Hoppa yfir valmynd

Nr. 212/2019 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 21. maí 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 212/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19030021

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 11. mars 2019 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 22. febrúar 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi í fyrsta lagi á grundvelli 3. mgr. 36. gr., sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, og í öðru lagi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 20. nóvember 2018. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu m.a. verið skráð í grunninn af yfirvöldum á Ítalíu. Við umsókn framvísaði kærandi dvalarleyfiskorti frá Ítalíu með gildistíma til 8. maí 2022 og ítölsku ferðaskilríki með gildistíma til 29. júní 2022, þar sem fram kemur að kæranda hafi verið veitt réttarstaða flóttamanns á Ítalíu. Kærandi mætti til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 17. janúar 2019, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 22. febrúar 2019 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 26. febrúar 2019 og kærði kærandi ákvörðunina þann 11. mars 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 20. mars sl. ásamt fylgigögnum.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd á Ítalíu. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Ítalíu ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Ítalíu.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann sé með stöðu flóttamanns á Ítalíu og dvalarleyfi þar í landi með gildistíma til ársins 2022. Kærandi hafi greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann sé með [...] og hafi verið greindur með [...] á Ítalíu en ekki fengið meðferð við kvillum sínum þar í landi. Kærandi kveður sér hafa verið beint til borgarinnar Monza á norður Ítalíu í því skyni að fá meðferð við [...] en hafi komið að lokuðum dyrum þar sem hann hafi ekki haft skráð heimilisfang. Umræddir sjúkdómar hafi jafnframt verið greindir hér á landi, sbr. gögn frá Göngudeild sóttvarna, en þar komi m.a. fram að kærandi sé með [...] og hafi hafið meðferð vegna [...] þann 13. desember sl. sem standi til að ljúka þann 13. júní 2019. Kærandi hafi þá greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann hafi orðið fyrir áfalli í heimaríki árið 2013 þegar meðlimir hryðjuverkasamtakanna [...] hafi ráðist að honum og félögum hans með þeim afleiðingum að félagi hans hafi látist og aðrir slasast. Líf kæranda hafi verið í hættu og hann glími við erfiðar tilfinningar í hvert skipti sem hann hugsi til þessa atburðar. Kærandi hafi þá dvalið í meira en sex mánuði í [...] þegar hann hafi verið á flótta frá heimaríki en þar hafi hann verið rændur, beittur ofbeldi á hverjum degi og reynt hafi verið að selja hann eins og hverja aðra vöru. Kærandi kveður að eftir að hann hafi hlotið alþjóðlega vernd á Ítalíu hafi hann búið á götunni og ekki fengið nokkrar greiðslur frá hinu opinbera. Kærandi hafi einungis fengið eina máltíð á dag frá kirkjunni og ekki sé hægt að fá atvinnu þar sem ríki mikið atvinnuleysi þar í landi. Kærandi hafi reynt að selja varning á götunni en yfirvöld hafi tekið vörurnar af honum. Kærandi hafi jafnframt reynt að fá konu sína og börn til Ítalíu en það hafi hins vegar ekki verið mögulegt þar sem hann hafi ekki uppfyllt nauðsynleg skilyrði um að vera með skráð heimilisfang og atvinnu. Enn fremur sé kærandi ekki með aðstöðu til þess að fá þau til sín þar sem hann búi á götunni. Kærandi greinir einnig frá því að hann hafi fundið fyrir fordómum á Ítalíu og hafi þurft að þola móðgandi athugasemdir af þeim sökum.

Kærandi vísar til umfjöllunar í greinargerð sinni til Útlendingastofnunar hvað varðar aðstæður og réttindi einstaklinga með alþjóðlega vernd á Ítalíu og vísar jafnframt til nýlegrar skýrslu Human Rights Watch þar sem máluð sé upp dökk mynd af aðstæðum í landinu. Kærandi gerir jafnframt ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar. Kærandi gerir í fyrsta lagi athugasemd við að stofnunin segi að kærandi hafi ekki lagt fram gögn til stuðnings fullyrðingum sínum um að hann hafi einungis notið bráðaheilbrigðisþjónustu á Ítalíu. Kærandi bendir á í þessu samhengi að ómögulegt sé fyrir hann að leggja fram gögn þess efnis og óeðlilegt sé að gera kröfu um slíkt til hans. Þá bendir kærandi á að í hinni kærðu ákvörðun horfi stofnunin algjörlega framhjá opinberum og áreiðanlegum heimildum um ástandið á Ítalíu og raunverulegum aðgangi flóttafólks að réttindum þar í landi, m.a. hvað varðar réttindi til greiðslu atvinnuleysisbóta og félagslega aðstoð. Kærandi bendir einnig á að í ákvörðun Útlendingastofnunar komi fram að stofnuninni hafi borist skeyti frá ítölskum stjórnvöldum þess efnis að gerðar hafi verið breytingar til úrbóta á húsnæðisúrræðum þar í landi með lögum frá árinu 2018. Í hinni kærðu ákvörðun komi jafnframt fram að lögin eigi að tryggja einstaklingum með alþjóðlega vernd búsetuúrræði en þó hafi skortur á búsetuúrræðum komið niður á framkvæmd kerfisins. Gerir kærandi alvarlega athugasemd við að stofnunin vísi til löggjafar, sem vitað er til að sé ekki að fullu virt, til þess að rýra trúverðugleika frásagnar kæranda. Vísar kærandi jafnframt til úrskurðar kærunefndar útlendingamála, nr. 103/2019 frá 13. mars 2019, máli sínu til stuðnings þar sem fjallað sé um hið nýja búsetuúrræði og annmarka á því. Þá gerir kærandi athugasemd við það mat stofnunarinnar hann geti leitað á náðir yfirvalda telji hann að á sér sé brotið vegna kynþáttafordóma.

Kærandi mótmælir því og vísar til umfjöllunar í greinargerð sinni til Útlendingastofnunar þar sem komi m.a. fram að innanríkisráðherra Ítalíu hafi með aðgerðum sínum komið þeim skilaboðum til þjóðarinnar að hann muni reyna að stöðva straum flóttamanna til landsins. Þá gerir kærandi athugasemd við það mat Útlendingastofnunar að hann eigi ekki á hættu að verða fyrir alvarlegri mismunun á Ítalíu í skilningi 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 og bendir á að skilyrði reglugerðarinnar séu þrengri en kveðið sé á um í athugasemdum með frumvarpi sem varð að lögum um útlendinga nr. 80/2016 og úrskurðum kærunefndar útlendingamála. Að lokum gerir kærandi athugasemd við að Útlendingastofnun hafi ekki metið hann í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærandi bendir á að stofnunin hafi komist að þessari niðurstöðu þrátt fyrir frásögn hans af langvarandi ofbeldi og mansali og án þess að hafa aflað sérfræðiálits um afleiðingar reynslu hans. Þá sé slík málsmeðferð í andstöðu við rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Til stuðnings kröfu sinni um efnismeðferð vísar kærandi í fyrsta lagi til þess að ótækt sé að beita a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem hann njóti verndar non-refoulement reglu þjóðaréttar, sem sé m.a. lögfest í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga, sbr. einnig 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Kærandi telji að aðstæður hans á Ítalíu, t.a.m. varðandi möguleika á húsnæði, framfærslu, aðgengi að menntun, heilbrigðisþjónustu og félagslegri þjónustu, séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Til stuðnings kröfu sinni um efnismeðferð vísar kærandi í öðru lagi til þess að sérstakar ástæður eigi við í máli hans, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til framangreindrar umfjöllunar um mat á viðkvæmri stöðu hans í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Þá vísar kærandi til lögskýringargagna að baki ákvæðinu og telur að úrskurðir kærunefndar útlendingamála gefi með nægilega skýrum hætti til kynna að viðkvæm staða umsækjenda skuli hafa aukið vægi andspænis sjónarmiðum sem tengist m.a. skilvirkni við meðferð umsókna og mikilvægi samvinnu aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins. Kærandi vísar jafnframt til úrskurðar kærunefndar útlendingamála frá 16. ágúst 2018 í máli einstaklings sem hafi verið með dvalarleyfi á Ítalíu, verið haldinn alvarlegum lungnasjúkdómi og verið í virkri meðferð hér á landi. Hann hafi verið metinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu og hafi mál hans verið tekið til efnismeðferðar hér á landi. Miðað við frásögn kæranda af aðstæðum sínum telji hann að staða hans sé verulega síðri en staða almennings á Ítalíu og að fyrir hendi séu sérstakar ástæður, í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, í máli hans.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins hefur kæranda verið veitt alþjóðleg vernd á Ítalíu og hefur hann gilt dvalarleyfi þar til 8. maí 2022. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærandi nýtur á Ítalíu í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.  

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi [...] karlmaður sem kom hingað einn til lands en kveðst eiga eiginkonu og börn í heimaríki. Samkvæmt fyrirliggjandi heilsufarsgögnum hefur kærandi verið greindur með [...] Þá kemur fram að kærandi sé í lyfjameðferð hér á landi vegna [...] en í upplýsingum frá lækni á Göngudeild sóttvarna kemur fram að kærandi sé ferðafær, engin smithætta sé af honum og að lyfjameðferð hans sé á hans eigin ábyrgð. Í viðtölum kæranda hjá Útlendingastofnun greindi hann jafnframt frá því að hann hafi orðið fyrir áföllum sem hafi haft áhrif á hann andlega, hann hafi m.a. orðið fyrir ofbeldi á hverjum degi [...] á sex mánaða tímabili og hafi orðið fyrir árás í heimaríki sem hann fái martraðir við að hugsa um. Það er mat kærunefndar að gögn málsins, þ. á m. upplýsingar um meðferð kæranda vegna [...] hér á landi, beri með sér að kærandi hafi sérþarfir í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem taka þurfi tillit til við meðferð málsins.

Aðstæður á Ítalíu

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður á Ítalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

• Italy 2018 Human Rights Report (United States Department of State, 13. mars 2019);

• Freedom in the World 2018 – Italy (Freedom House, 5. apríl 2018);• Asylum Information Database. Country Report – Italy (European Council on Refugees and Exiles, apríl 2019);

• Amnesty International Report 2017/18 - Italy (Amnesty International, 22. febrúar 2018);

• World Report 2019 – European Union (Human Rights Watch, 17. janúar 2019);

• Mutual Trust is still not Enough – The situation of persons with special reception needs transferred to Italy under the Dublin III Regulation (Danish and Swiss Refugee Council, 12. Desember 2018);

• Concluding observations of the Committee on the Elimination of Racial Discrimination (UN Committee on the Elimination of Racial Discrimination, 17. febrúar 2017);

• Integration of Refugees in Greece, Hungary and Italy: Comparative Analysis (European Parliament, desember 2017);

• ECRI Report on Italy (European Commission against Racism and Intolerance, 7. júní 2016);

• Reception conditions in Italy. Report of the current situation of asylum seekers and beneficiaries of protection, in particular Dublin returnees (Swiss Refugee Council, ágúst 2016);

• Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union 2015 (European Asylum Support Office, 8. júlí 2016);

• Information note, Dublin transfers post-Tarakhel: Update on European case law and practice (Elena, European legal network on asylum, október 2015);

• Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees. For the Office of the High Commissioner for Human Rights’ Compilation Report – Universal Periodic Review: Italy (UNHCR, mars 2014);

• UNHCR Recommendations on Important Aspects of Refugee Protection in Italy (UNHCR, júlí 2013);

• Upplýsingar af vefsíðu OSCE Office for Democratic Institutions and Human Rights (http://hatecrime.osce.org/italy) og

• Upplýsingar af vefsíðu ítalska flóttamannaráðsins (í. Consiglio Italiano per I Rifugiati – http://www.cir-onlus.org/en/).

Samkvæmt ofangreindum gögnum eru dvalarleyfi einstaklinga með réttarstöðu flóttamanns gefin út til fimm ára. Unnt er að endurnýja leyfið að fimm árum liðnum en biðtími eftir slíkri endurnýjun getur verið langur. Þá geta einstaklingar sem hafa dvalið á Ítalíu í fimm ár sótt um ótímabundið dvalarleyfi á Ítalíu. Flóttamenn geta öðlast ríkisborgararétt að fimm árum liðnum og fá útgefin flóttamannavegabréf (í. documenti di viaggio) með fimm ára gildistíma.

Í skýrslu Asylum Information Database kemur m.a. fram að húsnæðisaðstoð við einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar á Ítalíu sé af skornum skammti. Ítölsk yfirvöld reka þó búsetuúrræðin SIPROIMI (e. System for the Protection of Beneficiaries of International Protection and Unaccompanied Foreign Minors) sem eru eingöngu ætluð handhöfum alþjóðlegrar verndar, fylgdarlausum börnum og þeim sem hafa dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Þegar einstaklingar hafa fengið inngöngu í SIPROIMI úrræði mega þeir dvelja þar í sex mánuði. Aftur á móti eru ekki nógu mörg SIPROIMI úrræði til að mæta þeim fjölda sem hefur fengið alþjóðlega vernd. Í framangreindum skýrslum kemur jafnframt fram að sambærileg félagsleg húsnæðisúrræði á vegum sveitarfélaga séu aðgengileg einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar og ítölskum ríkisborgurum þó einhver dæmi séu um að sveitarfélög geri kröfu um búsetu á Ítalíu í tiltekinn tíma til að öðlast rétt til aðgangs að slíkum úrræðum.

Þá kemur fram í framangreindum skýrslum að einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar og hafa dvalarleyfi á Ítalíu hafa sama rétt til atvinnuþátttöku og ítalskir ríkisborgarar. Hins vegar sé atvinnuleysi mikið og eigi útlendingar oft í erfiðleikum með að finna atvinnu við hæfi. Einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar á Ítalíu eiga almennt sama rétt og ítalskir ríkisborgarar til velferðarþjónustu. Aftur á móti er í einhverjum tilvikum gerð krafa um búsetu á Ítalíu í ákveðinn tíma, t.a.m. er tiltekin aðstoð við framfærslu eingöngu veitt einstaklingum sem hafa búið í tíu ár á Ítalíu. Þá kemur fram að einstaklingar sem njóti alþjóðlegar verndar á Ítalíu geti sótt um fjölskyldusameiningu um leið og þeir fái útgefið dvalarleyfi og þurfi ekki að sýna fram á aðgang að húsnæði eða lágmarkstekjur til þess.

Í framangreindum gögnum kemur fram að einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd eiga sama rétt og ítalskir ríkisborgarar til lögboðinnar heilbrigðisþjónustu að því gefnu að þeir hafi skráð sig inn í heilbrigðiskerfið. Slík skráning er háð því að umsækjandi hafi skráð lögheimili sem eðli máls samkvæmt getur verið hindrun fyrir einstaklinga sem eru án fastrar búsetu. Í ofangreindri skýrslu Asylum Information Database kemur fram að skráningin í heilbrigðiskerfið falli ekki sjálfkrafa úr gildi meðan á málsmeðferð endurnýjunar dvalarleyfisins stendur en að í framkvæmd geti einstaklingar með útrunnin dvalarleyfi átt í erfiðleikum með að nálgast heilbrigðisþjónustu. Sjúklingar þurfa almennt að greiða hluta þess kostnaðar sem fellur til vegna heilbrigðisþjónustu sem þeir nýta sér en frá því eru þó undantekningar, t.d. í þeim tilvikum þegar sjúklingar eru utan vinnumarkaðar og án annarrar framfærslu. Í skýrslu Asylum Information Database kemur þó fram að mismunandi túlkun á reglum um greiðsluþátttöku sjúklinga hafi leitt til þess að í sumum sveitarfélögum hafi verið gerð krafa um að einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar en eru utan vinnumarkaðar greiði kostnað við heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt framangreindum heimildum eru því ýmsar aðgangshindranir þegar kemur að heilbrigðiskerfinu á Ítalíu, m.a. vegna tungumálaörðugleika.

Af framangreindum skýrslum verður ráðið að fordómar í garð fólks af erlendum uppruna sé vandamál á Ítalíu en ítölsk yfirvöld hafi gripið til aðgerða til að sporna við kynþáttafordómum og mismunun á grundvelli kynþáttar, m.a. með lagasetningu. Í kjölfar athugasemda alþjóðlegra eftirlitsnefnda, stofnana og frjálsra félagasamtaka hafa ítölsk stjórnvöld tekið mikilvæg skref í þá átt að vinna gegn kynþáttafordómum, mismunun á grundvelli kynþáttar og hatursglæpum, þ. á m. með aðgerðaráætlun gegn kynþáttahyggju (e. National Action Plan against Racism, Xenophobia and Intolerance). Þá hefur rannsóknum og ákærum fjölgað í málum er varða mismunun, hatursorðræðu og hatursglæpi á grundvelli kynþáttar og þjóðernis.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstólinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni, við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki, nái ekki alvarleikastigi 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem stendur til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæltu gegn endursendingu.

Að mati kærunefndar eru einstaklingsbundnar aðstæður kæranda ekki slíkar að vegna stöðu hans sem einstaklings með alþjóðlega vernd á Ítalíu verði endursending hans þangað talin ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð. Í því sambandi áréttar kærunefnd að ekki er fallist á með kæranda að aðstæður hans þar feli í sér ofsóknir gagnvart kæranda eða að þær séu að öðru leyti þess eðlis að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar á Ítalíu er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar á Ítalíu telur kærunefnd að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Áður hefur verið greint frá einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda. Kærandi hafi m.a. greint frá því í viðtölum hjá Útlendingastofnun að hann hafi dvalið á Ítalíu með hléum frá árinu 2014 og hafi ekki fengið aðstoð frá ítölskum stjórnvöldum er varðar húsnæði, heilbrigðisþjónustu eða framfærslu. Þá hafi hann upplifað mikla fordóma þar í landi. Kemur framangreind frásögn kæranda að mestu leyti heim og saman við heimildir um aðstæður einstaklinga með alþjóðlega vernd á Ítalíu sem kærunefnd hefur kynnt sér, þ.e. hvað varðar einkum erfitt aðgengi að vinnumarkaðnum, félagslegu húsnæði og framfærslu frá yfirvöldum. Kærandi hefur þó sömu réttindi og ítalskir ríkisborgarar og aðrir sem hafa rétt til dvalar í landinu. Hann hefur aðgang að vinnumarkaði og sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og ítalskir ríkisborgarar. Í framangreindum gögnum kemur jafnframt fram að stjórnvöld hafi gripið til aðgerða til að stemma stigu við fordómum í landinu, m.a. með því að grípa til hertra aðgerða til að sporna við brotum sem byggjast á kynþáttafordómum. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að kærandi geti leitað ásjár ítalskra yfirvalda, verði hann fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Kærandi hefur m.a. borið fyrir sig að hann hafi ekki aðgang að heilbrigðiskerfinu á Ítalíu. Líkt og að framan greinir hefur kærandi verið metinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu, verið greindur með [...]. Samkvæmt gögnum málsins er kærandi kominn vel á veg með sex mánaða meðferð [...] og hefur fengið afhent lyf til að ljúka meðferðinni. Þá má ráða af gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað einstaklinga með alþjóðlega vernd á Ítalíu að þeir eigi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, sem getur þó verið í sumum tilvikum vandkvæðum bundið að sækja. Meðal gagna málsins er þá ljósrit af gildu sjúkratryggingaskírteini kæranda, útgefnu af ítölskum stjórnvöldum. Telur kærunefnd ekki forsendur til annars, í ljósi framlagðra gagna og þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður í landinu, en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti leitað sér aðstoðar vegna heilsufarsvandamála þar í landi. Það er því mat kærunefndar að fyrirliggjandi gögn málsins bendi ekki til þess að kærandi glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð sé aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Vegna tilvísunar kæranda til úrskurða kærunefndar útlendingamála nr. 550/2017, 552/2017, 581/2017, 583/2017, 586/2017, 352/2018, 393/2018 og 103/2019 verður tekið fram að kærunefnd telur mál hans ekki sambærilegt framangreindum málum, m.a. þar sem í þeim málum er ýmist um að ræða önnur viðtökuríki, barnafjölskyldur, þungaðar konur, alvarleg veikindi eða synjun um efnismeðferð á grundvelli reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013.

Með vísan til alls framangreinds er það því mat kærunefndar að aðstæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna. Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 17. janúar 2019 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 20. nóvember 2018.

Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi ýmsar athugasemdir í greinargerð sinni við rannsókn og málsmeðferð Útlendingastofnunar, þ. á m. mat stofnunarinnar á viðkvæmri stöðu hans og réttindum einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd á Ítalíu. Þá hefði stofnuninni borið að framkvæma heildarmat á einstaklingsbundnum aðstæðum hans en ekki einungis horfa til afmarkaðra og þröngra skilyrða 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017.

Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Þá hefur kærunefnd tekið mið af nýjustu skýrslum er varða aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd á Ítalíu. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg en áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar að reglugerðina skortir ekki lagastoð. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Í því sambandi verður tekið fram að rökstuðningur Útlendingastofnunar í máli kæranda ber með sér að rannsókn stofnunarinnar hafi tekið mið af aðstæðum einstaklinga með alþjóðlega vernd á Ítalíu. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands þann 20. nóvember 2018 og sótti um alþjóðlega vernd þann sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.Anna TryggvadóttirÁrni Helgason Hilmar Magnússon


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta