Hoppa yfir valmynd

Nr. 292/2019 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 6. júní 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 292/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19040067

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 5. apríl 2019 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Úkraínu (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 25. mars 2019, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og honum verði veitt alþjóðleg vernd með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara er þess krafist að honum verði veitt viðbótarvernd á grundvelli 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara er þess krafist að kæranda verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.         Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi þann 30. ágúst 2018. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun 7. og 10. september 2018 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 25. mars 2019, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála þann 5. apríl 2019. Kærunefnd barst greinargerð kæranda þann 29. apríl 2019.

III.        Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann sé í hættu í heimaríki sínu þar sem aðilar tengdir Viktor Yanukovych, fyrrum forseta Úkraínu, séu á eftir honum.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi sé ekki flóttamaður og honum skuli synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi skv. ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Kæranda var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.        Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi sé fæddur og uppalinn í [...] héraði Úkraínu. Í viðtali hjá Útlendingastofnun kom fram að kærandi hafi árið 2011 gert samning við fyrirtæki í Odessa héraði að nafni Men Ship Odessa (öðru nafni Esterra Shipping) um að fá þjálfun og aðstoð við að fá starf á sjó gegn greiðslu upp á 1300 USD. Eftir að hafa skrifað undir samning við fyrirtækið og staðið við sinn hluta samningsins hafi fyrirtækið breytt um nafn. Þegar kærandi hafi komist að því að um svik væri að ræða og að hann fengi enga raunverulega þjálfun eða réttindi til þess að starfa á sjó hafi hann búið til vefsíðu í því skyni að vara aðra við fyrirtækinu. Hafi viðvaranir hans skilað árangri því færri hafi leitað til fyrirtækisins og það því tapað fjármunum. Stuttu síðar hafi vefsíðu hans verið lokað. Þá hafi kærandi greint frá því að hann hafi í apríl 2012 veitt viðtal vegna málsins við fréttamenn sem kalli sig Agents of Influence. Eftir viðtalið hafi frændi kæranda, sem sé lögreglumaður, haft samband við hann og tjáð kæranda að hann væri í mikilli hættu og yrði myrtur og sennilega fjölskylda hans líka. Frændi kæranda hafi tjáð honum að tveir valdamiklir einstaklingar hafi tengst framangreindum fjársvikum og hafi hagnast á þeim. Um væri að ræða annars vegar Oleksander Yanukovich, son fyrrum forseta landsins Viktor Yanukovich, og hins vegar Yury Vladimirovich Ivanyuschenko. Þá hafi kærandi greint frá því í viðtalinu að hann telji að sprengingar sem hafi orðið Dnipropetrovsk í apríl 2012 hafi tengst honum vegna þess að hann hafi búið í borginni frá 1999 til 2012 og hafi rétt áður en árásin hafi átt sér stað fengið mörg símtöl þar sem óskað hafi verið eftir nákvæmu heimilisfangi hans. Þá hafi hann síðar fengið símtöl með hótunum. Kærandi hafi komist að því að hringt hafi verið úr símanúmerum sem hafi tengst Men Ship Odessa fyrirtækinu. Í apríl 2012 hafi kærandi fengið bréf frá lögreglunni í Odessa héraði þar sem hann hafi verið beðinn um að gefa skýrslu um fjársvikastarfssemi fyrirtækisins. Kærandi hafi ákveðið að svara ekki bréfinu þar sem hann hafi haft grun um að starfsmenn efnahagsbrotadeildar á skrifstofu innanríkisráðuneytisins Úkraínu í Odessa væru viðriðnir fjársvikastarfsemina eða ekki starfi sínu vaxnir. Kærandi hafi hins vegar sent skriflega kvörtun til innanríkisráðuneytisins í Odessa og óskað eftir því að hlutlægni starfsmanna lögreglunnar yrðu könnuð. Í greinargerð kemur fram að kærandi hafi lagt fram afrit af bréfi sem innanríkisráðuneytið hafi sent honum í því skyni að upplýsa hann um það að þeir hafi kannað hæfi starfsmannanna og ekki fundið nein brot. Kærandi greindi frá því í viðtalinu að vegna framangreindra atvika hafi hann yfirgefið heimríki og farið fyrst til Póllands á vegabréfsáritun og þaðan til Svíþjóðar. Sænsk yfirvöld hafi hins vegar sent hann til baka til Póllands og pólsk yfirvöld sent hann í kjölfarið til heimaríkis. Þegar kærandi hafi komið aftur til baka til heimaríkis hafi Euromaidan-mótmælin verið í fullum gangi í Kiev. Kærandi hafi tekið þátt í mótmælunum og orðið fyrir skotárás á Maidan-torgi. Í greinargerð kemur fram að kærandi telji að maður að nafni Vladimir Grinyak hafi staðið að baki framangreindum skotárásum í mótmælunum. Hafi kærandi greint frá því í ráðgjafaviðtali við talsmann sinn að hann telji að umræddur maður sé með tengsl við þá menn sem séu á bak við Esterra Shipping. Í viðtali hjá Útlendingastofnun hafi kærandi sagt frá því að hann teldi sig ekki hafa verið sérstakt skotmark í Euromaidan-mótmælunum en fengið skot í sig af tilviljun. Í ráðgjafaviðtali hjá talsmanni sínum hafi hann greint frá því að hann telji það mögulegt að hann hafi þvert á móti verið sérstakt skotmark í mótmælunum vegna alls þess sem hafi á undan gengið. Þá telji kærandi að menn Viktor Yanukovich standi að baki Esterra Shipping. Þá greindi kærandi talsmanni sínum frá því að hann hafi lifað óáreittur í heimaríki frá árinu 2014 til 2018 sennilega vegna þess að Oleksander Yanukovich, Yury Vladimirovich Ivanyuschencko og menn þeirra hafi ekki verið í landinu á því tímabili en þeir hafi verið í Rússlandi. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi einnig frá því að ráðist hafi verið á hann á árinu 2018 og hafi hann hlotið líkamleg meiðsl. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi hann frá því að árásin hafi gerst í júní eða ágúst 2018 en í ráðgjafaviðtali hjá talsmanni sínum greindi hann frá því að árásin hafi átt sér stað í mars sama ár í bænum Pohrebysche í Úkraínu. Kærandi telji að árásin hafi átt sér stað á þessum tíma þar sem menn Yanukovich hafi snúið aftur til Úkraínu og þá hafi kærandi fengið fleiri en eitt bréf frá yfirvöldum í heimaríki þar sem hann sé beðinn um að bera vitni vegna atburða í Euromaidan-mótmælunum og það geri hann hættulegan fyrir umrædda aðila. Þá sé kærandi nafngreindur á vefsíðu stjórnvalda í heimaríki yfir þá einstaklinga sem hafi orðið fyrir skaða í mótmælunum og séu vitni um það sem hafi átt sér stað í þeim. Kærandi telur að enginn vilji sé af hálfu stjórnvalda í Úkraínu til þess að saksækja þá sem hafi staðið að ofbeldisverkum í mótmælunum.

Í greinargerð kæranda er umfjöllun um mótmæli í Úkraínu sem hafi hafist í nóvember 2013 og leitt til þess að Viktor Yanukovych, þáverandi forseti landsins, hafi verið hrakinn úr embætti. Hreyfingin sem hafi komið mótmælunum af stað hafi orðið til í kjölfar ákvörðunar ríkisstjórnar Yanukovych um að neita að skrifa undir samstarfssamning við Evrópusambandið. Þá er í greinargerð almenn umfjöllun um ástand mannréttindamála, vísað er til alþjóðlegra skýrslna þar sem fram komi m.a. að barátta við spillingu, einkum innan innan réttarkerfisins, í Úkraínu hafi ekki skilað árangri. Þá séu tíðar húsleitir hjá fjölmiðlafyrirtækjum sem gagnrýni stefnu stjórnvalda og jafnframt eigi erlendir fjölmiðlamenn sem vogi sér að smána landið hættu á brottvísun frá landinu. Þá er m.a. umfjöllun um dómskerfi landsins, en það sé afar viðkvæmt fyrir pólitískum þrýstingi og spillingu og sé þ.a.l. óskilvirkt. Kærandi vísar til skýrslna sem hann telur styðja mál sitt.

Kærandi krefst þess aðallega að honum verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi sé áberandi í heimaríki vegna þeirrar gagnrýni sem hann hafi sett fram á hendur fyrirtæki sem hafi stundað fjársvik og hafi tengsl við valdamikinn einstakling, Viktor Yanukovich, sem hafi sterkt bakland í Rússlandi. Afstaða kæranda sé kunn og hafi hann barist opinberlega gegn fjársvikum fyrirtækisins með því að starfrækja heimasíðu þar sem fjallað sé um málið. Auk þess hafi kærandi leitað til yfirvalda sem hafi ekki borið árangur. Einnig sé kærandi vitni um það ofbeldi sem menn Yanukovich hafi beitt einstaklinga á Euromaidan-mótmælunum. Með vísan til framangreinds telur kærandi að þar af leiðandi tilheyri hann sérstökum þjóðfélagshópi í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá vísar kærandi til skilgreiningar í handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna á hugtakinu ofsóknir. Jafnframt vísar kærandi til ákvæða 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga og skilgreininga í þeim. Kærandi telur að samkvæmt skilgreiningum í a- og b-lið 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga sé ljóst að hann hafi orðið fyrir ofsóknum í heimaríki í ljósi þess að hann hafi verið beittur ofbeldi og eitrað fyrir honum og þá hafi lögregla og yfirvöld ekki veitt honum fullnægjandi aðstoð vegna þess ofbeldis og áreitis sem hann hafi orðið fyrir. Þá vísar kærandi til túlkunar handbókar Flóttamannastofnunar á hugtakinu ástæðuríkur ótti. Kærandi telur að í ljósi þess að framburður hans komi heim og saman við landaupplýsingar um heimaríki hans og þar sem hann hafi orðið fyrir ofsóknum þá verði að telja að skilyrði um ástæðuríkan ótta sé uppfyllt.

Til vara krefst kærandi þess að honum verð veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Ákvæðið taki mið af tilskipun Evrópusambandsins nr. 2004/83/EB um lágmarksskilyrði til að ríkisborgarar þriðju landa eða ríkisfangslausir einstaklingar teljist flóttamenn eða menn sem að öðru leyti þarfnist alþjóðlegrar verndar og um inntak slíkrar verndar. Kærandi vísar til þess sem að framan hafi verið rakið í umfjöllun um aðalkröfu þar sem m.a. komi fram að hann óttist um öryggi sitt og frelsi í heimaríki en yfirvöld þar hafi ekki veitt honum vernd gagnvart þeim einstaklingum sem standi að baki fjársvikum og árásum á hendur honum. Þá sé stríðsástand í austurhluta landsins og hafi kærandi vegna þess og vegna ofsókna á hendur sér þegar þurft að flytja sig um set innlands.

Til þrautavara er þess krafist að kæranda verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Ákvæðið heimili að veita slíkt leyfi ef útlendingur geti sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. vegna erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki. Í athugasemdum við 74. gr. laga um útlendinga í frumvarpi því sem varð að lögunum segi að með almennum aðstæðum sé m.a. vísað til þeirrar aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Kærandi vísar til þess að samkvæmt landaupplýsingum um Úkraínu og frásögn hans sé ekki tryggt að hann geti fengið vernd hjá yfirvöldum í heimaríki gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Því telur kærandi að hann uppfylli skilyrði 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga til að fá dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Kærandi telur að með því að senda hann til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglu þjóðaréttar um non-refoulement, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki muni slík ákvörðun brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. samnings um borgaralega og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna.

Að lokum er í greinargerð kæranda gerðar athugasemdir við rannsókn Útlendingastofnunar og mat á aðstæðum kæranda. Í fyrsta lagi er gerð athugasemd við þá áherslu Útlendingastofnunar að kærandi leggi fram gögn til að styðja fullyrðingar hans um að spilling ráði aðgengi að vernd stjórnvalda en eðli málsins samkvæmt sé erfitt að afla gagna um það sem óskráð sé. Þá telur kærandi óeðlilegt að gera þá kröfu að hann leggi fram gögn um að hann geti ekki fengið vernd. Kærandi vísar til þess að fjölmargar heimildir styðji frásögn kæranda um viðvarandi spillingu í heimaríki hans. Þá er í þriðja lagi gerð athugasemd við það að fylgigögn með viðbótarathugasemdum hafi ekki verið tilgreind í ákvörðun. Telji kærandi að þ.a.l. hafi þau ekki verið tekin til skoðunar við meðferð málsins og mál kæranda því ekki rannsakað með fullnægjandi hætti hjá stofnuninni. Í fjórða lagi er gerð athugasemd við þá afstöðu Útlendingastofnunar að ekki hafi verið sýnt fram á tilvist Esterra Shipping. Kærandi vísar til þess að hafa lagt fram gögn varðandi tilvist fyrirtækisins. Þá gerir kærandi fimmta lagi athugasemd við að Útlendingastofnun telji að ekki hafi verið sýnt fram á tengsl milli fyrirtækisins og Oleksander Yanukovich og Yury Vladimirovich Ivanyuschenko. Kærandi telji að í ljósi þess sem rakið hafi verið í greinargerð til Útlendingastofnunar og framburðar kæranda að sýnt hafi verið fram á tengslin. Þá sé ómögulegt að sanna tengslin með beinum hætti. Þá mótmælir kærandi því hvernig Útlendingastofnun hefur túlkað ýmsa aðra þætti í frásögn hans, og það sem fram komi í gögnum málsins og heimildum.

V.         Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað úkraínsku ökuskírteini og þá hafi hann lagt fram talsvert af gögnum á úkraínsku sem varði hann sjálfan. Var það mat Útlendingastofnunar að ekki væri tilefni til að draga í efa að kærandi væri frá Úkraínu og væri sá sem hann segðist vera. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi sé úkraínskur ríkisborgari.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Úkraínu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • Access to Justice and the Conflict in Ukraine (Organization for Security and Co-operation in Europe, desember 2015);
  • 2016 Annual Report of UHHRU (Ukrainian Helsinki Human Rights Union, 16. ágúst 2017);
  • Amnesty International Report 2017/2018: Ukraine (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Association Implementation Report on Ukraine (European Commission, 14. nóvember 2017);
  • Country Information and Guidance – Ukraine: Background Information, including actors of protection and internal relocation (UK Home Office, ágúst 2016);
  • Freedom in the World 2019 - Ukraine (Freedom House, 4. febrúar 2019);
  • Human Rights Observance in Ukraine: The Situation Analysis (UNDP Ukraine, 13. nóvember 2018);
  • Nations in Transit 2018 – Ukraine (Freedom House, 11. apríl 2018);
  • Report on the human rights situation in Ukraine 16 August to 15 November 2018 (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights, 17. desember 2018);
  • Report on the human rights situation in Ukraine 16 November 2018 to 15 February 2019 (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights, 12. mars 2019);
  • Temanotat Ukraina. Domstolene – korrupsjon og manglende uavhengighet (Landinfo, 6. júlí 2015);
  • Ukraine - Country Reports on Human Rights Practices for 2018 (U.S. Department of State, 13. mars 2019);
  • Ukraine: Whether a victim of a crime can request that the Public Prosecutor's Office or another public agency initiate an investigation into the alleged crime if the police have failed to act (January-November 2017) (Immigration and Refugee Board of Canada, 27. nóvember 2017);
  • Ukraine: standardized police reporting forms, including appearance; whether police are required to submit a written response to a complainant regardless of whether they pursue an investigation, appearance and content of the written response; police procedures for following up on physical assaults reported by hospitals and medical practitioners, including type of report generated; whether these policies and reports are standardized or if there are regional variations (Immigration and Refugee Board of Canada, 19. október 2015);
  • Upplýsingar af vef United States Agency for International Development (USAID) - https://www.usaid.gov/where-we-work/europe-and-eurasia/ukraine/global-health og
  • World Report 2019 – Ukraine (Human Rights Watch, 17. janúar 2019).

Úkraína er lýðræðisríki með um 44 milljónir íbúa og eru mannréttindi almennt talin virt af úkraínskum stjórnvöldum á þeim svæðum sem lúta stjórn þeirra. Úkraína gerðist aðili að Evrópuráðinu árið 1995 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu árið 1997. Landið gerðist aðili að flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna 10. júní 2002, alþjóðasamningi um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi 12. nóvember 1973 og samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu þann 24. febrúar 1987. Meirihluti íbúa landsins eru af úkraínskum uppruna eða um 78 % en um 17 % íbúa eru af rússneskum uppruna og 5 % eru af hinum ýmsu þjóðarbrotum. Úkraína er á lista Útlendingastofnunar yfir örugg upprunaríki, að undanskildum héruðunum Donetsk, Luhansk og Krím.

Í ofangreindum gögnum kemur m.a. fram að í lok árs 2013 hafi mótmæli hafist í Kænugarði og öðrum borgum Úkraínu. Upphaflega hafi verið um friðsöm mótmæli að ræða en síðar hafi átt sér stað átök fylkinga óeirðalögreglu og mótmælenda sem hafi leitt til mannfalls. Í kjölfar ofangreindra mótmæla og innlimunar Rússa á Krímskaga í mars 2014 hafi brotist út átök á milli hersveita aðskilnaðarsinna og Úkraínuhers í austurhluta Úkraínu. Í gögnunum greinir að fulltrúar frá Úkraínu, Rússlandi og aðskilnaðarsinnum hafi undirritað samkomulag um vopnahlé í september 2014, en að átök eigi sér enn stað á víð og dreif á svæðinu milli stjórnarhers og aðskilnaðarsinna, sem studdir séu af yfirvöldum í Rússlandi. Þrátt fyrir að átökin séu að mestu bundin við héruðin Donetsk og Luhansk í austurhluta Úkraínu hafi önnur svæði einnig orðið fyrir árásum og séu áhrif stríðsins margskonar. Samkvæmt ofangreindum gögnum sé vegalaust fólk innan landsins u.þ.b. 1,7 milljón manns.

Þá kemur fram í gögnum, m.a. ofangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins, að spilling sé viðvarandi vandamál í Úkraínu og birtist helst innan löggæslu- og dómskerfisins. Þá séu margar stofnanir sem starfi við að rannsaka og ákæra í spillingarmálum. Samtökin The National Anti Corruption Bureu (NABU) rannsaki spillingu hjá yfirvöldum á meðan lögreglan annist rannsókn spillingarmála á lægri stigum löggæslu. Í skýrslunni kemur fram að NABU rannsaki spillingu með skilvirkum hætti en rannsókn lögreglunnar hafi ekki verið mjög árangursrík. Þá veigri margir íbúar landsins sér við því að tilkynna spillingu innan stjórnkerfisins vegna skorts á viðeigandi úrræðum til að veita þeim stuðning og vernd. Þá kemur fram í ofangreindri skýrslu kanadísku útlendingamálanefndarinnar frá 2017 að í úkraínskum sakamálalögum sé kveðið á um framkvæmd þess að leggja fram kvörtun til lögreglu og til saksóknarembættisins. Þá sé í sakamálalögum kveðið á um við hvaða aðstæður heimilt sé að áfrýja athöfnum eða athafnaleysi lögreglu, falla undir þau tilvik m.a. ákvörðun lögreglu um að neita að rannsaka brotlega háttsemi, stöðva rannsókn og fella rannsókn niður.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a.   ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c.   aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2011). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærandi hefur borið fyrir sig að hann sé í hættu í heimaríki vegna þess að einstaklingar sem tengist fyrirtæki sem hafi svikið samning við hann séu á eftir honum. Kærandi kvað frænda sinn hafa tjáð sér að þessir einstaklingar séu annars vegar Oleksander Yanukovich, sonur fyrrverandi forseta landsins, og hins vegar Yury Vladimirovich Ivanyuschenko. Þá hefur kærandi borið fyrir sig að hann hafi mögulega verið skotmark í Euromaidan-mótmælunum árið 2014, vegna vitneskju sinnar um fyrirtækið og þess sem fram komi á vefsíðu hans um fyrirtækið. Þá hafi sprenging í Dnipropetrovsk árið 2012 sennilega verið ætluð honum og jafnframt hafi verið ráðist á hann í mars 2018 og eitrað fyrir honum í maí sama ár. Af framburði kæranda má ráða að hann telji öll framangreind atvik eigi rætur að rekja til þess að hann hafi átt þátt í að koma upp um fjársvik Esterra Shipping og framangreinda einstaklinga. Kærandi kveðst hafa leitað til lögreglu og yfirvalda en án árangurs.

Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða að hann óttist ofsóknir af hálfu núverandi yfirvalda í heimaríki sem hafa eða gætu náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Þá benda önnur gögn málsins ekki til þess að slíkar ofsóknir hafi átt sér stað eða að kærandi eigi þær á hættu.

Þótt frásögn kæranda sé lögð til grundvallar við úrlausn málsins fær kærunefnd ekki séð að þær athafnir sem kærandi lýsir að hann hafi orðið fyrir af hálfu umræddra manna feli í sér ofsóknir á hendur honum, sbr. 1. og 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Þótt fallist yrði á að kærandi ætti á hættu að verða fyrir athöfnum sem jafngilda ofsóknum af hálfu tilgreindra aðila er það jafnframt mat kærunefndar að kærandi geti leitað verndar gegn þeim athöfnum hjá úkraínskum stjórnvöldum. Í því sambandi hefur kærunefndin m.a. litið til gagna sem kærandi hefur sjálfur lagt fram og bera með sér að kvartanir hans vegna einstaklinga sem standa að baki fyrirtækinu Esterra Shipping hafi verið teknar til skoðunar hjá þar til bærum yfirvöldum í Úkraínu. Í þessu ljósi telur nefndin ekki trúverðugt að úkraínsk stjórnvöld hafi ekki vilja eða getu til að veita kæranda vernd gegn ofsóknum einstaklinga sem standa að baki fyrirtækinu eða annarra aðila, m.a. með því að ákæra og refsa fyrir þær athafnir, sbr. 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Í því sambandi er áréttað að gögn um heimaríki kæranda benda til þess að hann geti leitað til löggæsluyfirvalda vegna brota sem hann hafi orðið fyrir eða kunni að verða fyrir og þá sé til staðar kerfi sem kærandi geti leitað til telji hann að lögregla hafi ekki brugðist rétt við eða ef hann telur sig hafa verið beittan órétti af lögreglu. Þá kemur fram í framangreindum gögnum að borgarar geti kvartað beint til lögreglu og saksóknarembættisins. Vegna spillingar í landinu hefur þetta kerfi þó sætt gagnrýni sérstaklega þegar um sé að ræða einstaklinga sem séu andsnúnir stjórnvöldum. Þó benda gögn til þess að innanríkisráðuneyti landsins hafi hafið mál gegn fjölda lögreglumanna vegna brota þeirra í starfi og þá hafi aðrir verið beittir agaviðurlögum eða reknir úr störfum sínum hjá lögregluembættum.

Með vísan til ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. og 4. mgr. 38. gr. laganna.

Telur kærunefnd því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefndin að aðstæður hans þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Kærandi er einstæður karlmaður á fimmtugsaldri. Ekki hefur annað komið fram við meðferð máls kæranda en að hann sé almennt heilsuhraustur. Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Bann við endursendingu skv. 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli kæranda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

Athugasemdir við málsmeðferð Útlendingastofnunar

Kærandi gerir ýmsar athugasemdir við málsmeðferð Útlendingastofnunar, svo sem heimildarvinnu stofnunarinnar sem og hvernig upplýsingar úr skýrslum séu túlkaðar. Má af greinargerð ráða að kærandi telji að Útlendingastofnun hafi brotið gegn rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Það er mat kærunefndar að ekkert hafi komið fram í málinu sem bendir til þess að skort hafi á að nauðsynlegar upplýsingar lægju fyrir um ástandið í heimaríki kæranda, við ákvörðunartöku hjá Útlendingastofnun. Í því sambandi er tekið fram að kærunefnd hefur yfirfarið þau gögn sem aflað var við rekstur málsins, svo og skýrslur opinberra stofnana, og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Það er því mat kærunefndar að málsmeðferð Útlendingastofnunar í máli kæranda hafi verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Frávísun og frestur til að yfirgefa landið

Kærandi kom hingað til lands 28. ágúst 2018 og sótti um alþjóðlega vernd 30. ágúst s.á. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um vernd og dvalarleyfi hér á landi verið synjað og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi er við ágæta heilsu og kemur frá Vinnytsia-héraðinu í Úkraínu. Eins og fram hefur komið er Úkraína á lista Útlendingastofnunar yfir örugg upprunaríki, að undanskildum héruðunum Donetsk, Luhansk og Krím. Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 7 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið.

Athygli kæranda er vakin á því að ef hann yfirgefur ekki landið innan frests er heimilt að brottvísa honum. Brottvísun felur í sér bann við komu til landsins síðar og skal endurkomubann að jafnaði ekki gilda skemur en tvö ár, sbr. a-lið 2. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Lagt er fyrir kæranda að hverfa af landi brott. Kæranda er veittur 7 daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljugur.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. The appellant is requested to leave the country. The appellant has 7 days to leave the country voluntarily.

 

 

Anna Tryggvadóttir

 

Laufey Helga Guðmundsdóttir                                                                 Þorbjörg Inga Jónsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta