Nr. 170/2020 Úrskurður
KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA
Þann 7. maí 2020 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 170/2020
í stjórnsýslumálum nr. KNU20020026, KNU20020027, KNU20040013 og KNU20040014
Beiðni […], […] og barns þeirra um endurupptöku
I. Málsatvik
Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 33/2020, dags. 29. janúar 2020, staðfesti nefndin ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 18. september 2019, um að taka umsóknir einstaklinga er kveðast heita […], vera fædd […], vera ríkisborgari [...] (hér eftir K) og […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari […] (hér eftir M) og barns þeirra, […], fd. [...], ríkisborgara [...] (hér eftir A), um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og vísa þeim frá landinu.
Niðurstaða kærunefndar var birt kærendum þann 3. febrúar 2020. Kærendur óskuðu eftir frestun réttaráhrifa á úrskurði kærunefndar þann 10. febrúar 2020. Þann 8. apríl 2020 leiðbeindi kærunefnd kærendum, með vísan til þeirrar stöðu sem uppi sé vegna Covid-19 faraldursins, að óska eftir endurupptöku mála þeirra hjá nefndinni. Þann 15. apríl 2020 barst kærunefnd beiðni kærenda um endurupptöku málanna.
Beiðni kærenda um endurupptöku mála þeirra byggir á 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
II. Málsástæður og rök kærenda
Kærendur byggja beiðni sína um endurupptöku á 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Í beiðni kærenda er vísað til þess að þann 8. apríl síðastliðinn hafi lögmanni kærenda borist tölvupóstur frá formanni kærunefndar útlendingamála þar sem kærendur telji að fram hafi komið að til stæði að endurskoða og eftir atvikum endurupptaka mál fjölskyldunnar vegna Covid-19 heimsfaraldurs. Með vísan til framangreinds óski kærendur eftir því að mál þeirra og barns þeirra verði endurupptekin án tafar.
III. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála um endurupptöku stjórnsýslumáls
Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál hans verði tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.
Eins og áður hefur komið fram kvað kærunefnd upp úrskurð í máli kærenda þann 29. janúar 2020. Með úrskurðinum var komist að þeirri niðurstöðu að synjun á efnismeðferð umsókna kærenda og barns þeirra um alþjóðlega vernd á Íslandi og frávísun frá landinu bryti ekki gegn 1. og 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sbr. 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Þá var ekki talið að kærendur eða barn þeirra hefðu slík tengsl við landið að nærtækast væri að þau fái hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka ætti umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Af endurupptökubeiðni kærenda má ráða að þau byggi beiðni sína um endurupptöku á því að aðstæður í máli þeirra hafi breyst vegna heimsfaraldursins Covid-19.
Við úrlausn málsins hefur kærunefnd litið til hinna sérstöku aðstæðna sem eru uppi í ljósi Covid-19 faraldursins, þeirra áhrifa sem hann kann að hafa á aðstæður þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi og þeirrar óvissu sem framundan er. Þá hefur kærunefnd jafnframt litið til forsendna úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 33/2020 og málsins í heild. Með vísan til þess er það mat kærunefndar að aðstæður hafi breyst verulega frá því að úrskurður í máli kærenda og barns þeirra var kveðinn upp, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga.
Kærunefnd fellst því á beiðni kærenda um endurupptöku mála þeirra og barns þeirra.
Í ljósi þess að endurupptökubeiðni kærenda hefur verið samþykkt leiðir það til þess að upphaflegur úrskurður kærunefndar frá 29. janúar sl. hefur fallið úr gildi. Hefur það því ekki þýðingu fyrir mál kærenda að taka beiðni þeirra um frestun réttaráhrifa á umræddum úrskurði til úrlausnar og er henni hér með vísað frá.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála um umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi
Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.
Þá koma fram í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga sérviðmið er varða börn og ungmenni. Þar segir m.a. að við mat á því hvort taka skuli umsókn til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna skuli hagsmunir barnsins hafðir að leiðarljósi. Þá segir að sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra eða annars fjölskyldumeðlims sem hefur það á framfæri sínu skuli það almennt viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman. Við það mat beri meðal annars að líta til þess hvort flutningur til viðtökuríkis hafi í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist eða muni aðskiljast.
Kærendur og barn þeirra eru með réttarstöðu flóttamanns í Grikklandi og hafa m.a. greint frá bágum aðstæðum sínum þar í landi. Kærendur hafi t.a.m. að eigin sögn haft takmarkaðan aðgang að heilbrigðisþjónustu, ekki fengið félagslega framfærslu og ekki verið með atvinnu. Í heilsufarsgögnum K og M má sjá að þau hafa ítrekað sótt sér heilbrigðisþjónustu hér á landi. Í gögnunum kemur m.a. fram að M sé með […] og hann eigi við andleg veikindi að stríða. Í úrskurði kærunefndar í máli kærenda, dags. 29. janúar sl., byggði kærunefnd á því að ekki væru forsendur til annars, í ljósi þeirra upplýsinga sem lægju fyrir um aðstæður í Grikklandi og gagna í málinu, en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærendur gætu leitað sér aðstoðar vegna heilsufarsvandamála sinna þar í landi. Þá var jafnframt lagt til grundvallar að ekki væru forsendur til annars en að leggja til grundvallar að kærendur gætu leitað sér fullnægjandi og aðgengilegrar þjónustu þar í landi í samræmi við þarfir sínar, og var áréttað að einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi eigi að lögum sambærilegan rétt á heilbrigðisþjónustu og félagslegri aðstoð og ríkisborgarar Grikklands, þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til þess að sækja þá þjónustu.
Frá því að kærunefnd útlendingamála úrskurðaði í máli kærenda og barns þeirra þann 29. janúar sl. hafa aðstæður breyst verulega með tilkomu Covid-19 faraldursins. Ljóst er að faraldurinn mun hafa verulegar neikvæðar efnahagslegar afleiðingar sem og neikvæð áhrif á innviði viðtökuríkisins. Að mati kærunefndar getur þetta leitt til aðgangshindrana að þjónustu fyrir flóttamenn og umsækjendur um alþjóðlega vernd, þ. á m. heilbrigðisþjónustu.
Þá liggur fyrir að vegna útbreiðslu Covid-19 faraldursins hafa mörg ríki, þ.m.t. viðtökuríkið, sett á ferðatakmarkanir og mörg hver lokað tímabundið fyrir endursendingar, bæði einstaklinga með vernd og á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, en óvíst er hvenær opnað verði aftur fyrir endursendingar.
Í ljósi þeirra áskorana sem viðtökuríkið hefur glímt við um nokkurt skeið í tengslum við aðgengi þeirra sem njóta alþjóðlegrar verndar að innviðum og lagalegum réttindum og með vísan til þeirra erfiðleika sem ætla má að Covid-19 faraldurinn leiði til í ríkinu telur kærunefnd, að svo stöddu, að ástæða sé til að ætla að ekki sé um að ræða svo tímabundið ástand að hjá því verði litið.
Að mati kærunefndar mæla því sérstakar ástæður, í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, með því að mál kærenda og barns þeirra verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, m.a. með vísan til samverkandi áhrifa stöðu kærenda og barns þeirra í viðtökuríki, áhrifa Covid-19 faraldursins á innviði Grikklands og þeirrar óvissu sem af faraldrinum leiðir að öðru leyti.
Að framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar, eins og hér stendur sérstaklega á og í ljósi heildarmats á aðstæðum kærenda og barns þeirra, að fella úr gildi ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum þeirra og leggja fyrir stofnunina að taka mál þeirra til efnislegrar meðferðar á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Samantekt
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar að fella úr gildi ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda og barns þeirra og leggja fyrir stofnunina að taka mál þeirra til efnislegrar meðferðar á grundvelli 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Úrskurðarorð
Fallist er á beiðni kærenda um endurupptöku á málum þeirra og barns þeirra.
Beiðni kærenda um frestun réttaráhrifa er vísað frá.Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru felldar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kærenda og barns þeirra til efnismeðferðar.
The appellants‘s request for re-examination of their cases is granted.The appellants‘s request to suspend legal effects is dismissed. The decisions of the Directorate of Immigration are vacated. The Directorate shall examine the merits of the applicants’s applications for international protection in Iceland.
Hjörtur Bragi Sverrisson
Árni Helgason Þorbjörg Inga Jónsdóttir