Mál nr. 21/2015 úrskurður 23. mars 2015
Mál nr. 21/2015 Eiginnafn: Mói
Hinn 23. mars 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 21/2015 en erindið barst nefndinni 2. mars:
Eiginnafnið Mói (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Móa, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Mói (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.