tekið þá ákvörðun að sækja um dvalarleyfi hér á landi fyrir þær. Umboðsmaður kæranda hafi greint frá því í öðru bréfi til Útlendingastofnunar að markmið hans væri að bjarga móður sinni og systur frá þeim aðstæðum sem þær væru í á Gaza. Því hafi hann ákveðið að sækja um dvalarleyfi fyrir kæranda sem myndi fylgja móður hans og systur hingað til lands.

Við vinnslu umsóknar kæranda hjá Útlendingastofnun hafi komið í ljós að fylgigögn með umsókninni væru ófullnægjandi. Kæranda hafi því verið sent tölvubréf, dags. 21. júní 2022, þar sem frekari gagna hafi verið óskað, þ. á m. greinargerð, gögnum um framfærslu og sjúkratryggingu. Viðbótargögn hafi borist 4. júlí 2022 þar sem fram hafi m.a. komið að eftir að umboðsmaður kæranda hafi yfirgefið Palestínu hafi kærandi annast móður hans og systur. Samhliða þeim umönnunarstörfum hafi kærandi starfað í heimaríki og vonist hann til að geta starfað hér á landi. Þá sé það von kæranda að Útlendingastofnun aðstoði hann með framfærslu eftir að hann komi til landsins á meðan hann klári nám og finni vinnu.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 27. september 2022, var umsókn kæranda synjað með vísan til þess að hann hefði ekki svo sérstök tengsl við Ísland að það heimilaði beitingu 78. gr. laga um útlendinga. Kæranda var tilkynnt um ákvörðunina 3. október 2022 og var ákvörðunin kærð til kærunefndar 4. október 2022.

III.       Málsástæður og rök kæranda

Kærandi lagði ekki fram greinargerð eða rökstuðning til stuðnings kæru sinni.

IV.       Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 78. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi dvalarleyfi á grundvelli þess að hann teljist hafa sérstök tengsl við landið, að fullnægðum skilyrðum 1. og 2. mgr. 55. gr. laganna, sé hann eldri en 18 ára og falli ekki undir ákvæði um önnur dvalarleyfi samkvæmt lögum þessum eða fullnægi ekki skilyrðum þeirra.

Fyrir liggur að kærandi hefur aldrei haft dvalarleyfi hér á landi og hefur því ekki myndað tengsl við landið með lögmætri dvöl. Þrátt fyrir að útlendingur hafi ekki dvalist hér á landi getur hann í undantekningartilvikum talist hafa sérstök tengsl við landið þegar heildstætt mat á aðstæðum hans leiðir til þess, t.d. ef rík umönnunarsjónarmið eru til staðar og bersýnilega væri ósanngjarnt að veita umsækjanda ekki dvalarleyfi á grundvelli þeirra, sbr. 4. mgr. 78. gr. laga um útlendinga. Þetta getur t.d. átt við þegar einstaklingur er einn eftir án fjölskyldumeðlima í heimaríki og þarfnast umönnunar og aðstoðar fjölskyldumeðlima sem búa hér á landi. Samkvæmt 9. mgr. 78. gr. laga um útlendinga getur ráðherra sett reglugerð um nánari skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis samkvæmt 78. gr., m.a. hvenær geti komið til beitingar undantekningarreglu 4. mgr. ákvæðisins.

Í 20. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum, hefur ráðherra útfært við hvaða aðstæður getur komið til veitingar dvalarleyfis á grundvelli sérstakra tengsla þegar umsækjandi hefur ekki búið á Íslandi. Kemur þar fram að útgáfa slíks dvalarleyfis sé heimil eigi umsækjandi uppkomið barn eða foreldri sem búi á Íslandi og sé íslenskur ríkisborgari eða hafi ótímabundið dvalarleyfi eða dvalarleyfi sem geti myndað grundvöll fyrir ótímabundið dvalarleyfi. Umsækjandi þurfi að sýna fram á að hann hafi verið á framfæri þessa aðstandanda í að minnsta kosti ár og að fjölskyldu- og félagsleg tengsl hans við heimaríki séu slík að bersýnilega ósanngjarnt væri að veita honum ekki dvalarleyfi hér á landi. Þá kemur fram að umönnunarsjónarmið önnur en framfærsla þurfi að jafnaði að mæla með veitingu dvalarleyfis.

Tengsl kæranda við Ísland eru þau að frændi hans er búsettur hér á landi. Samkvæmt gögnum málsins er kærandi fæddur og uppalinn í Palestínu og hefur stundað nám og starfað þar. Má því ráða að tengsl kæranda við heimaríki hans séu sterk. Ljóst er af gögnum málsins að kærandi hefur ekki verið á framfæri aðstandanda í skilningi 20. gr. reglugerðar um útlendinga. Þá benda gögn málsins ekki til þess að umönnunarsjónarmið séu fyrir hendi í málinu eða að öðru leyti séu fyrir hendi í málinu slík félagsleg, menningarleg eða önnur sambærileg tengsl að rétt sé að veita kæranda dvalarleyfi á þeim grundvelli, sbr. 3. mgr. 78. gr. laga um útlendinga. Þá er það mat kærunefndar að aðstæður kæranda falli bersýnilega ekki innan ákvæðis 4. mgr. 78. gr. laga um útlendinga, sbr. 20. gr. reglugerðar um útlendinga, en í hinu síðarnefnda ákvæði kemur m.a. fram það skilyrði að umsækjandi eigi uppkomið barn eða foreldri sem býr á Íslandi og er íslenskur ríkisborgari eða hefur ótímabundið dvalarleyfi eða dvalarleyfi sem getur myndað grundvöll fyrir slíkt leyfi og að hann hafi verið á framfæri þess aðstandanda í að minnsta kosti ár.

Samkvæmt framansögðu uppfyllir kærandi ekki skilyrði 78. gr. laga um útlendinga til útgáfu dvalarleyfis og verður hin kærða ákvörðun því staðfest. Jafnframt er skilyrði 1. mgr. 56. gr. sbr. 1. mgr. 55. gr. laga um útlendinga og 20. gr. reglugerðarinnar um að framfærsla umsækjanda sé trygg ekki fullnægt en af gögnum málsins má sjá að umboðsmaður kæranda óskar eftir því að kærandi muni fá húsnæði og framfærslu frá íslenskum stjórnvöldum þangað til hann fái atvinnu hér á landi. Samkvæmt 3. mgr. 56. gr. laga um útlendinga telst félagsleg framfærsla ekki trygg framfærsla og þá hafa ekki verið lögð fram önnur gögn sem sýna fram á sjálfstæða trygga framfærslu kæranda.

Kærunefnd gerir athugasemd við málsmeðferðartíma Útlendingastofnunar en umsókn kæranda var lögð fram 3. ágúst 2021. Útlendingastofnun sendi kæranda fyrst bréf með ósk um frekari gögn 2. júní 2022 eða u.þ.b. 10 mánuðum seinna. Að mati kærunefndar verður ekki séð að þessi töf á vinnslu umsóknarinnar hafi verið réttlætanleg og málsmeðferðartími stofnunarinnar því ámælisverður.

 

 

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

 

 

Gunnar Páll Baldvinsson                                                                                             Sandra Hlíf Ocares


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta