Hoppa yfir valmynd

Nr. 644/2024 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 27. október 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 644/2023

í stjórnsýslumálum nr. KNU23090020 og KNU23090021

 

Kæra [...]og [...]

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 5. september 2023 kærðu [...], fd. [...] (hér eftir nefndur A) og [...], fd. [...] (hér eftir nefnd B), ríkisborgarar Kína (saman nefnd kærendur), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 31. ágúst 2023, um að synja þeim um vegabréfsáritanir til Íslands.

Af kæru má ráða að kærendur krefjist þess að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að þeim verði veittar vegabréfsáritanir til Íslands.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og bárust kærur þeirra fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, með síðari breytingum, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsóknum, dags. 30. og 31. júlí 2023, óskuðu kærendur eftir vegabréfsáritunum til Íslands og Schengen-svæðisins í átta daga, frá 29. september 2023 til 6. október 2023. Umsóknum kærenda var synjað með ákvörðunum Útlendingastofnunar, dags. 31. ágúst 2023. Hinn 5. september 2023 barst kærunefnd kæra frá kærendum ásamt fylgigögnum. Frekari fylgigögn voru lögð fram með tölvubréfi dags. 14. september 2023.

III.    Málsástæður og rök kærenda

Í kæru vísa kærendur til fyrirliggjandi ákvarðana Útlendingastofnunar og kveða þær hafa valdið þeim miklum vonbrigðum enda hafi þau skipulagt ferðina af miklum áhuga og í lögmætum tilgangi. Þau geri sér grein fyrir því að grundvöllur synjunar á vegabréfsáritun geti verið margvíslegur en þau hyggist virða íslensk lög og reglur á meðan á fyrirhugaðri dvöl standi. Kærendur veki sérstaka athygli á nokkrum atriðum. Í fyrsta lagi þá sé tilgangur ferðarinnar til Íslands sá að stunda ferðamennsku og séu ferðaáætlun, gisti- og flugbókanir meðal fylgigagna umsókna þeirra. Í öðru lagi hafi þau áður ferðast til annarra landa á borð við Bandaríkin, Kanada, Bretland, Ítalíu, Holland, Þýskaland o.fl. Á ferðalögum sínum hafi þau alltaf hlítt reglum og takmörkunum í tengslum við vegabréfsáritanir þeirra eins og inn- og útstimplar  í vegabréfum þeirra gefi til kynna. Þau geri sér grein fyrir mikilvægi þess að hlíta íslenskri löggjöf um útlendinga og þeirri ábyrgð sem fylgi útgefinni vegabréfsáritun.

Með tölvubréfi dags. 15. september 2023 lögðu kærendur fram afrit af rekstrarleyfum atvinnuveitenda þeirra.

IV.    Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Kína þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt.

Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í nokkrum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem nefnd eru ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samtarfsins notast við. Í forminu er hægt að merkja í reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðunum kærenda er merkt í reit 2 vegna synjunar á umsóknum þeirra, þ.e. að ekki hafi verið færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar. Uppfylltu kærendur þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kærendum jafnframt leiðbeint um að þau gætu óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun óskuðu kærendur ekki eftir slíkum rökstuðningi.

Íslenska sendiráðið í Peking tekur á móti og fer með meðferð umsókna um vegabréfsáritanir til Íslands sem lagðar eru fram í Kína, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Í gögnum málsins liggur m.a. fyrir afrit úr málaskrá Útlendingastofnunar vegna mála kærenda þar sem málsmeðferð umsókna þeirra hjá utanríkisþjónustunni er rakin. Í tilfelli beggja kærenda kemur fram að rekstrarleyfi atvinnuveitanda hafi ekki verið lagt fram með umsókn. Sömu upplýsingar koma fram í gátlistum kærenda og í yfirlýsingu þar sem fram koma leiðbeiningar um skil á viðbótarefni innan fimm daga, en framangreind gögn voru undirrituð af kærendum 31. júlí 2023. Lagði fulltrúi sendiráðsins því til að umsóknum kærenda skyldi synjað. Með tölvubréfi dags. 14. september 2023 lögðu kærendur fram frekari gögn vegna málsins, þ.m.t. afrit af rekstrarleyfum vinnuveitenda þeirra.

Meginmarkmið stjórnsýslukæru er að tryggja réttaröryggi borgara með því að gera þeim kleift að fá umfjöllun um mál sín á tveimur stjórnsýslustigum. Í ljósi þess að nú liggja fyrir gögn í máli kærenda sem áhrif geta haft á niðurstöðu mála þeirra, er það mat kærunefndar að nauðsynlegt sé að mál kærenda hljóti nýja meðferð hjá Útlendingastofnun þar sem lagt sé mat á þau nýju gögn sem nú hafa verið lögð fram.

Að framangreindu virtu eru ákvarðanir Útlendingastofnunar felldar úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka mál kærenda til nýrrar meðferðar.

Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru felldar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kærenda til nýrrar meðferðar.

The decisions of the Directorate of Immigration in the appellants cases are vacated. The Directorate is instructed to re-examine the cases.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum