Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 63/2015

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 63/2015

Fimmtudaginn 12. maí 2016

A

gegn

Vinnumálastofnun


Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Agnar Bragi Bragason lögfræðingur.

Með kæru, dags. 28. september 2015, kærði A, til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. september 2015, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans þar til hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði og innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 96.014 kr. með 15% álagi.

Þann 1. janúar 2016 tóku gildi lög nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála og tók nefndin yfir frá þeim tíma þau mál sem áður voru til meðferðar hjá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, þ.m.t. mál kæranda, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 og 11. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun þann 31. október 2014 og fékk greiddar bætur til 1. júlí 2015. Með bréfi, dags. 1. september 2015, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda um að við samkeyrslu tölvugagna Vinnumálastofnunar og Ríkisskattstjóra hafi virst sem hann hafi haft tekjur í júní 2015 án þess að gera grein fyrir þeim á sama tíma og hann hafi þegið atvinnuleysisbætur frá stofnuninni. Þá var óskað eftir upplýsingum um framangreindar tekjur.

Með tölvupósti þann 22. september 2015 greindi kærandi frá því að hann hefði verið í vinnu frá 11. júní til 31. ágúst 2015. Fram kemur að hann hafi óskað eftir skattkortinu sínu þann 11. júní 2015 og því talið augljóst að stofnunin hafi vitað að hann væri komin með vinnu. Þá barst launaseðill frá B þann 25. september 2015 þar sem fram kemur að kærandi hafi byrjað störf hjá fyrirtækinu þann 12. júní 2015. Með bréfi, dags. 25. september 2015, var kærandi upplýstur um að stofnun hefði ákveðið að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og að hann skyldi ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hann hefði starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði þar sem hann hafi verið að vinna hjá B samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur án þess að tilkynna Vinnumálastofnun um vinnuna. Þá var kærandi krafin um endurgreiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta samtals að fjárhæð 96.014 kr. með 15% álagi á grundvelli 2. mgr. 39. gr. laganna.

Kæra barst úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 29. september 2015. Með bréfi, dags. sama dag, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 18. nóvember 2015. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 25. nóvember 2015, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru kemur fram að kærandi hafi fengið ráðningu í starf hjá B þann 11. júní 2015. Hann hafi kallað eftir skattkorti sínu á netinu í samræmi við ráðleggingar starfsfólks Vinnumálastofnunar. Hann hafi haldið að hann myndi sjálfkrafa vera afskráður hjá stofnuninni við það að kalla eftir skattkortinu en síðar hafi komið í ljós að það væri ekki rétt. Starfsmaður Vinnumálastofnunar hafi sagt honum að hann hafi átt að setja inn í athugasemd upplýsingar um að hann væri að hefja starf.

Kærandi óskar eftir því að hin kærða ákvörðun verði endurskoðuð á þeim forsendum að hann hafi ekki vitað betur og ekki komi fram upplýsingar um það í beiðni um skattkort að hann verði að tilgreina hvers vegna hann kalli eftir því. Hann vilji greiða ofgreiddar bætur en óski eftir því í framhaldinu að fá að sækja um skráningu á eðlilegan hátt.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að mál þetta lúti að ákvörðun stofnunarinnar um viðurlög samkvæmt 60. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Annar málsliður 60. gr. laganna taki á því þegar atvinnuleitandi starfi á vinnumarkaði, til lengri eða skemmri tíma, samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að hafa uppfyllt skyldu sína samkvæmt 10. gr. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar um að upplýsa Vinnumálastofnun um störf sín. Af ákvæðinu leiði að sá sem ekki tilkynni Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt samkvæmt 10. gr. laganna eða um tilfallandi vinnu samkvæmt 35. gr. a skuli sæta viðurlögum á grundvelli þess.

Í 13. gr. laganna segi jafnframt að það sé skilyrði fyrir því að launamaður teljist vera tryggður í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar að hann sé í virkri atvinnuleit. Í 14. gr. laganna sé að finna nánari útlistun á því hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Ljóst sé að aðili sem starfi á vinnumarkaði geti hvorki talist vera án atvinnu eða í virkri atvinnuleit í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Á þeim sem fái greiðslur atvinnuleysistrygginga frá Vinnumálastofnun hvíli rík skylda til að sjá til þess að stofnunin hafi réttar upplýsingar um hagi viðkomandi. Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé að finna ákvæði þar sem skylda þessi sé ítrekuð. Þannig segi í 3. mgr. 9. gr. laganna að sá sem teljist tryggður á grundvelli laganna skuli upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunni að verða á högum hans á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysistryggingar eða annað það sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo og um tekjur sem hann fái fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan standi yfir eða ef atvinnuleit sé hætt.

Við samkeyrslu gagnagrunna Vinnumálastofnunar og ríkisskattstjóra komi í ljós að kærandi hafi verið með tekjur í júní 2015 að upphæð 341.149 kr. Samkvæmt launaseðli frá fyrirtækinu hafi kærandi byrjað störf þann 12. júní 2015. Í skýringum til stofnunarinnar hafi komið fram að kærandi hafi byrjað vinnu 11. júní 2015. Þá segi að kærandi hafi talið það nægjanlega tilkynningu um að hann væri byrjaður að vinna að óska eftir skattkorti frá stofnuninni.

Það liggi fyrir að kærandi hafi óskað eftir því að fá skattkortið sitt sent á heimilisfang sitt þann 11. júní 2015. Hann hafi ekki tilkynnt um vinnuna við það tilefni. Hann hafi síðan staðfest atvinnuleit sína þann 21. júní 2015. Hann hafi ekki staðfest atvinnuleit fyrir júlímánuð og því verið afskráður frá og með 1. júlí 2015. Kærandi hafi því ekki fengið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir júní 2015.

Vinnumálastofnun fellst ekki á að kærandi hafi í umrætt sinn tilkynnt um vinnu sína til stofnunarinnar. Beiðni um að fá skattkort sent á heimilisfang sitt geti ekki talist nægjanleg tilkynning um að atvinnuleit sé hætt. Þaðan að síður að slík beiðni sé fullnægjandi tilkynning um tekjur sem viðkomandi fái á meðan hann þiggi greiðslur atvinnuleysistrygginga. Fjölmargar ástæður geti legið að baki slíkum beiðnum atvinnuleitenda. Vinnumálastofnun bendi á að kærandi hafi óskað eftir skattkorti sínu í gegnum rafræna gátt sína á heimasíðu stofnunarinnar. Þegar atvinnuleitendur óski eftir skattkorti sínu í gegnum vefgátt sé óskað eftir því að þeir tilgreini ástæðu þess að óskað sé eftir skattkorti. Kærandi hafi enga athugasemd skrifað með beiðni sinni.

Þá bendir Vinnumálastofnun á að þann 21. júní 2015, eða tíu dögum eftir að kærandi hafi byrjað störf hjá B hafi hann staðfest atvinnuleit með sama hætti og áður án athugasemda um vinnu sína. Þegar atvinnuleitendur staðfesti atvinnuleit á netinu sé þeim meðal annars gert að skrá niður fjölda starfa sem þeir hafi sótt um á tímabilinu. Þá sé atvinnuleitendum gefið færi á því að koma að athugasemdum til Vinnumálastofnunar. Þegar kærandi hafi staðfest atvinnuleit sína í júní 2015 hafi hann ekki tilkynnt um vinnu sína. Þess í stað hafi hann merkt við að hann hefði sótt um á einum vinnustað í mánuðinum. Vinnumálastofnun hafi því ekki getað verið ljóst að kærandi hefði byrjað störf í júní 2015. Vinnumálastofnun bendir einnig á niðurstöðu úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða í máli nr. 50/2014 er hafi varðað sambærilegt álitaefni.

Í ljósi alls framangreinds, afdráttarlausrar verknaðarlýsingar í 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og þeirrar skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum að tilkynna til stofnunarinnar að atvinnuleit sé hætt, sbr. 10. gr. og 35. gr. a laganna verði að telja að kærandi hafi brugðist skyldum sínum við stofnunina og eigi að sæta viðurlögum á grundvelli 60. gr. laganna.

Þá beri kæranda að endurgreiða stofnuninni ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil sem hann hafi ekki uppfyllt skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Honum beri því að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur vegna tímabilsins frá 11. júní til 30. júní 2015, samtals að fjárhæð 96.014 kr. með 15% álagi.

IV.  Niðurstaða

Ágreiningur máls þessa lýtur að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda þar til hann hefur starfað að minnsta kosti tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði samkvæmt 60. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og krefja kæranda um endurgreiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laganna.

Ákvæði 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, hljóðar svo:

„Sá sem lætur vísvitandi hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða veitir vísvitandi rangar upplýsingar sem leiða til þess að hann telst ranglega tryggður að fullu eða að hluta samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en hann sækir aftur um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. eða um tilfallandi vinnu skv. 35. gr. a. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Af gögnum málsins verður ráðið að hin kærða ákvörðun sé byggð á 2. málsl. 60. gr. laganna. Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 15. mars 2016 (E-2541/2015) var leyst úr ágreiningi sem varðaði ákvörðun Vinnumálastofnunar um beitingu viðurlaga samkvæmt 2. málsl. 60. gr. laganna. Í dóminum var fjallað ítarlega um túlkun framangreinds ákvæðis. Í niðurstöðunni segir meðal annars svo:

„Samkvæmt framangreindu verður fallist á þá efnislegu niðurstöðu umboðsmanns Alþingis, í fyrrgreindu áliti hans, að miða verði við að í verknaðarlýsingu 2. málsliðar 60. gr. laga nr. 54/2006 felist krafa um atvinnuleitandi hafi ætlað að afla sér atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti. Af hálfu stefndu er því ómótmælt að mál stefnanda hafi ekki verið rannsakað sérstaklega með hliðsjón af huglægri afstöðu hans, enda byggir málatilbúnaður þeirra á því að slík afstaða hafi ekki haft þýðingu um meðferð og niðurstöðu stjórnsýslumálsins. Að virtri framagreindri niðurstöðu um skýringu 2. málsliðar 60. gr. laga nr. 54/2006 liggur þannig fyrir að verulegir annmarkar voru á málsmeðferð stefnda Vinnumálastofnunar og úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga svo og rökstuðningi ákvarðana. Er jafnframt ljóst að umræddir annmarkar voru til þess fallnir að hafa áhrif á niðurstöðu málsins. Verður því að fallist á kröfu stefnanda um að umræddar stjórnvaldsákvarðanir stefndu Vinnumálastofnunar og úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga um sviptingu bótaréttar stefnanda verði felldar úr gildi.“ 

Samkvæmt framangreindu er það skilyrði fyrir beitingu viðurlaga á grundvelli 2. málsl. 60. gr. að atvinnuleitandi hafi aflað sér atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti. Úrskurðarnefnd velferðarmála telur að af gögnum málsins verði ráðið að Vinnumálastofnun hafi beitt kæranda viðurlögum á grundvelli framangreinds ákvæðis þar sem hann hafi starfað á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur án þess að hafa tilkynnt stofnuninni um vinnuna. Því virðist huglæg afstaða kæranda ekki hafa verið könnuð áður en ákvörðun um beitingu viðurlaga var tekin. Með hliðsjón af framangreindu er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála að málið hafi ekki verið nægjanlega upplýst áður en Vinnumálastofnun tók hina kærðu ákvörðun, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Því verður ekki hjá því komist að fella hina kærðu ákvörðun úr gildi og vísa málinu til baka til mats á því hvort kærandi hafi aflað sér atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti.

Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið er ákvörðun Vinnumálastofnunar um beitingu viðurlaga og innheimtu ofgreiddra bóta felld úr gildi og málinu vísað aftur til stofnunarinnar til nýrrar meðferðar.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 25. september 2015, í máli A, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda þar til hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði og innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta samtals að fjárhæð 96.014 kr. með 15% álagi, er felld úr gildi. Málinu er vísað aftur til stofnunarinnar til nýrrar meðferðar.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta