Mál nr. 22/2015 úrskurður 23. mars 2015
Mál nr. 22/2015 Aðlögun kenninafns: Lórenzdóttir
Hinn 23. mars 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 22/2015.
Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 4. mars 2015, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni xxxx um að taka upp kenningu til föður síns, Lorenz. Óskar hún að rita kenninafnið Lórenzdóttir.
Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.
Úrskurðarorð:
Fallist er á föðurkenninguna Lórenzdóttir.