Hoppa yfir valmynd

Nr. 118/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 25. mars 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 118/2020

í stjórnsýslumálum nr. KNU19090042 og KNU20020034

 

Kæra [...], [...]

og barna þeirra

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 18. september 2019 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fædd [...], og vera ríkisborgari [...] (hér eftir K) ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 28. og 29. ágúst 2019 um að taka ekki til efnismeðferðar umsóknir kæranda og barna hennar, [...], fd. [...], ríkisborgara [...] (hér eftir A), [...], fd. [...], ríkisborgara [...] (hér eftir B) og [...], fd. [...], ríkisborgara [...] (hér eftir C) um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa þeim frá landinu.

K krefst þess að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd verði teknar til efnislegrar meðferðar hér á landi, í fyrsta lagi á grundvelli 3. mgr. 36. gr., sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, og í öðru lagi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Með tölvupósti, dags. 28. nóvember 2019, upplýsti talsmaður kæranda kærunefnd um að eiginmaður K hefði sótt um alþjóðlega vernd hér á landi og óskaði eftir að málin yrðu sameinuð.

Þann 17. febrúar 2020 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir M) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 10. febrúar 2020, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

M krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn hans til efnislegrar meðferðar hér á landi, í fyrsta lagi með vísan til 11. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 65. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Í öðru lagi er þess krafist að umsóknin verði tekin til efnislegrar meðferðar á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Verði ekki fallist á það er þess í þriðja lagi krafist að umsóknin verði tekin til efnislegrar meðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr. laga um útlendinga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Til vara er gerð krafa um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og bárust kærurnar fyrir lok kærufrests.

Í ljósi þess að málsatvik, málsástæður og kröfur kærenda í málum nr. KNU19090042 og KNU20020034 eru sambærilegar, kærendur eru í hjúskap og eiga saman börn verður kveðinn upp einn úrskurður í báðum málum.

II. Málsmeðferð

K lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 18. júní 2019 og f.h. barna sinna. Við leit að fingraförum hennar í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hennar höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi. Þann 29. ágúst 2019 var upplýsingabeiðni beint til yfirvalda í Grikklandi, sbr. 34. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá grískum yfirvöldum, dags. 10. október 2019, kom fram að K og börnum hennar hefði verið veitt alþjóðleg vernd þann 12. febrúar 2018 og væru með gilt dvalarleyfi í Grikklandi til 12. febrúar 2021. K kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 1. júlí 2019, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Þá komu A, B og C til viðtals hjá Útlendingastofnun þann 11. júlí 2019, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 28. og 29. ágúst 2019 að taka ekki umsókn K og barna hennar um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að þeim skyldi vísað frá landinu. Ákvarðanirnar voru birtar fyrir K þann 3. september 2019 og kærði K ákvarðanirnar þann 18. september 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð K barst kærunefnd 30. september 2019 ásamt fylgigögnum. Viðbótargögn og upplýsingar vegna málsins bárust kærunefnd dagana 26. og 28. nóvember 2019, 2., 4., og 16. desember 2019, 20., 21., 25., og 27. febrúar 2020 og 2. mars 2020.

M lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 26. nóvember 2019. Við leit að fingraförum hans í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi. Þann 19. desember 2019 var upplýsingabeiðni beint til yfirvalda í Grikklandi, sbr. 34. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Í svari frá grískum yfirvöldum, dags. 19. febrúar 201920, kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd þann 16. júlí 2019 og væri með gilt dvalarleyfi í Grikklandi til 16. júlí 2022. M kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 11. desember 2019, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 10. febrúar 2020 að taka ekki umsókn M um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir M þann 11. febrúar 2020 og kærði M ákvörðunina þann 17. febrúar 2020 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð M barst kærunefnd 27. febrúar 2020 ásamt fylgigögnum. Viðbótargögn bárust þann 25. febrúar 2020.

III. Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum M og K kom fram að kærendum hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd yrðu því ekki teknar til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kærenda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærendur hefðu ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að þau fengju hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu með því þannig að taka bæri umsóknir kærenda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærendum var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldu þau flutt til Grikklands.

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum barnanna A, B og C kom fram að það væri niðurstaða stofnunarinnar, með vísan til niðurstöðu í máli móður þeirra, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, laga um útlendinga og barnaverndarlaga nr. 80/2002, að hagsmunum barna K væri ekki stefnt í hættu með því að fylgja foreldri sínu til Grikklands.

Var kæranda M veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið og athygli hans vakin á því að yfirgæfi hann ekki landið innan frests væri heimilt að brottvísa honum. Í brottvísun fælist bann við komu til landsins síðar og endurkomubann skyldi að jafnaði ekki gilda skemur en tvö ár, sbr. a-lið 2. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kærenda

Í greinargerð K kemur m.a. fram að K hafi í viðtali hjá Útlendingastofnun greint frá því að hún sé andlega þreytt og finni fyrir verkjum í hnakka og maga. K og börnin hafi dvalið í flóttamannabúðum í viðtökuríki þar sem þau hafi fengið tilbúinn mat og haft aðgang að læknisaðstoð. Þau hafi ekki fengið neinn fjárhagslegan stuðning og kveði K að hún hafi ekki getað aflað sér tekna í viðtökuríki vegna skertrar starfsgetu. Þá hafi börnin ekki fengið að fara í skóla þar í landi. Í greinargerð M kemur fram að hann hafi í viðtali hjá Útlendingastofnun greint frá því að honum hafi verið haldið föngnum í tvö ár í heimaríki þar sem pyndingar, limlestingar og ofbeldi hafi átt sér stað. Hann fái martraðir og endurupplifanir frá þessum tíma. Þá hafi honum einnig verið haldið föngnum í 16 mánuði í viðtökuríki. Andleg áhrif fangelsisvistarinnar gæti enn og glími hann við andlega þreytu og minnisskort í kjölfarið. Þá hafi kærandi ekki getað svarað skimunarlista hjá Útlendingastofnun sökum ólæsis.

Þá kemur fram að börn kærenda, A, B og C hafi í viðtali hjá Útlendingastofnun staðfest frásögn móður sinnar og m.a. greint frá því að aðstæður þeirra í Grikklandi hafi verið erfiðar.

Í greinargerðum M og K eru gerðar athugasemdir við hinar kærðu ákvarðanir Útlendingastofnunar m.a. við mat stofnunarinnar á aðstæðum í Grikklandi, þ. á m. hvað varðar aðgengi að atvinnumarkaði, búsetuúrræðum og heilbrigðis- og félagsþjónustu í Grikklandi. Í greinargerð K er m.a. gerð athugasemd við staðhæfingu Útlendingastofnunar um að lögregluna skorti hvorki vilja né getu til að vernda einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi auk þess sem stofnunin vísi til úrræða í ákvörðunum sínum sem séu kærendum ekki aðgengileg. Auk þess líti stofnunin framhjá þeim veruleika sem langflest flóttafólk býr við í Grikklandi og sem heimildir kveði á um. Þá sé fjallað um jákvæða stefnu í menntamálum á Grikklandi þegar aðeins tæpur helmingur flóttabarna sé skráður til náms þar í landi. Í greinargerð M er þá m.a. áréttuð rannsóknarregla 10. gr. stjórnsýslulaga, sbr. 2. mgr. 23. gr. og 25. gr. laga um útlendinga í tengslum við mat á viðkvæmri stöðu hans.

Í greinargerðum kærenda er gerð grein fyrir aðstæðum, aðbúnaði og réttarstöðu þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi með vísan til fjölda skýrslna alþjóðlegra stofnana og frjálsra félagasamtaka. Vísa kærendur einkum til þess að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafi lögum samkvæmt rétt á heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu, atvinnu og húsnæði en það skorti á að lögunum sé framfylgt og fólk fái raunverulega ekki notið þeirra réttinda.

Kröfur kærenda eru byggðar á því að taka skuli mál þeirra til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í þeim efnum fjalla kærendur almennt um og gera grein fyrir inntaki og túlkun á ákvæðinu, m.a. með hliðsjón af lögskýringargögnum. Kærendur fjalla um lagastoð reglugerðar nr. 276/2018, sem kveður á um breytingar á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Í reglugerðarbreytingunni felist skilyrði vegna sérstakra ástæðna sem eigi sér ekki fullnægjandi stoð í settum lögum og gangi gegn ákvæðum laga um útlendinga. Vísa kærendur til þess að börn teljist til sérstaklega viðkvæms hóps umsækjenda um alþjóðlega vernd, hvort sem þau séu í fylgd umönnunaraðila eða ekki. Kærendur óski sérstaklega eftir því að tekið verði tillit til þeirrar verndar sem börn þeirra eigi rétt á samkvæmt barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, íslenskum lögum og öðrum reglum sem íslensk stjórnvöld séu bundin af þjóðarrétti til að virða. Kærendur telji að endursending þeirra til Grikklands gangi gegn hagsmunum barna þeirra. Staða kærenda og barna þeirra muni vera síðri en staða almennings þar í landi m.a. vegna aðgangs þeirra að heilbrigðiskerfinu. Í greinargerð K er vísað til þess að fjölskyldan hafi átt erfitt uppdráttar í Grikklandi, m.a. vegna þeirrar kerfislægu og alvarlegu mismununar sem þar þrífist gagnvart flóttafólki. Um mat á því hvenær einstaklingur telst eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vísar M í greinargerð sinni til úrskurða kærunefndar frá 10. október 2017 nr. 550/2017 og 552/2017 og úrskurða frá 24. október 2017 nr. 583/2017 og 586/2017. Telur M að aðstæður hans jafnist á við aðstæður kærenda í tilgreindum úrskurðum. Sé ljóst að íslenskum stjórnvöldum sé skylt að taka umsóknir kærenda og barna þeirra til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 26. gr. laga um útlendinga.

Kröfur kærenda eru einnig byggðar á því að ótækt sé að beita heimild a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem þau njóti verndar 1. mgr. 42. gr. laganna og því sé íslenskum stjórnvöldum skylt að taka mál þeirra til efnislegrar meðferðar skv. 3. mgr. 36. gr. laganna. Ákvæðið mæli fyrir um grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement, eða banni við endursendingu fólks þangað sem líf þess eða frelsi sé í hættu. Aðstæður flóttafólks í Grikklandi séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlegar og vanvirðandi aðstæður. Í greinargerð K er vísað til þess að þörf fjölskyldunnar fyrir mannúðarvernd hér á landi sé sérstaklega brýn og fyrir hendi séu sannfærandi mannúðaraðstæður. Fjölskyldan hafi búið saman í einu herbergi í flóttamannabúðunum í Grikklandi og sé það óvíst að þeim muni standa slíkt hið sama til boða við endurkomu til Grikklands. Þeim hafi einungis staðið til boða heilbrigðisþjónusta af læknum í flóttamannabúðunum í Grikklandi og hafi kærandi ekki getað aflað tekna vegna skertrar starfsgetu sinnar. Því beri að taka umsóknir kærenda til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í greinargerð M er jafnframt gerð krafa um efnismeðferð á þeim grundvelli að ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja honum um efnismeðferð hér á landi sé brot á jafnræðisreglu. Vísar M til þess að Mannréttindadómstóll Evrópu hafi þróað aðferðafræði sem greini ólögmæta mismunun sem slíka. Vísi kærandi til þess að íslensk stjórnvöld hafi ekki sent umsækjendur um alþjóðlega vernd til Grikklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar en öðru gegni um einstaklinga sem hafa hlotið alþjóðlega vernd. Núgildandi lög um útlendinga geri ekki greinarmun á því hvort einstaklingur falli undir a- eða c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þegar komi að því að meta sérstakar ástæður. M telji að í ljósi versnandi aðstæðna flóttafólks í Grikklandi séu ekki málefnalegar ástæður fyrir því að gera greinarmun á umsækjendum um alþjóðlega vernd og þeirra sem hafa þegar hlotið vernd í Grikklandi. Samkvæmt 11. gr. stjórnsýslulaga og 65. gr. stjórnarskrárinnar skuli því taka umsókn hans til efnismeðferðar.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Réttarstaða barna kærenda

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og að tekið sé tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni. Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra skal það almennt viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman.

Kærunefnd hefur farið yfir gögn málanna, þ. á m. viðtöl við K, M, A, B og C hjá Útlendingastofnun og gögn um heilsufar, þ. á m. hvað varðar A. Það er mat nefndarinnar að allt bendi til þess að hagsmunum A, B og C sé best borgið með því að tryggja rétt fjölskyldunnar til að vera saman og að réttarstaða A, B og C verði ákvörðuð í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Börnin A, B, og C eru í fylgd foreldra sinna og verður því tekin afstaða til mála fjölskyldunnar í einum úrskurði.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málanna var K og börnum kærenda veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi þann 12. febrúar 2018 og hafa þau gilt dvalarleyfi þar í landi til 12. febrúar 2021. Var M veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi þann 16. júlí 2019 og hefur hann gilt dvalarleyfi þar í landi til 16. júlí 2022. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærendur og börn þeirra njóta í Grikklandi í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kærenda

Samkvæmt gögnum málanna eru K og M hjón með þrjú börn sem eru [...], [...] og [...] ára gömul. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að hún sé með verki aftan við hálsinn, hnakka og í maganum. Þá sé hún jafnframt andlega og líkamlega þreytt. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að honum hafi verið haldið föngnum í tvö ár í heimaríki þar sem hann hafi m.a. sætt ofbeldi auk þess sem hann hafi sætt fangelsisvist í Grikklandi í 16 mánuði hjá landamæralögreglunni þar í landi. Kvaðst hann endurupplifa þær aðstæður og fá martraðir. M kvaðst vera andlega þreyttur, bakveikur og glíma við minniserfiðleika. Þá má ráða af fyrirliggjandi gögnum að M sé ólæs og af þeim sökum hafi ekki verið hægt að leggja skimunarlista fyrir M í viðtali hjá Útlendingastofnun.

Í gögnum frá Göngudeild sóttvarna kemur m.a. fram að M hafi greint frá andlegri vanlíðan sem kærandi hafi fengið ávísað lyfjum vegna. Þá hafi hann verið með sýkingu í munni og fengið ávísað sýklalyfjum auk þess sem hann hafi verið með tannskemmd og fengið bráðabirgðaviðgerð á tönnum. Einnig hafi M leitað á Göngudeild sóttvarna vegna m.a. höfuðverkjar og bakverkja sem hann hafi fengið ávísað verkjalyfjum vegna. Þá hafa kærendur hitt sálfræðing á Göngudeild sóttvarna í sitthvoru lagi, sbr. samskiptaseðil sálfræðings, dags. 6. janúar 2020.

Í gögnum frá bráðamóttöku Landspítalans, dags 14. ágúst 2019, kemur fram að A hafi leitað á bráðamóttöku þann dag eftir að hafa [...]. Við skoðun hafi A ekki verið bráðveik að sjá né að henni hafi verið meint af [...]. Þá hafi A greint frá því að ástæða inntökunnar hafi verið vanlíðan hennar og söknuður í garð föður síns. Samkvæmt gögnum frá Göngudeild barna og unglingageðdeildar Landspítala, dags. 15. ágúst 2019, kom A í bráðaviðtal degi síðar og hitti þar m.a. hjúkrunarfræðing og félagsráðgjafa. A greindi frá því að sér liði betur og að það hafi hjálpað henni að hafa opnað á vanlíðan sína og kvíða. Var A ekki metin í sjálfsvígshættu og ákveðið að aðkoma bráðateymis yrði ekki meiri og var ráðlagt að A færi í samtalsmeðferð í framhaldinu. Í málinu liggja fyrir gögn frá Barnavernd Reykjavíkur, en aðkoma hennar hafi verið vegna tveggja tilkynninga. Þar kemur m.a. fram að A hafi verið vistuð utan heimilis um tíma og dvalið á heimili á vegum Barnaverndarnefndar Reykjavíkur. Þá kemur fram að A hafi m.a. hitt sálfræðing á vegum Barnaverndar Reykjavíkur í tvö skipti. Í tölvupósti frá félagsráðgjafa hjá þjónustumiðstöðvar Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða, dags. 2. mars sl., kemur m.a. fram að einstaklingsáætlun sé í málinu á vegum þjónustumiðstöðvarinnar, m.a. með það að markmiði að styðja við kærendur í uppeldishlutverkinu og að veittur sé stuðningur inná heimili kærenda.

Ekki verður annað ráðið af fyrirliggjandi gögnum en að börnin B og C séu við góða heilsu.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2019 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 11. mars 2020);
  • Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Asylum Information Database, National Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, 29. mars 2019);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Freedom in the World 2019 – Greece (Freedom House, 2019);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);
  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Rights of Children in Institutions – Report on the implementation of the Council of Europe Recommendation. Rec(2005)5 on the rights of children living in residential institutions (Council of Europe, ágúst 2008);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu;
  • Upplýsingar af vefsíðu Eurochild (http://eurochild.org);
  • Upplýsingar af vefsíðu Unicef (http://unicef.org);
  • World Report 2020 – European Union (Human Rights Watch, 14. janúar 2020);
  • Yfirlýsing Flóttamannastofnunar, dags. 2. mars 2020 (https://www.unhcr.org/news/press/2020/3/5e5d08ad4/unhcr-statement-situation-turkey-eu-border.html?query=greece);
  • Yfirlýsing barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, dags. 3. mars 2020 (https://www.unicef.org/press-releases/protecting-children-must-be-top-priority-latest-refugee-surge-response);
  • Yfirlýsing samtakanna European Council on Refugees and Exiles, dags. 3. mars 2020 (https://www.ecre.org/ecre-statement-on-the-situation-at-the-greek-turkish-border/?fbclid=IwAR2SHfXn8pq4bLlsY23LxWEPVhxrZHtIkz2LwmiZICP_n0ZpT9IzO0r6_Zg), og
  • Bréf 85 samtaka til grískra yfirvalda og Evrópuþingsins, leiðtogaráðs og framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, dags. 6. mars 2020 (https://www.ecre.org/joint-statement-protect-our-laws-and-humanity/).

Af ofangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi eiga rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig getur verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta á jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í ríkinu. Þá má af upplýsingum um aðstæður í Grikklandi, í ljósi Covid-19 faraldursins sem nú geisar, ráða að heilbrigðiskerfi Grikklands sé illa í stakk búið til þess að takast á við þá stöðu sem komin er upp og að sérstök hætta sé á að flóttamenn í landinu séu í lakari stöðu í Grikklandi, m.t.t. framangreindra aðgangshindrana að heilbrigðisþjónustu.

Aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi að húsnæði er háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með löglega dvöl í Grikklandi. Fá gistiskýli eru í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt getur reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem hafa verið sendir til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum.

Sem fyrr segir eiga einstaklingar með alþjóðlega vernd sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Þær félagslegu bætur sem í boði eru í Grikklandi eru t.d. bætur fyrir fjölskyldur (e. Family allowance) en skilyrði fyrir slíkum bótum er að sýnt sé fram á tíu ára óslitna og varanlega búsetu í Grikklandi.

Þá veita grísk yfirvöld einstaklingum, m.a. handhöfum alþjóðlegrar verndar sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna, svokallaðan KEA styrk (g. Κοινωνικό Επίδομα Αλληλεγγύης, KEA). Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði; þeir þurfa m.a. að hafa kennitölu, skattnúmer (AFM), gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir að leggja fram ýmis gögn, m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Samkvæmt framangreindri skýrslu Asylum Information Database er erfitt að uppfylla skilyrðin. Þá eru engir aðrir framfærslustyrkir en KEA í boði í reynd. Þá kemur fram í fyrrnefndum gögnum að engin sérúrræði eru til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Í gögnum um aðstæður á Grikklandi kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafi mætt erfiðleikum við að fá útgefið skattnúmer (g. Αριθμός Φορολογικού Μητρώου, AFM), hjá grískum stjórnvöldum. Útgáfa skattnúmers er grundvöllur þess að geta lifað og starfað löglega á Grikklandi og þess að einstaklingar geti sótt aðstoð og réttindi hjá grískum stjórnvöldum. Skattnúmerið er forsenda þess að geta sótt um félagslega aðstoð, til að vinna hvort sem er sem starfsmaður hjá öðrum eða að hefja eigin rekstur og heimild og til þess að gera samninga um leigu á húsnæði.

Vegna heimilda um þessa erfiðleika varðandi útgáfu skattnúmera sendi kærunefnd útlendingamála fyrirspurn til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og óskaði eftir upplýsingum um hvort stofnuninni væri kunnugt um hindranir sem einstaklingar með alþjóðlega vernd í Grikklandi kunni að mæta við að verða sér úti um slíkt skattnúmer. Í svari Flóttamannastofnunnar, dags. 10. mars 2020, kemur m.a. fram að almennt þurfi að sækja um skattnúmerið í eigin persónu hjá viðeigandi stjórnvaldi, umsóknina þurfi að fylla út á grísku og sýna þurfi skilríki s.s. dvalarskírteini. Þá sé engin túlkaþjónusta í boði en öll málsmeðferð, bæði skriflega umsóknin og samskipti við stjórnvöld, skuli fara fram á grísku. Starfsmenn grískra yfirvalda séu ekki skyldugir skv. lögum til þess að tala ensku í störfum sínum eða vinna með gögn sem ekki séu skrifuð eða þýdd yfir á grísku. Niðurstaða umsóknar vegna skattnúmers sé því undir því komin að starfsmaðurinn sé viljugur til samvinnu og að umsækjandi um skattnúmer hafi grunn í ensku eða grísku tungumáli. Þá kom fram í svari Flóttamannastofnunar að það væri mismunandi og oft misvísandi framkvæmd milli þeirra stjórnvalda sem sjá um útgáfu númeranna. Framkvæmdin færi í raun eftir því hversu vant starfsfólkið væri að þjónusta þennan hóp. Þá geti viðmót og vilji starfsmanns stjórnvaldsins haft áhrif á niðurstöðu varðandi útgáfu skattnúmers og þeir umsækjendur sem njóti aðstoðar frjálsra félagasamtaka eða lögmanna í umsóknarferlinu séu líklegri til þess að fá jákvætt svar við umsókn sinni. Þá hafi komið upp vandamál hjá þessum hópi varðandi það að tengja skattnúmer hjóna saman. Grísk skattayfirvöld hafi árið 2018, gefið út fyrirmæli um ítarlegri skoðun á skilríkjum erlendra umsækjenda um skattnúmer, sem hafi í kjölfarið leitt til þess að biðtími eftir niðurstöðu lengdist töluvert hjá þeim hópi. Flóttamannastofnun, gríski umboðsmaðurinn og frjáls félagasamtök hafi í kjölfarið ítrekað lýst yfir áhyggjum vegna þessa og því hafi grísk stjórnvöld brugðist við með breytingu á framkvæmd, en þó þurfi enn frekari aðgerðir. Þá sé óvíst hver staðan sé varðandi þann málafjölda sem enn bíði afgreiðslu af þessum sökum.

Í skýrslu Asylum Information Database, kemur fram að börn með alþjóðlega vernd í Grikklandi eiga sama rétt til þess að ganga í skóla þar í landi og önnur grísk börn fram að 15 ára aldri. Þrátt fyrir það þá kemur fram að einungis rúmlega helmingur barna á flótta sækir skóla í Grikklandi. Er ástæðan fyrir þessu m.a. rakin til tungumálahindrana og þess að námið hentar ekki endilega börnum sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi.

Í skýrslu Evrópuráðsins um réttindi barna á stofnunum á vegum barnaverndaryfirvalda í Evrópu kemur fram að í Grikklandi fari heilbrigðisráðuneytið og félagsmálaráðuneytið með yfirumsjón yfir málum sem snúa að barnavernd. Þá hefur embætti umboðsmanns barna í Grikklandi eftirlit með stofnunum landsins, annars vegar með frumkvæðisskoðun og hins vegar tekur hann við kvörtunum frá börnum og forráðamönnum þeirra. Á vefsvæði Eurochild koma fram upplýsingar sem gefa til kynna að skorið hafi verið niður í barnaverndarkerfinu í Grikklandi á undanförnum árum og að þörf sé á úrbótum. Þá kemur fram á vefsvæði Unicef að barnaverndarkerfi fyrir börn á flótta sé af skornum skammti og að þjónusta við þau hafi farið versnandi á undanförnum árum. Árið 2016 hafi þó verið ráðist í endurbætur til þess að bæta úr göllum á kerfinu.

Í framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggja bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur eru ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsakar meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar eru á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla er tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem eru þolendur glæpa og tala hvorki né skilja grísku eiga rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilja.

Undanfarnar vikur hafa borist fregnir af átökum og spennu við landamæri Grikklands og Tyrklands, sem sé m.a. afleiðing hernaðaraðgerða í Sýrlandi. Tyrkir hafi slakað á gæslu við landamærin og þúsundir flóttamanna freisti þess nú að komast yfir landamærin til Grikklands þar sem grísk stjórnvöld hafi mætt þeim af hörku og með breytingu á framkvæmd sinni við skráningu og vinnslu umsókna um alþjóðlega vernd, þ. á m. hætt að skrá nýjar umsóknir. Af gögnum megi ráða að ástandið sé afar viðkvæmt og að ólga sé fyrir hendi í grísku samfélagi. Fordómar, andúð og ofbeldi gagnvart þessum hópi hafi aukist og komið hafi upp tilvik þar sem gerðar hafa verið árásir á mannréttindasamtök og stofnanir sem vinni að hagsmunum flóttafólks í Grikklandi. Ýmis alþjóðasamtök og frjáls félagasamtök hafa lýst yfir áhyggjum af ástandinu, sbr. m.a. framangreindar yfirlýsingar, þ.m.t. yfirlýsing Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, dags. 2. mars 2020, og barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, dags. 3. mars 2020. Í yfirlýsingu 85 samtaka, þ. á m. European Council on Refugees and Exiles (ECRE), til grískra yfirvalda og Evrópuþingsins, leiðtogaráðs og framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, dags. 6. mars 2020, er m.a. kallað eftir því að komið verði strax aftur á ferlum varðandi flutning (e. relocation) á flóttamönnum og umsækjendum um alþjóðlega vernd frá Grikklandi til annarra aðildarríkja Evrópusambandsins, á sanngjarnan og skynsaman hátt, með fylgdarlaus börn í forgangi. Þá er í framangreindri yfirlýsingu frá barnahjálp Sameinuðu þjóðanna kallað eftir því að þjóðir standi við alþjóðlegar skuldbindingar sínar og verji börn, sama hvaðan þau koma. Þeim verði tryggt öruggt aðgengi að alþjóðlegri vernd í stað þess að grípa til aðgerða og yfirlýsinga sem ali á fordómum og útlendingaandúð. Þá er í yfirlýsingu ECRE lögð áhersla á að Evrópuríki deili ábyrgð vegna flóttamanna sem koma að ytri landamærum. Herská orðræða ráðamanna og talsmanna Evrópusambandsins auki líkur á ofbeldi gagnvart fólki sem sé í leit að vernd og samtökum sem styðji þann hóp. ECRE lýsir yfir áhyggjum af versnandi umhverfi er þetta varðar, bæði í Grikklandi og Tyrklandi.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kærenda og barna þeirra. Kærendur og börn þeirra, A, B og C eru handhafar alþjóðlegrar verndar í Grikklandi. Kærendur hafa m.a. borið fyrir sig að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í málum þeirra vegna bágra aðstæðna í Grikklandi. Þar hafi þau ekki fengið félagslega framfærslu eða atvinnu. Þá hafi þau upplifað fordóma þar í landi.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga er fjallað um mat á því hvort taka eigi umsókn til efnislegrar meðferðar hér á landi vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, og eru ákveðin viðmið þar nefnd í dæmaskyni. Er þar m.a. átt við þau tilvik þegar umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Þá er jafnframt vísað til þess að ákvæðið geti átt við þegar umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki.

Þá koma fram í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga sérviðmið er varða börn og ungmenni. Þar segir m.a. að við mat á því hvort taka skuli umsókn til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna skuli hagsmunir barnsins hafðir að leiðarljósi. Þá segir að sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra eða annars fjölskyldumeðlims sem hefur það á framfæri sínu skuli það almennt viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman. Við það mat beri meðal annars að líta til þess hvort flutningur til viðtökuríkis hafi í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist eða muni aðskiljast.

Aðstæður einstaklinga sem hafa hlotið alþjóðlega vernd í Grikklandi hafa þegar verið raktar. Eins og þar kemur fram hafa einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd að mestu sambærileg réttindi að lögum og grískir ríkisborgarar. Aftur á móti liggur fyrir að ýmsar hindranir eru á því að þeir geti sótt þessi réttindi. Til að mynda sé ljóst að börn eigi lagalegan rétt á menntun í Grikklandi en framangreind gögn benda til þess að yfirstíga þurfi ákveðnar stjórnsýsluhindranir til að skrá börn í skóla og að réttur til menntunar sé ekki í öllum tilvikum virkur. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar um aðstæður í Grikklandi m.t.t. félagslegra bóta telur kærunefnd ljóst að þau skilyrði sem sett eru fyrir félagslegum bótum í Grikklandi geta valdið því að fjölskyldur með alþjóðlega vernd þar í landi geti átt erfitt með yfirstíga þær hindranir sem finna má í grísku stjórnkerfi er það varðar, og þar með framfleyta sér. Sem dæmi er ólíklegt að þau uppfylli sum skilyrði, t.d. um tíu ára óslitna búsetu fyrir fjölskyldubótum, þá er líklegt að þau mæti hindrunum við að uppfylla önnur skilyrði t.d. varðandi að nálgast gögn sem séu forsendur bótanna, s.s. að útvega skattnúmer til að hljóta framangreindan KEA styrk. Auk þess geti verið bið eftir afgreiðslu umsókna. Þá bera gögn um aðstæður í Grikklandi með sér að aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd að vinnumarkaðnum sé erfiður, m.a. í ljósi mikils atvinnuleysis í landinu.

Þá telur kærunefnd að ljóst sé af framangreindri umfjöllun, að ýmsar hindranir séu á möguleikum flóttamanna til þess að fá útgefið skattnúmer í Grikklandi, en númerið er, líkt og áður hefur komið fram, nauðsynlegt til þess að starfa löglega í landinu, sækja um félagslegar bætur og gera leigusamning um húsnæði. Það sé því grunnforsenda þess að geta framfleytt sér löglega í Grikklandi. Það er þó mat kærunefndar að þrátt fyrir að einstaklingar með alþjóðlega vernd mæti ýmsum hindrunum við umsókn og útgáfu skattnúmers þá bendi gögn og skýrslur um Grikkland ekki til þess að það sé þeim ómögulegt.

Þá er af gögnum málsins ljóst að A hafi glímt við andlega vanlíðan og þurft að leita sér aðstoðar vegna hennar hér á landi, þ.m.t. á barna- og unglingageðdeild Landspítala auk þess að hafa notið þjónustu sálfræðinga hér á landi. Þá njóti fjölskyldan stuðnings á vegum viðeigandi sveitarfélags, t.a.m. hafi kærendur fengið uppeldisstuðning inn á heimilið vegna tiltekinna aðstæðna. Þá hefur Barnavernd Reykjavíkur haft aðkomu að málefnum A og fjölskyldunnar og A m.a. verið vistuð utan heimilis tímabundið. Eins og að framan hefur verið rakið hafa einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi að formi til ýmis réttindi þar í landi, sem ekki eru þó í öllum tilvikum virk, m.a. vegna álags á innviði í ríkinu. Í því sambandi bera skýrslur um Grikkland m.a. með sér að barnaverndarkerfið þar í landi hafi verið gagnrýnt vegna skorts á þjónustu sem tengist takmörkuðum fjárheimildum gríska ríkisins.

Kærendur eru hjón með þrjú börn á sínu framfæri. Í ljósi framangreindra aðgangshindrana að grunnþjónustu og lagalegum réttindum í Grikklandi og þeirrar stöðu sem ríkir nú þar í landi vegna átaka við landamærin og þeirrar fordæmalausu stöðu vegna Covid-19 faraldursins sem nú er uppi, sem að mati kærunefndar gæti leitt til enn frekari aðgangshindrana að heilbrigðisþjónustu og annarri þjónustu fyrir flóttamenn, að ástæða sé til að ætla að foreldrar með börn á framfæri sínu séu í verri aðstöðu en áður til þess að sækja sér réttindi sín, framfleyta fjölskyldunni og verða sér úti um húsnæði, og þar með tryggja grunnþarfir þeirra. Í ljósi alls þess sem að framan er rakið er það mat kærunefndar, sérstaklega m.t.t. aðstæðna A og þarfar fjölskyldunnar á félagslegum stuðningi, auk núverandi aðstæðna sem eru fyrir hendi í landinu og framangreindra aðgangshindrana að grunnþjónustu og réttindum að það sé ekki í samræmi við öryggi A, B og C, velferð þeirra og þroska að fara aftur til Grikklands þar sem óvissa sé með trygga framfærslu barnanna, húsnæði og aðgang þeirra að grunnþjónustu. Samkvæmt framangreindu er það því niðurstaða kærunefndar að fyrir hendi séu sérstakar ástæður í máli þeirra sem mæla með því að mál þeirra verði tekið til efnismeðferðar hér á landi skv. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. einnig 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. sömu laga og 1. mgr. 3. gr. og 1. mgr. 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, og tilvitnuð ákvæði reglugerðar um útlendinga.

Að framangreindu virtu og með vísan til sjónarmiða um einingu fjölskyldunnar er það niðurstaða kærunefndar að fella úr gildi ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda og barna þeirra og leggja fyrir stofnunina að taka mál þeirra til efnislegrar meðferðar.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar að fella úr gildi ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda og barna þeirra og leggja fyrir stofnunina að taka mál þeirra til efnislegrar meðferðar á grundvelli 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. 

 

Úrskurðarorð

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru felldar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kærenda og barna þeirra til efnismeðferðar.

The decisions of the Directorate of Immigration are vacated. The Directorate shall examine the merits of the applicant´s and their children´s applications for international protection in Iceland.

 

Áslaug Magnúsdóttir

Þorbjörg Inga Jónsdóttir                                              Árni Helgason


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta