Hoppa yfir valmynd

Nr. 179/2018 Úrskurður

 KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 10. apríl 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 179/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18010034

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 31. janúar 2018 kærði einstaklingur sem kveðst heita […], vera fæddur […], og vera ríkisborgari Marokkó (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 11. janúar 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og endursenda hann til Spánar.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Til vara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. og 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.         Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 4. október 2017. Þann 19. október 2017 var send beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd til yfirvalda á Spáni, sbr. 2. eða 3. mgr. 12. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin), þar sem kærandi var með gilda vegabréfsáritun útgefna af spænskum yfirvöldum. Þann 3. nóvember sl. samþykktu spænsk stjórnvöld viðtöku kæranda á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 11. janúar 2018 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Spánar. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 16. janúar 2018 og kærði kærandi ákvörðunina þann 31. janúar 2018 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 9. febrúar 2018. Viðbótargögn bárust m.a. þann 15. febrúar og 5. mars 2018. Í greinargerð óskaði kærandi eftir að fá að koma fyrir nefndina og tjá sig um efni málsins. Kærunefnd taldi ekki ástæðu til að gefa kæranda kost á að koma fyrir nefndina, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga.

III.          Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Spánar. Flutningur kæranda til Spánar fæli ekki í sér brot gegn  42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. og 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar aðstæður væru fyrir hendi þannig að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi var talinn vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Kærandi skyldi yfirgefa Ísland og bæri að senda hann til Spánar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæra frestaði réttaráhrifum, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.          Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda er vísað í viðtal hjá Útlendingastofnun þar sem kærandi greindi frá aðstæðum sínum. Kemur fram að kærandi hafi búið í Marokkó ásamt fjölskyldu sinni. Fjölskyldumeðlimir kæranda séu strangtrúaðir múslimar. Þegar kærandi hafi orðið 19 ára gamall hafi hann greint foreldum sínum frá því að hann væri trúlaus. Fjölskylda kæranda hafi brugðist illa við þeim fregnum. Í heimaríki kæranda kveði lög á um að trúlausir einstaklingar séu réttdræpir. Hafi íbúar í heimabæ kæranda kastað að honum steinum. Þá hafi faðir kæranda sem sé lögreglumaður beitt kæranda grófu ofbeldi. Kærandi hafi verið bundinn á höndum og fótum, keflaður og lokaður inni í sex og hálfan mánuð af foreldrum sínum. Faðir kæranda hafi lamið hann með kylfu og sprautað piparúða í andlit hans. Þar sem hendur kæranda hafi verið bundnar hafi kærandi ekki getað þurrkað úðann af andlitinu. Hafi faðir kæranda tekið dall með vatni og hellt yfir hann. Kærandi óttist mjög lögregluna eftir þessi atvik. Móðir kæranda hafi jafnframt beitt hann ofbeldi. Til stuðnings frásögn sinni hafi kærandi lagt fram myndbandsupptöku af aðstæðum sínum í prísund foreldra sinna, ljósmyndir af áverkum á líkama sínum, og bréf frá Bjarkarhlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis, dags. 14. desember 2017.

Eftir að kærandi hafi losnað úr prísund foreldra sinna hafi hann verið tekinn af hermönnum sem hafi farið með hann í eyðimörk. Þar hafi kærandi sætt vatnspyndingum, verið nauðgað, gefinn rafstraumur og ógnað með sérþjálfuðum árásarhundum. Kærandi hafi dvalið í eyðimörkinni í eitt ár. Síðar hafi hann farið til Spánar. Kærandi hafi ekki mátt sækja um dvalaleyfi þar í landi vegna laga eða samnings milli spænskra og marokkóskra stjórnvalda sem kveði á um að umsækjendur skuli sendir til baka til Marokkó. Kærandi hafi dvalið á Spáni í tvo daga en síðar ferðast til Íslands þar sem hann hafi sótt um alþjóðlega vernd. Kærandi eigi ættingja hér á landi en viti ekki deili á þeim þar sem hann hafi ekki verið í sambandi við þá. Kærandi geri athugasemd við að vera sendur aftur til Spánar þar sem hann sé hræddur um að lögreglan muni endursenda hann til Marokkó. Mikil samvinna sé á milli spænskra og marokkóskra yfirvalda. Kærandi óttist mjög lögregluna á Spáni. Þá segir að kærandi hafi leitað til sálfræðings hér á landi vegna andlegrar heilsu sinnar. Enn fremur hafi kærandi greint talsmanni sínum frá því að hann væri samkynhneigður. Kærandi hafi ekki greint Útlendingastofnun frá kynhneigð sinni þar sem hann hafi verið of hræddur við að tala um slíkt.

Kærandi byggir aðalkröfu sína um að umsókn hans um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar hér á landi á því að sérstakar ástæður séu uppi í máli hans, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi m.a. til lögskýringargagna að baki 2. mgr. 36. gr. laganna máli sínu til stuðnings sem og t.d. fyrri úrskurða kærunefndar frá 10. október 2017 í málum nr. 550/2017 og 552/2017. Kærandi bendir á að í ákvörðun Útlendingastofnunar hafi kærandi verið metinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærunefnd beri að skoða einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og m.a. hvort hann muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna kynhneigðar hans og þeirra pyndinga og meðferðar sem hann hafi sætt. Kærandi gerir jafnframt ítarlega grein fyrir því kerfi sem ríkir á Spáni um alþjóðlega vernd sem og stefnu yfirvalda í þeim efnum, auk þess að lýsa erfiðum aðstæðum og aðbúnaði umsækjanda þar í landi, m.a. hvað varðar möguleika á atvinnu, húsnæði, aðgang að heilbrigðisþjónustu o.fl. Þá séu fordómar og hatursglæpir vandamál á Spáni.

Varakrafa kæranda er á því byggð að Útlendingastofnun hafi borið að afla nákvæms og einstaklingsbundins sérfræðimats á heilsufari kæranda og er í þeim efnum vísað til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, 2. mgr. 23. gr., 1. mgr. 25. gr. og 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

V.           Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í 1. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef heimilt sé að krefja annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda.

Fyrir liggur í máli þessu að spænsk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en Ísland skuldbatt sig til að fylgja reglugerðinni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Samþykki Spánar er byggt á því að kærandi sé handhafi vegabréfsáritunar sem spænska ríkið gaf út. Eru skilyrði c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Í 32. gr. a-b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í 32. gr. a kemur m.a. fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan, aðrar en þær sem myndu að jafnaði rúmast innan 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá er m.a. nefnt í dæmaskyni ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar og ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi umsækjanda um alþjóðlega vernd til ríkis, sem hefur samþykkt að taka við honum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, ber stjórnvöldum að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður þar brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem kveður á um að enginn maður skuli sæta pyndingum eða ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið lagt til grundvallar að sú meðferð, sem einstaklingur eigi von á, verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til þess að falla undir 3. gr. sáttmálans. Við það mat verði að horfa til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar og í einhverjum tilvikum kyns, aldurs og heilsufars viðkomandi. Þá ber stjórnvöldum að leggja mat á hvort málsmeðferð vegna umsókna um alþjóðlega vernd tryggi umsækjendum raunhæfa leið til að ná fram rétti sínum, sbr. 13. gr. sáttmálans. Í samræmi við framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu skal mat á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og móttöku og aðbúnaði umsækjenda í viðtökuríki taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum í hverju máli. 

Greining á sérþörfum sbr. 25. gr. og 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga

Kærandi er ungur, samkynhneigður karlmaður sem kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 15. nóvember 2017 vera við góða líkamlega heilsu en hvað varðaði andlegt heilsufar hefði hann þurft að leita til sálfræðings. Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi hafi verið beittur líkamlegu ofbeldi af hálfu foreldra sinna og hermanna. Hafi kærandi m.a. verið sviptur frelsi sínu, pyntaður og nauðgað. Á meðal gagna málsins er bréf frá Bjarkarhlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis, dags. 14. desember 2017, þar sem kemur fram að kærandi hafi sótt þjónustu á vegum miðstöðvarinnar og greint frá ofbeldi sem hann hafi orðið fyrir. Jafnframt hafi kærandi í þrígang farið í viðtal hjá Kvennaathvarfinu, þ.e. þann 9., 17. og 22. nóvember sl. Í bréfinu segir m.a. að kærandi hafi greint frá því að hann eigi erfitt með svefn og fái martraðir. Í síðasta viðtali hafi kærandi sagst eiga auðveldara með svefn, líða aðeins betur og að sér þættu aðstæður á Íslandi öruggar. Þá kemur fram í niðurlagi bréfsins að áföll og ofbeldi hafi sett mark sitt á kæranda með þeim afleiðingum að hann eigi erfitt með að ná hvíld og slökun þó hann sé í öruggum aðstæðum. Kærandi hefur lagt fram ljósmyndir og myndband sem að því er virðist sýna áverka á líkama hans og aðbúnað og meðferð í prísund foreldra sinna. Með tölvupósti, dags. 15. febrúar 2018, var kæranda leiðbeint um að leggja fram frekari gögn. Engin frekari gögn um heilsufar voru lögð fram. Í ljósi framangreinds tekur kærunefnd undir mat Útlendingastofnunar að kærandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.  

Aðstæður og málsmeðferð á Spáni

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð á Spáni, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Asylum Information Database, Country Report: Spain (European Council on Refugees and Exiles, mars, 2018),
  • 2016 Country Reports on Human Rights Practices – Spain (United States Department of State, 3. mars 2017),
  • Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees For the Office of the High Commissioner for Human Rights‘ Compilation Report Universal Periodic Review: Spain (UNHCR, júní 2014),
  • Freedom in the World 2017 – Spain (Freedom House, 12. júlí 2017),
  • Amnesty International Report 2016/17 – Spain (Amnesty International, 22. febrúar 2017),
  • Concluding observations on the sixth periodic report of Spain (UN Committee against Torture, 29. maí 2015),
  • Asylum Information Database, The concept of vulnerability in European asylum procedures (European Council on Refugees and Exiles, september 2017)
  • Report to the Spanish Government on the visit to Spain carried out by the European Committee for the Prevention of Torture and Inhuman or Degrading Treatment or Punishment from 14 to 18 july 2014 (Council of Europe: Committee for the Prevention of Torture, 9. apríl 2015), og
  • Report by Nils Muižnieks Commissioner for Human Rights of the Council Of Europe Following his Visit to Spain from 3 to 7 June 2013 (Council of Europe: Commissioner for Human Rights, 9. október 2013).

Í ofangreindum gögnum kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd á Spáni eiga rétt á viðtali áður en ákvörðun er tekin í máli þeirra og fá aðstoð túlks ef þess þarf. Auk þess eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd rétt á lögfræðiþjónustu við að leggja fram umsókn og eftir atvikum við kærumeðferð máls. Þeir sem fengið hafa synjun á umsókn sinni geta bæði leitað endurskoðunar innan stjórnsýslunnar og fyrir dómstólum. Þá geta umsækjendur lagt fram nýja umsókn ef fyrri umsókn er synjað. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggja fyrir geta skilyrði nýrrar umsóknar verið uppfyllt. Spánn er aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir sambandsins vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Þegar umsækjendur hafa lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd á Spáni leitast spænsk stjórnvöld við að úthluta þeim gistingu í þeirri móttökumiðstöð sem hentar sem best hverjum umsækjanda. Þá er umsækjendum tryggður endurgjaldslaus aðgangur að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu til jafns við spænska ríkisborgara og aðra einstaklinga sem hafa dvalarleyfi á Spáni. Jafnframt geta umsækjendur, þ.m.t. þeir sem hafa orðið fyrir líkamlegu eða andlegu ofbeldi eða misnotkun, fengið aðgang að sérhæfðari heilbrigðisþjónustu.

Í framangreindum skýrslum er þess m.a. getið að í spænskum lögum um alþjóðlega vernd sé ekki kveðið á um sérstaka verkferla með það fyrir augum að greina á byrjunarstigi hvort umsækjendur séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Í framkvæmd geti slík greining þó að vissu leyti farið fram í viðtölum opinberra fulltrúa við umsækjendur, hjá borgaralegum samtökum og í móttökumiðstöðvum. Vegna mikils fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd á Spáni hafi það þó reynst nokkrum vandkvæðum bundið að greina með fullnægjandi hætti hvort umsækjendur séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Í spænska móttökukerfinu sé þó reynt að meta hvort umsækjendur sem teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu hafi einhverjar sérþarfir. Þá sé slíkum umsækjendum sýndur aukinn sveigjanleiki í spænska móttökukerfinu, en þeim geti t.d. verið heimilt að dvelja lengur í móttökumiðstöðum en almennt eigi við. Aftur á móti segir í ofangreindum skýrslum að þau úrræði sem spænska kerfið búi yfir hvað varði umsækjendur í sérstaklega viðkvæmri stöðu séu almenn og nái ekki utan sérþarfir þeirra sem séu í hvað alvarlegastri stöðu. Þeir umsækjendur geti þó sótt sérhæfðari þjónustu til utanaðkomandi þjónustuaðila. Hafi hinn almenni bragur sem ríki á spænska móttökukerfinu sætt gagnrýni, m.a. af Amnesty International, UNICEF og spænska umboðsmanninum. 

Í framangreindum gögnum er einnig bent á að umsækjendur um alþjóðlega vernd sem falli undir gildissvið Dyflinnarreglugerðarinnar séu ekki settir í varðhald. Hvað síðastnefnt atriði varðar bendir kærunefnd til hliðsjónar á að nefndin hefur áður aflað upplýsinga frá Flóttamannastofnun Sameinuðu Þjóðanna um málsmeðferð á Spáni. Í þeim upplýsingum kom m.a. fram að á Spáni væru tvær mismunandi málsmeðferðir vegna umsókna um alþjóðlega vernd, annars vegar málsmeðferð við landamæri (e. border procedure) og hins vegar málsmeðferð innanlands (e. inland procedure). Var tekið fram að umsóknir einstaklinga sem endursendir séu til Spánar á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar séu settar í málsmeðferð innanlands. 

Athugun kærunefndar á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd á Spáni hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði þeirra þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending kæranda þangað brjóti í bága við 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kæranda séu tryggð úrræði til að leita réttar síns á Spáni bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Enn fremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Spánar á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Kærandi er ungur, samkynhneigður karlmaður sem kveðst hafa sætt grófu ofbeldi í heimaríki sínu og glíma við andlega kvilla. Fyrir liggur að kærandi hefur leitað til sérhæfðra þjónustuaðila hér á landi til að vinna úr andlegu heilsufari sínu, en samkvæmt áðurnefndu bréfi frá Bjarkarhlíð hefur kærandi sótt þjónustu til þeirrar miðstöðvar og auk þess farið í þrjú viðtöl hjá Kvennaathvarfinu í nóvember 2017. Í bréfinu kemur m.a. fram að áföll og ofbeldi hafi sett mark sitt á kæranda með þeim hætti að hann eigi erfitt með að ná hvíld og slökun þó hann sé í öruggum aðstæðum.

Kærunefnd telur ljóst að þeir andlegu kvillar sem kærandi glímir við geti ekki talist til skyndilegs eða lífshættulegs sjúkdóms, líkt og getið er um í dæmaskyni í 32. gr. a áðurnefndrar reglugerðar. Þá er nefndin þeirrar skoðunar að þó leggja megi til grundvallar að áföll og ofbeldi hafi sett mark sitt á kæranda með tilteknum afleiðingum, líkt og getið er um í fyrrnefndu bréfi frá Bjarkarhlíð, þá sé ekki fyrir hendi ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Í því sambandi lítur kærunefnd til þess að í spænska móttökukerfinu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd er boðið upp á úrræði fyrir einstaklinga sem teljast vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu þó ekki verði framhjá því litið að þau úrræði hafi sætt talverðri gagnrýni. Kærunefnd beinir því til Útlendingastofnunar að fyrir flutning kæranda til Spánar verði upplýsingar um heilsufar kæranda sendar til spænskra stjórnvalda í samræmi við 32. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

Enn fremur hefur kærandi greint frá því að hann sé samkynhneigður. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda eindregið til þess að kærandi geti leitað aðstoðar yfirvalda á Spáni óttist hann tiltekna aðila eða á honum verði brotið, t.d. vegna kynhneigðar hans, en mismunum á grundvelli kynhneigðar er bönnuð með lögum á Spáni. Af framangreindum gögnum verður jafnframt ráðið að fordómar og mismunum gagnvart umsækjendum um alþjóðlega vernd sé nokkuð vandamál á Spáni. Spænska ríkið hafi þó gripið til ýmissa aðgerða til að stemma stigu við fordómum og mismunun og m.a. komið á fót sérstökum deildum (e. Hate Crimes and Discrimination Departments) innan staðbundinna saksóknaraembætta á Spáni sem sérhæfi sig í málum tengdum hatursglæpum og mismunun. Að mati kærunefndar getur kærandi leitað sér aðstoðar spænskra yfirvalda óttist hann mismunun eða fordóma á grundvelli kynþáttar. Í ljósi framangreinds er það mat kærunefndar að kynhneigð kæranda leiði ekki til þess að talið verði að hann muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna hennar.

Í greinargerð kæranda er fjallað talsvert um varðhald umsækjenda um alþjóðlega vernd á Spáni og þá er þess getið að kærandi óttist að vera sendur aftur til heimaríkis síns þar sem mikil samvinna ríki á milli Spánar og Marokkó. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað eru umsækjendur sem sendir eru til Spánar á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar almennt ekki settir í varðhald. Fyrir liggur að spænska ríkið hefur samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Telur kærunefnd því ekki forsendur til annars, með hliðsjón af þeim upplýsingum sem liggja fyrir um aðstæður þar í landi, en að leggja til grundvallar að verði kærandi sendur til baka til Spánar fari um umsókn hans um alþjóðlega vernd samkvæmt málsmeðferð innanlands og að kærandi hljóti þá móttöku og njóti þeirra úrræða og þjónustu sem almennt gildir um einstaklinga sem Spánn tekur við á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Það er mat kærunefndar að kærandi hafi aðgang að fullnægjandi málsmeðferð og að einstaklingsbundið mat verði lagt á aðstæður hans. Að mati kærunefndar bendir ekkert til þess að marokkóskum umsækjendum sé synjað sjálfkrafa um alþjóðlega vernd á Spáni eða þeir endursendir til heimaríkis án þess að leyst sé úr málum þeirra á einstaklingsgrundvelli. Þá er Spánn bundinn að þjóðarétti til að fylgja reglunni um að einstaklingum skuli ekki vísað brott þangað sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu (non-refoulement). Telji kærandi framangreind réttindi sín vera brotin getur hann leitað réttar síns fyrir spænskum dómstólum og Mannréttindadómstól Evrópu.

Því er það mat kærunefndar að fyrirliggjandi gögn beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar á Spáni vegna aðstæðna hans. Í ljósi aðstæðna á Spáni og að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. 

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 15. nóvember 2017 eiga ættingja hér á landi en vissi þó ekki nánari deili á þeim þar sem hann hefði ekki verið í sambandi við þá. Er það mat kærunefndar að ekkert í gögnum málsins bendi til þess að kærandi hafi svo sérstök tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. 

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 4. október 2017.

Rannsóknarregla stjórnsýslulaga

Í greinargerð kæranda er gerð athugasemd við rannsókn Útlendingastofnunar með vísan til rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Kærandi telur að Útlendingastofnun hafi ekki rannsakað mál kæranda með fullnægjandi hætti. Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og málsmeðferð stofnunarinnar og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemd við rannsókn málsins. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Athugasemdir kærunefndar við rökstuðning Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda er m.a. fjallað um ákvæði 36. og 42. gr. laga um útlendinga. Er í því samhengi réttilega vísað til þess að við mat á því hvort beita eigi 42. gr. laga um útlendinga þurfi að hafa hliðsjón af 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem kveður á um að enginn maður skuli sæta pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Í umfjöllun Útlendingastofnunar er jafnframt m.a. tekið fram að ill meðferð samkvæmt 3. gr. sáttmálans þurfi að ná ákveðnu lágmarks alvarleikastigi. Til marks um það hversu hár sá þröskuldur væri vísaði Útlendingastofnun til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í máli A.S. gegn Sviss (nr. 39350/13) frá 30. júní 2015 og dóms Evrópudómstólsins í máli C-578/16 C.K. gegn Slóveníu frá 16. febrúar 2017. Með vísan til þessara tveggja dóma var það mat Útlendingastofnunar að Mannréttindadómstóll Evrópu og Evrópudómstóllinn hafi sett tiltölulega háan þröskuld varðandi lágmarks alvarleikastig við mat á því hvort brotið hafi verið gegn 3. gr. sáttmálans.

Kærunefnd bendir á að Evrópudómstóllinn, sem dómstóll Evrópusambandsins, hefur hvorki lögsögu til að túlka né beita 3. gr. mannréttindasáttmálans enda telst sáttmálinn ekki formlega til réttarheimilda Evrópuréttar, sbr. t.d. dómur í máli C-501/11 Schindler frá 18. júlí 2013 (32. mgr. dómsins). Í fjölda dóma Evrópudómstólsins hefur dómstóllinn þó haft hliðsjón af og sótt margvíslegan innblástur til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu. Á það t.d. við í máli C.K. gegn Slóveníu þar sem dómstóllinn túlkaði og beitti 4. gr. sáttmálans um grundvallarréttindi (e. Charter of Fundamental Rights) en það ákvæði er efnislega samhljóma 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Lagði Evrópudómstóllinn til grundvallar að við túlkun og beitingu á 4. gr. sáttmálans um grundvallarréttindi skyldi hafa hliðsjón af dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi 3. gr. mannréttindasáttmálans (einkum 68. mgr. dómsins). Að mati kærunefndar var framsetning rökstuðnings ákvörðunar Útlendingastofnunar, að því er varðar tilvísun til þess að Evrópudómstóllinn hafi í máli C.K. gegn Slóveníu sett viðmið við mat á því hvort aðstæður verði taldar varða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, ekki í samræmi við 1. mgr. 22. gr. stjórnsýslulaga og hina svonefndu skýrleikareglu stjórnsýsluréttarins.

Samantekt

Í máli þessu hafa spænsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Spánar með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærunefnd ítrekar að því er beint til Útlendingastofnunar að fyrir flutning kæranda til Spánar verði upplýsingar um heilsufar kæranda sendar til spænskra stjórnvalda í samræmi við 32. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

 

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

 

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

 

 

Anna Tryggvadóttir

 

 

Erna Kristín Blöndal                                                                                       Pétur Dam Leifsson

                                                                                             

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta