Mál nr. 16/2015 úrskurður 23. mars 2015
Mál nr. 16/2015 Eiginnafn: Eskja
Hinn 23. mars 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 16/2015 en erindið barst nefndinni 23. febrúar:
Eiginnafnið Eskja (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Eskju, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Eskja (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.