Hoppa yfir valmynd

Nr. 464/2019 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 1. október 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 464/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19070047

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 17. júlí 2019 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 28. júní 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 2. maí 2019. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum er kærandi með alþjóðlega vernd í Þýskalandi og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 18. janúar 2020. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun þann 21. maí 2019 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 28. júní 2019 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 2. júlí 2019 og kærði kærandi ákvörðunina þann 17. júlí 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 26. júlí 2019.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Þýskalandi. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Þýskalands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Þýskalands.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann kveði sig hafa upplifað mikla fordóma í Þýskalandi og orðið fyrir hatursárás nýnasista á heimili sínu í Magdeburg. Þar hafi hópur manna ráðist inn á heimili hans með líkamlegu ofbeldi, hótunum og hatursáróðri með það að markmiði að hrekja hann frá Þýskalandi. Árásina kveður kærandi hafa verið gerða vegna uppruna síns og að fleiri af sama uppruna hafi lent í sambærilegum árásum. Þá hafi kærandi ekki treyst sér til að leita til lögregluyfirvalda vegna hótana árásarmannanna í sinn garð um afleiðingar þess. Kærandi hafi ekki getað flutt í aðrar borgir sökum þýskra reglna um búsetu flóttafólks. Kærandi kveður að þessir atburðir hafi haft mikil áhrif á sig og að ótti hans sé raunverulegur og ástæðuríkur. Kærandi hafi í atvinnu sinni í Þýskalandi orðið fyrir aðkasti og verið kallaður ýmsum niðrandi nöfnum sem hafi leitt til þess að hann hafi þurft að láta af störfum. Þá sé kærandi hér á landi fyrst og fremst að sækjast eftir öryggi.

Í greinargerð sinni gerir kærandi grein fyrir því að andúð, ógnanir og ofbeldi gagnvart flóttafólki og umsækjendum um alþjóðlega vernd hafi verið vandamál um allt Þýskaland undanfarin ár líkt og kærandi hafi kynnst af eigin raun og vísar til alþjóðlegra skýrslna máli sínu til stuðnings. Komi þar fram að flest brotanna séu tengd hægrisinnuðu öfgafólki og að þýsk stjórnvöld hafi tekið upp á því að skrásetja sérstaklega glæpi gagnvart flóttafólki vegna þess hve algengir þeir séu. Afbrot gegn flóttafólki og umsækjendum um alþjóðlega vernd séu gríðarlegt vandamál í landinu og þýsk stjórnvöld hafi brugðist skyldu sinni við að vernda þessa hópa fólks. Þá hafi komið fram ásakanir á hendur þýskum stjórnvöldum vegna skorts á rannsókn slíkra glæpa frömdum af hægrisinnuðum öfgasamtökum og einnig skorti fé til forvarna og stuðnings þeirra sem hafi orðið fyrir fordómum. Þá hafi hægrisinnaðir öfgahópar fengið byr undir báða vængi í landinu og viðhorf almennings til umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttafólks fari versnandi með árunum.

Kærandi byggir kröfu sína á því að taka skuli mál hans til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í þeim efnum fjallar kærandi almennt um og gerir grein fyrir inntaki og túlkun á ákvæðinu, m.a. með hliðsjón af lögskýringargögnum. Kærandi fjallar um reglugerð nr. 276/2018 sem breytti reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Í reglugerðarbreytingunni felist skilyrði vegna sérstakra ástæðna sem eigi sér ekki fullnægjandi stoð í settum lögum og gangi gegn ákvæðum laga um útlendinga. Þá telur kærandi sig í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna fórdóma sem ríki þar gagnvart flóttafólki. Honum muni standa ógn af öfgahægrimönnum og nýnasistum þar í landi og auk þess verða fyrir mismunun þar sem hann telji sig útilokaðan frá daglegu lífi í ljósi kynþáttar síns, t.a.m. þátttöku á atvinnumarkaði. Með vísan til þessa muni staða hans verða verulega síðri en staða almennings við endursendingu til Þýskalands.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins er kærandi handhafi alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 18. janúar 2020. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærandi nýtur í Þýskalandi í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi [...]. Af fyrirliggjandi heilsufarsgögnum má ráða að kærandi sé almennt heilsuhraustur en hafi fundið fyrir sársauka í tönn vegna tannskemmdar og fengið tilvísun til tannlæknis vegna hans. Í gögnum málsins kemur fram að kærandi hafi greint frá því að hafa orðið fyrir líkamlegu og andlegu ofbeldi í viðtökuríki sökum fordóma og glími við andlega vanlíðan.

Það er mat kærunefndar að framangreind gögn beri ekki með sér að kærandi hafi sérþarfir í skilningi 6. tölul. 3. gr. laganna um útlendinga sem taka þurfi tillit til við meðferð málsins.

Aðstæður í Þýskalandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Þýskalandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

• 2018 Human Rights Report – Germany (United States Department of State, 13. mars 2019),

• 2017 Human Rights Report – Germany (United States Department of State, 20. apríl 2018),

• Amnesty International Report 2017/18 - Germany (Amnesty International, 22. febrúar 2018),

• Asylum Information Database, Country Report: Germany (European Council on Refugees and Exiles, 16. apríl 2019),

• Freedom in the World 2018 – Germany (Freedom House, 2. febrúar 2018),• National Action Plan Against Racism (The Federal Government, júní 2017)

• Report by Nils Muižnieks Commissioner for Human Rights of the Council Of Europe Following his Visit to Germany on 24th April and from 4 to 8 May 2015 (Council of Europe: Commissioner for Human Rights, 1. október 2015),

• Upplýsingar af heimasíðu þýsku útlendingastofnunarinnar (www.bamf.de) og• World Report 2018 – European Union (Human Rights Watch, 18. janúar 2018).

Í framangreindum skýrslum kemur m.a. fram að dvalarleyfi einstaklinga með réttarstöðu flóttamanns séu gefin út til þriggja ára og dvalarleyfi einstaklinga með viðbótarvernd til eins árs með möguleika á endurnýjun til tveggja ára, samtals þrjú ár. Í gögnum málsins kemur fram að þar sem grundvöllur endurnýjunar dvalarleyfis sé sá sami og veiting slíks leyfis fáist leyfið að jafnaði endurnýjað ef aðstæður einstaklingsins hafa ekki breyst. Einstaklingur með stöðu flóttamanns geti sótt um varanlegt dvalarleyfi að þremur árum liðnum og einstaklingur með viðbótarvernd að fimm árum liðnum frá því að hann kom til Þýskalands. Þá geta einstaklingar með alþjóðlega vernd í Þýskalandi sótt um ríkisborgararétt eftir átta ára löglega dvöl þar í landi.

Í framangreindum skýrslum kemur ennfremur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd í Þýskalandi eigi sama rétt á opinberri heilbrigðisþjónustu og þýskir ríkisborgarar en þeir þurfa að skrá sig í heilbrigðiskerfið. Sjúklingar þurfa almennt að greiða hluta af þeim kostnaði sem fellur til vegna þeirrar heilbrigðisþjónustu sem þeir njóta en frá því eru þó undantekningar, t.d. í þeim tilvikum þegar sjúklingar geta ekki greitt fyrir slíka þjónustu. Þá kemur fram í framangreindum skýrslum að einstaklingar með alþjóðlega vernd í Þýskalandi eigi sama rétt og þýskir ríkisborgarar til þess að fá nauðsynlega félagslega aðstoð, svo sem atvinnuleysisbætur, en þjónustan er bundin við búsetusvæði einstaklingsins sem getur þýtt að einstaklingar með alþjóðlega vernd verði að lúta ákveðnum skilyrðum varðandi búsetu. Af framangreindum gögnum má ráða að einstaklingar með alþjóðlega vernd geti leitað ásjár lögregluyfirvalda og annarra þar til bærra stjórnvalda telji þeir á sér brotið og jafnframt leitað réttar síns fyrir dómstólum. Þá kemur fram að glæpum gegn innflytjendum í Þýskalandi hafi fjölgað á undanförnum árum og þýsk stjórnvöld verið álitin hafa vanrækt hlutverk sitt að stemma stigu við slíkum glæpum, þ.á.m. veita lögregluvernd í þeim tilvikum. Þá kemur fram að nýlega hafi stjórnvöld brugðist við því og gert aðgerðaráætlun til að sporna gegn kynþáttafordómum og annars konar mismunun í Þýskalandi.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944.

Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Þýskalandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í Þýskalandi telur kærunefnd að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kæranda en hann hefur greint frá því að hafa upplifað óöryggi í viðtökuríki vegna fordóma í sinn garð og orðið fyrir mismunun í Þýskalandi sem hafi leitt til þess að hann hafi ekki getað tekið þátt í daglegum athöfnum, t.a.m. á atvinnumarkaði. Af framangreindum skýrslum og gögnum má ráða að kærandi hafi heimild til að stunda atvinnu í Þýskalandi og eigi rétt á félagslegri aðstoð. Þá geti hann leitað ásjár þýskra yfirvalda verði hann fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Auk þess geti kærandi leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda óttist hann um öryggi sitt. Telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að aðstæður kæranda séu með þeim hætti að hann muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 21. maí 2019 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 2. maí 2019.

Athugasemd kæranda

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi fyrirvara við lagastoð reglugerðar nr. 276/2018 og telur hana ekki eiga sér lagastoð. Áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar að reglugerðina skortir ekki lagastoð. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands þann 1. maí 2019. Hann sótti um alþjóðlega vernd þann 2. maí 2019. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Kæranda er leiðbeint um að með úrskurði kærunefndar nr. 350/2019, dags. 28. ágúst 2019, ákvað nefndin að breyta framkvæmd varðandi afmörkun 12 mánaða tímabilsins sem vísað er til í 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Eins og fram kemur í úrskurðinum eru lok tímabilsins þegar fyrir liggur endanleg ákvörðun á stjórnsýslustigi vegna þess stjórnsýslumáls sem hófst með framlagningu umsóknar um alþjóðlega vernd. Þessi breytta stjórnsýsluframkvæmd leiðir til þess að þótt ekki komi til flutnings kæranda úr landi innan 12 mánaða frá upphafi málsins hefur það ekki þýðingu fyrir þann frest sem 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekur til.

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Anna Tryggvadóttir, varaformaður


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta