Hoppa yfir valmynd

Nr. 120/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 15. mars 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 120/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23010056

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 26. janúar 2023 kærði […], kt. […], ríkisborgari Sýrlands ( hér eftir nefnd kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 18. janúar 2023, um að synja umsókn hennar um ótímabundið dvalarleyfi á grundvelli 58. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Ráða má að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að henni verði veitt ótímabundið dvalarleyfi samkvæmt 58. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994 auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II.            Málsatvik og málsmeðferð

Hinn 9. september 2016 fékk kærandi útgefið dvalarleyfi á grundvelli alþjóðlegrar verndar samkvæmt 73. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt gögnum málsins var dvalarleyfi kæranda síðast endurnýjað með gildistíma til 11. nóvember 2024. Kærandi lagði fram umsókn um ótímabundið dvalarleyfi 21. janúar 2021. Samkvæmt gögnum málsins hafi við vinnslu umsóknar kæranda komið í ljós að kærandi ætti ólokið mál í refsivörslukerfinu þar sem hún væri grunuð eða sökuð um refsiverða háttsemi. Kæranda hafi verið sent bréf 9. nóvember 2022 þar sem hún hafi verið upplýst um framangreint og áhrif þess á umsókn hennar. Kæranda hafi verið veittur 15 daga frestur til að leggja fram gögn sem sýndu fram á að hún ætti ekki ólokið mál í refsivörslukerfinu, sem kærandi hafi ekki gert. Útlendingastofnun hafi í kjölfarið óskað aftur eftir því við lögreglu að kannað yrði hvort kærandi ætti enn ólokið mál í refsivörslukerfinu og barst stofnuninni staðfesting á því 13. janúar 2023. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 18. janúar 2023, var umsókn kæranda um ótímabundið dvalarleyfi samkvæmt 58. gr. laga um útlendinga synjað á þeim grundvelli að kærandi uppfyllti ekki skilyrði e-liðar 1. mgr. ákvæðisins sem kveði á um að útlendingur skuli ekki eiga ólokið mál í refsivörslukerfinu þar sem hann sé grunaður eða sakaður um refsiverða háttsemi. Hinn 26. janúar 2023 kærði kærandi ákvörðunina til kærunefndar útlendingamála.

III.          Málsástæður og rök kæranda

Kærandi lagði ekki fram greinargerð eða rökstuðning til stuðnings kæru sinni.

IV.       Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í 58. gr. laga um útlendinga er fjallað um ótímabundið dvalarleyfi. Samkvæmt 1. mgr. 58. gr. er heimilt að veita útlendingi ótímabundið dvalarleyfi hafi hann dvalist hér á landi samfellt síðustu fjögur ár samkvæmt dvalarleyfi sem getur verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis. Eins og að framan greinir hefur kærandi dvalið hér á landi samkvæmt dvalarleyfi sem getur verið grundvöllur ótímabundins leyfis síðan 9. september 2016.

Frekari skilyrði fyrir veitingu ótímabundins dvalarleyfis eru m.a. tilgreind í stafliðum a-e í 1. mgr. 58 gr. laga um útlendinga. Samkvæmt e-lið er það skilyrði að útlendingur eigi ekki ólokið mál í refsivörslukerfinu þar sem hann er grunaður eða sakaður um refsiverða háttsemi.

Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, dags. 13. janúar 2023, á kærandi ólokið mál í refsivörslukerfinu vegna ætlaðs brots gegn lögum um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki ófrávíkjanlegt skilyrði fyrir veitingu ótímabundins dvalarleyfis og verður hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar því staðfest.

 


 

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

 

Gunnar Páll Baldvinsson                                                                                             Sandra Hlíf Ocares


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta