Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 81/2013.

Úrskurður

 

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 21. janúar 2014 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, nr. 81/2013.

 

1.
Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 7. ágúst 2013, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að stofnunin hefði ákveðið á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans þar sem hann hafi haft tekjur frá B ehf. í apríl 2013 samhliða því að þiggja greiðslur atvinnuleysisbóta. Var það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hann hafi starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði. Kæranda var einnig gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 84.379 kr. með inniföldu 15% álagi. Kærandi vildi ekki una ákvörðun Vinnumálastofnunar og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með kæru, mótt. 20. ágúst 2013. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun telur að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun.

 

Kærandi sótti síðast um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 7. maí 2012.

Vinnumálastofnun sendi kæranda bréf, dags. 9. júlí 2013, þar sem honum var tilkynnt að við samkeyrslu á gagnagrunni stofnunarinnar og ríkisskattstjóra hafi komið fram upplýsingar um ótilkynntar tekjur á kæranda í apríl 2013 vegna vinnu hjá B ehf. samhliða því að hann þæði atvinnuleysisbætur. Óskað hafi verið eftir skýringum á þessu hjá kæranda. Þar sem engar skýringar bárust frá kæranda var hin kærða ákvörðun tekin á fundi Vinnumálastofnunar 6. ágúst 2013 og tilkynnt honum með bréfi, dags. 7. ágúst 2013.

 

Kærandi hafði samband við Vinnumálastofnun 8. ágúst 2013 þar sem hann hafði ekki fengið greiddar atvinnuleysisbætur síðustu mánaðamót. Fékk kærandi þá upplýsingar um hina kærðu ákvörðun. Af hálfu kæranda kom fram í símtalinu að hann hefði látið starfsfólk þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar vita af vinnu sinni og að hann hefði fengið þær upplýsingar að hann ætti að skila launaseðli þegar hann bærist. Þá greindi kærandi frá því að hann hefði skilað inn launaseðli í maímánuði.

Launaseðill kæranda vegna vinnu hans fyrir B ehf. barst Vinnumálastofnun 8. ágúst 2013.

Vinnumálastofnun tók upp mál kæranda að nýju 15. ágúst 2013 með tilliti til nýrra gagna á grundvelli 24. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Var það mat Vinnumálstofnunar að framkomin gögn gæfu ekki tilefni til nýrrar ákvörðunar í máli hans og var fyrri ákvörðun staðfest. Kæranda var tilkynnt um þá ákvörðun með bréfi, dags. 16. ágúst 2013.

Af hálfu kæranda kemur fram í kæru að hann hafi í byrjun aprílmánaðar 2013 haft samband við Vinnumálastofnun og tilkynnt um tímabundna vinnu í einn mánuð. Kærandi kveðst hafa spurt hvort hann þyrfti að segja upp atvinnuleysisbótum á tímabilinu en fengið þær upplýsingar að þess þyrfti hann ekki heldur þyrfti hann að tilkynna um vinnuna þegar hann stimplaði sig í lok mánaðarins og skila inn launaseðlum. Kærandi kveðst ekki hafa fengið upplýsingar um hversu háar tekjur hann kæmi til með að fá frá B ehf. fyrr en 1. maí 2013 eða eftir að stimplun fór fram. Því hafi hann tilkynnt vinnuna í maímánuði og sent inn launaseðil.


 

Í greinargerð til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 18. september 2013, bendir Vinnumálastofnun á að lög um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verða atvinnulausir. Málið lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar sem tilkynnt hafi verið með bréfi, dags. 7. ágúst 2013, þar sem kæranda hafi verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Hafi honum einnig verið gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar.

Vinnumálastofnun vísar til ákvæðis 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og bendir á að annar málsliður taki á því þegar atvinnuleitandi starfar á vinnumarkaði, til lengri eða skemmri tíma, samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að hafa uppfyllt skyldu sína skv. 10. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar um að upplýsa Vinnumálastofnun um störf sín.

Stofnunin bendir einnig á 10. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun vísar til þess að í 13. gr. laganna segi jafnframt að það sé skilyrði fyrir því að launamaður teljist vera tryggður í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar að hann sé í virkri atvinnuleit. Í 14. gr. sömu laga sé að finna nánari útfærslu á því hvað telst til virkrar atvinnuleitar. Ljóst sé að aðili sem starfar á vinnumarkaði geti hvorki talist vera án atvinnu eða í virkri atvinnuleit í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Við samkeyrslu gagnagrunna Vinnumálastofnunar og ríkisskattstjóra hafi komið í ljós að kærandi var með tekjur frá B ehf. í apríl 2013. Kærandi hafi ekki tilkynnt stofnuninni um vinnu sína eða tekjur. Í rökstuðningi fyrir kæru greini kærandi frá því að hann hafi í byrjun aprílmánaðar haft samband við Vinnumálastofnun og tilkynnt um vinnuna. Vinnumálastofnun bendir á að af samskiptasögu kæranda við stofnunina sé ekki unnt að ráða að sú hafi verið raunin. Enn fremur fallist stofnunin ekki á þá röksemd kæranda að hann hafi haft samband við stofnunina í maímánuði og skilað inn launaseðlum í kjölfarið. Vinnumálastofnun hafi fyrst borist afrit af launaseðli kæranda 8. ágúst 2013. Vinnumálastofnun bendir á að samkvæmt skýrum verklagsferlum hjá stofnuninni skuli öll samskipti við bótaþega skráð í samskiptasögu. Samkvæmt samskiptasögu kæranda við stofnunina hafi kærandi ekki haft samband vegna vinnu sinnar fyrir B ehf. fyrr en eftir að viðurlagaákvörðun í máli hans hafi verið tekin.

Kærandi hafi ekki tilkynnt fyrir fram um störf sín fyrir B ehf. Vinnumálastofnun telur í ljósi afdráttarlausrar verknaðarlýsingar 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og þeirrar skyldu sem hvíli á atvinnuleitanda til að tilkynna um tilfallandi vinnu til stofnunarinnar, sbr. 35. gr. a laganna, verði að telja að kærandi hafi brugðist skyldum sínum.

 

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 19. september 2013, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum til 3. október 2013. Ekki bárust athugasemdir frá kæranda.

 

 

2.
Niðurstaða

Mál þetta lýtur að því hvort kærandi hafi aflað atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti í skilningi 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Með hliðsjón af mikilvægi ákvæðisins við framkvæmd atvinnuleysistryggingakerfisins þykir réttlætanlegt að varpa ítarlegu ljósi á forsögu þess og tilgang. Markmiðið með þessu er að setja fram skýr viðmið um hvernig beri að túlka ákvæðið.

Þegar lög um atvinnuleysistryggingar voru upphaflega sett var kveðið á um þá meginreglu í fyrstu málsgrein 60. gr. laganna að sá sem aflar sér eða reynir að afla sér atvinnuleysisbóta samkvæmt lögunum með svikum getur misst rétt sinn í allt að tvö ár og þurft að sæta sektum. Það var hvergi skýrlega skilgreint hvað væru svik í skilningi ákvæðisins og er sú ályktun nærtæk að ákvæðinu hafi sjaldan verið beitt fram til þess tíma sem því var breytt með setningu 23. gr. laga nr. 134/2009. Þessi nýja regla tók gildi 1. janúar 2010 og veigamesti tilgangur hennar var að sporna gegn „svartri atvinnustarfsemi“.


 

 

Í athugasemdum greinargerðar við 23. gr. frumvarps þess er síðar varð að lögum nr. 134/2009 kom meðal annars fram að beita ætti ákvæðinu í þrenns konar tilvikum, í fyrsta lagi þegar atvinnuleitandi veitir Vinnumálastofnun vísvitandi rangar upplýsingar í umsókn um atvinnuleysisbætur sem leiða til þess að hann telst ranglega tryggður að fullu eða að hluta samkvæmt lögunum, í öðru lagi þegar atvinnuleitandi starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. laganna og í þriðja lagi þegar atvinnuleitandi verður uppvís að þátttöku á vinnumarkaði án þess að hafa tilkynnt um tilfallandi vinnu, sbr. nú 35. gr. a.

Með setningu 4. gr. laga nr. 103/2011 var orðalagi fyrsta málsliðar 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar breytt. Frá og með 3. september 2011 hefur ákvæðið verið svohljóðandi:

Sá sem lætur vísvitandi hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða veitir vísvitandi rangar upplýsingar sem leiða til þess að hann telst ranglega tryggður að fullu eða að hluta samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en hann sækir aftur um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. eða um tilfallandi vinnu skv. 35. gr. a. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.

Þegar þessi texti er skýrður er óhjákvæmilegt að horfa til þeirra athugasemda sem vitnað var hér til að framan um 23. gr. laga nr. 134/2009. Þannig er ljóst að fyrsti málsliður ákvæðisins á við ef atvinnuleitandi hefur með vísvitandi hætti hegðað sér með tilteknum hætti á meðan slíkt huglægt skilyrði á ekki við ef háttsemin fellur undir annan málslið ákvæðisins. Þessi munur stafar af því að annar málsliðurinn tekur á því þegar atvinnuleitandi starfar á vinnumarkaði, til lengri eða skemmri tíma, samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að hafa uppfyllt skyldu sína skv. 10. gr. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar að upplýsa Vinnumálastofnun um þessa atvinnuþátttöku.

Sérstök ástæða er til að taka fram að orðalagið „[h]ið sama gildir“ í upphafi annars málsliðar 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar vísar einvörðungu til viðurlaganna sem upp eru talin í fyrsta málslið ákvæðisins en ekki til þeirra huglægu skilyrða sem þar þurfa að vera uppfyllt. Þessi túlkun byggir meðal annars á því að greiðsla atvinnuleysisbóta er ekki ætluð þeim sem sinna störfum á vinnumarkaði og því teljast það svik í skilningi annars málsliðar 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar ef atvinnuleitandi sinnir starfi á vinnumarkaði án þess að láta Vinnumálastofnun vita af því með þeim hætti sem kveðið er á um í 10. gr. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar. Þessi skilningur er í samræmi við orðalag annars málsliðar 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og fær einnig stoð í athugasemdum greinargerðar við 23. gr. frumvarps þess er síðar varð að lögum nr. 134/2009.

Hvort sem háttsemi fellur undir fyrsta eða annan málslið 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar eru viðurlög við bótasvikum ströng en þau fela í sér að atvinnuleitanda ber ekki að eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en hann sækir aftur um atvinnuleysisbætur. Jafnframt ber atvinnuleitanda að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr. laganna, sbr. lokamálslið 60. gr. laganna.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi við störf hjá B ehf. í apríl 2013. Af hálfu kæranda er því haldið fram í kæru að hann hafi haft samband við Vinnumálastofnun og tilkynnt um tilfallandi störf í apríl 2013 og að hann hafi fengið þær upplýsingar að nægilegt væri að hann þyrfti ekki að segja sig af atvinnuleysisbótum heldur tilkynna um vinnuna þegar hann myndi stimpla sig undir lok mánaðarins og skila inn launaseðli.


 

Af gögnum málsins, þar með talið samskiptaskrá Vinnumálastofnunar við kæranda, verður ekki ráðið að kærandi hafi tilkynnt Vinnumálastofnun um störf sín hjá B ehf., þ.e. um hina tilfallandi vinnu í skilningi 35. gr. a. Í 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er kveðið á um þá skyldu atvinnuleitanda að upplýsa Vinnumálastofnun um breytingar á högum viðkomandi eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, eins og námsþátttöku og tekjur fyrir tilfallandi vinnu. Þá er atvinnuleitanda skv. 10. gr. laga um atvinnuleysistryggingar skylt að tilkynna til Vinnumálastofnunar án ástæðulausrar tafar þegar hann hættir virkri atvinnuleit. Að mati úrskurðarnefndarinnar getur kærandi ekki borið fyrir sig vankunnáttu í lögunum þar sem víðtækar upplýsingar um stöðu atvinnuleitenda liggja fyrir, meðal annars á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Þar kemur skýrt fram að atvinnuleitanda ber að veita nákvæmar upplýsingar um hagi sína, meðal annars vegna tilfallandi tekna.

Í ljósi afdráttarlausrar verknaðarlýsingar í 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og þeirrar skyldu atvinnuleitanda, sem kveðið er á um í 35. gr. a sömu laga, verður að telja að kærandi hafi brugðist trúnaðar- og upplýsingaskyldum sínum gagnvart Vinnumálastofnun. Háttsemi kæranda hefur því réttilega verið heimfærð til ákvæðis 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda ber því að sæta viðurlögum þeim sem þar er kveðið á um, enda var hann starfandi á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann þáði atvinnuleysisbætur án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um tilfallandi vinnu eða að atvinnuleit hafi verið hætt. Með vísan til framangreinds og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram fyrir hinni kærðu ákvörðun, verður hún staðfest.

Kæranda ber einnig að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 84.379 kr. en inni í þeirri fjárhæð er 15% álag skv. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 

 


 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar sem tilkynnt var með bréfi, dags. 7. ágúst 2013, í máli A, þess efnis að hann skuli ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði er staðfest.

Kærandi skal endurgreiða Vinnumálastofnun ofgreiddar atvinnuleysisbætur, samtals að fjárhæð 84.379 kr.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir,

formaður

 

 

                        Hulda Rós Rúriksdóttir                                             Helgi Áss Grétarsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta